Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1997, Side 5
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997
5
Fréttir
Snjóflóðagarðar á Flateyri:
Opinberrar rann-
sóknar krafist
Guðmundur S. Gunnarsson,
vegaverkstjóri og rekstrarstjóri
Vegagerðarinnar á Flateyri, og Ön-
undur Ásgeirsson í Reykjavík hafa
ritað sýslumanni á ísafirði bréf
þar sem þeir krefjast opinberrar
rannsóknar á framkvæmd við
snjóflóðavarnargarða á Flateyri, í
bréfi sínu krefjast þeir þess að
rannsakaður verði hönnunarþátt-
urinn, sem og framkvæmdin við
byggingu garðanna. Þeir lýsa í
greinargerð efasemdum sínum við
að garðarnir muni koma að
nokkru gagni við að verja byggð-
ina áfóllum vegna snjóflóða og
spyrja um ábyrgð hönnuða í því
efni.
Lagt er til að sýslumaður skipi
óháða sérfróða rannsóknarnefnd
sem yfirfari alla þætti málsins og
geri tillögur, óháðar yfirstand-
andi framkvæmd. Þá leggja þeir
til að fengnir verði kunnugir
menn úr héraðinu til ráðgjafar.
Báðir eru þeir Guðmundur og
Önundur Flateyringar og hefur
Guðmundur siðustu áratugi fylgst
grannt með öllum þeim snjóflóð-
um sem komið hafa úr Eyrarfjalli,
sem og snjósöfnun þar. í greinar-
gerð sinni segjast þeir félagar trúa
því að mjög alvarleg mistök hafi
átt sér stað við tillögugerð og
hönnun umræddra mannvirkja og
þeir séu sannfærðir um að þau
muni aldrei koma að fullnægjandi
gagni til snjóflóðavarna fyrir Flat-
eyri.
-rt
Pétur Blöndal alþingismaður:
Fráleitt
að kaupa
Vamargarður
<*4
a. 6ii
'S%n 4
-Jv
Umde
uppkau
1. Goöatún 14
(Valdimar Jónsson)
2. Ólafstún 9
(Sigfríður Ásbjörnsd.)
3,. Ólafstún 14
(Útgfél. Rateyrar)
3
f 4. Ólafstún 12
§. (Hjálmur hf.)
5. Ólafstún 7
(Jón Fr. Jónsson)
6. Ólafstún 6
(Pálf Önundarson og
Magnea Guömund.)
7. Ólafstún 5
(Isafjaröarbær)
ixca
„Þessi krafa bæjarstjórans er í
andstöðu við lögin og kemur ekki til
greina. Húsin verða ekki bæði var-
in og keypt, það er fráleitt," segir
Pétur Blöndal, alþingismaður Sjálf-
stæðisflokks, um þá kröfu Kristjáns
Þórs Júlíussonar, hæjarstjóra ísa-
fjarðarbæjar, að keypt verði upp sjö
íbúðarhús við Ólafstún og Goðatún
á Flateyri.
Eins og DV skýrði frá á þriðjudag
eru húsin öll í skjóli 400 miiljóna
króna vamargarða sem verið er að
reisa ofan við þorpið. Ákvörðun um
byggingu varnargarðanna var tekin í
framhaldi af samþykkt bæjarstjórnar
ísafjarðarbæjar sem kvað á um að
byggðin yrði varin en ekki yrði grip-
ið til þess ráðs að kaupa upp húseign-
ir, svo sem gert var í Súðavík, þar
sem íbúar á hættusvæðum byggðu
ný hús utan hættusvæðis. í lögum
um varnir gegn snjóflóðum og
skriðufollum segir orðrétt: „Sé hag-
kvæmara talið, til að tryggja öryggi
íbúanna gagnvart ofanflóðum, er
sveitarstjóm heimilt að gera tillögu
um að kaupa eða flytja húseignir í
stað annarra varnaraðgerða sem Of-
anflóðasjóður fjármagnar að hluta
eða öllu leyti,“ segir i lögunum.
Pétur segir að ekki sé hægt að ætl-
ast til þess af skattborgurum að þeir
reiði fram miOjónatugi til viðbótar í
því skyni að kaupa upp húseignir.
„AOir aðrir húseigendur í land-
inu sem þurfa að tryggja sig gegn vá
verða taka þátt í kostnaðinum, t.d.
með því að greiða iðgjald í bmna-
tryggingar eða aðrar tryggingar. Þá
þurfa þeir í sumum tilvikum að
borga sjálfir tjónið svo sem þegar
um er að ræða alkalískemmdir. Það
undrar mig hvað varðar þessi snjó-
flóðavamarmódel á Vestfjörðum að
húseigendur taka engan þátt í
kostnaði við að verja eigur sínar;
ekki einu sinni 1 prósent. Ég hefði
talið eðlOegt að þeir hæru 10 tO 15
prósenta hlut af tjóni sem og kostn-
aði við aðgerðir við að verja eigur
sínar,“ segir Pétur.
„Þarna eru menn að ganga enn þá
lengra en maður hefur séð áður þar
sem þeir ætla bæði að leggja á al-
menning kostnað við varnir og ætla
síðan skattborgurum að kaupa upp
eignirnar. Þetta er eins og þegar
bæjarstjórinn lagði tO að settur yrði
2 þúsund króna skattur á hvem
landsmann þar sem fólk munaði
ekkert um slíka smáupphæð. Það
var gert á einu kvöldi og fór ekki
hátt. Það var skeOt á 400 miOjóna
króna skatti á augabragði á aOa
húseigendur í landinu en svo eru
menn búnir að fjasa árum saman
um fjármagnstekjuskatt sem gefur
800 miOjónir króna,“ segir Pétur.
Hann segir að aOs kosti 8 til 10
mOljarða króna að verja aOa byggð
sem er á hættusvæðum vegna snjó-
flóða. Þannig dugi umræddar 400
miOjónir króna aðeins fyrir vöxtum
af þeirri upphæð.
„Við erum rétt að byrja að sjá
topp ísjakans og síðan eigum við eft-
ir að finna út hvert við eigum að
flytja Selfoss. Það eru mun meiri
likur á að hús þar verði fyrir jarð-
skjálfta en að hús á Siglufirði verði
fyrir snjóflóði,“ segir Pétur.
Umrædd 7 hús á Flateyri eru ým-
ist í eigu einstaklinga, fyrirtækis
eða bæjarins. Hjálmur hf. og dóttur-
félag, Útgerðarfélag Flateyrar hf.,
sem Einar Oddur Kristjánsson al-
þingismaður stjórnaði lengst af,
eiga Ólafstún 12 og 14. ísafjarðarbær
á Ólafstún 5. Hin 4 húsin eru í eigu
einstaklinga á staðnum. -rt
Skólahald í Mýrdal:
Fundað um framtíö Ketilsstaðaskóla
Borgarafundur var í Vík í Mýrdal
í gærkvöld um skólamál í sveitarfé-
laginu, en rætt hefur verið um að
leggja niður KetOsstaðaskóla í Mýr-
dal og sameina starfsemi hans
Gnmnskólanum í Vík. Um 14 nem-
endur eru nú í skólanum og telja
ýmsir að hagkvæmara sé að leggja
skólann niður og aka nemendum
hans tO Víkur en miOi skólanna eru
um 12 kOómetrar.
Á fundinum í gærkvöld var kynnt
skýrsla sem Rannsóknarstofnun Kenn-
araháskóla íslands hefur gert um
framtíðarskólahald í Mýrdalnum en í
henni er mælt með að kenna yngstu
börnunum í hreppnum að Ketilsstöð-
um í tOraunaskyni þannig að bömun-
um úr Vík verði ekið að KetOsstöðum,
en svipað fyrirkomulag er viðhaft á
Neskaupstað og á Hornafirði.
Inn í málið blandast um þriggja
miOjóna króna fjárframlag úr Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga sem feOur
niður ef skólahald á KetOsstöðum
leggst af. Jafnframt myndu tvær
kennarastöður leggjast niður í
hreppnum. „Það þýddi það að við
værum að fækka fólki í sveitarfélag-
inu, en hver íbúi og hvert starf í
litlu sveitarfélagi er mjög mikil-
vægt. Á sveitarstjórnin að standa að
því að fækka hér fólki?" sagði Haf-
steinn Jóhannsson, sveitarstjóri í
Mýrdal, í samtali við DV. -SÁ
JAPIS