Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1997, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997
Neytendur
DV
Verökönnun á hjólbarðaskiptum:
Sama verð og í fyrra
Nú rennur upp vertíð dekkjaverk-
stæðanna en samkvæmt umferðar-
lögum eiga bUar að vera komnir
með sumardekkin undir þann 15.
aprU.
DV gerði verðkönnun á tíu dekkja-
verkstæðum sem valin voru af
handahófi í símaskrá. Sjö fyrirtækj-
anna eru á höfuðborgarsvæðinu, eitt
í Keflavík, eitt á Akureyri og eitt á
ísafirði. Munurinn mUli hæsta og
lægsta verðs er 13%. Niðurstöðurnar
í verkönnuninni gefa til kynna að
verðsamkeppni sé á höfuðborgar-
svæðinu en dekkjaverkstæðin utan
þess raða sér í efstu sætin.
Af samtölum við hjólbarðamenn
kom fram að verð hefði ekki breyst
síðan í fyrra og enginn þeirra gat í
raun munað hvenær verð hefði síð-
ast hækkað. í verðkönnuninni er
gert ráð fyrir heUdarpakkanum, það
er að taka dekk undan, umfelga,
jafnvægisstilla og síöan setja
dekkjaganginn undir aftur.
í þessari verðkönnun var aðeins
athugað verð á skiptingu á fólksbU-
um og þeim tegundum sem eru á
jámfelgum. Að skipta um á hjólum
sem hafa álfelgur er vandasamara
að þeirra sögn og getur kostað
meira í sumum tilfeUum.
Súluritið hér tU hliðar gefur að-
eins tU kynna staðgreiðsluverð sem
er yflrleitt 10% lægra en greiðslu-
kortaverð. Hjólkó í Kópavogi býður
sérstakan afslátt tU eldri borgara en
fyrir þá kostar verkið 3000 krónur.
Hjólbarðaverkstæðið ísafirði, Barð-
inn og Sólning bjóða sama verð,
hvort sem greitt er með korti eða
staðgreitt. -jáhj
Dekkjaskipti
3.400 kr.
3.300
3.200
3.100
3.000
2.900
2.800
2.700
- staðgreiðsluverð á skiptingu, umfelgun ogjafnvægisstlllingu -
Wm 3.^00 3.400
3.350 3.350
3.366 %
3.240
3.024
3.060
2.970
c
c
(0
CÚ
X.
X.
0)
■D
</)
0)
z
•o
-C
fö
«0
V.
<ö
£t
'O
X
3.150|
c 'O >» 0> ka 3
’C
3 UO <
</) 1 C
> JC
C3 :0
iO S 'O <u ■o n e ■o tm c js (Q
JO 'O JC 'O r c 'O JX o
X X X v> Q
W’fSMr v mmMSmíhS
ife
<0
aí
k.
ra
iO
'O
£L
ÖJO
o
<n
c
o
ST
£
(0
«0
.2. (Q
'O
X
<Q
fi
(Q
CT
(Q
c/>
(/>
1—
O
>
CQ
iO
Mm
(Q
'O
EBg
Reglur um hjólbarða
Á hjólum á sama ási
skulu vera hjólbarðar af
sömu stærð og gerð og með
sambærilegu mynstri.
Mynstur hjólbarða skal
ná tUskilinni dýpt á þrem-
ur fjórðu hlutum slitflatar-
ins, sitt hvorum megin við
miðju hans.
Fólksbifreið skal búin
hjólbörðum með a.m.k. 1,6
mm mynsturdýpt.
Hjólbarðar undir bifreið
sem er 3500 kg eða minna
að leyfðri heildarþyngd
skulu allir vera sömu gerð-
ar.
Hjól skulu vera í jafn-
vægi (statisku og dynamis-
ku).
Bifhjól skal búið hjól-
börðum með a.m.k. 16 mm
mynsturdýpt.
Hjólbarðar á bifhjóli
skulu gerðir fyrir a.m.k.
tæknilegan hámarkshraða
þess.
Úr reglugerð um gerð
og búnað ökutækja frá
1995.
Hraðamerking á hjólbörðum
Almennt má segja
um merkingar á hjól-
börðum að tölurnar
gefi upp stærðir og að
bókstafirnir sýni fyr-
ir hvaða not dekkin
eru ætluð.
Hraðatáknið (sjá
töflu) gefur til
kynnna þann hraða
sem dekkið þolir mið-
að við uppgefna
hleðslutölu frá fram-
leiðanda.
Hjólbarði með
merkinguna SR í
ramma myndi þola
180 km hraða (radíal).
Taflan skýrir þá sjálf
hvað bókstafirnir
Dýða í hraða.
Hradatákn Km/klst.
M 130
N 140
P 150
Q 160
R 170
S 180
T 190
U 200
H 210
V 240
Z +240
Miðvikudaginn 23. apríl mun
aukablað um sumarbústaði fylgja DV.
BlaSiS verSur fjölbreytt og efnismikiS en í
því verður fjallað um flest það sem viSkemur
sumarbústöSum. TalaS verSur viS eigendur
sumarhúsa, bent á skemmtilegar tómstundir í
bústaSnum. Einnig verSur fjallaS um kostnaS
viS byggingu sumarhúsa og hvar hægt er aS
fá upplýsingar um lausar lóSir. Þá verSa ábend-
ingar varðandi gróSursetningu og grasatínslu
í kringum bústaSinn.
Þeir sem hafa áhuga á að koma efni í blaðið
hafi samband við Ingibjörgu ÓSinsdóttur,
ritstjórn DV, í síma 550-5000.
ATH. ! Bréfsími ritstjórnar er 550-5999.
Þeir sem hafa áhuga á aS auglýsa í þessu
aukablaðið vinsamlega hafi samband viS
Gústaf Kristinsson í síma 550-5731.
Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagurinn 17. apríl.
Dósakúlurnar
gerðar öruggari
- eru núna þjóf- og barnheldar
Söfnunarfyrirtæki skátahreyfing-
arinnar, Þjóðþrif, hófst handa í
fyrra með að breyta dósakúlunum
sínum til þess að gera þær öruggari
fyrir börnum. Breytingum var lokið
í vetur.
„Við áttum við sama vandamál að
stríða og aðrir sem hafa svona söfn-
unarstaði að krakkar áttu það til að
troða sér inn í kúlumar og lokast
þar inni. Við þurftum stundum að
bjarga bömum úr sjálfheldu sem
þau höfðu komið sér í með því að
troða sér í kúluna," segir Gylfi Þ.
Gíslason, verkefnisstjóri Bandalags
íslenskra skáta. Þjóðþrif á 50-60 kúl-
ur víðs vegar um höfuðborgarsvæð-
ið og er þeim
ætlað að taka
við einnota
drykkjarílát-
um til
styrktar
æskulýðsstarfi.
„En það var ekki bara hættan fyr-
ir börnin sem knúði okkur í þetta
heldur var miklu stolið úr kúlunum
og þar voru fuliorðnir líka að
verki,“ segir Gylfi.
Breytingin á kúlunum felst í því
að búið er að loka tveimur götum
með álplötum en á tvö göt var fest
eins metra langt rör. Rörið liggur út
frá kúlunni upp á við og renna dós-
ir og flöskur ljúflega niður. Núna er
rörið líka hærra og því eiga börn
ekki auðvelt með að troða sér í kúl-
umar.
Gylfi segir að þessi breyting hafi
ekki kostað mikið enda hafi þeir no-
tið stuðnings frá fyrirtækjum.
„Við höfum bent Sorpu á þessa
lausn en það er ekki víst að hún
henti gámum hennar þótt hún sé
góð fyrir kúlumar," segir Gylfi.
Gylfi Þ. Gíslason kíkir ofan í eina af dosakúlum Þjóðrifa en öllum dosakúl-
um hefur verið breytt með tilliti til öryggis barna.
Dagblaðagámar:
Verið að skoða tillögur
Tæknimenn Sorpu hafa verið að
skoða nýjar hugmyndir að lúgum á
dagblaðagámum síðan á mánudag
er fréttist um hörmulegt slys er
tveir bræður krömdust til bana í
Svíþjóð í gámi eins og DV greindi
frá á mánudag og þriðjudag. Að
sögn Herdisar Storgaard bama-
slysavarnafulltrúa hefúr hún verið í
stöðugu sambandi við tæknimenn
Sorpu þessa vikuna og fullyrti hún
að í Sorpu væri fullur vilji til að
koma í veg fyrir slys í gámum. Að
sögn Herdísar hefur hún fengið
margar upphringingar frá foreldr-
um vegna þess að böm hafa verið
að leika sér i gámum. Foreldrum
ber saman um að bömin séu að
sækja í teiknimyndablöð, klámblöð
og jafnvel peninga.