Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1997, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1997, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997 9 Belgar fordæma haröstjórn hersins í Saír: Uppreisnarmenn þrengja að Mobutu Uppreisnarmenn í Saír undir stjórn Laurents Kabilas hafa þrengt enn frekar að Mobutu Sese Seko, forseta landsins, með því að styrkja stöðu sína í öllum helstu iðnaðar- héruðunum og veittu honum í gær þriggja daga frest til að hafa sig á brott. Uppreisnarmennimir lögðu Lub- umbashi, næststærstu borg lands- ins, undir sig í gær og ráku stuðn- ingsmenn Mobutus á flótta frá flug- vellinum og út í skóg. Mobutu, sem hefur haldið Saír í jámgreipum sínum frá árinu 1965, ræddi við nýjan forsætisráðherra sinn, hershöfðingjann Likulia Bol- ongo, í höfuðborginni Kinshasa. Allt var með kyrrum kjörum í borginni í gær en til átaka kom þar á miðviku- dag milli hermanna og stuðnings- manna stjómarandstöðunnar. Belgísk stjómvöld, sem eitt sinn vom nýlenduherrar í Saír, sökuðu Mobutu um að hafa staðiö fyrir valdaráni hersins til þess eins að geta haldið í völdin og fordæmdu Belgar það sem þeir kölluðu „alræöi hersins". Frakkar, sem hafa lengi stutt við bakiö á Mobutu, hvöttu til þess að skipt yrði um stjóm í landinu á frið- saman hátt en um leið drógu þeir í efa lýðræðisást Kabilas og sögðust ekki vissir um að hann mundi boða til kosninga. Kabila lýsti því yfír í gær að upp- reisnarmenn mundu stöðva sókn sína í þrjá daga til að gefa Mobutu færi á að semja um valdaafsal sitt, annars yrði sótt fram gegn honum á öllum vígstöðvum. Erlendir hermenn era í við- bragðsstöðu í nágrannaríkjum Saírs, reiðubúnir að flytja á brott er- lenda ríkisborgara gerist þess þörf. Bjami Sigtryggsson, upplýsinga- fulltrúi í utanríkisráðuneytinu, sagði í samtali við DV í gær að ekki væri vitað til þess að neinn íslend- ingur væri í Saír. Rauði krossinn og Hjálparstofiiun kirkjunnar sögðu að þar væri enginn á þeirra vegum. Bjami sagði að ráðuneytið ætti erfitt með að ganga úr skugga um það á meðan engin beiðni um aðstoð hefði borist. Bærist hins vegar slík beiðni, yrði þegar gripið tO viðeig- andi aðgerða. Reuter Times skorar á Blair og Major í kapp- ræður Breska blaðið Times skoraði í morgun á þá Tony Blair, leiðtoga Verkamannaflokksins, og John Major forsætisráðherra að halda kappræðufund í sjónvarpi í boði blaðsins. Viðræður milli frambjóðend- anna og sjónvarpsstöðva um slík- ar kappræður fóru út um þúfur i síðasta mánuði og sakaði Major Blair þá um að flýja af hólmi. Samkvæmt skoðanakönnun í blaðinu Independent í morgun er fylgi Verkamannaflokksins nú 52 prósent en íhaldsflokksins 30 prósent. Prótín lykill að Parkinson? Rannsóknir sænskra vísinda- manna á prótíninu Nurrl kuxma að leiða tíl nýrrar meðferðar við Parkinsonsveiki. Prótín þetta gegnir mikilvægu hlutverki á fóstmrskeiðinu í myndun heila- frama sem framleiða taugaboð- efiiið dópamín. Prótínið viðheld- ur síðan starfsemi dópamínfrum- anna. Parkinsonssjúklinga skort- ir dópamin og þeir missa smám saman stjóm á hreyfmgum sín- um. Reuter Þessi dvergsilkiapi, sem er minnsta apategund f heimi, kjamsar hér á engi- sprettu í dýragarðinum í Antwerpen í Belgíu. Apinn, sem er á stærö viö bý- flugu þegar hann kemur f heiminn, verbur 15 sentímetra hár þegar hann er fullvaxinn. Hann nærist á engisprettum, eplum, sellerf og stundum banön- um. Sfmamynd Reuter Við fögnum því að bjóða aftur upp á gæðaskó frá í verslunum okkar STEINAR WAAGE . ------------- ^ SKÓVERSLUN ^ SÍMI 551 8519/ * Veltusundi við Ingólfstorg * Sími 5521212 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN / Sími 568 9212/ Utlönd Bikinímyndir af Viktoríu valda uppnámi í Svíþjóð Sænska kvöldpress- an birti í gær samsett- ar myndir af Viktoríu Svíaprinsessu sem sýna hvemig hún kynni að líta út í bik- iní og brutu þar með blað í umfjöllun um sænsku konungsfjöl- skylduna. „Þetta er ósiðlegt og smekklaust," sagði upp- lýsingafulltrúi sænsku konungs- hallarinnar við fréttamenn. „Lög- fræðingar okkar era að skoða málið og munu taka ákvörðun um hvort eitthvað verður að- hafst í málinu.“ Myndirnar birtust upphaflega í sænska vikuritinu Se & Hör sem hafði sett höfuð prinsessunnar, sem er við nám í Frakklandi, við mynd af fyrirsætu sem auglýsti sundfatnað. Fyrirsögnin var: „Vikt- oría, svona viljum við sjá þig í sumar." Sænsku síðdegis- blöðin Aftonbladet og Expressen notuðu tækifærið og birtu úr- klippur úr vikuritinu. Reuter BÓNUS- TILBOÐ SAMSUNG SAMSUNG Sæiuung CX-5368T 21" Black Matrix-myndlampi, 90 stöbva minni, textavarp, Scart-tengi, abgerbastýring á fjarstýring o.m.rl. r Vm iMR4á.>Sð,-- kr. rtjr. 44.900.5 SAMSUNG vní iiw;104.?Sð,- kt rijc 95.900 28" Tinted Black myndlampi, 40 \ 100 stereo-magnari minm, VmÍ íiur:7v.tCð,- kr. rfjr. 68.900 CX-5073 Z til meðtextavarpiá 35.900,- 30.900,s Vní íhr. S.9S0,- kr. tfjr. Viri iian 2s.y£0,- kr. ttjr. 28.900.5 Grensósvegi 11 Sími: 5 ÖÖ6 8Ö6 SAMSUNG SAMSUNG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.