Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1997, Síða 12
myndbönd
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997 ■
Angel Baby:
Hugsjúk ást
★★★
Angel Baby segir frá ástarsambandi tveggja einstak-
linga sem hittast í meðferðarhópi á geðdeild. Harry er
bráðgáfaður tölvuforritari sem ekkert hefur unnið í
þrjú ár eftir að hann reyndi að fremja sjálfsmorð. Með-
ferðin og lyfin virðast vera að virka og halda röddun-
um í hausnum á honum í skeflum. Kate er hins vegar
að berjast við ranghugmyndir og ofsóknaræði en hún
heldur að vemdarengill hennar sendi henni skilaboð í gegnum sjónvarpið.
Þau verða ástfangin upp fyrir haus en þegar Kate verður ólétt hætta þau að
taka lyfin sín með þeim afleiðingum að geðveikin tekur sig upp hjá þeim og
að lokum kemur i ljós að þau era algerlega ófær um að sjá um sig sjálf, hvað
þá að þau geti fætt og alið barn. John Lynch sást varla í mörg ár eftir stór-
leik í Cal en sést núna í hverri myndinni á fætur annarri. Hann er öruggur
í hlutverki Harrys en túlkrm Jacqueline McKenzie á Kate er sérstaklega eft-
irminnileg. Þessi fyrirtaks frumraun leikstjórans Michaels Rymer er sterk
tragidía og vann víst til margra verðlauna í Ástralíu en Ástralir virðast
vera orðnir sérfræðingar í að búa til frumleg og skemmtileg kvikmynda-
verk.
ANGEL BABY. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Michael Rymer. Aðalhlut-
verk: John Lynch og Jacqueline McKenzie. Áströlsk, 1995. Lengd: 100
mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ
Changing Habits:
Óþarfleg hamingja
★★★ ví
Susan Teagarden er stelsjúkur listmálari sem
vinnur í tískuvöruverslun. Til að redda sér ódýru
húsnæði fer hún í nunnuklaustur og lýgur einhverri
sorgarsögu að abbadísinni. Hún fær þar húsaskjól
gegn þvf að hjálpa til við hússtörfin. Á meðan hún
reynir að aðlagast aganum í klaustrinu gerir hún
upp sakir við föður sinn, drykkfelldan listmálara
sem hún kennir um sjálfsmorð móður sinnar, og
stofnar til ástarsambands við eiganda búðar sem hún
stelur gjaman f. Söguþráður myndarinnar er létt-
geggjaður en aðalatriðið er þó grafalvarleg sorgar-
saga og myndin siglir þvi milli léttleika og táradrama. Þetta gengur upp
því að handritið er vel skrifað og uppfullt af skemmtilegum persónuleik-
um sem eru vel túlkaðir af leikurunum. Moira Kelly er frek og frökk í
aðalhlutverkinu en senuþjófurinn er Christopher Lloyd sem sýr.ir öflug-
an leik sem drykkjurúturinn faðir hennar. Undir lokin siglir myndin þó
upp úr táradalnum í óþarflega mikla hamingju svo að jaðrar við væmni.
CHANGING HABiTS. Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Lynn Roth. Aðalhlut-
verk: Moira Kelly, Christopher Lloyd og Dylan Walsh. Bandarísk, 1996.
Lengd: 95 mín. Ollum leyfð. -PJ
Twister:
*** Hugvit gegn náttúruöflunum
í Oklahoma er yfirvofandi einn af þeim stormum
sem skapað geta hvirfilbylji og hópur vísindamanna
bíður spenntur. Jo Harding er í forsvari fyrir hóp-
inn sem ætlar að reyna að koma mælitækjum í veg
fyrir einhvern hvirfilbylinn. Fyrrum samstarfsmað-
ur hennar og eiginmaður, Bill, kemur ásamt nýju
kærastunni sinni með skilnaðarpappíra til undirrit-
unar en þeir gleymast fljótt þegar hann kemst að því
hvað er að gerast og stenst ekki mátið að slást í for.
Við tekur æsilegur eltingaleikur þar sem vísinda-
mennimir þeysa á hraðskreiðum trukkum um slétt-
ur Oklahoma og reyna að geta sér til um þær leiðir sem hvirfilbyljirn-
ir fara þegar þeir myndast. Bill Paxton og Helen Hunt eru hæfilega
hressileg í hlutverkum brjálæðinga númer eitt og tvö, aðrir leikarar
standa sig ágætlega og enginn illa. í aðalhlutverkinu eru þó tæknibrell-
urnar sem ganga bara vel upp í þessari mynd. Öfugt við t.d. ID4 er ekki
bara verið að monta sig af tölvutækninni heldur eru brellurnar notaðar
skynsamlega til að byggja upp spennu og koma yfirþyrmandi ofsa
hvirfilbyljanna til skila á skjánum. Hvergi er dauðan punkt að finna
hjá hasarsérfræðingnum Jan De Bont og myndin er því fyrirtaks af-
þreying.
TWISTER. Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Jan De Bont. Aðalhlut-
verk: Helen Hunt og Bill Paxton. Bandarísk, 1996. Lengd: 108 mín. Öllum
leyfð. -PJ
The Great White Hype:
Sölubrella *★*
Hér er Samuel L. Jackson í hlutverki hnefa-
leikaumbans Freds Sultans sem hefur núverandi
heimsmeistara á sínum snærum. Hann reynir að
mjólka hvem dropa úr titli skjólstæðings síns og
leyfir honum ekki að berjast við þann eina sem í
raun getur ógnað veldi hans en gallinn er að áhugi
áhorfenda fer dvínandi og peningamir streyma ekki
eins strítt og áður. Fred Sultan grefur því upp eina
manninn sem sigrað hefur heimsmeistarann hans í
hringnum, rokktónlistarmann nokkum sem aldrei
hefur keppt sem atvinnumaður en rotaði núverandi
heimsmeistara þegar þeir voru báðir áhugamenn. Svo heppilega vill til
að hann er hvítur sem reynist gullnáma fyrir peningamennina á bak við
bardagann. Mikið er grínast með hræsnina, yfirborðsmennskuna og
sölumennskuna í hnefaleikunum og myndin gengur vel upp sem ádeila
þótt hún fari stundum aðeins yfir strikið í fíflalátum. Samuel L. Jack-
son og Jeff Goldblum eiga að vera aðalstjömumar en það eru hnefaleik-
aramir sem stela senunni, þeir Peter Berg og Damon Wayans, í ágætri
mynd sem öfugt við flestar amerískar grinmyndir springur ekki á limm-
inu í lokin.
THE GREAT WHITE HYPE. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Reginald Hudlin.
Aðalhlutverk: Samuel L. Jackson og Jeff Goidblum. Bandarísk, 1996.
Lengd: 99 mín. Öllum leyfð. -PJ
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG.
1 2 2 Twister ClC-myndbönd Spenna
2 1 4 Nutty Professor ClC-myndbönd Gaman
3 3 3 Timeto Kill Warner myndir Spenna
4 5 3 Multiplicity Skífan Gaman
5 4 5 Eraser Warner myndir Spenna
. 6 Ný 1 HBSH Stiptease f Skifan Spenna
7 12 4 Heavens Prisoners Sam-myndbönd Spenna
8 7 3 Island of Dr. Moreau J j Myndform Spenna > Skífan Gaman
l 9 9 02 Great White Hype
10 8 11 Fargo ■'- •• i Háskólabíó Spenna
11 16 4 Celtic Pride Sam-myndbönd Gaman
12 tm M i . | m| 11 i 10 Mission: Impossible ClC-myndbönd Spenna
13 ; 10 7 Last Man Standing Myndform Spenna
14 aí : 10 J Truth About Cats and Dogs , Skífan i Gaman
15 14 ; 6 Arrival Háskólabíó Spenna
16 ; 20 7 Powder Sam-myndbönd Drama
17 15 4 ; Stealing Beauty Skífan Drama
i8 ; 13 s ; r Eye for an Eye \ 1 f ClC-myndbönd Spenna
19 f Ný i ; Beautiful Girls Skrfan Gaman
20; Ai 6 Blue Juice Háskólabíó Gaman
Spennumyndin Twister er komin í fyrsta sæti mynd-
bandalistans á annarri viku sinni á listanum en hún
fór beint í annað sætið í síðustu viku. Á myndinni
sjáum viö hvar aðalsöguhetjurnar halda sér dauða-
haldi á meðan hvirfiibylurinn gengur yfir. The Nutty
Professor víkur úr fyrsta sætinu en fer þó ekki
langt, aðeins niður um eitt sæti. Sömu myndirnar
eru í fimm efstu sætum listans og í síðustu viku.
Time to Kill er í þriðja sæti iíkt og í síðustu viku en
Multiplicity og Eraser skipta um sæti. Multiplicity
var í fimmta sæti í síöustu viku en stekkur upp um
eitt. Aðeins tvær myndir eru nýjar á topp 20, Stripte-
ase, sem fer beint í 6. sæti, og Beautiful Giris sem
er í 19. sæti.
Twister
Bill Paxton, Helen
Hunt og Gary Elwes.
Veðurfræðingarn-
ir Bill og Jo hafa um
árabil elst við ský-
stróka og eru manna
fróðust um þá. Samt
sem áður er lítið
annað vitað um
þessa stróka en að
þeim má skipta í
fimm kraftstig. Eina
færa leiðin til að
komast að því í raun
hvaðan strókamir fá
kraft sinn er að
standa inni í miðju
þeirra og gera mæl-
ingar. Þau Bill og Jo
hafa smíðað vél sem
ætlað er að gera
þessar mælingar en
vandamálið er að
koma henni inn í
einhvern strókinn.
The Nutty
Professor
Eddie Murphy og
Jada Pinkett.
Hinn góðlegi, bráð-
gáfaði og akfeiti erfða-
fræðiprófessor dr.
Sherman Klump verö-
ur umsvifalaust ást-
fanginn af hinni fógru
Cörlu Purly þegar hún
kemur til starfa við há-
skólann. Hann gerir
sér þó tljótlega grein
fyrir því að hann á litla
möguleika á að vinna
hjarta hennar nema
honum takist að ná af
sér 200 kílóum. Hann
grípur til þess ráðs aö
taka inn nýtt fitueyð-
andi lyf og eftir einn
sopa breytist hann í
Buddy Love, hrað-
mæltan, stæltan og tág-
grannan kvennabósa.
A lime to
Kill
Matthew McConaug-
hey og Sandra Bullock.
Myndin gerist í
Mississippifylki þar
sem kynþáttafordóm-
ar eru enn rikjandi.
Tveir ruddar ræna tíu
ára gamalli blökk-
ustúlku, nauðga henni
og misþyrma svo illi-
lega að þeir telja hana
látna. Svo er þó ekki
og lögreglustjórinn
kemst fljótt að því
hvaða menn voru að
verki og handtekur
þá. Faðir stúlkunnar
tekur fuilur af heift
lögin í sínar hendur
og skýtur misindis-
mennina til bana. Það
kemur í hlut lögfræð-
ingsins Brigance að
verja gjörðir fóðurins.
Michael Keaton og
Andie Macdowell
Doug er einn af
þessum mönnum sem
hafa alltof mikið að
gera og því er ekki að
neita að hann er að
sligast undan álaginu.
En þetta breytist þeg-
ar Doug hittir erföa-
fræðinginn dr. Owen
Leeds sem fundið hef-
ur upp aðferð tft að
búa til „afrit“ af fólki.
Hann býr til Doug og
skyndilega er hann
laus allra mála í vinn-
unni, „afritið" sér um
þann þátt hins daglega
lífs. Þungu fargi er þar
með létt af Doug og
ekki líður á löngu uns
hann fær sér annað af-
rit til að sinna heimil-
isstörfúnum og krökk-
unum.
Eraser
A. Schwarzenegger
og Vanessa Williams
Leyniþjónustumað-
urinn John Kruger,
sem hefur þann starfa
að halda hlifiskildi yfir
mikilvægum vitnum
alríkislögreglunnar,
hefur fengið það verk-
efni að vemda fegurð-
ardísina Lee sem er
eina vitnið í máli gegn
öflugum glæpamönn-
um sem eru við það aö
ná valdi á hættulegu
gjöreyðingarvopni.
Kruger er leiddur í
gildru og látið líta svo
út sem hann sé svikari.
Hann þarf því ekki að-
eins að vemda vitnið
heldur þarf hann aö
vemda sjálfan sig fyrir
eigin mönnum og
sanna sakleysi sitt fyr-
ir yfirmönnum sinum.