Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1997, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1997
Fréttir
5
NSX-AV90
nú aðeins kr.
aiuia
Víkingaskipið íslendingur er nú í reglubundnum skoöunarferöum með 11
ára skóiabörn af Reykjavíkursvæðinu. Það olli nokkrum töfum á úthaldi
skipsins að Siglingastofnun krafðist þess aö um borð væri salerni og renn-
andi vatn. Nú hefur því verið kippt í liðinn en það er óneitanlega lýti á skip-
inu að búið er að reisa skýli með aöstöðunni. Skipið er byggt að nákvæmri
fyrirmynd Gaukstaöaskipsins sem var í drift um 960. Ekki er Ijóst með hvaða
hætti sjómenn (jeirra tíma leystu sín salernismál en líklegt er aö borðstokk-
urinn hafi nýst þeim sem kiósettseta. Hér má sjá börn úr Ártúnsskóla him-
inlifandi við upphaf siglingar. DV-mynd ÞÖK
Æsumálið:
Bresku kafar-
arnir ráðnir
„Það er komin heimild til að hefj-
ast handa við undirbúning köfunar.
Við höfum þegar gert ráðstafinir til
að sú vinna hefjist,“ segir Ragnhild-
ur Hjaltadóttir, skrifstofustjóri í
samgönguráðuneytinu.
Samgönguráðuneytið og fjármála-
ráðuneytiö hafa samþykkt að ráða
kafara frá breska fyrirtækinu Seaw-
ork til að kafa ofan í skelbátinn
Æsu sem liggur á botni Arnarfjarð-
ar. Gert er ráð fyrir að kafaramir
komi til landsins eftir 10 daga.
Heildarkostnaður við verkefnið er
tæpar níu milljónir króna.
Kolbrún Sverrisdóttir, ekkja skip-
stjórans á Æsu og dóttir stýri-
mannsins sem barist hefur fyrir því
að farið verði ofan í skipið til að
leita að líkum eiginmanns síns og
föður og finna skýringar á því hvað
hafi gerst, segir niðurstöðuna vera
ákveðinn létti.
„Það er viss léttir að vita af þvi að
lausn er í sjónmáli. Þetta hefúr kost-
að okkur aðstandendur gífurlega
vinnu að fá þessu framgengt og bið-
in eftir úrslitum málins hefur verið
mjög erfið. Ég vonast til þess að
menn bregðist fyrr við næst þegar
og ef sjóslys her að höndurn," segir
Kolbrún. -rt
Hæstiréttur dæmir Kristin Jónsson í 8 mánaöa fangelsi:
Framfleytti sér á
svikum með hross
Viðhaldsstöð Flugleiða:
Hagkvæmast aö fram-
kvæma stórskoðanir hér
DV; Suðumesjum:
„Við erum að meta tilboð sem við
höfum fengið í að láta gera stórskoð-
anir á tveimur vélum okkar. Frumat-
hugun bendir til þess að það sé hag-
kvæmast fyrir okkur sjálfa að fram-
kvæma þá skoðun hér heima. Það er
ánægjulegt að vita að við erum fylli-
lega samkeppnisfærir bæði í verði og
tíma,“ sagði Guðmundur Pálsson,
framkvæmdastjóri framleiðslusviðs
Flugleiða, við DV.
Um er að ræða umfangsmestu skoð-
un, D-skoðun, á tveimur flugvélum
Flugleiða. Skoðun þessi er fram-
kvæmd eftir 22 þúsund flugtíma, það
er á 7-6 ára fresti. Að sögn Guðmund-
ar hafa þeir alltaf framkvæmt sjálfir
ársskoðanir á vélum sínum og yrði
þessi skoðun þá sú fyrsta sem er fram-
kvæmd á vélum Flugleiða sem verða
8 ára á þessu ári. Guðmundur segir að
reiknað sé með því að þeir fram-
kvæmi verkið sjálfir í viðhaldsstöð fé-
lagsins á Keflavíkurflugvelli á hausti
komanda. Reiknað er með að hvor
skoðun taki fast að mánuði. -ÆMK
Hæstiréttur hefur dæmt Kristin
Jónsson, tæplega fertugan Kópa-
vogsbúa, í átta mánaða fangelsi fyr-
ir ítrekuð fiársvik á árunum
1991-1994. I dómsniðurstöðunni
felst að sakborningurinn framfleytti
sér að verulegu leyti á ýmsum svik-
um sem komu niður á fiölda ein-
staklinga, m.a. vegna viðskipta með
hross og bíla. Hluti af ítrekuðum
brotum Kristins var allt að 5 ára
gamall en þau vora fymd þar sem
löggæslukerfið hafði ekki náð að af-
greiða þau tímanlega til dómstóla.
Dæmi um svik Kristins voru þau
að í febrúar 1994 keypti hann fimm
hross af ábúendum sveitabæjar í
Húnavatnssýslu. Hann sendi flutn-
ingabíl norður eftir hrossunum og
lét tvo víxla fylgja með. Sambýlis-
kona hans og önnur kona vora út-
gefendur en hann sjálfur var sam-
þykkjandi á þeim báðum. Kristinn
fékk hrossin síðan send, seldi þau
og notaði andvirði þeirra til fram-
færslu. Kristinn hafði svipaðan hátt
á við kaup á þremur hrossmn af
tveimur aðilum og kaupum á fiór-
um bílum af jafnmörgum aðilum.
Kristinn kom eignunum ávallt í
verð en stóð aldrei skil á greiðslu
víxlanna.
Kristinn var jafnframt dæmdur
fyrir fiársvik með því að hafa svik-
ið málningarvörur út hjá fyrirtæk-
inu Málningu hf. upp á 401 þúsund
krónur. Hann kvaðst hafa notað
helming af andvirði málningarinn-
ar sem hann seldi til að framfleyta
sér. -Ótt
0I0I0
TUTTUGUÞUSUNDKRONA
LÁTTUR
100+100+25+25W RMS magnari
Dolby PRO-LOGIC heimabíómagnari
Segulvarðir hátalarar
Fullkomið Karaoke kerfi
Tónjafnari m/Rock-Popp-Classic
Super T-bassi
Tvöfalt segulband
3 diska geislaspilari
Tengi fyrir auka bassahátaiara
DSP hljómkerfi
Þessum hljómtækjum fylgja 5 hátalarar,
sem tryggja fullkominn bíó-hljóm.
Awards
Fullkomin fjarstýring
BBE hljómkerfi
Stafrænt útvarp m/32 stöðva minni
AIWA NSX-AV901
voru valin bestu
hbimabíó''
hljómtækín 1996
ArmúlR 38.• Sinii 553,1133
(tH" '
%■
Hún valdi
skartgrípi
frá Silfurbúðinni
SILFURBUÐIN
Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066
- Þarfærðu gjöfina -