Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1997, Page 6
6
MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1997
Fréttir
Samið við flugmenn FlugleiðaJ fíajjiótt:
Náðum fram fjolmorgu
- segir Kristján Egilsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna
Samningar tókust i fyrrinótt milli
flugmanna Flugleiða og vinnuveit-
enda þeirra og skrifað var undir um
hálftvöleytið. Tveggja sólarhringa
verkfalli, sem hófst á miðnætti að-
fararnótt laugardags, var þá aflýst
og millilanda- og innanlandsflug
hófst að nýju í gærmorgun. Ótíma-
bundnu verkfalli sem hefjast átti
um næstu helgi var sömuleiðis
frestað. Atkvæðagreiðsla fer fram í
vikunni en samningurinn nær til
168 flugmanna. Að baki eru 5 mán-
aða samningaviðræður þessara
deiluaðila og 25 fundir hjá ríkis-
sáttasemjara.
Allt flug Flugleiða lá niðri á laug-
ardag og hafði í for með sér tals-
veröa röskun. Félaginu tókst að út-
vega flestum millilandafarþegum
flug með öðrum eða breyta dags-
setningu flugsins en vitað er um
nokkra sem enga úrlausn fengu og
urðu strandaglópar þann daginn.
13,4 prósent á samningstím-
anum
Samið var til þriggja ára og laun
flugmanna hækka á því tímabili um
13,4 prósentustig, fyrst um 4,7 pró-
sent við undirskrift. Tekið var á
ýmsum tæknilegum þáttum sem
Kristján Egilsson, formaður Félags
íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA,
sagðist vera sáttur við þegar DV
náði tali af honum í gær.
„Launaliðir voru í ákveðnum far-
vegi eftir stóru samningana sem
ekki var hægt að fara út af. Við náð-
um fram fjöldamörgum atriðum
sem snúa að okkar vinnu, s.s. trygg-
ingamál, bakvaktir og flug hjá Flug-
félagi íslands ef af stofnun þess
verður," sagði Kristján.
Um ummæli forráðamanna Flug-
leiða um tugmilljóna króna tjón af
verkfallsaðgerðum flugmanna sagði
Kristján að þau hefðu ekki farið
framhjá nokkrum manni.
„Ég veit ekki um neina vinnu-
stöðvun sem ekki hefur í fór með
sér tjón. Okkur þykja þessi ummæli
að sjálfsögðu leiðinleg en sjaldan
veldur einn þá tveir deila,“ sagði
Kristján.
í takt við annað
Einar Sigurðsson, aðstoðarmaður
forstjóra Flugleiða, sagði í samtali
við DV að flugmannasamningurinn
væri í takt við það sem gerst hefði á
almennum vinnumarkaði og í
samningum við önnur félög starfs-
manna Flugleiða.
„Með þriggja ára samningstíma
hefur skapast ákveðin festa í
ferðaþjónustunni sem er mjög við-
kvæm fyrir óróleika á vinnumark-
aði. Síðan var ánægjulegt að samn-
ingar tókust eftir að slitnaði upp
úr í viðræðum á laugardag og því
forðað að verkfallið færi inn á
annan sólarhring. Tjón okkar ligg-
ur ekki fyrir en ljóst að það hleyp-
ur á einhverjum tugum milljóna,"
sagði Einar. Hann sagði næsta
skref að semja við flugfreyjur fé-
lagsins og viðræður stæðu þar
yfir. -bjb
Fyrsti forsetabíll-
inn geröur upp
- forsetinn vill bílinn tilbúinn árið 2000
Nú hafa Bílgreinasambandið,
Fornbílaklúbburinn og forseta-
embættið ákveðið að taka höndum
saman og gera upp fyrsta bíl for-
setaembættisins, forláta Pachard
1942. Að sögn Hinriks Thoraren-
sens hjá Fornbílaklúbbnum er
bíllinn orðinn harla lúinn enda
ekki við öðru að búast af hálfsex-
tugum bíl. Bíllinn er sá eini sinn-
ar tegundar hér á landi. Til eru
aðrir bílar af gerðinni Pachard en
enginn nákvæmlega eins og for-
setabíilinn.
Hinrik segir að eftir að bílnum
hafl verði lagt hafi hann lengi ver-
ið í Hafnarfírði hjá manni að nafni
Gísli Hannesson en eftir að hann
lést hafi Þjóðminjasafnið tekið við
bílnum. „Hugmyndin að því að
gera bílinn upp kom þegar tókst
að rekja eigendasöguna. Bílnum
fylgdi sú saga að hann væri for-
setabíllinn en alltaf vantaði skjal-
festa heimild. Þegar staðfesting á
því fékkst höfðum við samband
við Ólaf Ragnar Grímsson forseta
sem sýndi bílnum mikinn áhuga.
Hann hafði síðan samband við Bíl-
greinasambandið sem ætlar að sjá
um viðgerðina," segir Hinrik.
Hinrik segir að ýmislegt komi
til í verkefni sem þessu. „Það get-
ur orðið vandamál að fá varahluti,
svo er þetta mikil vinna, auk þess
sem svona verkefni er dýrt.“ Hin-
rik segir ekki vitað enn hvað við-
gerðin komi til með að taka mik-
inn tíma en Ólafur Ragnar hafi lát-
ið í ljós ósk um að bíllinn verði til-
búinn 17. júní árið 2000. „Hvort
það tekst fer aftur á móti alveg eft-
ir þvi hve mikið verður unnið í
honum og hve miklum fjármunum
verður varið í viðgerðina. En
þetta er spennandi verkefni, þetta
er sögufrægur bíll.“
-ggá
Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú
voru hrifin af hugmyndinni um að gera upp fyrsta forsetabílinn. Helst vill
forsetinn að bíliinn verði tilbúinn 17. júní árið 2000 en verkefnið er viðamik-
ið og dýrt.
Það fór vel um forsetahjónin þegar þau settust inn í Pachardinn, þó svo bfll-
inn sé orðinn lúinn, enda hálfsextugur. DV-mynd Hari
Vinningar sem dregnir voru út í HAPPI í HENDI síðastliðið
föstudagskvöld komu í hlut eftirtalinna aðila.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
Agnes Ólðf Thorarensen,
Laufskálum 5, Hellu
Andrea AOalsteinsdóttir,
Birkigrund 48, Kópavogi
Ásdís Kristjánsdóttir,
Austurgerði 1, Reykjavík
Ester Magnúsdóttir,
Holtagerði 62, Kðpavogi
Eva Thorstensen,
Hörðalandi 20, Reykjavík
Garðar Þormar,
Espilundi 5, Garðabæ
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Þórufelli 16, Reykjavik
Guðbjörg Sævarsdóttir,
Staðarkaup, Grindavík
Guðný Snorradóttir,
Staðarbakka 12, Reykjavík
Guðný Svana Harðardóttir,
Hatnargötu 78, Keflavík
Guðrún Blöndal,
Sunnubraut 6, Blönduósi
Jens Markússon,
Hnífsdalsvegi 10, ísafirði
Kristfn Jobansen,
Laugarásvegi 46, Reykjavík
Kristín Þ.G. Jensdóttir,
Njálsgötu 1, Reykjavík
Kristmundur Guðmundsson,
Efstalundi 5, Garðabæ
Magnea Bjarnadóttir,
Einigrund 8, Akranesi
Sonja Ágústsdóttir,
Hátúni 10A, Reykjavík
Sturla Erlendsson,
Hjarðarhaga 11, Reykjavík
Trausti Magnússon,
Hornbrekkuvegi 10, Ólafsfirðl
Þröstur Eggertsson,
Hrisholt 6, Garðabæ
Var með ótrúlegan
hnút í maganum
- segir Dagmar íris Gylfadóttir, afmælisbarn og ungfrú Reykjavík
Dagmar íris Gylfadóttir, ungfrú Reykjavík, ásamt kærastanum, Sigfúsi Jónssyni. Dag-
mar íris, sem á 21 árs afmæli í dag, hyggst halda grillveislu ásamt Sigfúsi til að fagna
tímamótunum en Sigfús er mjög stoltur eins og gefur aö skiija. DV-mynd Hari
Nýkjörin ungfrú Reykjavík, Dag-
mar Iris Gylfadóttir, var þreytt en
yfir sig ánægð þegar DV hafði sam-
band við hana i gærkvöldi. En er
hún búin að jafna sig eftir sigurinn
á fostudagskvöldið?
„Já, þetta er svona að koma núna.
Það er búið að vera svo mikið að
gera að maður hefur gleymt sér í
þessu öllu yfir helgina. Það hafa
verið símtöl, blóm og skeyti, þetta
er bara búið að vera æðislegt."
Dagmar íris segist alls ekki hafa
átt von á að vinna: „Ég varð alveg
rosalega hissa. Ég var með ótrúleg-
an hnút í maganum en þetta var al-
veg meiri háttar.“
Dagmar íris segir undirbúning-
inn hafa verið mikla vinnu. „Það
var mikið um æfingar á Hótel ís-
landi og í World Class. Svo þurfti
maður að fara í ljós og hafa sig
alltaf finan. Þetta var rosalega mik-
ið, eins og önnur vinna. En þetta er
rosalega gaman líka, alveg þess
virði.“
Nú var hún líka kosin vinsælasta
stúlkan, kom það henni líka á
óvart?
„Já, mjög. En það var líka æðis-
lega gaman, alveg jafnskemmtilegt
og titillinn."
Dagmar íris vinnur á dagheimili
cg ætlar að halda áfram að vinna
þar á meðan undirbúningm-inn fyr-
ir keppnina ungfrú ísland fer fram,
enda segir hún sér ekki veita af
tekjunum. En hvemig leggst keppn-
in um ungfrú ísland í fegurstu
stúlku Reykjavíkur? „Hún leggst vel
í mig. Við emm strax byrjaðar að
æfa og hittumst allar í dag. Ég var
að sjá hina keppenduma í fyrsta
skipti og líst mjög vel á þær.“
Dagmar íris á afmæli í dag, er 21
árs. Var ekki titillinn besta afmælis-
gjöfin? „Heldur betur, maður heföi
ekki getað óskað sér neins annars.“
Dagmar íris segist ætla að halda
upp á afmælið með kærastanum á
miðvikudaginn með grillveislu en
hann er í sjöunda himni eins og gef-
ur að skilja. „Hann er alveg rosa
stoltur, finnst svo gaman að vera
með ungfrú Reykjavík! En hann er
búinn að vera æðislegur." Átti hann
von á sigrinum? „Ja, finnst ekki
kærastanum maður vera alltaf sæt-
astur? En hann er í skýjunum. Þetta
er allt alveg meiri háttar." -ggá