Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1997, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1997
19
Fréttir
Börn úr Kópavogi geröu geysilega lukku meö leikinni sýningu á Spænska reiðskólanum í Vín. DV-mynd E.J.
Hestlausa atriðið
vakti mesta athygli
- í Reiðhallarsýningu Fáks
Fáksmenn héldu sýningu í Reið-
höllinni í Víðidal um helgina á
tímamótum þvi að Fákur er 75 ára
um þessar mundir og Reiðhöllin 10
ára. Fleiri aðilar komu að sýning-
unni úr nágranna-hestamannafélög-
um.
Sýningarstjórar hafa orðið áttað
sig á því hve nákvæmar tímasetn-
ingar eru mikilvægar í reiðhallar-
sýningum til að halda áhuga gesta
vakandi. Tuttugu og sex atriði voru
á dagskránni og voru mismargir
hestar í hverju atriði. Hvert sýning-
aratriði tók skamma stund enda
eins gott því annars hefði sýningin
staðið fram undir miðnætti.
I atriðinu sem vakti hvað mesta
athygli var reyndar enginn hestur.
Þar voru á ferðinni 14 böm úr
Kópavogi, á aldrinum 5 til 15 ára,
sem sýndu atriði úr Spænska reið-
skólanum, undir stjórn Sigrúnar
Sigurðardóttur.
Bömin vom hestlaus en í búning-
um sem táknuðu hesta og knapa og
stóðu sig frábærlega vel.
Heldur fleiri hross vora í hópat-
riðum og gleður það augað, þó svo
að stundum ynnist ekki nægilegin-
tími til að kynna öll hrossin.
-E.J.
Vorið ekki komið enn
- aldraöir rýna í veðurteikn
DV, Dalvík:
Á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra
á Dalvík, er starffæktur veður-
klúbbur. Veðurspár klúbbfélaga
hafa oft reynst nærri sanni, og spá
þeirra fyrir næstu árstíðir litur
þannig út.
Þrátt fyrir hlýindi síðustu daga
og þann vorhug sem margir virðast
gripnir, þá á alla vega eitt hret eftir
að ganga yfir. Það nefna klúbbfélag-
ar Kóngsbænadagshret og ætti sam-
kvæmt því að hefjast 25. apríl.
Langtímaspá klúbbfélaga gerir
ráð fyrir að maí verði kaldur fram-
an af, en fari síðan að hlýna eftir
hvítasunnu. Næsta tungl kviknar í
vestnorðvestri og veit það á þokka-
legt sumar. Þó verður fremur þung-
búið ffaman af sumri og frekar kalt.
Síðari hluti sumars ætti hins vegar
að verða sólríkur og hlýr sam-
kvæmt spánni. -hiá
Þora ekki
að róa
Reykjanesbær:
Gott gengi
hjá strætó
DV, Hólraavík:
„Við höfum ekki þorað að láta
Víkumesið fara út því það vofir
yfir verkfall hér I vikunni,"
sagði Gunnar Jóhannsson, út-
gerðarstjóri Hólmadrangs, en
skipið kom inn fyrir nokkram
dögum með fullfermi af rækju
eftir fárra daga útivera.
Þá landaði frystitogari félags-
ins, Hólmadrangur, í síðustu
viku um 180 tonnum af rækju.
Aflaverðmæti er tæpar þrjátíu
miiljónir króna. Um 60% var
iðnaðarrækja en 40% í pakkn-
ingar - aðallega fyrir Japans-
markað. Hásetahlutur var um
400 þúsund krónur eftir mánað-
arútivera. -GF
DV; Suðuxnesjum:
„Það hefur gengið miklu betur
en maður þorði að vona og er ég
þó maður bjartsýnn að eðlisfari.
Þetta lítur mjög vel út,“ sagði
Steindór Sigurösson, fram-
kvæmdastjóri Sérleyfls- og hóp-
ferðamiðstöðvarinnar SBK, í
samtali við DV.
Strætisvagnaakstur í Reykja-
nesbæ, sem hófst 14. desember
sl., hefur gengið að óskum. Stein-
dór segir að bensínverkfallið
hefði mátt standa aðeins lengur
en þá fjölgaði farþegum mjög,
bæði í strætó og einnig í sérleyf-
isferðum. Þar mátti þá sjá andlit
fólks sem aldrei áður höfðu sést í
bílum fyrirtækisins og hefði
verkfallið verið fln kynning á
starfsemi SBK. -ÆMK
Strandasýsla:
Snjórinn fljótur að hverfa
DV, Hólmavík:
í vitund flestra fullorðinna sem í
dreifbýli búa er sú vissa að það sem
er líkt með skjótfengnum gróða og
snjó sem fellur eftir miðjan vetur sé
það að hvort tveggja er oft fljótt að
fara.
Þetta hefúr að minnsta kosti sann-
ast síðustu daga hvað snjóinn snert-
ir hér í Strandasýslu en á örfáum
sólarhringum hefur nær allur snjór
horfið af láglendi. Var hann þó viða
allmikill fyrir. Slíkir hafa kostir veð-
urfarsins verið. Hér gera menn sér
jafnvel vonir um að ef svipað veöur-
far helst næstu 10 dagana eða svo þá
geti farið að sjást gróðumál í túnum
en það yrði þá um svipað leyti og á
síðasta vetri. Munurinn væri þó sá
að næstsíðasti vetur var einn sá
mildasti sem komið hefúr í áratugi
en á þessum vetri sem senn fer að
telja út var á tímabili lurkaveðrátta
með allmikilli snjókomu. Nú er sá
snjór aðeins eftir í djúpum lægðum
og laugum og svo til fjalla. GF
Rosalega skemmtilegt
sunddót í miklu úrvali
fæst í öllum betri verslunum um land allt.
Aðalfundur
1997
Aðalfundur Sameinaða lífeyrissjóðsins
verður haldinn mónudaginn
28. opríl 1997 kl. 16.30.
að Grand Hótel Reykjavík, Sigfúni 38.
Dagskrá:
II Venjuleg a&alfundarstörf samkvæmt
samþykktum sjóðsins.
Tillögur til breytinga á reglugerð sjóðsins.
Kynning á nýju lífeyriskerfi stéttarfélaga
og vinnuveitenda í Danmörku.
HJI Önnur mál löglega upp borin.
8 Aðildarfélögum sjóðsins hefur verið sent fundarboð
og eru þau beðin að tilkynna skrifstofu sjóðsins fyrir
25. apríl n.k. hverjir verða fulltrúar þeirra ó fundinum.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á fundinum með tillögu
og málfrelsi. Þeir sjóðfélagar sem hyggjast nýta sér
þennan rétt eru beðnir að tilkynna það skrifstofu sjóðsins
eigi síðar en 25. apríl n.k. og munu þeir þá fá
fundargögn við setningu fundarins.
STillögur til breytinga á reglugerð liggja frammi
á skrifstofu sjóðsins frá 7. apríl n.k. og geta þeir sjóðfélagar
sem áhuga hafa á að kynna sér þær fyrir fundinn,
fengið jjær á skrifstofu sjóðsins eða sendar í pósti.
Frá og með 22. apríl munu reikningar sjóðsins liggja frammi
á skrifstofu hans fyrir þá sjoðfélaga, sem vilja kynna sér þá.
Reykjovik, 2. apríl 1997
Stjórn Sameinaða lífeyrissjóSsins.
feyr
ir
SuSurlandsbraut 30
108 Reykjavík
Sími 510 5000
Hönnun; Qisli B.