Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1997, Qupperneq 20
20
U3J1^ U Jj • J ‘
Síðusafnið hefur nú verið starfrækt í eitt ár:
MANUDAGUR 21. APRÍL 1997
Mjög nauðsynlegt ao hafa
íslenska leitarþjónustu
Fyrir tæpu ári fór Ingólfur Helgi
Tryggvason, aöaleigandi Hugmóta,
af stað með Síðusafnið, sem er leit-
arþjónusta sem leitar eingöngu að
íslenskum heimasíðum. DV átti
stutt spjall við hann í tilefni af
þessu tU að kanna hversu brýn
þörfin hefur verið á slíkri þjónustu
hér. Geta hinar ijölmörgu erlendu
leitarþjónustur ekki gert sama
gagn?
Ingólfur segir tildrög þess að
Síðusafnið var sett á laggimar
vera fyrst og fremst löngun til að
skapa betri leitarskilyrði fyrir ís-
lenskar heimasíður. „Ég var sjálf-
ur búinn að flakka töluvert um vef-
inn og fannst alltaf ómögulegt að
nálgast það efni sem ég vildi leita
að. Því ákvað ég að setja upp leit-
arþjónustu fyrir íslenskar vefsíð-
ur.“
Viðbrögðin létu ekki á sér
standa. Notkunin á Síðusafninu
hefur vaxið jafnt og þétt og núna
koma að meðaltali 500 fyrirspurnir
á dag til safnsins. „Það gefur til
kynna að þetta sé þjónusta sem
notendur vefsins kunna að meta.
Þetta hjálpar þeim að finna ís-
lenskt efni,“ segir Ingólfur.
Hann segir að þeir Hugmóts-
menn hafi lagt sig fram við að leita
uppi nýtt efni. Þeir gera það ekki
vélrænt heldur flakka þeir einfald-
lega um vefinn og skrá inn nýtt
efni ef þeir rekast á það.
Þó færist það í aukana
að menn kynni sínar
síður sjálfir. Þeir senda
þá fyrirspurn til Síðu-
safnsins ef þeir vilja
koma sinni síðu á
framfæri. Þessar tvær
leiðir hafa gert það
að verkum að
meginhluti
ís-
lenskra vefsíðna er á skrá hjá
þeim nú.
Ingólfur telur engan
vafa á því að þessi sérís-
lenska leitarþjónusta hafi
verið mjög nauðsyn-
leg. „Það er
oft
þannig þegar leitað er að íslensku
efni í erlendum leitarvélum að
maður biður um nál en fær hey-
stakk. Síðusafnið er mun hnitmið-
aðra þar sem yflr 90% af skráðu
efni þar er íslenskt. Því er mun
auðveldara að finna ís-
lenskar vef-
síður
þar.“
Síðusafnið er ekki eina gagna-
safnið sem Hugmót rekur. Fyrir
nokkru tóku þeir í notkun bíla-
safniö þar sem menn geta skráð þá
bíla sem þeir hafa til sölu. Ætlun-
in er að semja við bílasölur um að
taka inn þeirra söluskrár þannig
að þetta verði ákjósanlegur kostur
fyrir þá sem eru að leita sér að bíl.
Einnig bjóða þeir fólki að setja
upp hjá sér lítil auglýsingaskilti
um það sem þeir vilja auglýsa á
Netinu. Þar er hægt að hafa bæði
tilvísanir í heimasíður og myndir.
Boðið er upp á ókeypis auglýsingu
í 3 daga svo fólk geti séð hvemig
þetta gengur fyrir sig. „Þetta er
góður kostur fyrir auglýsendur
sem vilja notfæra sér vefinn en
hafa ekki tíma eða getu til að búa
til heimasíðu. Einnig
er hægt að breyta
auglýsingimni
hvenær sem er gildis-
tímans en það er ekki
hægt í prentaðri út-
gáfu,“ sagði Ingólfur
að lokum.
Slóðin á heimasíðu
Síðusafnsins er
http://www.hug-
mot.is/ssafn. Slóðin á Bílasafnið er
http://www.hugmot.is/bsafn og
slóðin á auglýsingarnar er
http://www.hugmot.is/auglys.
-HI
Bandaríska þingið með
áhyggjur af netöryggi
Nokkrir þingmenn
bandaríska þingsins hafa
beðið stjórnina um að
senda ekki viðkvæm
skjöl sem varða öryggi
þjóðarinnar um netið.
Var þetta gert í fram-
haldi af nýrri vefsíðu
tryggingastofnunar
Bandaríkjanna. í henni
geta einstaklingar skoð-
að flármál sín gegn því
að gefa upp persónulegar
upplýsingar. Þingmenn
úr báðum flokkum vilja
að þjónustan verði stöðv-
uð þangað til öryggi þess-
ara gagna sé fullkomlega
tryggt.
Stofnunin fór að bjóða
þessa þjónustu nýlega til
að auðvelda aðgang fólks
að fjármálaskýrslum sín-
um. Þannig væri t.d.
hægt að skipuleggja eftir-
launin betur. Aðeins þarf að gefa
upp nafn, kennitölu, ættamafn móð-
ur fyrir giftingu, fæðingardag og
fæðingarstað til þess að sjá launa-
tekjur frá upphafi og fá áætlun um
lífeyristekjur. Mörgum finnst þetta
ekki nóg og telja of auðvelt fyrir for-
vitna vini og ættingja að komast í
þessar skýrslur sem eiga að vera
trúnaðarmál.
Meðal þeirra sem eru á þeirri
skoðun er Jim Bunning, fulltrúa-
deildarþingmaður demókrata. í
bréfi sem hann skrifaði stofnuninni
segir m.a.: „Þó að ég meti mikils þá
viðleitni tryggingastofnunarinnar
að bjóða upp á hraða og víðtæka
þjónustu getur slik aðgerð ekki
samræmst friöhelgi Bandaríkja-
manna.“
Tryggingastofnunin segist viss
um að gögnin séu örugg en væri
samt en að fara yfir síðuna, sem er
á http://www.ssa.gov. Áður þurfti
fólk annað hvort að koma á staðinn
eða skrifa stofnuninni til að fá þess-
ar upplýsingar. „Við erum að fara
yfir og meta notkun vefsíðunnar og
þau öryggisatriði sem vernda þau
gögn sem þar er að finna,“ sagði
Rich Hensley, talsmaður stofnunar-
innar.
Hensley sagði enn fremur að síð-
an hefði fengið um 3000 heimsóknir
á dag, en þeim hefði síðan fjölgað
upp í 85.000 þegar fréttist af þeim
röddum sem nú hljóma í þinginu.
Reyndar hefði það komið fyrir að
fólk sem vildi líta á fjármálaupplýs-
ingamar hjá sér hefði orðið frá að
hverfa vegna mikillar aðsóknar.
-HI/Reuter
Svissneskur banki á Netið
Svissneski bankinn Credit Suisse er
nú farinn aö bjóöa bankaþjónustu á
Netinu og veröur þar meö sá fyrsti af
stóru bönkunum þar í landi til aö gera
slíkt. Viöskiptavinir bankans geta nú
lagt inn, millifært og gert önnur banka-
viðskipti í gegnum Netiö. Þjónustan
er fyrst og fremst ætluö viöskiptavin-
um í Sviss.
af greininni, setti tætlurnar í bland-
ara og blandaði vel. Síöan hellti
hann blöndunni í skál og drakk
hana í einum teyg við mikinn fögn-
uö viöstaddra. Af þessu má læra
aö best er aö tala varlega, sérstak-
lega þegar talaö er um Netið.
Oracle selur flesta
Spámaður étur orð ofan í sig
í œsember 1995 spáöi blaöamaöur-
inn Bob Metcalfe því aö árið 1996
myndi Netiö hrynja. Hann sagöi enn
fremur aö hann skyldi opinberlega
éta þetta ofan í sig ef spáln rættist
ekki. Hann stóö viö þau orö sín og át
stóra köku sem leit út eins og dálk-
urinn sem hann haföi skrifaö í In-
foWorld. Þegar þeir sem á horföu
mótmæltu reif hann í tætlur eintak
gagnagrunna
Oracle Corp. var meö mestu mark-
aöshlutdeildina á gagnagrunns-
markaönum áriö 1996 meö 30%
hlutdeild. IBM kom næst með 26%
hlutdeild ogjnformix Corp. var í
þriöja sæti. í heild jókst sala á gag-
nagrunnum um 15%
síöastliöiö ár. Þetta
kemur fram í rann-
sókn sem Dataquest
gerði nýlega. Innan
skamms mun koma
ný útgáfa af Oracle-
gagnagrunninum,
Oracle 8, en Oracle 7
var kosinn besti
gagnagrunnur ársins
af tímaritinu
Óáreiðanlegar
heilsuráðleggingar á Netinu
Bandaríska læknafelagiö hefur gef-
iö út aövörun til neytenda þar sem
þeir segja m.a. aö ýmis heilsu- og
læknasamtök á Netinu hafi meiri
áhuga á að komast í kokkteilboö
en gefa uppbyggileg ráö. 1 aövör-
uninni segir aö í raun sé alltof mik-
iö af upplýsingum á Netinu og óvan-
ir Netnotendur gætu átt erfitt meö
aö greina kjarnann frá hisminu.
Þetta kom fram í tímariti læknafé-
lagsins. Félagiö stingur upp á aö
reglur veröi settar um þau læknis-
fræðilegu gögn sem megi fara á
Netiö. T.d. veröi aöeins mönnum
meö ákveöin réttindi leyft aö gefa
út slíkar upplýsingar og skylt veröi
aö geta allra heimilda sem notaö-
areru.
Intel lækkar örgiörva sína
Intel hefur nú brugöist vío þeirri sam-
keppni sem fyrirtækiö hefur fengiö á
örgiörvamarkaönum upp á síðkastiö.
Þaö hefur tilkynnt að þaö muni lækka
veröiö á örgjörvum sínum til muna í
lok
þessa
mánaö-
ar en
vill ekki
upplýsa
hversu
mikiö.
Intel
hefur
undan-
fariö
fengið
haröa
sam-
keppni
frá fyrirtækjum eins og AMD og Cyr-
ix og er skemmst aö minnast útgáfu
K6 örgjörvans frá AMD sem sagt var
frá í DV í síöustu viku. Vegna þess-
arar samkeppni ertaliö aö jjessi lækk-
un veröi meiri en fyrri lækkanir á ör-
gjörvum þeirra.