Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1997, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1997
29
Jón Sigurðsson
Sómi Islands, sverð þess og skjöldur hefur
að sjálfsögðu sina heimasíðu. Hún er á http:
//www.snerpa.is/kynn/j/jonsig.
Lögreglan í Reykjavík
A heimasíðu Lögreglunnar í Reykjavík,
http://www.treknet.is/police, er meðal annars
að finna tölur um skotvopnaeigu íslendinga,
auk ýmissa annarra upplýsinga.
Pink Floyd
Hljómsveitin Pink Floyd á sér fjölda aðdá-
enda. Þeir geta fundið margt við sitt hæfi um
þessa frábæru hljómsveit á
http://humper.stud-
ent.princeton.edu/floyd/floyd.html.
StarTrek
Star Trek hefur óneitanlega orðið út undan
í Starwars-æðinu sem nú hefur gengið yfir.
Því þykir við hæfi að minna á heimasiðuna,
http://startrek.msn.com.
Bach
Aðdáendur sígildrar
tónlistar fmna margt við
sitt hæfi á vefhum. Sér-
stök heimasíða tileinkuð
Johanni Sebastian Bach
er á http:
/ /www. tile.net/tile/bach.
Teny Pratchett
Bókmenntimar mega ekki vera út undan.
Terry Pratchett á sér einnig marga aðdáendur.
Heimasíða tileinkuð þessum merka höfúndi er
á http://vangogh.cs.tcd.ie/cbuc-
kley/books/terry.html. Á fréttahópnum
alt.fan.pratchett er síðan hægt að skiptast á
skoðunum við aðra aðdáendur.
Skák
Alls kyns upplýsingar um skák er að finna
á http://www.chess- space.com. íslendingar
hafa einnig sína upplýsingasíðu um skákina
sem er http://www.vks.is/skak.
Þjóðverjarnir vilja ekki myndir af
honum þessum.
Þýskur yfirmaður
Compuserve
ákærður
Yfirvöld í Bæjaralandi
hafa höfðað mál á hend-
ur yfírmanni Þýska-
landsdeildar Compuser-
ve í tengslum við dreif-
ingu kláms og nasistaá-
róðurs á netinu. Nafh
mannsins var ekki nefnt
í kærunni en talsmenn
Compuserve hafa stað-
fest að um sé að ræða
Felix Somm sem er
framkvæmdastjóri
Compuserve-útibúsins í
Þýskalandi og Mið-Evr-
ópu.
Kæran á rætur sínar
að rekja til rannsóknar
sem byrjaði í árslok 1995.
Þá létu yfirvöld loka fyrir aðgang að 200 fréttahópum sem
snerust um kynlíf, þrátt fyrir hávær mótmæli margra sem
töldu þetta aöfor að málfrelsi. Meðal þeirra var sá sem ákærð-
ur er núna. Yfirvöld i Bæjaralandi segja að hann sé sakaður
um að hafa ítrekað og með vilja gert aðgengilegar viðskipta-
vinum Compuserve myndir sem innihéldu bamaklám, hart
klám og kynmök við dýr. Einnig brjóti sumir tölvuleikir, sem
meðlimir Compuserve geta fengið, í bága við þýsk lög sem
banna að „ofbeldi sé hafið til skýjanna". Þessir leikir inni-
héldu m.a. ólöglegar myndir af Adolf Hitler og einnig af ýms-
um nasistatáknum, t.d. hakakrossinn.
Somm er ákærður fyrir að „aðstoða við dreifingu kláms,
auk brota á lögum um texta sem gæti verið skaðlegur böm-
um.“ Talsmenn útibús Compuserve í Þýskalandi hafa ekki
viljað tjá sig um málið.
Kæra þessi er sú fyrsta sinnar tegundar í Þýskalandi og
hefur skapað miklar umræður um það hversu langt lagaarm-
urinn geti teygt sig inn í netið. Mikið hefur t.d. verið deilt um
ábyrgð netþjónustuaðila á því sem notendur þeirra gera á net-
inu. Þýskir saksóknarar telja að slík þjónusta sé ábyrg þegar
texti eða myndir, sem bannaðar era samkvæmt lögum í
Þýskalandi, séu gerðar Þjóðveijum aðgengilegar í gegnum
netið. Þjónustuaðilar hafa mótmælt þessu og telja svokallað-
an síubúnað (filtering software), sem gerir foreldram kleift að
hafa stjórn á því hvað bömin skoða á netinu, nógu góða
vemd.
Engu að síður má ljóst vera að sá dómur sem mun falla í
þessu sakamáli mun hafa fordæmisgildi í Þýskalandi og jafn-
vel víðar í heiminum. -HI/Reuter
Fleiri vefþjónar í
Bandaríkjunum
ast vilja vera á sama stað, þ.e.
á staðnum „punktur com
(.com)“, og þegar hafa ýmis
deilumál farið fyrir rétt um
hvað eigi að vera á þessum
stað og hvað ekki.
Það er hægt að velja um 3
endingar á vefsíðum í Banda-
rikjunum í dag: ,,.org“, ,,.net“
og ,,.com“. Það síðastneftida
stendur fyrir Commercial
(auglýsendur) og þangað hafa
flestir reynt aö troða sér.
Reyndar er nokkur þúsund
vefsíðum bætt við þennan
flokk á hveijum degi.
Sérstök nefnd, sem skipuð
var í fyrra til að taka á þessu
vandamáli, hefur nú komið
með tillögu. Hún gengur út á
að sjö nýjum nöfiium á vef-
þjónum verður bætt við og
fara nöfiiin eftir starfssviði.
Endmgamar eru þessar:
.firm (fýrir viðskiptafyrir-
tæki)
.store (fyrir þá sem selja
hluti)
.web (fyrir þá sem starfa á
vefnum)
.arts (fyrir listafólk)
.rec (fýrir íþrótta- og lík-
amsræktarfólk)
.info (fyrir þá sem með-
höndla upplýsingar)
.nom (fyrir einstalkinga)
Nánari upplýsingar um
þessar tillögur er hægt að fá á
http://www.iahc.org en þá er
betra að vara við því að text-
inn getur verið nokkuð sein-
lesinn.
Ýmsar hugleiðingar hafa
verið uppi um hvernig fyrir-
tæki eigi eftir að taka þessum
nýjum nöfnum nái þau fram
að ganga. Myndi t.d. Microsoft
vera jafiiánægt með að hafa
slóð sem endar á ,,.firm“ eins
og ,,.com“?
Einnig finnst mörgum að
netið þurfi endinguna ,,.sex“
því það væri einfaldasta leiðin
til að koma í veg fyrir að t.d.
böm rækjust óviljandi á eitt-
hvert efiii á netinu sem er
ekki ætlað þeim. Aðrir era
ekki sammála þvi og halda
fram að slikt myndi aðeins
auka viðskipti með slíkar af-
urðir í gegnum netið.
Hins vegar er talið að end-
ingamar fyrir listafólk og
íþróttafólk séu mjög hentugar
fýrir þá sem starfa á þeim
vettvangi og fólk muni taka
þeim fegins hendi. Einnig yrði
það mikið hagræði fyrir ein-
staklinga að fá sérstaka end-
ingu því þar væri komin sam-
ræmd ending á alla þá ein-
staklinga sem era með tölvu-
póstfang í Bandaríkjunum. -
HI/Reuter
BYGGING NETSINS
Þýskir saksóknarar lögsækja nú framkvæmdastjóra
Þýskalandsdeildar Compuserve fyrir að leyfa aögang bæöi aö
klámi og efni sem tengist nasistum
Hins ómiðstýrða bygging netsins gerir það erfitt að stjórna innihaldi þess
Uppistaða
• Tölvunet tengt með gervi-
hnöttum og leiðslum.
• Innifalið er tölvupóstur,
fréttahópar, vefurinn o.s.frv.
• Tölvur á netinu tilheyra oft
ríkisstjórnum,
viðskipta- og
menntastofnunum en allir
geta tengst án leyfis.
Netþjónustuaðili
■ Fyrirtæki meö tölvur og
hugbúnað í uppistöðu
netsins.
• Selur aðgang í gegn-
um venjulegt síma-
númer eða ISDN.
• Getur veitt notend
um takmarkaðan
aðgang án eigin
hugbúnaðar.
• Getur selt rými á
sínar tölvur fyrir
vefsíður.
Netþjónustan
• Tengir notanda netsins við þá síðu sem
hann biður um gegnum netþjón sinn.
Netnotandinn
• Fær aögang gengum áskrift hjá net-
þjónstuaðila um símalínu eöa ISDN.
• Bætir einföldum búnaði við tölvuna og fær
aögang aö texta, myndum og hljóðum á netinu.
• Má hafa eigin síðu á vefnum.
Heimild:Compuling
Insights
REUTER
Notendur finna auðveldlega flöskuhálsa
Fyrirtækið VitalSigns Software
mun bráðlega sefja á markað þaö sem
þeir kafla „félaga vaffans" (browser
companion) en búnaður þessi gerir
netflökkurum kleift að greina hvar
hægir skyndilega á upplýsingaflæðinu
til tölvunnar. „Þetta mun hjálpa gögn-
unum að komast rétta leiö í bókstaf-
legri merkingu," sagði Montgomery
Kersten, forstjóri fýrirtækisins. Ætl-
unin er að prufúútgáfa af búnaðinum
komi í dag.
Búnaðurinn, sem fengið hefúr heit-
iö „Net.medic", hefur svipaö úflit og
mælaborð á bíl. Hann mælir ástand og
hraða tölvunnar, mótaldsins og net-
þjónustuaðilans. Ef ehihver gögn, sem
verið er að sækja um netið, eru óvenju
lengi á leiðinni þá er hægt að sjá þaö
á einfaldan hátt hveiju af þessu
þrennu er um að kenna.
Kersten segist vonast til þess að
þetta tæki hvetji þjónustuaðila til að
bæta þjónustu sina við notendur nú
þegar þeir geta alltaf vitað hvar
flöskuhálsinn er.
Net.medic er hægt að keyra á
Windows 95, Windows NT 4.0, Nets-
cape Navigator 3.0 eða nýrri og Mic-
rosoft Intemet Explorer 3.0 eða nýrri.
-HI/Reuter
Athygli er vakin á að vegna framkvæmda
við gatnamót Miklubrautar og Sæbrautar
verður Suðurlandsbraut lokað austan
Langholtsvegar frá og með deginum í
dag. Vegfarendum er bent á Sæbraut.
Stöndum saman, sýnum þolinmæði og
lipurð í umferðinni!
''//v/A
Vegamálastjóri Borgarverkfræðingur
Nú er rétti tíminn fyrir:
RÁÐGJÖF
SÉRFRÆÐINGA
UM GARÐ-
OG GRÓÐURRÆKT
Heldur trjábeðum og
gangstígum lausum
við illgresi.
GROÐURVORUR
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
Smiöjuvegi 5, Kópavogi, sími: 554 321 1
ARGUS / ÖRKIN /SÍA GV023