Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Page 2
2
LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997
Ársreikningar Reykjavíkurborgar 1996:
Engin raunhækkun skulda
- segir borgarstjóri - sjónhverfingar, segir Vilhjálmur Þ.
„Ég er mjög ánægö með útkom-
una á síðasta ári. Hún sýnir að við
erum á réttri leið. Engin raunhækk-
un skulda varð á árinu og við höf-
um náð að halda rekstrarútgjöldum
í jafnvægi. Reksturinn hefur ekki
veriö að þenjast út eins og honum
hætti til að gera á árum áður þegar
sjálfstæðismenn voru við stjóm,“
segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri um ársreikninga borg-
arinnar sem kynntir voru í fyrra-
dag. Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt
reikningana óspart.
„Þetta era hreinar sjónhverfing-
ar. Við gagnrýnum það að strikað
hafi verið með einu pennastriki
yfir skuldir borgarsjóðs til Malbiks
og grjótnáms upp á 700 milijónir
þegar fyrirtækið var gert að hluta-
félagi. Með því móti felur borgin þá
skuldaaukningu sem varð til hjá
fyrirtækinu. Hefði borgin borgað
þessa skuld væri staðan mun verri
en Reykjavíkurlistinn vill sýna,“
segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks,
um ársreikninga Reykjavíkurborg-
ar 1996 sem kynntir voru í fyrra-
dag.
Pólitískt bragð
Aðspurð um þessa gagnrýni segir
Ingibjörg Sólrún hana vera hreint
pólitískt bragði af hálfu sjálfstæðis-
manna, bragð sem sé hugsað til þess
að sýna stöðu borgarsjóðs verri en
hún er. Ekkert sé óeðlilegt við það
að fyrirtæki sem gert sé að hlutafé-
lagi byrji með hreint borð.
Vilhjálmur segir að svipuð bók-
haldsbrefla muni eiga sér stað á
þessu ári. Þá ætli borgin að selja
sjálfri sér hluta af leiguíbúðum
borgarinnar fyrir um 800 milljónir.
Stofnaö hafi verið hlutafé um leigu-
reksturinn sem verði algerlega í
eigu borgarinnar. Félagið kaupi
hluta íbúðanna, féð renni í borgar-
sjóð en hlutafélagið, sem sé í eigu
borgarinnar, greiði síðan af skuld-
inni.
„Þetta eru svipaðar sjónhverf-
ingar og gerðust á árinu 1996.
Reikningar borgarinnar og fyrir-
tækjanna era eðlilega aðskildir en
þegar samstæðureikningamir eru
skoðaðir kemur hið sanna í ljós,
nefnilega það að staðan hefur
versnað um 1.100 til 1.200 milljón-
ir.“
Þetta segir Vilhjálmur að hafi
gerst á sama tíma og álögur hafi
aukist á borgarbúa, t.d. með hol-
ræsagjaldinu.
„í bókunum hafa sjálfstæðismenn
verið að bera saman hluti sem era
álíka skyldir og epli og appelsínur,“
segir Ingibjörg Sólrún.
-sv
Fjöldi fólks fylgdist meö sjónvarpsstjörnum ABC-stöðvarinnar í gær:
stuttar fréttir
Umfangsmikil útsending
- spjöldum veifaö til bandarískra áhorfenda frá íslandi
Hópur fólks var saman kominn
við Reykjavíkurtjöm kl. 11 í gær-
morgun til að fylgjast með útsend-
ingu bandarísku sjónvarpsstöðvar-
innar ABC á morgunþættinum
Good Moming America. Stór hluti
þeirra sem fylgdust með var Banda-
ríkjamenn sem búsettir eru á ís-
landi. Margir þeirra veifuðu spjöld-
um með áletruðum skilaboðum til
ættingja og vina heima. Einnig voru
á staðnum forvitnir íslendingar og
fjölmennt tækni- og tökulið. Veður
var svalt og talsvert rok en sjón-
varpsfólk og áhorfendur létu það
ekki á sig fá og virtust skemmta sér
konunglega.
Þetta er viöamesta sjónvarpsút-
sending sem héðan hefur verið send
frá upphafi. Búast má við að um 20
milljónir áhorfenda hafi séð hana.
Undirbúningur hefur staðið yfir frá
því í desember. Einkum var sent út
frá þremur stöðum: Tjöminni,
Austurvelli og Bláa lóninu.
-VÁ Fólk veifaði til áhorfenda í Bandaríkjunum og reyndi að koma skiiaboðum til vina og ættingja. DV-mynd S
Skemmtilegasti viðkomustaðurinn
- segir einn af stjórnendum þáttarins
Spencer Christian, einn stjórnenda þáttarins Good
Morning America, og stúlkan Mandy sögðu að fallegt
ísl
væri á Islandi.
DV-mynd S
Blaðamanni DV
tókst að ná tali af
tveimur af stjórnend-
um þáttarins milli
anna. Hér á mynd-
inni má sjá Spencer
Christian og Mandy.
Þau sögðust hafa
komið til landsins á
fímmtudagsmorgun,
rétt fyrir kl. níu.
Spencer segist vera
frá Virginíu og
Mandy frá Texas en
bæði starfa þau í
New York.
„Mér finnst frá-
bært héma og ein-
staklega fallegt. ís-
land er langskemmti-
legasti viðkomustað-
urinn á ferð okkar
um Norðurlöndin. Því
miður getum við ekkert stoppað í
þetta skipti en ég á öragglega eftir
að koma hingað aftur,“ segir
Mandy. Hún spurði blaðamann og
ljósmyndara DV hvort þeir kynnu
glímu því hana langaði mikið til að
læra hana. Þeir gátu því miður ekki
uppfyllt þær óskir hennar. -VÁ
Heilmikil dagskrá var i Bláa lóninu kringum útsendingu ABC. Þar var m.a.
tískusýning og að sjálfsögðu var lækningamáttur lónsins rækilega tíundað-
ur. Hér má sjá einn af stjórnendum þáttarins á taii við Þórólf Þórlindsson
prófessor. DV-mynd Ægir Már
Opin kerfi hæst
Tölvu- og hugbúnaðarfyrir-
tækið Opin kerfi átti hæsta til-
boð í hlut ríkisins, Reykjvíkur-
borgar og Rafmagnsveitu
Reykjavíkur í Skýrsluvélum
ríkisins. Opin kerfl buðu rúm-
lega 161 mflljón króna en nafii-
virði bréfanna var 102 milljón-
ir.
80% af áætlun
Landsvirkjun opnaði í gær
tilboð í vélar og rafbúnað Sult-
artangavirkjunar. Lægsta til-
boð átti Sultzer Hydro. Tilboð-
ið nam 80% af kostnaöaráætl-
un.
Ráðherra segi af sér
Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður vill að Guð-
mundur Bjamason umhverf-
isráðherra segi af sér ráð-
herradómi. Ráðherrá hyggst
ekki veröa við ósk þing-
mannsins.
Uppgjör Guðrúnar P.
Lokið er fullnaðaruppgjöri
vegna framboðs Guðrúnar Pét-
ursdóttur til forseta Islands sl.
sumar. Útgjöld vora 12,7 miflj-
ónir, greidd með framlögum
fjölmargra. Skuld um liðin ára-
mót, 258.562 kr., er að fullu
greidd.
Umönnunarbætur
Heilbrigðisráöherra á von á
því að frumvarp um umönnun-
arbætur vegna langveikra og
fatlaðra bama verði að lögum
á þessu þingi. Samkvæmt því
eru bæturnar ekki skertar þótt
þjónusta sé þegin utan heimil-
is. RÚV greindi frá.
Flóttamenn til
Hornafjarðar
Flóttamenn sem hingað
koma í sumar frá fyrrum
Júgóslaviu eru velkomnir til
Hornafjarðar. Bæjarstjóm
Hornafjarðar hefur sótt um
það til félagsmálaráðuneytis-
ins aö taka á móti flóttamönn-
unum. Skagstrendingar vilja
lika taka á móti fólkinu.
-sv
Þú getur svarað þessari
spurningu meö því aö
hringja í slma 9041600.
39,90 kr. mtnútan
J6 1 Nel m
v rödd
FOLKSINS
904 1600
Á að herða refsingar
gegn ofbeldismönnum?
Á Austurvellí hitti blaðamaður DV fyrlr Lisu
England en eiginmaður hennar starfar í
herstöðinni á Keflavíkurvelli. Lisa er frá
Kaliforníu og segist una sér vel við hið
svala loftslag hér. Þau hjónin kunna af-
skaplega vel við sig á íslandi og hafa ferð-
ast talsvert um landið. Þær Lisa og Tanya
Dazel, sem er hér í fríi fram í nóvember,
fylgdust ásamt fjölda annarra með útsend-
ingu Good Morning America á Austurvelii.
Þær voru mjög sáttar við útsendinguna og
höfðu gaman af að sjá sjónvarpsstjörnurn-
ar í eigin persónu. Hér á myndinni er Lisa
England með dóttur sína, Cynthiu, og
Tanya Dazel með son sinn, Jacob.
-VÁ/DV-mynd S