Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997 JLlV
lönd
stuttar fréttir
NATO samþykkir
Sextán aöildarríki NATO hafa
lagt blessun sína yfir samkomu-
lagið sem framkvæmdastjórinn,
Javier Solana, geröi viö Rússa um
framtíðarsamskiptin fyrr í vik-
unni.
Nóbel til vansa
Carlos Belo, biskup á Austur-
Tímor, sagöi í kvöldverðarboði í
Algarve í Portú-
gal i fyrrakvöld
að frá því hann
fékk friðarverð-
laun Nóbels í
fyrra hefði ástand
mannréttinda-
mála í heimaland-
inu versnað.
Handtökum hefur fjölgað og pynt-
ingar aukist.
Atvinnuleysi eins
Atvinnuleysi innan Evrópu-
sambandsríkjanna var 10,9 pró-
sent að meöaltali í mars, óbreytt
frá fyrra mánuði. Alls eru því
rúmlega 18 milljónir Evrópubúa
án vinnu.
Skylda aö kjósa
Rafsanjani íransforseti sagði
löndum sínum í gær að það væri
skylda allra að fara á kjörstaö í
forsetakosningunum í næstu
viku, jafnvel þeirra sem væru á
móti Úerkastjóminni.
Engin fingraför
Fingraför Timothys McVeighs,
sakbomingsins í Oklahoma-
sprengjumálinu, em ekki á mörg-
um helstu sönnunargögnunum í
málinu, að því er vitni stjórn-
valda sagði.
Hugaö aö El Nino
Veðurfræðingar kanna nú
hvort óvenjumikill sjávarhiti i
Kyrrahafinu hafi getið af sér
veðrakerfiö E1 Nino, sem gjaman
veldur mikilli röskun á veðurlagi
á vesturhveli jarðar.
Annaö einvígi
Garrí Kasparov, heimsmeistari
í skák, hefur mikinn áhuga á að
hefna harma sinna og tefla aftur
við skáktölvuna Dimmblá fyrir
árslok. Tölvan sigraði í einvígi
þeirra um daginn.
Kohl á niöurleiö
Stuðningur Þjóðverja við stjóm
Helmuts Kohls kanslara fer enn
minnkandi. Sam-
kvæmt könnun
fyrir ZDF sjón-
varpsstöðina telja
62 prósent þýskra
að stjómin standi
sig illa, fleiri en
nokkru sinni fyrr.
Þá hafa persónu-
vinsældir Kohls minnkað líka.
Kannski íkveikja
Hugsanlegt er talið að eldsvoð-
inn í Ermarsundsgöngunum i
nóvember hafi verið af völdum
íkveikju, að sögn franskra heim-
ildarmanna. Reuter
Sumarsveifla
á bensínverði
Bensínverð er í nokkurri upp-
sveiflu um þessar mundir og tala
menn um sumarsveiflu í því sam-
hengi. Sumarleyfi eru að hefjast
víða í Evrópu og þá eykst þörfín fyr-
ir bensínið til mikilla muna. Verða
á 95 oktana bensíni fór úr 204 doll-
urum tonnið í síðustu viku í 211
dollara á funmtudag. Hækkunin á
98 oktana bensíni nam 7 dollurum á
tonnið, verðið fór úr 208 dollurum
tonnið í 215. Hráolían stendur meira
í stað en þó má merkja einhverja
hækkun þar líka.
Milli vikna varð hækkun á hluta-
bréfum í Wall Street og í Evrópu,
örlítil lækkun varð í Tokyo en
hækkun í Hong Kong.
FTSE 100 vísitalan i London var
hærri fyrr í vikunni en lækkaði
vegna spákaupmennsku í tengslum
við væntanlegan fund bandaríska
seðlabankans. -sv
Mobutu, forseti Saírs, dró sig í hlé í gær:
Laumaðist burt
úr höfuðborginni
Mobutu Sese Seko, fársjúkur for-
seti Saírs, dró sig í hlé í gær og
laumaðist burt úr höfuðborginni
Kinshasa til frumskógarhallar sinn-
ar í Gbadolite, fæðingarþorpi sínu í
norðurhluta landsins. í yfirlýsingu
sem ríkisstjórn landsins sendi frá
sér sagði að hún færi nú með öll völd
en Mobutu héldi þó enn forsetanafn-
bótinni.
„Mobutu markskálkur yfirgaf höf-
uðborgina á fóstudag og lét stjórn-
inni um að marka stefnuna, í sam-
ræmi við stjórnarskrá landsins,"
sagði í yfirlýsingu stjómarinnar sem
talsmaður hennar, Kin-Kiey Mul-
umba, las upp. Miklar vangaveltur
voru þegar uppi um að Mobutu væri
á leið í útlegð.
Bandarísk stjórnvöld sögðu að
brottför Mobutus gerði kleift að
binda enda á borgarastriðið í Saír á
friðsamlegan hátt.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti og
Madeleine Albright sögðu það for-
gangsatriði að valdaskiptin færu
friðsamlega fram og að lýðræðislegt
stjórnarfar tæki við.
Suður-Afríkumenn, sem hafa ver-
ið að reyna að miðla málum milli
Mobutus og uppreisnarmanna
Laurents Kabilas, lýstu yfir undrun
sinni á yfirlýsingu stjómarinnar
þar sem hún væri ekki í neinu sam-
ræmi við þær tillögur sem liggja
fyrir til lausnar borgarastríðinu.
Suður-afrískir milligöngumenn eru
enn að bíða eftir svari Mobutus við
tillögum um hreina og beina afsögn
hans.
Kabila sneri aftur til höfuðstöðva
sinna i Lubumbashi i gær og boðaði
þegar til fundar með „stjórn" sinni.
Kabila hefur krafist afsagnar Mobut-
us en á fundi með Nelson Mandela,
forseta Suður-Afríku, féllst hann á
að veita Mobutu frest til mánudags.
Vestrænn stjórnarerindreki í Ma-
rokkó sagði í gær að Mobutu væri
væntanlegur þangað innan tveggja
sólarhringa og að þar ætlaði hann að
dvelja í útlegð. Mobutu er að láta
reisa sér glæsihús þar í landi.
Reuter
íbúar Kinshasa, höfuðborgar Saírs, fögnuðu mjög þegar fréttist að Mobutu forseti hefði yfirgefið borgina í gær. Bú-
ist er við að Mobutu fari í útlegð á næstu dögum. Símamynd Reuter
Tony Blair réttir fram sáttahönd á Norður-írlandi:
Býður viðræður embættis-
manna við fulltrúa Sinn Fein
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, bauð í gær viðræður
milli breskra embættismanna og
Sinn Fein, pólitisks arms írska lýð-
veldishersins (IRA), án þess að
krafa yrði gerð um formlegt vopna-
hlé af hálfu IRA.
Blair lagði til þessa málamiðlun í
ferð sinni til Norður-írlands í gær,
hinni fyrstu frá því Verkamanna-
flokkur hans sigraði í kosningunum
á Bretlandi þann 1. maí. Með þessu
vill Blair leggja sitt af mörkum til
að leysa þann rembihnút sem frið-
arferlið á Norður-írlandi er komið í.
„Ég er reiðubúinn að leyfa emb-
ættismönnum að hitta fulltrúa Sinn
Fein, að því gefnu að atburðir hér
og annars staðar komi ekki í veg
fyrir það,“ sagði Blair í ræðu sem
hann hélt á landbúnaðarsýningu í
Belfast.
Ríkisstjórnir Bretlands, írlands
og Bandaríkjanna höfðu lagt blátt
bann við öllum samskiptum við
Sinn Fein frá þvi IRA rauf sautján
mánaða gamalt vopnahlé sitt í febr-
úar 1996. Blair ítrekaði hins vegar
þá kröfu ríkisstjórnanna þriggja að
IRA verði að lýsa yfir algjöru
vopnahléi til að geta tekið þátt í
friðarviðræðunum í Belfast sem
heíjast aftur 3. júní. Hann sagði að
þetta væri síðasta tækifæri Sinn
Fein til að vera með.
„Samningalestin er að leggja af
stað. Ég vil fá ykkur um borð. Lest-
in fer af stað hvað sem tautar og
raular og ég leyfi henni ekki að bíða
eftir ykkur. Þið getið ekki haldið
friðarferlinu í gíslingu lengur,"
sagði Blair.
Búist er við svari Gerrys Adams,
leiðtoga Sinn Fein, á morgun.
Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis J
New York
7500 Dow Jones
m
6500
6000 7286,98
F M A M
r London
4800 rr>sE íoorsæaw
4600 /
4400
4200
4000
3800 4681,2
F M A M
3500 DAX-40 n
3400 3300 Ar
3100
3000 3562,11 M A M
Tokyo
2100
Nikkel
2000
1900 » í
1800
1700
1600 20056,31
• o 1 : M A M
Hong Kong
1400 Hang Seng
1350 /
1300' íf
1250 \ ^
1200
1150 vr
1100 14041,90 F M A M
S mm í Kaffi Bensín 95 okt. j j Bensín 98 okt. 1 1
Hraolia
*/5 '
tunnap
19,39
A M
Hague gæti
bjargað breska
íhaldsflokknum
William Hague, fyrrum ráð-
herra málefna Wales í stjóm
Johns Majors, gæti reynst
bjargvættur
breska íhalds-
flokksins, ef
marka má orð
eins keppi-
nauta hans um
leiðtogasæti
flokksins.
Stephen Dorrell, einn sex-
menninganna sem keppa um
leiðtogasætið, sagði í gær að
hann sjálfur og Hague væm
einu mennirnir sem gætu unn-
ið bug á klofningi innan flokks-
Þingmenn íhaldsflokksins
; greiða atkvæði um eftirmann
: Majors í næsta mánuði. Hague
| er talinn eiga mesta möguleika
| en að sama skapi er Dorrell
i ekki spáð góðu gengi.
Rússneskir
embættismenn
telji fram
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
? hefur gripið til nýrra vopna í
baráttunni við spillingu í land-
inu. Hann undirritaði í gær til-
skipun þess efnis að háttsettir
| embættismenn telji fram tekjur
| sínar og eigur á hverju ári. For-
setinn sjálfur verður þar engin
undantekning.
| Á sama tíma og Jeltsín skýrði
j frá þessu í útvarpsávarpi til
þjóðarinnar, lagði saksóknari
hersins fram spillingarákærur á
hendur Konstantín Kóbets að-
| stoöarvarnannálaráðherra.
S Kóbets var eitt sinn náinn
i bandamaður forsetans.
Bandarísk að-
stoð við ísrael
jafnvel
minnkuð
| Madeleine Albright, utanrík-
j isráðherra Bandaríkjanna,
| ræddi friðarhorfur í Mið-Aust-
urlöndum við ísraelskan starfs-
Ibróður sinn, David Lcvy. í Was-
hington í gær. Á sama tíma eru
teikn á lofti um aö Bandaríkja-
menn hyggi skera niður aðstoð
sína við Ísraelsríki og auka
hlut Jórdaníu.
Albright sagöi fréttamönnum
að bandarísk stjórnvöld vildu
verðlauna Jórdani fyrir friðar-
■ viðleitni þeirra og hún neitaði
I ekki að féð kynni að verða tek-
ið af hefðbundnu myndarlegu
| árlegu framlagi til ísraels.
ísraelska útvarpið sagði á
fimmtudag að Dennis Ross,
| sendimaður Bandaríkjastjóm-
1 ar, hefði rætt hugsanlegan 50
milljón dollara niðurskurð við
i ísraelska embættismenn.
IKaradzic ræður
enn öllu á bak
við tjöldin
Radovan Karadzic, fyrram
j leiðtogi Bosníu-Serba, er enn
aðalmaðurinn á bak við tjöldin
í serbneska lýð-
‘ ■ veldinu í Bosn-
■ íu, þótt hann
j gegni ekki
neinu opinberu
; embætti og sé
jj eftirlýstur
1 stríðsglæpa-
: maður.
„Hann togar enn í alla spotta,
hann heldur enn fundi meö
leiðtogum Bosníu-Serba,“ segir
Michael Steiner, næstæðsti
| maður SÞ i Bosníu.
Steiner og aðrir stjórnarer-
indrekar segja að þessi fyrrum
i geðlæknir og nótar hans, sem
skipulögðu þjóðernishreinsan-
I irnar í stríðinu, torveldi eins og
Iþeir geti að Dayton-friðarsam-
komulagið sé virt. Reuter
mmæmMmmi!