Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Side 10
LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997 Bðtal Fríða ásamt fjórum barna sinna, Silvíu, bráðum þrettán ára, Styrmi, sautján ára, Söru, fimm ára, og þeim litla, Sigurbirni, þriggja og hálfs árs. Á myndina vantar Steinar en hann er í Þýskalandi. DV-myndir BG Eiginkona Sigurbjörns Bárðarsonar sigraði hann í meistaramóti: Með hestamennskuna í blóðinu Fríða H. Steinarsdóttir vakti at- hygli um síðustu helgi þegar hún sigraði í meistaraflokki í tölti og 1. flokki í fjórgangi hjá Fáki. Hún er eiginkona hestamannsins knáa Sig- urbjöms Bárðarsonar og bar meðal annars sigurorð af honum á mótinu. „Sigurbjöm varð ekkert tapsár þótt ég ynni hann. Hann samgleðst yfírleitt þeim sem gengur vel,“ segir Fríða. Fríða var þekkt kapp- reiðakona á ámm áður. Hún keppti aðallega í stökki en hætti því þegar börnunum fór að fjölga. Hún og Sigurbjörn eiga saman fimm böm á aldrin- um 20 til 3ja og hálfs árs. Fríða hefur mikinn áhuga á að halda áfram að keppa í sumar. Það er miklu auðveld- ara nú en áður þar sem bömin eru orðin eldri. „Börnin leika sér saman og hjóla í hesthúsunum. Þau hafa einnig mjög gaman af því að fara á hestamannamót en eru ekki dregin þangað nauðug viljug,“ segir Fríða. Fríða sér um bókhaldið fyrir fyr- irtæki sitt og Sigurbjöms. Þau sjá um útflutning á hrossum og mark- aðssetja íslenska hestinn. Bömin eru 20, 17, 12, 5 og 3% árs. Að sögn Fríðu eru þau öll rauðhærð en það hafa þau frá pabba sínum. Hestaá- hugann drukku þau í sig með móð- urmjólkinni. „Ég hef alltaf haft hestamennsk- una í blóðinu. Ég byrjaði snemma að fara að heiman í Fák: Ég var al- ger plága þar. Þeir muna eftir mér gömlu hesta- DV Sara Ustir sínar iBe\ðh öW>nn'íVrir ■ir viku. mennirnir en for- eldrar mínir voru ekki í hestun- um,“ segir Fríða. Vann í happdrætti og keypti hest Hún eignaðist fyrsta hestinn sinn tólf ára gömul. Hún vann tvisvar í happdrætti og keypti hann fyrir peningana. Fríða hefur samt sem Hestamennskan er í blóðinu á öilum fjölskyldumeðiimum. DV-myndir BG áður stundað hestamennsku frá því hún man eftir sér. „Við Sigurbjörn kynntumst í gamla Fák. Mér finnst meiri háttar að við eigum þetta sameiginlega áhugamál. Þetta gengi ekki ef ég hefði ekki áhuga á því sem hann er að gera. Oft er unnið allan sólarhringinn. Fólk hringir á kvöldin til þess að fá aðstoð við hitt og þetta,“ segir Fríða. Börnin fengu snemma hestabakteríuna í blóðið. Elsti drengurinn starfar við tamningar og kynn- ingu á íslenska hestinum á hestabúgarði í Saar- brúcken í Þýskalandi. Hann vann til verð- launa á landsmóti þeg- ar hann var yngri. ,m^nd S Næstelsti drengurinn hefur einnig unnið til verðlauna. Silvía, sem verður bráðum þrettán ára, vann til verðlauna fyrir skömmu en hún fékk strax áhuga á hest- um. Hún hífði sig á höndunum upp á hestinn þegar hún var aðeins þriggja ára. Hún var mjög handsterk en mamma hennar segir að hún hafi fyrst farið á viljastyrknum einum saman. Hún klifraði upp á allt sem hægt var að fara klofvega yfir, handrið, arma á stólum og þröskulda, og sagði gobbi gobbi. Sara, sem er fimm ára, hélt eftirminnilega sýningu í Reið- höllinni fyrir skömmu. Hún er strax byrjuð að sigra á mótum. Hún sigraði meira að segja eldri systur sina í vor. „Ég byrjaði þegar ég var fjögurra ára að fara sjálf á hest- bak. Þetta er mjög gaman og ég er alltaf í hesthúsinu hjá pabba og mömmu," segir Sara. „Ég byrjaði strax að fara með bömin í hesthúsin. Til að byrja með fór ég með vagninn og þau sváfu þar. Aðstaðan okkar er mjög góð í hesthúsinu þannig að þetta var ekkert mál,“ segir Fríða. Að sögn Fríðu vom bömin alltaf með þeim. Þau fóru fyrst á hestbak eins til tveggja ára og voru þá fyrir framan pabba sinn og mömmu. Þau hafa aldrei farið á leikskóla þar sem Fríða hefur ekki verið útivinnandi frá því hún var tvítug. „Ég hef verið heima og það er talsvert mikið starf með fimm börn. Silvía dregur sig á höndunum upp á hestinn að- eins þriggja ára gömul. DV-mynd EJ Ég þarf aldrei að hugsa út í hvað ég eigi að gera í dag. Það ér alltaf nóg og ég hugsa frekar um hvemig ég ætli að komast yfir það sem ég þarf að gera. Ég er mjög fegin því að hafa fengið að hafa börnin mín svona mikið hjá mér. Það eru viss forrétt- indi. Þetta verður svolítið eins og lif í sveitum - að vísu búum við að hluta til í sveit. Við eram með hæn- ur, hunda og flytjum yfirleitt í sveit- ina á sumrin," segir Fríða. Hjónin eiga jörðina Oddhól á Rangárvöllum þar sem þau búa öll sumur. Þau reka hrossarækt- ina þar. Meiningin er að flytja þangað síðar meir þar sem þau þurfa hvort eð er að fara þang- að á hverjum degi til þess að gefa dýrunum. Hleypti á Lagar- fljótsbrúnni Fríða var mjög sigursæl í hlaupagreinunum hér áður fyrr. Hún keppti víða um land. Auk þess hleypti hún á Lagar- fljótsbrúnni árið 1979. Það var mjög eftirminnilegt þar sem rignt hafði mikið og brúin var mjög sleip. Fríða segist ekki myndu gera slíka hluti í dag. „Þetta var mjög gaman en ég myndi aldrei endurtaka þetta. Þetta hafði aldrei verið gert áður en ég lifi á þessu. Þetta er tími sem kemur aldrei aftur. Hægt og sígandi duttu hlaupa- hrossin uppfyrir. Maður þyngdist með aldrinum og var ekki eins æskilegur i hlaupin. Þegar ég var komin með tvö smáböm gerði ég mér grein fyrir að þetta væri ekki snið- ugt. Ábyrgðartilfinningin jókst. Þeir em yfirleitt mjög tómir í kollinum þessir hlaupahestar," segir Fríða. Að sögn Friðu era það for- réttindi fyrir börn að geta alist upp með dýrum og stundað hestamennsku. Skólinn hefur tekið fúllt tillit til krakkanna hennar í sambandi við hest- ana. Börnin hafa fengið frí þegar eitthvað er í gangi. „Þetta er líka þroski og þau læra einnig ýmislegt í gegnum hestamennskuna. Það er gott fyrir þau að umgangast dýrin. Þau læra að hemja sig. Þau geta ekki látið saklaust dýrið gjalda þess að þau séu í vondu skapi,“ segir Fríða. Fríða byijaði aftur að keppa árið 1990 og sigraði þá í tölti. Hún lenti í öðru sæti á eftir Sigurbirni í hitti- fyrra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.