Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Síða 17
LAUGARDAGUR 17. MAI 1997
t&star ”
■ *
Erfingjar
Svals skila
- góð útkoma stóðhesta í Svíþjóð
sér
Sænskir stóðhestar fengu góða
dóma á stóðhestasýningu í Háringe
Slott nýlega. Fulldæmdir voru fjöra-
tíu stóðhestar en byggingardæmdir
sex fjögurra vetra hestar.
Ágúst Sigurðsson, Guðlaugur
Antonsson og Guðni Ágústsson
dæmdu hestana.
Útkoman var mjög góð og virðist
rífandi gangur í ræktun í Svíþjóð.
Niu stóðhestsefhanna eru undan
Sval frá Glæsibæ sem drapst nýlega
en dauði hans var mikið áfall fyrir
Svia.
Fimm hestanna eru undan Atla
frá Syðra-Skörðugili sem er í eigu
Göran Hággberg en Hággberg var
einmitt eigandi Svals.
Fjórir hestanna era undan Mekki
frá Varmalæk.
Fjórtán af fjörutíu hestum fengu
hærri aðaleinkunn en 8, þar af sjö
hærri einkunn en 8,20.
Hæst dæmdi fjögurra vetra hest-
urinn er Fákur frá Hásteryd, undan
Mekki frá Varmalæk og Busku frá
Gerðum, með 8,27 fyrir byggingu,
7,67 fyrir hæfileika og 7,91 í aðalein-
kunn.
Steini frá Ekastorp, undan Hrekk
Hrannarssyni, fékk 7,82 og Solfari
frá Wreta, undan Sval frá Glæsibæ,
7,78.
Komu til Svíþjóðar í
móðurkviði
Fimm vetra hestamir eru ótrú-
lega efnilegir. Tveir hæst dæmdu
hestamir komu í móðurkviði til
Svíþjóðar. Askur frá Hákansgárd-
en, undan Kveik frá Miðsitju og
Ljósbrá frá Akureyri, fékk 7,98
fyrir byggingu og 8,50 fyrir hæfi-
leika og 8,29 í aðaleinkunn, en
Frami frá Háringe, undan Hektor
frá Akureyri og Sprengju frá Ytra
Vallholti, 8,09 fyrir byggingu, 8,33
fyrir hæfileika og 8,24 í aðalein-
kunn.
Sprengja, móðir hans, var fulltrúi
íslands sem kynbótahryssa á heims-
meistaramótinu í Svíþjóð 1991 og
var gengin rúmlega þrjá mánuði
með Frama en stóð þó efst í sínum
kynbótaflokki.
Thór frá Lyraninge, undan Fák
frá Sauðárkróki, fékk 8,16, Gladur
frá Stallgárden, undan Atla frá
Atli frá Syðra-Skörðugili
á marga afkomendur í Svíþjóð.
Knapi er Peter Hággberg.
Sval frá Glæsibæ, fékk 8,24, Thor frá
Kalvsvik, undan Hrammi frá Akur-
eyri, 8,23, Segull frá Skarði, undan
Ófeigi frá Flugumýri, 8,23, Háleggur
frá Oskarslundi, undan Anga frá
Laugarvatni, 8,21, Toti frá
Gategárden, undan Sval frá Glæsi-
hæ, 8,19, Hrafn frá Örvik, undan
Atla frá Skörðugili, 8,16 og Draum-
ur frá Stallgárden, undan Otri frá
Sauðárkróki, 8,04. -E.J.
Syðra Skörðugili,
8,11, Erro frá Mörtö,
undan Sval frá
Glæsibæ, 8,07 og
Blaer frá Stenhol-
men, undan Hrammi frá Akureyri,
8,01.
Fákssonur mótsmetshafi
Fákur frá Sauðárkróki, sem hefur
verið i Svíþjóð um árabil, á nokkur
efnileg afkvæmi i Sviþjóð og undan
honum er hæst dæmdi sex vetra
stóðhesturinn Hrimnir frá
Ödmárden. Móðirin er Kylja frá
Grímstungu. Hrimnir fékk 7,97 fyrir
byggingu, 8,55 fyrir hæfileika og
8,32 í aðaleinkunn.
Solfari frá Kvarnbacka, undan
VerSa ai sanna ætterni
meS blóSflokkun eSa
DNA-greiningu
Fagráð hrossaræktar ákvað í
mars að allir stóðhestar sem mæta í
dóm skuli blóðflokkaðir eða DNA-
greindir til staðfestingar á ætterni.
Fyrr en þessu skilyrði er fullnægt
teljist gripir ekki hafa lokið dómi.
Margir eigendur stóðhesta eru
ekki með það á hreinu hvernig eigi
að snúa sér í þessu máli.
„Dýralæknar eiga að taka blóð úr
hestunum og senda það til dýra-
læknaháskólans í Uppsölum í Sví-
þjóð,“ segir Brynjólfur Sandholt
yfirdýralæknir.
„Allir helstu stóðhestar landsins
hafa verið blóðflokkaðir undanfarin
ár og hefur Sigríður Björnsdóttir
dýralæknir haldið utan um skrárn-
ar. Hún er í Sviþjóð en kemur i júlí
og á að fá niðurstöður úr blóðflokk-
uninni. Hún verður með skrárnar á
Hólum,“ segir Brynjólfur.
Frést hefur af fyrirtæki í Ontario
í Kanada sem gerir DNA-greiningar
fyrir lítið fé, um 2.000 krónur á hest,
og er greiningin öraggari en blóð-
flokkun. Þá nægir að senda nokkur
hár úr hestinum. -E.J.
8EUROCARD
raðgreiöslur
TIL ALLT AÐ 36 MÁNAOA
Nýjusfu sjónvarps- og myndbandstækin
frá Thomson, Telefunken og Samsung
Skipholti 1 9
Sími: 552 9800
RAÐGREIÐSLUR