Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Page 18
■o Hdagur í IJfí_______________________________________________________________________
' ^ ik
Dagur í lífi Árna Ibsen, leikstjóra Að eilífu í Hafnarfjarðarleikhúsinu:
LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997 JjV
Garðinn sting ég upp seinna
„Það er mánudagurinn 12. maí.
Þrír dagar í frumsýningu á „Að ei-
lífu“ í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Vakinn rétt fyrir kl. 8. Átti einhver
örstutt orðaskipti við ástkæra eig-
inkonu meðan ég var að rembast
við að lyfta augnlokunum og hún
að drífa sig í vinnuna. Hún var far-
in þegar augu mín opnuðust. Fjöl-
skyldusamskipti hjá þeim sem
starfa í leikhúsi verða yfirleitt
heldur fátækleg þegar dregur að
frumsýningu.
Ég dreg gluggatjöldin frá. Sól-
skin, bjart og blítt úti. Dýrðin,
dýrðin! Loksins er sumarið að
koma. Óuppstunginn kartöflugarð-
ur bíður mín á bak við hús.
Seinustu styttingar
Morgunmatur. Bað, rakstur
o.þ.u.l. Sendi því næst leiðrétt
lokahandrit að leikritinu með
tölvupósti niður í leikhús handa
tæknimönnunum. Loksins fá þeir
rétt handrit til að keyra sýninguna
eftir. Þessi sýning er mjög flókin
tæknilega og gerir miklar kröfur
til þeirra sem um þau mál véla. Ég
lauk við seinustu styttingar rétt
fyrir kl. 4 í nótt eftir handritsfúnd
með Hilmari Jónssyni leikstjóra.
Mættiu- í leikhúsið kl. 9.30. Ótal
símtöl varðandi boðsmiða, fjöl-
miðlamál, sölumál, þrif og fleira,
enda hef ég dregist inn í daglega
amstrið við að þjónusta sýning-
una. í Hafnarfjarðarleikhúsinu er
engin deildaskipting, „samvinna"
er lykilorð á öllum póstum og á
lokasprettinum hefur höfúndurinn
oft eilítið rýmri tíma en aörir.
Látlausar hringingar
Æfing hefst kl. 10 og þá er farið
yfir styttingamar i seinni hluta
leikritsins með leikurum og tækni-
mönnum. Allir vel sáttir við þær.
Merkilegt hvað leikaramir geta
enn tekið við breytingum. Hádegis-
hlé. Örstutt. Anaði heim til að
kanna póstinn og athuga hvort fax-
bréf sem ég á von á hefði borist.
em mjög til bóta. Það er á þessu
stigi, þessum lokadögum æfinga-
ferlisins, sem lotning mín fyrir
leikurum kemst í hástig. Mér þyk-
ir alltaf jafn ótrúlegt að sjá hvem-
Gylfason leika. Ég talaði of mikið
eins og fýrri daginn. Hlýtur að
vera streitumerki.
Fór lauslega yfir árangurinn af
æfingunni með Hilmari og fleirum
Áml Ibsen hefur samiö enn einn gamanleiklnn fyrir Hafnarfjarðarlelkhúsið
Irfu.
Ekkert fax komið en síminn
hringdi látlaust á meðan ég fékk
mér brauðsneið og kaffi.
Kl. 1 eftir hádegi er seinni hlut-
inn æfður, honum rennt og hann
þéttur. Lofar góðu. Styttingamar
ig menn sigla sýningu í höfn á
seinustu kröfhmum þar sem allir
em á viðkvæmu tauginni.
Viðtal við blaðamann kl. 4 síö-
degis ásamt „brúðhjónunum11 sem
Þrúður Vilhjálmsdóttir og Halldór
Hermóð og Háðvöru. Nú er það Að ei-
DV-mynd E.ÓI.
en sneri mér svo að „praktísku
málunum í framhúsinu", eins og
miðasala, anddyri og aðstaöa
áhorfenda er kallað. Hafði í huga
að skjótast heim til að fá mér kríu
fyrir kvöldið en þegar til kom var
klukkan orðin 7 þegar mér tókst
að sleppa og ekki tími til annars
en skipta um fot. Leiðinlegt að
vera í akdrullugum gallabuxiun
innan um fólk sem kemur til að
horfa á æfinguna.
Fundur með Sóra
Kom aftur í leikhúsið upp úr
hálf 8 og þá voru leikarar í óða önn
að gera sig klára en áhorfendur
þegar teknir að streyma að. Stutt-
ur fundur með Sóra framkvæmda-
stjóra um allt það sem þyrfti að
gera í fyrramálið. Því næst hófst
æfingin. Nú reynir á styttingam-
ar. Þetta fer vel af stað, menn eru
að vanda sig, sýningin er þétt og
vel undirbyggð og þess vegna kem-
ur ekki að sök þó að vart verði við
örlítið hik í þeim atriðum sem við
styttum. Það mun allt þéttast aftur
á þeim æfingum sem eftir eru. í
lok æfingar sýna áhorfendur að
þeir kunnu vel að meta það sem
þeir sáu og heyrðu. Það er klappað
og hrópað og blístrað. Aflir eru
sælir og ekki sist viö sem erum að
sjá árangur margra mánaða vinnu.
Klukkan er ekki orðin 11. Sýning-
in hefur styst um heilar 20 mínút-
ur frá því fyrir helgi og það getur
skipt sköpum. Skopstæling af
þessu tagi má ekki verða of löng.
Svo sest aflur hópurinn niöur og
fer yfir „nótur“ leikstjórans. Það
tekur um tvo klukkutíma. Að auki
eru aðrir aðstandendur sýningar-
innar með nótur og ég er með fá-
einar textanótur. Klukkan er að
ganga 2 þegar leikaramir komast
út úr húsinu en þá setjumst við
hin niður og spjöllum áfram.
Klukkan rúmlega 3 kemst ég
loksins heim en þar er enginn til
að tala við, allir í fastasvefni. Legg
einn kapal áður en ég fer í rúmið.
Kartöflugarðinn sting ég upp um
helgina."
Finnur þú fimm breytingar? 411
Mundu nú fyrir bflprófið að málmdrasliö sem er fyrir fótunum á þér
heitir kúpling, bremsa og bensíngjöf.
Nafn:_____________________________________________________________
Heimili:----------------------------------------------------------
Vinningshafar fyrir fjögur hundruðustu og
níundu getraun reyndust vera:
Ölöf Guðmundsdóttir, Haraldur V. Jónsson,
Víðigmnd 10, Lækjartúni 15,
300 Akranes. 510 Hólmavík
Myndimar tvær virðast viö fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefúr
fimm atriöum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtmn við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Kalimar-Spirit AF, 35 mm myndavél
frá Radíóbæ, Ármúla 38, að verðmæti
3.995 kr.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkiö umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 411
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík