Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Síða 22
LAUGARDAGUR 17. MAI 1997 22 f§prstæð sakamál Robin Benedict var tuttugu og tveggja ára, dökkhærð, lífsglöð að sjá og að læra læknisfræði í Boston. Sér til dægradvalar lék hún á flautu. Hún vakti athygli skóla- bræðranna, en virtist ekki sýna áhuga á að vera með neinum þeirra. Þetta var sú hlið á Robin sem menn höfðu fyrir augunum á daginn, en hún átti sér aðra hlið sem hún sýndi öðrum á öðrum tímum, eink- um á kvöldin. Robin var ne&ilega ekki öll þar sem hún var séö. Þegar dimma fer taka stór- borgirnar á sig nýja mynd, og Boston er engin undantekning í þeim efnum. Þá fer fólk að leita eft- ir skemmtunum, og sumir jafnvel félögum til eins kvölds eða einnar nætur. Næturlífið heillar marga, og Robin kynntist því. Hún gerði sér grein fyrir því að mikið af fé skipt- ir um hendur í vissum hverfum, og að sumir karlmenn eru aldrei eins örlátir og þegar þeim stendur til boða að njóta blíðu ungra stúlkna. Þetta notfærði Robin sér. En þá valdi hún sér annað nafn til þess starfa. Douglas Williams. „Nadine" í Boston, eins og svo mörgum stórbörgum, eru fýrirtæki sem sjá karlniönum fyrir fylgdarstúlkum, eins, og .þær eru yfirleitt nefndar. Sumaf eru ekkert meira. Þær fara út með mönnum, borða með þeim, sækja leikhús og skemmtistaði og lengra nær það ekki. í mörgum til- vikum er hins vegar um aö ræða dulbúið vændi. Þá stofnar einhver með vafasamt siðferði fyrirtæki sem auglýsir fylgdarþjónustu. Robin ákvað að nýta sér þá tekju- möguleika sem þessu fylgdu, en hún ætlaði sér ekki aðeins að verða fylgdarstúlka, heldur selja blíðu sína til þess að hafa tekjurnar af kvöldstarfinu í hámarki. Hún valdi sér nafnið Nadine, og brátt varð hún þekkt í vissu hverfi í Boston. Það gengur undir nafninu „Combat Zone“, eða „vigvöllurinn". Þar er allt til sölu. Þar bjóða stúlkur blíðu sína og leigumorðingjar þjónustu sína. Nadine varð bráðlega þekkt fyrir það sem sumir nefndu „hið dular- fulla Mónu Lísu bros“, en einnig fyrir sérstakt, heldur fágætt og dýrt ilmvatn. Það var dýrt, en það var Nadine líka, og hún hafði ekki starf- að lengi i hverfinu þegar orð fór að fara af henni fyrir að vera hörð í viðskiptum. Hún seldi hverja min- útu þess tíma sem hún var í fylgd meö karlmönnum, og sumir höfðu á orði að hjá henni gengi gjaldmælir- inn allan tímann. Hvarfið Dag einn mætti Robin ekki í tíma í háskólanum. Og tun kvöldið mætti Nadine ekki til starfa á „vígvellin- um“. Sá sem rak fylgdarþjónustuna, Clarence Rogers, fékk áhyggjur. Þær voru þó ekki einungis bundnar við velferð Nadine, heldur þann tekjumissi sem honum varð ljóst að hann yrði fyrir ef eitthvað hefði komið fyrir hana. Næsta dag, er ekkert hafði enn spurst til Nadine, hélt Rogers til lögreglunnar. Hann taldi sig ekki þurfa að óttast það, því á yfirborðinu rak hann aðeins fylgdarþjónustu. Lögreglunni sagði hann að hann þættist nær viss um að eitthvað hefði komið fyrir Nadi- ne. Hún myndi aldrei hætta hjá sér án þess að gera sér það ljóst fyrir fram. Rogers hafði ekki sérstaklega gott orð á sér, enda flestum sem til þekktu ljóst að hann rak skipulagt vændi. En hann hafði óhagganlega fiarvistarsönnum kvöldið sem Nadi- ne hafði horfið. Hann hafði verið með stúlkum sem störfuðu hjá hon- um, og þær voru reiðubúnar að staðfesta það. Það síðasta sem hann vissi um Nadine, sagði hann, var að hún var í ibúð sinni, en þar stóð hún oft í símabandi við viðskipta- vinina. Plastpokinn Faðir Robin var Ijósmyndari. Lög- reglan haíði samband við hann, en hann gat engu ljósi varpað á hvar dóttir hans væri, og þegar honum var tilkynnt að leit yrði hafin að henni bauðst hann til að kópera myndir af henni fyrir sjónvarp og blöð í Masschusetts-ríki. Fljótlega fann lögreglan plastpoka með blóðugum fötum og hamri. Vakti fundurinn þegar grunsemdir um að Robin hefði verið myrt. Pok- inn fannst við vegarbrún rétt utan við Boston. Flíkumar reyndust vera karlmannsskyrta og kvenjakki úr flaueli. Kallað var á Clarence Rogers, og bar hann þegar í stað kennsl á kvenjakkann, og brá mikið þegar honum var sýndur hamarinn, en á honum var langt, dökkt hár. „Hún er dáin,“ sagði Rogers. Og lög- reglan var á sömu skoðun. En hvar var líkið? Vissan um að'Robin væri dáin varð enn meiri þegar bíll hennar fannst í New York. í farangurs- geymslunni fundust blóðblettir. Rannsókn leiddi í ljós að blóðið var i sama flokki og blóðið á skyrtunni, kvenjakkanum og hamrinum sem verið höfðu í plastpokanum. En það sannaði þó ekki að Robin væri dáin, hvað þá að hún hefði verið myrt. Prófessorinn Eftir nokkra daga virtist Rogers hafa jafnað sig að mestu. Hann kom aftur á fund lögreglunnar í þeirri von að eitthvað af því sem hann vissi um Robin gæti orðið til þess að upplýsa örlög hennar, og koma þeim seka undir lás og slá hefði hún verið myrt. Eitt af því sem Rogers lagði fram var listi yfir viðskipta- vini hennar. Brátt varð ljóst að einn mannanna á listanum hafði komið mjög oft í íbúð Robin. í raun hafði hann verið fastagestur hjá henni. Hann hafði komið næstum daglega, en Robin hafði hann kynnst í há- skólanum. William Douglas hét hann og var prófessor. Hann var kvæntur og átti tvö börn, en hafði hrifist mjög af Robin. Hann færði henni stöðugt gjafir og útgjöld hans vegna kynna þeirra urðu svo mikil að hann varð skuldum vafinn og greip þá til þess ráðs að draga sér fé af sjóðum há- skólans. Það komst upp, og hann missti starfið. Williams var tekinn til yfir- Robin Benedict. heyrslu. Aðspurður hvar hann hefði verið kvöldið sem Robin hvarf sagð- ist hann hafa verið að vinna, og var ekki hægt að sýna fram á að hann hefði sagt ósatt, þótt hann gæti hins vegar ekki vísað á neinn sem gæti vottað að hann segði satt. En svo var farið að kanna feril Williams nánar, og jafnframt var fylgst með ferðum hans á laun. Ákæran Leynilögreglumennirnir sem fengu það verkefni að fylgjast með Williams urðu þess brátt vísari að hann eyddi kvöldunum oft á „víg- vellinum“, þar sem „hann velti sér upp úr stelpunum", eins og einn lög- reglumannanna komst síðar að orði. Við frekari yfirheyrslur var Williams að því spurður hvort hann hefði kynnst stúlku sem hefði geng- ið undir nafninu Nadine í þessu vafasama hverfi. Því neitaði hann. Nú gerðist það hins vegar að lög- reglunni tókst að sýna fram á að hamarinn sem fundist hafði í plast- pokanum hafði verið í eigu Willi- ams. Hann var handtekinn, og nokkru síðar var gefin út á hendur honum ákæra fyrir að hafa myrt Robin Benedict. Saksóknari í málinu gegn honum var John Kivlan, sem fengið hafði viðurnefnið „barrakúda", því hann þótti svo harður. Hann sýndi fram á að plastpokinn sem fundist hafði var sömu gerðar og pokar sem fund- ust í eldhúsi Williams. Þá var feng- in staðfesting á þvi að Robin hafði átt kvenjakkann sem i pokanum var. Loks sýndi DNA-rannsókn að blóðið á því sem í honum hafði ver- ið og í farangursgeymslu bíls Robin kom heim og saman við blóðsýni úr bræðrum Robin. Játningin Verjandi Williams lagði áherslu á það í máli sínu að Robin, öðru nafni Nadine, hefði verið fégráðug vænd- iskona. Því svaraði Kivlan saksókn- ari með því að segja að það réttlætti ekki að hún hefði verið myrt. Að lokum fór svo að Williams við- urkenndi sekt sína, en hélt þvi jafn- framt fram að það hefði ekki verið ætlun sína að myrða Robin. Hann hefði farið heim til hennar með hamarinn með það í huga að neyða hana til að hitta sig oftar. Þau hefðu hins vegar farið að rífast, en rifrild- ið snúist upp í átök og þá hefði hann slegið til hennar með hamrin- um, en of fast. Er honum hefði ver- ið ljóst að hún var öfl hefði hann vafið teppi um líkið, borið það út að bíl hennar og lagt það í farangurs- geymsluna. Síðan hefði hann ekið um Boston meðan hann hefði hugs- að ráð sitt. Við stórverslun hefði hann séð ruslagám. Hann "hefði stöðvað bílinn, tekið líkið og lagt það í gáminn. Williams sagðist hafa ekið til New York eftir þetta og skilið bílinn þar eftir. Síðan hefði hann haldið aftur til Boston. En næsta kvöld sást á ný til hans á „vígveflinum“ þar sem hann var að reyna að stofna til nýrra stundarkynna. Eftirmáli Douglas Williams var dæmdur í tuttugu ára fangelsi. Hann skildi við konu sína skömmu síðar, en eftir nokkra dvöl í fangelsinu komst hann í kynni við fiörutíu og fiög- urra ára hjúkrunarkonu, Jean Smith, og gengu þau síðar í hjóna- band. Þau kynntust eftir að hann sá nafn hennar á lista yfir fólk sem óskaði eftir pennavinum og skrifaði henni. John Kivlan er hættur að sak- sækja afbrotamenn. Hann vann einn af stóru vinningunum í banda- ríska lóttóinu, og greip tækifærið til að draga sig í hlé, enda sagður hafa verið búinn að fá nóg af starfinu. 1 En hvað varð um líkið af Robinl Benedict? Ruslagámurinn sem það var lagt í var tæmdur, og innihald- ið flutt á haugana. Þangað var það löngu komið þegar málið upplýstist, og því tókst aldrei að finna það. Mynd af „vígvellinum".

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.