Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Side 43
-
33 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997
Bikarkeppni Norðurlanda 1997:
' Enn einn bikar til Landsbréfa
I
|
►
)
>
I
>
(
I
I-
f
I
I
>
)
>
I
>
(
i
I
l
>
I
Liðsmenn bridgesveitar Lands-
bréfa komu færandi hendi til for-
stjórans, Gunnars H. Hálfdanarson-
ar þegar þeir færðu honum verð-
launabikar fyrir sigur í Bikar-
keppni Norðurlanda sem haldin var
i bænum Rottneros í Svíþjóð.
Raunar fylgdi með ein stærsta
kampavinsflaska sem dálkahöfund-
ur hefir séð.
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Landsbréf hafa stutt vel við bakið
á sínum mönnum gegnum árin og
þeir eru ótaldir bikararnir sem
varðveittir eru á skrifstofu Lands-
bréfa vegna frábærrar frammistöðu
þessara bridgemeistara.
Áður en við skiljum við frásagnir
af bikarkeppninni skulum við líta á
eitt spil frá keppninni sem kom fyir
í leik Landsbréfa við bikarmeistara
Svíþjóðar.
A/N-S
é ÁDG65
•» 42
♦ ÁD75
* 65
* 43
* KDG1065
* G
* KG92
* K1092
Á9
♦ 1082
* 10842
I opna salnum sátu n-s Sverrir
Ármannsson og Þorlákur Jónsson
en a-v Nilson og Edstrand. Sagnir
gengu þannig:
Austur Suður Vestur Norður
1pass 2» 2f
4 4 * dobl Allir pass
Austur hóf vörnina með tígul-
gosa. Sverrir ihugaði blindan áður
en hann gaf í en lét að lokum
tíguláttuna. Vestur lét lítið og
Sverrir drap með drottningu. Hann
tók næst spaðaás, spilaði síðan
drottningu og drap með kóng. Þá
kom tígultía, kóngur og gefið. Vest-
ur spilaði nú hjarta en það var um
seinan. Sverrir drap með ás, spilaði
tígli og svínaði sjöunni. Tígulásinn
sá um hjartatapslaginn og vömin
fékk síðan tvo slagi á lauf. Slétt unn-
ið og 790 til n-s.
í lokaða salnum sátu n-s
Lindquist og Lindeberg en a-v Sæv-
ar Þorbjörnsson og Sigurður Sverr-
isson. Sagnir tók fljótt af:
Austur Suður Vestur Norður
4 w pass pass 4 4
pass pass pass
Aftur lá tígulgosinn á borðinu í
fyrsta útspili og fyrstu þrír slagim-
ir voru eins. Síðan kom tígultían,
kóngurinn og nú gerði Lindquist
þau hræðilegu mistök að drepa á ás-
inn. Hann varð að fara inn á tromp
til þess að spila tígli og vestur átti
4 87
44 873
♦ K9643
4 ÁD7
'■ skák
.... .....
ww
Óvænt úrslit í einvíginu í New York:
Niðurlæging Kasparovs var algjör
- ofurtölvan Dimmblá vann síðustu skákina á innan við klukkustund
Garrí Kasparov virðist hafa
brotnað saman undan þunga tölv-
unnar Dimmblár í einvíginu í New
York sem lauk um síðustu helgi.
Hsmn hefur aldrei á keppnisferli
sínum fengið jafnháðulega útreiö og
í síðustu skákinni. Eftir innan við
klukkustundar taflmennsku og að-
eins 19 leiki sá hann fram á að bar-
áttan væri vonlaus og gafst upp.
Þetta er i fyrsta sinn sem Kasparov
bíður lægri hlut í einvígi og aldrei
fyrr hefur hann þurft að þola ósigur
í svo fáum leikjum.
Tölvunni Dimmbláu hefur ber-
sýnilega farið mikið fram síðan fyr-
ir rúmu ári þegar Kasparov lék
hana heldur grátt. Enn er þó of
snemmt að fullyrða að tölvutæknin
sé orðin mannskepnunni fremri á
skáksviðinu. Taflmennska
Kasparovs í einvíginu var ekki sam-
boðin sterkasta skákmanni heims.
Að einvíginu loknu kenndi hann
aðstoðarmönnum sínum um ófar-
irnar, að hætti snjallra skákmanna
- kvað þá hafa ráðlagt sér að tefla
varfæmislega í stað þess að sækja
fram eins og honum er einum lagið.
Enn fremur skellti hann skuldinni á
Umsjón
Jón L. Árnason
forráðamenn IBM og þá vösku sveit
sem þróað hafa forritið og stýröu
því í einvíginu. Mátti á Kasparov
skilja að einhver brögð hefðu verið
í tafli. Bamaleg framkoma hans aö
einvíginu loknu varð til þess að
auka á niðurlægingu hans, sem var
þó nægileg fyrir.
Hermt er að þetta sé í fyrsta sinn
sem tölva vinnur ríkjandi heims-
meistara i einvígi. Þetta er hins veg-
ar ekki rétt því að þótt Kasparov sé
almennt álitinn fremsti skákmaður
heims er hann einungis heims-
meistari sinna eigin samtaka (PCA),
sem fleiri gætu leikið eftir. Heims-
meistari FIDE heitir hins vegar
Anatoly Karpov. Á hinn bóginn
hafa gárungamir haft á orði að
þetta sé í fyrsta sinn í aldarfjórðung
- síðan Fischer vann Spasskí - að
Bandaríkjamaður beri sigurorð af
Rússa í heimsmeistaraeinvígi í
skák!
Hvað kom fyrir Kasparov í síð-
ustu skákinni? Þeirri spurningu
verður trúlega seint svarað en víst
er að þar tefldi ekki sá Kasparov
sem heillað hefur skákunnendur
með djarflegri og skemmtilegri
framgöngu. Kasparov gaf Dimmblá
kost á að fórna riddara í 8. leik en
sú fóm er þekkt í skákfræðunum
fyrir að gefa mikla möguleika.
Kasparov lenti í krappri vörn og
næstu leikir hans gerðu illt verra.
Sú tilgáta hefur komið fram að
Kasparov hafi einfaldlega víxlað
leikjum í byrjuninni. Aðrir segja að
eftir áfollin í fyrri skákum einvígis-
ins hafi taugakerfi meistarans geflð
sig - minnugir þess að hann gafst
upp í jafnteflisstöðu i 2. skákinni og
tókst ekki að vinna vænleg endatöfl
í 4. og 5. skákinni. Enski stórmeist-
arinn John Nunn gefur Kasparov þá
föðurlegu ráðleggingu, ætli hann
sér að tefla aftur við tölvuna, að ein-
beita sér að sálfræðOegum undir-
búningi í stað þess að eyða tíma í
skákrannsóknir.
Þrátt fyrir allt stendur sú stað-
reynd óhögguð að fröken Dimmblá
vann Kasparov. Úrslitin marka
tímamót í skáksögunni og hafa ef-
laust þýðingu langt út fyrir 64 reiti
skákborðsins. Væri tölva eins og
Dimmblá ekki kjörin til þess að
stýra herfylkjum í næsta Flóabar-
daga? Hefst þá ekki kapphlaup þjóð-
anna við að koma sér upp einni
Dimmblá?
Hvítt: Fröken Dimmblá
Svart: Garrí Kasparov
Caro-Kann vöm.
1. e4 c6
Þetta eru auðvitað augljós merki
þess að eitthvað sé að. Annars hefði
Kasparov leikið c-peðinu fram um
tvo reiti, eins og hann á vanda til!
2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4 Rd7
5. Rg5 Rgf6 6. Bd3 e6 7. Rlf3 h6?!
í stað 7. - Bd6 8. De2 h6, en þá er
fórnin á e6 ekki nærri eins hættu-
leg. Biskupsleiknum beitir Karpov
jafnan í stöðunni en hann hefur
mikið dálæti á þessu hógværa af-
brigði.
8. Rxe6!
Kann að vera að Kasparov hafi
vanmetið tölvuna og treyst því að
hún myndi ekki fóma? Sú skýring
er hæpin því að nú er liðin tíð að
tölvur tefli einungis upp á aö vinpa
peð. Á helgarskákmóti tímaritsins
Skákar á Suðureyri við Súganda-
fjörð árið 1994 var forritið Chess
Genius meðal þátttakenda og sigr-
aði glæsilega, m.a. með því aö leggja
stórmeistarana Helga Ólafsson og
Hannes Hlífar Stefánsson að velli.
Sævari Bjamasyni tókst einum að
leggja tölvuna og svo einkennilegt
sem það nú er, þá kom fram þessi
sama staða - og tölvan fómaði á e6!
8. - De7?
Af tvennu illu er betra að leika
strax 8. - fxe6 9. Bg6+ Ke7 o.s.frv. en
svartur er langt á eftir með liðsskip-
anina.
9. 0-0 fxe6
Ef 9. - Dxe6 10. Hel og leppar
drottninguna.
10. Bg6+ Kd8 11. Bf4 b5?
Sævar lék 11. - Db4 gegn tölvunni
á Suðureyri og 11. - Re8, eða 11. -
Rd5 hafa einnig verið reyndir.
Svartur á þó erfitt uppdráttar i
þessu afbrigði. í 15 þekktum skák-
um hefur hvítur 13 sinnum haft bet-
ur.
12. a4 Bb7 13. Hel Rd5 14. Bg3
Kc8 15. axb5
Afleiðingar 11. leiks svarts eru
þær að nú kemst hvíti drottningar-
hrókurinn átakalaust í leikinn.
15. - axb5 16. Dd3 Bc6 17. Bf5!
exf5
Svartur á ekki annars úrkosti en
gefa drottninguna. Hann fær nægar
bætur í liðsafla en staðan er í rúst.
18. Hxe7 Bxe7
Ef 18. - Rxe7 19. Dc3 Rb8 20. Re5
með vinningsstöðu.
19. c4
í þessari stöðu kaus Kasparov
að gefast upp, enda gildir einu
hvemig hann ber sig að. Ef 19. -
Rb4 20. Dxf5 bxc4 21. Re5 og hvít-
ur á vinningsstöðu, eða 19. - dxc4
20. Dxc4 Rb4 og nú getur hvítur
valið um 21. Hel, eða 21. Ha4 Rb6
22. De6+ Bd7 23. Dxb6! axb6 24.
Hxa8+ Kb7 25. Hxh8 o.s.frv. Hvít-
ur vinnur létt.
Skákmót öðlinga
Árlegu skákmóti öðlinga, 40 ára
og eldri, lauk með sigri Jóns Torfa-
sonar, sem hlaut 6 vinninga úr 7
skákum. Kristján Guðmundsson -
sigurvegarinn frá því í fyrra - varð
í 2. sæfi með 5 v. en síðan komu Júl-
íus Friðjónsson, Bragi Halldórsson,
Ögmundur Kristinsson og Áskell
Öm Kárason með 4,5 v.
Bikarmeistarar Norðurlanda, sveit Landsbréfa. Talið frá vinstri: Sigurður
Sverrisson, Sævar Þorbjörnsson, Gunnar Helgi Hálfdanarson með bikarinn,
Sverrir Ármannsson og Þorlákur Jónsson.
slaginn á níima. Hann spilaði hjarta
sem sagnhafi drap með ás. Spilið er
nú tapað því sagnhafl kemst ekki
heim til þess að taka tígulsjöuna
nema að spila trompi. En þá á hann
ekkert tromp eftir tll þess að trompa
hjartað. Einn niður og 100 í viðbót
til Landsbréfa sem græddu 13 impa.
í leik Noregs og Finnlands spilaði
Norðmaðurinn Jon Sveindal einnig
fióra spaða en nú kom út hjarta-
kóngur. Hann drap á ásinn, tók
tvisvar tromp og endaði í blindum.
Þá kom tígultía, kóngur, ás og gosi.
Síðan inn á blindan á tromp og
tíguláttunni svínað. Ellefu slagir.
M
ttltt
•D-XI*
Itliðasala hcfst
þridjudaginn 20. maí kl. 12"
í íslensku Dperunni.
Sý/tf^
Fimmtud. 1Z. jún írums. kl. 20:1111.
Idstud. II. jún 2. sgn. kl. 211:1111.
Ijugard. 14. jún I. sgn. kl. 211:00.
kunnud. II. jún 4. sgn. kl. 20:00.
Olanud. 11). jún I. sgn. kl. 20:00.
miðapantanir i síma 551 H75
| IriUu'nnirinn |
46.900,-
FAGOR ^
ÞvottavéE
Frábær þvottavél ál
kynningarverði
Rúmar 4,5 kg
Þrettán þvottakerfi
Stiglaus hitastillir
1000/650 sn/mín
Áfangaþeytivinda
Leggur í bleyti
Sjálfhreinsandi dæla
Barnalæsing
' Ryðfrí tromla og fíber belgur
Hámarksorkunotkun 1,9 kw
Stærð H 85 B 59,5 D 55 (cm)
fðsverð
WI
StgrT| I
RÖNNING
Borgartúni 24
Sími 562 4011