Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Síða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Síða 47
LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997 afmæli * - Til hamingju meo afmælid 19. maí 90 ára Ólafía Sigurðardóttir, Hraunbúðum, Vestmanneyj- um. 85 ára Lambertus J.M. Terstroet, Holtsbúð 87, Garðabæ. 80 ára Kristinn Guðlaugsson, Karlsbraut 6, Dalvík. Oddur Sigurbergsson, Þorragötu 5, Reykjavík. 75 ára Sighvatur Jónasson, Fannafold 197, Reykjavík. Guðrún Ingvarsdóttir, Smyrlahrauni 12, Hafnarfirði. Þorleifur Benediktsson, Garðsbrún 3, Höfn í Horna- firði. 70 ára Böðvar Árnason, Reynihvammi 38, Kópavogi. Þorvarður Magnússon, Álfaskeiði 71, Hafnarfirði. Haraldur Magnússon, Efstasundi 69, Reykjavík. Óskar Sigurðsson, Skálagerði 17, Reykjavík. Guðmundur Ingimarsson, Birtingaholti III, Hrana- mannahreppi. 60 ára Sigurður Kristjánsson, Ránargötu 6, Reykjavík. Árni Jón Sigurðsson, Miðtúni 5, Seyðisfirði. Rúnar Már Vagnsson, Álfaskeiði 34, Hafnarfirði. 50 ára Pétur Óskar Ársælsson, Lundahólum 4, Reykjavík. Örlygur Antonsson, Hábergi 7, Reykjavík. Magnús Hringur Guð- mundsson, Hóli, Flateyri. Alda Ruth Sigurjónsdóttir, Seljabraut 40, Reykjavík. Ásgeir Hannes Eiríksson, Klapparbergi 16, Reykjavík. Bergþóra Gunnlaugsdóttir, Miðbraut 19, Vopnafirði. Ægir Magnússon, Sigtúni 13, Selfossi. 40 ára Sigrún Gréta Magnúsdóttir, Reykási 35, Reykjavík. Guðrún Magnúsdóttir, Hagalandi 8, Mosfellsbæ. Ólafur Sigurðsson, Melhaga 15, Reykjavík. Stefanía Snorradóttir, Kjalarsíðu 8A, Akureyri. Sigurjóna Skarphéðinsdótt- ir, Brennihlíð 8, Sauðárkróki. María Sigurðardóttir, Hvammstangabraut 37, Hvammstanga. Helgi Sigurbjömsson, Suðurgötu 24, Sandgerði. Elin Friðbertsdóttir, Þinghólsbraut 53, Kópavogi. Guðjón Sigmundsson, Ásvallagötu 27, Reykjavík. Helga Gísladóttir, Skúlagötu 52, Reykjavík. Diego Lopez Martinez, Rauðarárstíg 33, Reykjavík. Hólmgeir Björnsson Hólmgeir Bjömsson, deildarstjóri við Rannsóknarstofnun landbúnað- arins, Hraunbæ 104, Reykjavík, verður sextugur á morgun. Starfsferill Hólmgeir fæddist í Bjarghúsum í Vesturhópi og ólst þar upp. Hann lauk landsprófi frá Reykjum í Hrútafirði 1952, stúdentsprófi frá MR 1956, stundaði nám í jarðrækt- arfræði og lauk búfræðikandídats- prófi frá Búnaðarháskólanum í Ul- tuna í Svíþjóð 1961, stundaði fram- haldsnám í tölfræði við Cornell há- skóla í Bandaríkjunum og lauk það- an doktorsprófi 1973. Þá dvaldi hann við nám við Dýralækningahá- skólann í Hannover og fór námsfor til búnaðarháskóla Norðurlanda 1965. Hólmgeir var aðstoðarkennari við Búnaðarháskólann í Ultuna 1959-61, aðstoðarmaður við Til- raunastöðina á Akureyri 1962, stundakennari við MA 1962-63, kennari við Bændaskólann á Hvanneyri 1963-66, stundakennari við menntaskóla í Reykjavík 1969-74 og við HÍ 1974-78, hefur ver- ið sérfræðingur í tölfræði og skipu- lagningu tilrauna við Rannsóknar- stofnun landbúnaðarins frá 1969 og deildarstjóri þar frá 1980. Hólmgeir var varaformaður Fé- lags íslenskra búfræðikandídata 1971-73, sat í stjóm Fé- lags íslenskra náttúm- fræðinga 1974-77 og 1988-90, í stjóm íslands- deildar NJF 1976-84, í tilraunaráði Rannsókn- arstofnunar landbúnað- arins 1978-85, var fyrsti formaður Líftölfræðifé- lags íslands 1983, í stjórn norræns svæðis- félags innan Biometric Society 1982-93 og frá 1996, þar af forseti þess 1988-89. Fjölskylda Hólmgeir kvæntist 12.5. 1961 Jón- ínu Guðmundsdóttur, f. 12.5. 1940, skjalaverði í iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytinu. Hún er dóttir Guð- mundar B. Jóhannessonar og Þor- bjargar Valdimarsdóttur, bónda og húsfreyju að Þorgrímsstöðum á Vatnsnesi. Dætur Hólmgeirs og Jónínu eru Þorbjörg, f. 20.12. 1961, jarðfræðing- ur og MS í mannvirkjafræði, við rannsóknir við HÍ og stundar kennslu við MS en maður hennar er Reynir Arngrímsson, dósent í klínískri erfðafræði, og eiga þau tvö börn; Guðrún, f. 12.3. 1965, BA i heimspeki og stærðfræði og kennari við MH en maður hennar er Gísli Sigurðsson, íslenskufræðingur og sérfræðingur á Áma- stofnun; Hugrún Ragn- heiður, f. 29.6. 1970, ís- lenskufræðingur og málfarsráðgjafi hjá ís- lenska útvarpsfélaginu en maður hennar er Pálmi Erlendsson, jarð- fræðingur við Veður- stofu íslands, og eiga þau eitt barn. Systkini Hólmgeirs: Jóhanna Björnsdóttir, f. 4.8. 1930, lengi hús- freyja í Bjarghúsum og kennari, nú búsett i Reykjavík; Þorvaldur Bjömsson, f. 27.3. 1935, tónmenntakennari og hljóðfæraleikari í Reykjavík. Foreldrar Hólmgeirs voru Bjöm Sigvaldason, f. 16.2. 1902, d. 12.5. 1993, bóndi í Bjarghúsum, og Guð- rún Teitsdóttir, f. 21.1. 1906, d. 9.7. 1985, húsfreyja. Ætt Bjöm var sonur Sigvalda, b. á Brekkulæk í Miðfirði, Bjömssonar, Sigvaldasonar. Móðir Sigvalda var Ingibjörg Aradóttir, systir Árna, afa Ásgeirs L. Jónssonar búfræði- kandídats. Systir Ingibjargar var Ragnhildur, langamma Tryggva bú- fræðikandídats og Björns landa- fræðings Pálssona. Móðir Bjöms í Bjarghúsum var Hólmfríður Þorvaldsdóttir, prests á Reynivöllum og á Melstað, Bjarna- sonar og Sigríðar Jónasdóttur, hálf- systur Þorvalds Jakobssonar, afa Þorvalds Búasonar eðlisfræðings. Guðrún var systir Önnu, ömmu búfræðikandídatanna Gunnlaugs og Hauks Júlíussona. Guðrún var dótt- ir Teits, b. í Víðidalstungu, Teits- sonar, og Jóhönnu, systur Ingibjarg- ar, móður Guðmundar, búfræði- kandídats og fyrry. skólastjóra á Hólum, föður Ólafs, búfræði- kandídats og deildarstjóra hjá Rannsóknarstofnun landbúnaðar- ins. Bróðir Guðmundar var Torfi á Torfalæk, faðir Jóhannesar bú- fræðikandídats. Önnur systir Jó- hönnu var Halldóra, amma Þor- steins Guðmundssonar búfræði- kandídats. Bróðir Jóhönnu var Guð- mundur landlæknir. Jóhanna var dóttir Björns, b. á Marðamúpi, Guð- mundssonar en frá systkinum hans eru komnir búfræðikandídatamir Ingimundur Guðmundsson, Aðal- björn Benediktsson og Tryggvi Páls- son en bróðir Tryggva er Bjöm landfræðingur sem fyrr er getið. Móðir Björns á Marðamúpi var Guðrún Sigfúsdóttir, b. á Þorkels- hóli og ættföður Bergmannsættar- innar. Móðir Jóhönnu var Þorbjörg Helgadóttir, systir Sigurðar, afa Jóns Eyþórssonar veðurfræðings. Hólmgeir er að heiman á afmælis- daginn. Hólmgeir Björnsson. Birgir Finnsson Birgir Finnsson, fyrrv. alþingisforseti, Háaleitis- braut 20, Reykjavík, verð- ur áttræður á annan í hvítasunnu. Starfsferill Birgir fæddist á Akur- eyri en flutti með foreldr- um sínum til Ísaíjarðar 1920. Hann lauk stúdents- prófi frá MA 1937 og stundaði nám i hagfræði við Háskólann í Stokk- hólmi 1937-39. Birgir annaðist afgreiðslu fisk- flutningaskipa til Englands 1939-45, sá um útgerð og síldarsöltun á Siglufirði fyrir Samvinnufélag ís- fírðinga 1937-55, var framkvæmda- stjóri þess 1945-61 er félagið hætti störfum og var umboðsmaður Brunabótafélags Islands 1954-70. Hann flutti til Reykjavíkur 1971 og starfaði þar við endurskoðun til 1993. Birgir sat í bæjar- stjóm á ísafirði 1942-66, var forseti bæjarstjómar 1952-62, og var alþm. 1959-71, þar af forseti sameinaðs þings 1963-71. Birgir starfaði í at- vinnutækj anefnd 1956-61, sat í stjórn Samábyrgðar íslands á fiskiskipum 1967-86, sat lengi 1 síldarútvegsnefnd og var formaður hennar 1968-73 og 1981-84, sat á allsherjar- þingi SÞ 1961 og 1971 og sat fundi Þingmannasamtaka Norður- Atl- antshafsríkjanna 1966, 1967 og 1969. Þá sat hann í fjölda stjómskipaðra nefnda. Fjölskylda Birgir kvæntist 14.10. 1944 Arn- dísi Ámadóttur, f. 22.5. 1921, hús- móður. Hún er dóttir Áma Ólafs- sonar, húsasmíðameistara á ísa- firði, og Málfríðar Jónsdóttur hús- móður. Böm Birgis og Arndísar era Auð- ur Birgisdóttir, f. 13.2. 1945, deildar- stjóri á Ferðaskrifstofu íslands í Reykjavík, gift Páli Skúlasyni, verð- andi háskólarektor; Finnur Birgis- son, f. 7.6.1946, arkitekt á Akureyri, kvæntur Sigurbjörgu Pálsdóttur bókaverði; Arndís Birgisdóttir, f. 10.7. 1948, starfsmaður Pósts og síma í Reykjavík; Bjöm Birgisson, f. 25.4. 1951, kennari og umboðsmað- ur í Grindavík, kvæntur Ingibjörgu Gunnlaugsdóttur. Systkini Birgis: Þuríður Finns- dóttir, f. 1915, nú látin, húsmóðir I Reykjavík, var gift Snorra Hall- grímssyni læknaprófessor; Ásta Finnsdóttir, f. 1919, húsmóðir í Reykjavík, en hún starfrækti lengi verslun i Reykjavík, ásamt manni sínum, Ragnari Jóhannssyni; Ingi- björg Finnsdóttir, f. 1921, fyrrv. verslunarstjóri á ísafirði; Finnur Birgir Finnsson. Finnsson, f. 1923, lengst af kennari á ísafirði, nú búsettur í Reykjavík, en kona hans er María Gunnarsdóttir; Jón Finnsson, f. 1926, hrl., búsettur í Hafnarfirði, kvæntur Kristbjörgu Jakobsdóttur. Foreldrar Birgis voru Finnur Jónsson, f. 28.9. 1894, d. 30.12. 1951, félags- og dómsmálaráðherra, og Auður Sigurgeirsdóttir, f. 2.4. 1888, d. 20.6. 1935, húsmóðir. Ætt Finnur var sonur Jóns, b. á Harð- bak á Sléttu, Friðfinnssonar, b. á Barði á Akureyri, Jósefssonar. Móð- ir Finns var Þuríður Sesselja Sig- urðardóttir, b. í Miðkoti í Svarfað- ardal, Jónssonar. Auður var dóttir Sigurgeirs, b. á - Hallgilsstöðum í Fnjóskadal, Ind- riðasonar og Friðriku Magnúsdótt- ur. Birgir er í útlöndum um þessar mundir. Sigrún Gissurardóttir 1 i i Sigrún Gissurardóttir húsmóðir, Grjótaseli 3, Reykjavík, er sextug í dag. Sigrún fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Auk húsmóðurstarfa var Sigrún læknaritari um skeið, var ritari við elliheimilið Grund og á Droplaugarstöðum. Þá rak hún, ásamt mágkonu sinni, hannyrða- verslunina Satúrnus hf. en hætti því af heilsufarsástæðum. Sigrún hefur starfað mikið í góð- templarareglunni í Reykjavík og var lengi gæslumaður barna- stúkunnar Æskunnar i Reykjavík. Fjölskylda Sigrún giftist 17.5. 1955 Sigurði Þór Jörgenssyni, f. 13.5. 1931, við- skíptafræðingi. Hann er sonur Jörgens Guðna Þorbergssonar, f. 6.12. 1900, d. 16.9. 1986, tollvarðar í Reykjavík, og Laufeyjar Jónsdótt- ur, f. 18.6. 1902, d. 26.11. 1980, hús- móður. Börn Sigrúnar og Sigurðar em Guðni Þór Sigurðsson, f. 6.3. 1967, verslunarmaður í Reykjavík, en sambýliskona hans er Guðlaug Guðjónsdóttir garðyrkjufræðingur; Sigþrúður Sigurðardóttir, f. 14.6. 1972, sölufulltrúi Pósts og sima á Akureyri, en sambýlismaður henn- ar er Ómar Þór Júlíusson vélstjóri. Systir Sigrúnar: Bryndís Gissur- ardóttir, f. 18.2. 1939, d. 9.9. 1948. Hálfsystkini Sigrúnar, sam- mæðra, eru Pétur Kristjónsson, f. 23.4. 1926, bifreiðastjóri, nú búsett- ur í Svíþjóð; Guðbjörg Sigríður Kristjónsdóttir, f. 7.5. 1928, húsmóð- ir í Mosfellsbæ. Fóstursystir Sigrúnar er Margrét Gunnlaugsdóttir, f. 5.4. 1927, hús- móðir í Reykjavík, en Margrét er systurdóttir Gissurar, foður Sigrún- ar. Foreldrar Sigrúnar vom Gissur Pálsson, f. 13.12. 1909, d. 17.9. 1994, rafvirkjameistari og ljósameistari Leikfélags Reykjavíkur, og Sig- þrúður Pétursdóttir, f. 26.1. 1901, d. 14.5. 1977, húsmóðir í Reykjavík. Ætt Gissur var bróðir Gyðríðar, móð- ur Jóns Helgasonar, fyrrv. ráð- herra, og bróðir Guðrúnar, móður Gunnars, forstjóra Einkaleyfisskrif- stofunnar, Lofts sagnfræðings og Hjörleifs alþm. Guttormssona. Giss- ur var sonur Páls, b. í Þykkvabæ, Sigurðssonar, b. þar, Sigurðssonar. Móðir Páls var Guðríð- ur Bjarnadóttir. Móðir Gissurar var Margrét Elíasdóttir, b. á Syðri-Steinsmýri, Gissurarsonar, og Gyð- ríðar Þórhallsdóttur. Sigþrúður var dóttir Péturs, verkstjóra og steinsmiðs í Reykjavík, Þorsteinssonar, b. á Högnastöðum í Staf- holtstungum, Péturs- sonar. Móðir Péturs steinsmiðs var Sigríður Magnúsdóttir. Móðir Sigþrúðar var Kristín Sig- urðardóttir, b. á Saurhóli við Eyja- fjörð, Ólafssonar og Sesselju Jónas- < dóttur. Sigrún og Sigurður taka á móti gestum í Safnaðarheimili Bústaða- kirkju laugardaginn 17.5. kl. 11.30. Sigrún Gissurardóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.