Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Side 49

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Side 49
JOV LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997 gsonn 57 Mótettukórinn syngur í Haligrímskirkju annan dag hvítasunnu. Afmælistónleikar Mótettukórsins Annan dag hvítasunnu heldur Mótettukór Hallgrímskirkju upp á 15 ára starfsafinæli sitt meö veglegum tónleikum á Kirkjulistahátíð 1997. Á tónleikaskránni er meöal annar nýtt kórverk eftir Hróðmar Inga Sigur- bjömsson sem kallast Sálmur 104. Stjómandi Mótettukórsins er Höröur Áskelsson. Tónleikarnir hefjast kl. 17. Tónleikar Verk fyrir kvæðamann, fiðlu og orgel Fyrstu tónleikar Kirkjulistahá- tíðar verða haldnir á morgun í Hallgrímskirkju. Þar koma fram Halvor Hákanes kvæðamaður, Per S. Bjorkum fiðluleikari og Káre Nordstoga organisti. Halvor er Lærður silfursmiður en hefur eink- um getið sér frægð í sínu heima- Landi fyrir þjóðlagasöng og syngur hann að hætti Þelamerkurbúa. Hann syngur Draumkvæðið sem er norskt leiðslukvæði frá miðöldum. Nemendasýning Vorsýning Myndlistarskólans á Akureyri hefst í dag og stendur yfir tO mánudags. Sýningin er í skóia- húsinu við Kaupvangsstræti og verður opin kl. 14-18. Vorsýning skólans er á hverju ári hápunktur- inn í starfi skólans. Þar gefst gest- um kostur á að líta þverskurðinn af því mikla starfi sem unnið er í hon- um. Nú í vetur voru nemendur skól- ans alls um 350 að tölu og þar af vora 39 í dagdeildum skólans. Sýningar Smíðaval - sýning Nemendur smíðavalss KHÍ era með sýningu á viðfangsefnum vetr- arins í dag kl. 11-16 í Listhúsi KHI, Skipholti 37. Sýningin hófst i gær. Smíðar er valfag við Kennarahá- skólann og hentar þeim vel er vilja takast á við smiðakennslu i grann- skóla. í húsnæði smíðavals er góð aðstaða til ástundunar flestar smíðagreina, bekkjarsalur með hef- ilbekkjum, helstu handverkfærum og rafmagnsverkfærum, vélasalur, málmsmíðastofa og stofa þar sem fram fara fyrirlestrar, teikni- og hönnunarvinna svo eitthvað sé talið upp. Nemendur hafa frelsi í efnisvali og mótun þeirra verkefiia sem þeir taka sér fyrir hendur. ÖLl eru verkefiiin eigin hönnun nem- enda. Mjallhvít í Ævintýra- Kringlunni í dag, klukkan 14.30, sýnir Furðuleikhúsið leikritið Mjallhvít og dvergamir sjö. Verður vafa- laust líf og fjör því krakkarnir fá að taka virkan þátt í sýningunni. Samkomur Matjurtir Gunnþór Guðflnnsson mun fjalla um matjurtir i heimilisgarð- inum í Fjölbrautaskóla Sauðár- króks kl. 13 í dag. Komið og dansið á Austurlandi eru samtök sem standa fyrir dansleik í Hótel Valaskjálf, Egils- stöðum, i kvöld. Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar leikur fyr- ir dansi. Hlýnar fyrir norðan Yfir norðausturströnd Grænlands er 1.032 mb hæð en 996 mb lægð um 700 km suðsuðvestur af Reykjanesi þokast norðvestur og síðan vestur. Veðrið í dag Það ætti að sjást til sólar á Norð- urlandi í dag og þar verður hið sæmilegasta veður ef miðað er við síðustu daga og allt að tíu stiga hiti. Á Austurlandi þurfa þeir að bíða enn um sinn eftir góða veðrinu. I dag er spáð austankalda. Það mun rigna eitthvað á Sunnlendinga. Heit- ast verður á Suðvesturlandi og get- ur hitinn farið upp í tólf stig á höf- uðborgarsvæðinu. Sólarlag í Reykjavík: 22.44 Sólarupprás á morgun: 04.03 Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.34 Árdegisflóð á morgun: 03.45 Veðrið kl. 12 á hádegi í gær: Akureyri skýjaö 8 Akurnes rigning 5 Bergsstaóir alskýjaö 5 Bolungarvík alskýjaö 5 Egilsstaöir skýjaö 5 Keflavíkurflugv. rigning 7 Kirkjubkl. rigning 5 Raufarhöfn alskýjaö 3 Reykjavík rigning og súld 7 Stórhöfói alskýjað 5 Helsinki úrkoma í grennd 15 Kaupmannah. léttskýjaó 17 Ósló skýjað 17 Stokkhólmur skýjaö 18 Þórshöfn skýjaö 9 Amsterdam mistur 21 Barcelona þokumóöa 21 Chicago heióskirt 4 Frankfurt hálfskýjaö 25 Glasgow skýjaö 17 Hamborg skýjað 21 London mistur 18 Lúxemborg þokumóöa 22 Malaga skýjað 17 Mallorca skýjað 22 París skýjaö 27 Róm þokumóöa 26 New York hálfskýjaó 12 Orlando heiöskírt 22 Nuuk slydda 0 Vín léttskýjaó 27 Washington skýjaö 10 Winnipeg heiöskírt 3 Hin skemmtilega stuðhljóm- sveit, Sniglabandið, er nú stödd í Vestmannaeyjum og skemmti Eyjamönnum í gærkvöld á Höfð- anum. Annað kvöld mun Snigla- bandið leika á sama stað. Snigla- bandið er þekkt fyrir líflega fram- komu og heldur yfirleitt uppi miklum dampi og er ekki að efa að Eyjamenn kunna að meta Snigl- ana. Hvítasunnuhátíð R-listans Borgarstjórinn í Reykjavík og borgarfulltrúar bjóða til hvita- Skemmtanir sunnuhátíðar á Hótel Borg annan dag hvítasunnu, 19. maí. Fagnað- urinn er opinn öllu stuðningsfólki Reykjavíkurlistans og verður boð- ið upp á vandaöa skemmtidag- skrá. Veislustjóri er Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir borgarstjóri. Meðal þeirra sem koma fram eru sönghópurinn Emil og Anna Sigga sem flytja þjóðlög, Jóhannes Kristjánsson eftirherma, sem mun bregða sér á borgarstjórnarfund, Sniglabandið skemmtir Vestmannaeyingum annað kvöld. Margrét Pálmadóttir og HaUdór Gunnarsson munu standa fyrir fjöldasöng og hljómsveitin Rússí- banamir mun leika fyrir dansi. Áður en það verður mun sveitin leika undir hjá dansparinu Hany Hadaya og Bryndísi Halldórsdótt- ur. Fjárstofn Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. I Erótísk atriði í Crash hafa vakið athyglí og umtal. Árekstrar og kynlíf Laugarásbíó hefur sýnt að und- anfómu hina umdeildu kvik- mynd Davids Cronenbergs, Crash. Aðalpersónurnar em aug- lýsingamaðurinn James Ballard og eiginkona hans, Catherine. Á yfirborðinu eru þau ósköp venju- legt millistéttarfólk, en bæði eru haldin komplexum gagnvart kyn- lífl. Kvöld eitt lenda þau í árekstri og slysi sem nærri kost- ar Ballard lifið, en svo einkenni- lega vill til að Ballard upplifir á hættuaugnabliki samband hættu, kynlífs og dauða. í framhaldi af kynnum hjónanna og vísinda- mannsins Vaughans og fómar- lambs bílslyss, Catherine, upp- götva hjónin nýjar leiðir til að tjá sig í kynlífmu. Kvikmyndir í aðalhlutverkum eru James Spader, Holly Hunter, Deborah Unger, Rosanna Arquette og Elias Koteas. Nýjar myndir: Háskólabíó: Return of the Jedi Laugarásbíó: Lygari, lygari Kringlubíó: Veislan mikla Saga-bió: Lesið í snjóinn Bíóhöllin: Michael Bióborgin: Tveir dagar í dalnum Regnboginn: Basquiat Stjörnubíó: Svindlið mikla Fótbolti og golf íslandsmótið í knattspyrnu hefst annan í hvítasunnu og eru sjálfsagt margir orðnir spenntir fyrir því að sjá boltann rúlla í móti sem örugglega verður spenn- andi. Fimm leikir eru fyrirhugað- ir, Skallgrímur-Leiftur og Valur -Grindvík leika kl. 16. Kl. 20 leika ÍBV-ÍA, Keflavik-Fram og KR- Stjarnan. jþróttir Með hvitasunnunni má segja að golfvertíð keppnismanna í golfi heíjist fyrir alvöru. Nú er búið að stofna til íslensku mótaraðarinn- ar og er fyrsta mótið um helgina í Vestmannaeyjum. Þar munu allir sterkustu kylfingar landsins mæta til leiks. Fleiri mót eru fyr- irhuguð, opið mót verður haldið á ' Keilisvellinum í Hafnarfirði á annan dag hvítasunnu. Sama dag verður fyrsta opna mótið í Grafar- holti er það Opna Diletto mótið \ sem eingöngu er fyrir kvenfólk. Þá má geta þess að á morgun verður fjölskylduhlaup á Húna- vökunni og er hægt að velja um tvær vegalengdir. Gengið Almennt gengi LÍ nr. 132 16.05.1997 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollqengi Dollar 69,980 70,340 71,810 Pund 114,920 115,500 116,580 Kan. dollar 50,970 51,290 51,360 Dönsk kr. 10,8130 10,8700 10,8940 Norsk kr 9,9100 9,9640 10,1310 Sænsk kr. 9,1960 9,2460 9,2080 Fi. mark 13,6360 13,7160 13,8070 Fra. franki 12,2260 12,2960 12,3030 Belg. franki 1,9934 2,0054 2,0108 Sviss. franki 48,8800 49,1500 48,7600 Holl. gyllini 36,6200 36,8400 36,8800 Þýskt mark 41,1900 41,4000 41,4700 ít. lira 0,04176 0,04202 0,04181 Aust. sch. 5,8490 5,8850 5,8940 Port. escudo 0,4078 0,4104 0,4138 Spá. peseti 0,4879 0,4909 0,4921 Jap. yen 0,60450 0,60820 0,56680 írskt pund 106,800 107,470 110,700 SDR 96,99000 97,58000 97,97000 ECU 80,3700 80,8500 80,9400 Simsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.