Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Síða 16
_ 28 FÖSTUDAGUR 30. MAI 1997 íþróttir DV _ . '"'rw'f' war~m:-wmv 111: Draumurinn varð að engu Draumurinn um að leika um verðlaunasæti á HM varð að engu í fyrradag þegar íslending- ar töpuðu fyrir Ungverjum í spennandi leik í 16-liða úrslitun- um. Lokatölur urðu, 26-25, en Ungverjar leiddu í hálfleik með þremur mörkum, 14-11. Eftir að Valdimar Grímsson skoraði fyrsta markið tóku Ung- verjar leikinn í sínar hendur og höfðu yfirhöndina allt til leiksloka. Mestur var munurinn, 16-11, i upphafí síðari hálfleik en með stórleik Róbert Julians Duranona náðu Islendingar að minnka muninn í eitt mark, 21-20, þegar 9 mínútur voru eft- ir. Ungverjar héldu fengnum hlut og fengu hressilega aðstoð frá frönsku dómurunum á lokakaflanum. íslenska liðið náði sér einfald- lega ekki á strik í þessum leik og lukkudísirnar voru ekki með því. Vörnin var mjög götótt í fyrri hálfleik og sóknarleikurinn var ekki nógu markviss. Það var ekki fyrr en Duranona tók til sinna ráða að hlutirnir fóru að ganga og spurning er hvort hann hafi ekki verið settur of seint inná. Vantaöi baráttuna og neistann Strákarnir misstu Ungverjana of langt frá sér og mikil orka fór í að vinna upp þan mun sem þeir höfðu náð. Þá vantaði baráttuna og neistann sem einkennt hefur liðið og lengi vel ríkti einhver doði yfir íslensku leikmönnun- um. Duranona var langbestur í ís- lenska liðinu og hélt því á floti í síðari hálfleik. Geir stóð fyrir sínu að vanda og Ólafur átti ágætar rispur. Patrekur og Dag- ur og Valdimar voru allir mis- tækir og markvarsla þeirra Guð- mundar og Bergsveins var ekki nógu góð. Konráð leysti Gústaf af hólmi og stóð sig þokkalega. Mörkin: Duranona 9/4, Ólaf- ur 4, Geir 3, Valdimar 3, Patrek- ur 2, Dagur 2, Konráð 2. Varin skot: Guðmundur 5/1, Bergsveinn 6. -GH Björgvin Björgvinsson átti frábæran leik gegn Spánverjum og hér er eitt fjögurra marka hans í fæðingu. Gonzales, tvil vinstri, og Urdangarin sem mun giftast dóttir spánsku konugshjónanna í haus, koma engum vörnum við. DV-mynd ÞÖK Stórkostlegt - íslendingar eiga möguleika á að ná besta árangri frá upphafi í HM eftir glæstan sigur á Spánverjum Glæsileg frammistaða íslensku landsliðsmannanna í handknattleik gegn Spánverjum nú í morgunsárið þar sem íslendingar kjöldrógu lið Spánverja gerir það af verkum að íslendingar eiga möguleika á ná besta árangri sínum frá upphafi í HM takist þeim að ná 5. sætinu í keppninni sem þeir spila um í fyrra- málið gegn Egyptum sem lögðu S- Kóerumenn í spennandi leik, 28-27. Að vinna Spánverja i heimsmeist- arakeppni með 9 marka mun og Júgóslava sömuleiðis er stórkostlegt afrek sem verður lengi í minnum haft. Strákarnir, sem voru svo ná- lægt því að fara í undanúrslitin tæp- um sólarhring áður, komu, sáu og sigruðu. Þeir léku með hjartanu, börðust sem einn maður og voru staðráðnir í að komast í leikinn um 5. sætið og bæta þar með besta ár- angur íslendinga á HM. Einbeitingin skein út úr hverju andliti á íslensku leikmönmmum og það var Ijóst strax í upphafi leiks að menn æfíuðu að selja sig dýrt. Eftir jafnan fyrri hálfleik tók íslenska lið- flukobloð um Norðurlond og flkureyri fylgir DV þann 11. júní n.k. Fjqllað veröur um þaé sem efst Q Akureyri og annars staðar ið leikinn í sínar hendur og hélt sannkallaða flugeldasýningu í Park Dome höflinni í Kumamot. Atvinnu- mannalið Spánverja komst ekkert áfram gegn frábæru liði íslands og mér er það til efs að Spánverjar hafi fengið aðra eins útreið. Þeir urðu að játa sig sigraða og eftir að hafa lent nokkrum mörkum undir léku þeir með hangandi haus gegn ofjörlum sinum. Menn voru ekki ýkja bjartsýnir fyrir leikinn gegn Spánverjum og undirritaður var einn þeirra enda fylgdist hann með landsleik þjóð- anna í Madrid fyrir þremur vikum þar sem Spánverjar unnu 9 marka sigur. Eftir þann leik sögðu strák- arnir að úrslitin gæfu ekki rétta mynd af getu íslenska liðsins enda Spánverjar komnir lengra í undir- búningi sínum. Þeir höfðu á réttu að standa og hefndin var svo virki- lega sæt nú í morgunsárið þar sem íslenska liðið vann einn sinn glæsilegasta sigur frá upphafí. Aliir frábærir Allt íslenska átti frábæran dag einkum og sér í lagi í síðari hálfleik. Bjarki og Björgvin hleyptu nýju og fersku blóði í leik liðsins og Guð- mundur átti frábæran leik í mark- inu eftir að kom inná eftir 20 min- útna leik. Vömin var geysilega öfl- ug í síðari hálfleik og hvað eftir annað skilaði hún mörkum úr hraðaupphlaupum. Leikur íslenska liðsins var gallalaus í síðari hálfleik og með sama leik væri liðið að leika um verðlaunasæti á mótinu. í stað þess að gráta hið sára tap gegn Ungverjum í fyrradag og mæta niðurlútir til leiks sýndu íslensku landsliðsmennirnir frábæran karakter og sönnuðu enn og aftur að þeir eru íþróttamenn í fremstu röð sem þjóðin getur svo sannarlega verið stolt af. -GH Gústaf Kristinssoi síma: 550 5731 462 5013 á mánuda singar í blaðið í Akureyri í síma judag 2. og 3. júní. Umsjón efnis gnnast Gylfi Kristjánsson blaðamaður í síma: 462 66131 Island (11) 32 Spánn (11) 23 0-1, 3-2, 4-5, 7-7, 9-10, (11-11), 13-11, 15-13, 18-13, 21-14, 24-17, 28-18, 23-23. Mörk íslands: Geir Sveinsson 6, Julian Duranona 5/2, Ólafur Stefáns- son 4, Björgvin Björgvinsson 4, Bjarki Sigurðsson 4, Júlíus Jónasson 3, Patrekur Jóhannesson 3, Valdimar Grimsson 2/1, Róbert Sighvatsson 1 Varin skot: Guðmundur Hrafn- kelsson 16, Bergsveinn Bergsveinsson 4. Mörk Spánverja: Duhsabaev 6, Masip 6/1, Ortega 3, Lozano 3, Ur- dangarin 3, Gonzales 1, Gadiola 1. Varin skot: Barrufet 10. Brottvísanir: ísland 6 minútur, Spánn 2 mínútur. Dómarar: Gutermas og Gedilas frá Litháen, þokkalegir. Áhorfendur: 8500. Maður leiksins: Guðmundur Hrafnkelsson. Átti stórkostlega innkomu i markið og markvarsla hans kveikti svo sannarlega í ís- lenska liðinu. Valdimar Grímsson á góða mögu- leika á að verða markakóngur HM. Síðara mark hans gegn Spánveijum í gær var 50. mark hans í keppninni og er hann í öðru sæti á eftir Kóreumanninum Yoon Kyung. Rússarnir meistarar? Rússar sýndu það og sönnuðu að þeir eru líklegir meistarar. Þeir tóku S-Kóerumenn í kennslustund í 8-liða úrslitunum og unnu með 17 marka mun. Valeri Gobin og Dmitri Torga- vanov skoruðu 6 mörk hvor og Vassili Koudinov var með 5. Svíar lögðu Spánverja í hörð- um slag og þurftu framlengu til því staðan eftir venjulegan leik- tíma var, 21-21. Stefan Lövgren skoraði 6 mörk fyrir Svia og þeir Pierre Thorson, Magnus Wis- lander og Staffan Olsson skor- uðu allir 5 mörk. Hjá Spánverjum var Talant Duhjasabaev markahæstur með 7 mörk og Enri Masip skoraði 6. Úrslitin í 8-liða úrslitunum: Ísland-Ungverjaland..25-26 Spánn-Svíþjóð ......24-28 S-Kórea-Rússland....15-32 Frakkland-Egyptaland .... 22-19 Undanúrslitin eru á morgun en þá mætast Rússland-Frakkland og Ungverjaland-Sviþjóð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.