Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Blaðsíða 22
34 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 Afmæli Bragi Michaelsson Bragi Michaelsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi og umsjónar- og eftir- litsmaður hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, Birkigrund 46, Kópavogi, er fimmtugur i dag. Starfsferill Bragi ólst upp á Eyrarbakka til 8 ára aldurs en fór þá til dvalar að Sveinsstöðum í ÁÍftaneshreppi tii móðursystur sinnar, Þórdísar Sig- urðardóttur og eiginmanns hennar, Einars Ágústs Jónssonar. Hjá þeim hjónum dvaldist Bragi að mestu leyti til 17 ára aldurs, en gekk í skóla á Eyrarbakka, í Reykjavík og að Varmalandi í Stafholtstungum. Bragi lauk landsprófi i Reykjavík 1964 og hóf ári seinna nám í hús- gagnasmíði. Bragi stundaði nám ut- anskóla við Iðnskólann í Reykjavík 1966-68 og lauk sveinsprófl í hús- gagnasmiði í Reykjavík vorið 1969. Einnig stundaði Bragi nám við verkstjórafræðsluna í Reykjavík 1972 og fékk meistararéttindi sem húsgagnasmíðameistari 1975. Bragi starfaði hjá Kristjáni Siggeirssyni hf. fram á mitt ár 1974. Hann var verkstjóri í vinnslusal fyrirtæksins frá ársbyrjun 1973 þar til hann lét af störfum hjá fyrirtækinu. Bragi stofnaði fyrirtækið Sívaló-húsgögn 1974 og rak það til 1977. Þá var Bragi einn af stofnendum Bsf. Bygging í Kópavogi og framkvæmdastjóri þess til ársloka 1992 er fyrirtækið hætti störf- um. Frá 1993 hefúr Bragi starfað sem umsjónar- og eftirlitsmaður hjá Fram- kvæmdasýslu ríkisins. Bragi hefur tekið virkan þátt í störfum Sjálfstæðisflokksins frá 1966. Hann var í sfjórn FUS Týs í Kópavogi 1972-77 og formaður þess félags 1974-77. Hann var formaður Sjálfstæðisfélags Kópa- vogs 1977-80, sat í stjórn fulltrúa- ráðs Sjálfstæðisfélaganna í Kópa- vogi 1972-87, átti sæti í stjórn kjör- dæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi 1983-1992 og var formaöur stjórnarinnar 1987-92 og sat þá jafnframt í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Bragi var kjörinn varabæjarfull- trúi í Kópavogi 1974 og tók sæti í bæjarstjórn 1975. Bragi var á ný kjörinn varabæjarfulltrúi 1978 og tók sæti í bæjarstjóm sama ár. Hann hefur verið bæjarfulltrúi í Kópavogi frá 1982. Bragi hefur set- ið í fjölda nefnda á vegum bæjarins og hefur m.a. verið formaður skóla- nefndar Kópavogs frá 1990, formað- ur fræðsluráðs Reykjaneskjördæm- is 1986-95 og formaður stjórnar Menntaskólans í Kópavogi 1994-96. Bragi var varaþingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykj aneskj ör dæmi 1983-87 og sat á þingi 1984 og 1985. Hann var vara- formaður ÍK í Kópavogi og er varaformaður knattspyrnudeildar fé- lagsins, sat í stjóm Skóg- ræktarfélags Kópavogs í nokkur ár, í ritstjórn blaðs Sambands bygging- armanna og var ritstjóri Voga, blaðs sjálfstæðis- manna í Kópavogi, 1972-1987. Bragi var einnig í stjórn Sveinafélags hús- gagnasmiða 1971-74 og varaformað- ur félagsins 1973-74. Fjölskylda Bragi kvæntist 25.12. 1965 Auði Ingólfsdóttur frá Eskifirði. Foreldrar Auðar eru Ingólfur Fr. Hallgríms- son, kaupmaður og framkvæmda- stjóri á Eskifirði, og kona hans, Ingi- björg Jónsdóttir húsmóðir. Synir Braga og Auöar eru Ágúst Þór, f.15.8. 1966, umhverfis- og æskulýðsfulltrúi á Blönduósi, kvæntur Guðrúnu Ingu Benedikts- dóttur, húsmóður og skrifstofu- manni. Börn þeirra eru Arnar Helgi og Elínborg Telma; Ingólfur, f. 26.8. 1967, múrarameistari í Ósló, kvæntur Helenu B. Kristinsdóttur. Börn þeirra eru Linda Björg, Kári Freyr og Michael; Rúnar Már, f. 6.12. 1969, B.A. í mannfræði og starfsmaður á sambýli fatlaðra í Reykjavík, kvæntur Þóru Ingi- björgu Sigurjónsdóttur hjúkrunar- fræðingi; Jón Ingvar, f. 18.2. 1978, menntaskólanemi og hljómlistar- maður; Gísli Örn, f. 8.4. 1984, grunnskólanemi og nemandi við Tónlistarskóla Kópavogs. Systkini Braga eru Sigrún Alda, f. 14.9. 1945, skrifstofumaður í Kópavogi, gift Guðjóni Ágústssyni; Sigurður, f. 20.9. 1950, bifreiðar- stjóri í Hafnarfirði. Kona hans er Harpa Hauksdóttir; Dagbjört, f. 1.7. 1956, sjúkraliði í Garðabæ. Hálf- systkini Braga, sammæðra, eru Snorri G. Tómasson, f. 13.12. 1954, endurskoðandi í Kópavogi, kona hans er Jóna B. Jónsdóttir; Mar- grét Sigríður Halldórsdóttir, f. 3.5. 1957, starfsmaður Snælandsskóla 1 Kópavogi. Foreldrar Braga eru Michael Guðvarðarson.f.v. leigubifreiðar- stjóri í Garðabæ og fyrrverandi sambýliskona hans, Guðrún Sig- urðardóttir, húsmóðir og fyrrver- andi verkakona í Kópavogi. Eiginkona Braga verður fimm- tug 27.7. 1997 og í tilefni af fimm- tugsafmælum þeirra beggja taka þau hjón á móti vinum og vanda- mönnum í Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2, í kvöld milli kl. 20.30 og 23.30. Bragi Michaelsson. Kristmann Öm Magnússon Kristmann Örn Magnússon, stj ómarformaður PFAFF hf., Grandavegi 47, Reykjavík, er sex- tugur í dag. Starfsferill Kristmann er fæddur og uppal- inn í Reykjavík. Hann brautskráð- ist frá Verslunarskóla íslands 1956 en stundaði nám í saumavélavið- gerðum í Þýskalandi 1954, 1956 og 1958. Hann hóf starf hjá Pfaff hf. 1954, varð framkvæmdastjóri fyrir- tækisins 1964 og stjórnarformaður þess 1994. Kristmann var formaður félags raftækjasala 1973-77 og aftur 1983-84 og 1986. Hann sat í stjórn Verslunarráðs íslands 1976-1996 og í framkvæmdastjórn þess 1976-78. Kristmann hefur einnig setið í stjórnum ÍR, Kaupmannasamtaka íslands, íslenskrar verslunar og Veiðifélags Norðurár. Fjölskylda Kristmann kvæntist 7.6. 1958 Hjördísi Magnúsdóttur, f. 29.1.1939. Foreldrar hennar eru Anna Þor- bergsdóttir og Magnús Benjamíns- son sjómaður en fósturforeldrar Hjördísar eru Margrét Magnúsdótt- ir og Þorsteinn B. Jónsson málari. Börn Kristmanns og Hjördísar eru Magnús Ingi, f. 9.3. 1958, deild- arstjóri þjónustusviðs PFAFF hf., kvæntur Kristínu Gylfadóttur, f. 16.6. 1962. Börn þeirra eru Kristmann, f. 28.4. 1990, og Sólveig, f. 12.12. 1991; Margrét Þóra, f. 24.2. 1962, framkvæmda- stjóri PFAFF hf., gift Sigurjóni Frey Alfreðs- syni, f. 20.3. 1957. Böm þeirra eru Sindri Már, f. 22.5.1992, og Birta Dís, f. 8.5. 1995; Birgir f. 4.8. 1969, sem nýverið lauk meistaraprófi í tölvu- fræðum frá háskólanum í Al- buquerque í Bandaríkjunum. Hann Kristmann Örn Magnússon. fólki er kvæntur Katrínu Sif Michaelsdóttur, f. 28.9. 1971. Bróðir Kristmanns er Leifur R. Magnússon, f. 22.10. 1933, fram- kvæmdastjóri þróunar- sviðs Flugleiða. Foreldrar Kristmanns voru Magnús Þorgeirs- son, f. 23.1. 1902, d. 26.10. 1983, framkvæmdastjóri í Reykjavík, og kona hans Ingibjörg Kaldal Jónsdótt ir, f. 19.11. 1903, d. 31.7 1986, húsmóðir. Krist mann dvelur hjá vina í Sviss á afmælisdaginn. Fréttir Snæfellsbær: Miklar vikurframkvæmdir DV, Vesturlandi: „Hér hafa verið í gangi miklar framkvæmdir vegna umsvifa Nesvik- urs varðandi vikurvinnslu og full- vinnslu vikurs til útflutnings frá Snæfellsnesi," sagði Guðjón Peters- en, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, við DV. „Steypt hefur verið stórt athafna- svæði við Rifshöfn og verið er að undirbúa komu flokkunarverksmiðju frá Nesvikri. Hún verður staðsett á breiðinni svokallaðri i námunda við flugvöllinn á Rifi. Reiknað er með að verksmiðjan skapi á annan tug at- vinnutækifæra. Atvinnuástandið hefur verið í daprari kantinum hér að undan- fómu. Segja má að það hafi verið 42 á atvinnuleysisskrá 1. mars. Það er þó að lagast talsvert og tölumar orðnar lægri nú,“ sagði Guðjón.-DVÓ Aðalfundur Aðalfundur íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík verður haldinn í íþróttahúsi félagsins að Hátúni 14, laugardaginn 31. maí 1997 kl 14.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál í kaffíhléi verður verðlaunaafhending. Stjórnin Stúlkurnar sem skipa knattspyrnuliö menntaskólans. DV-mynd Sigrún Egilsstaöir: Uppskeruhátíð menntaskólans DV, Egilsstöðum: „Þið hafið verið skólanum og byggðarlaginu til sóma bæði á sviði menningar og íþrótta," sagði Helgi Halldórsson, bæjarstjóri á Egilsstöð- um, á • uppskeruhátíð Menntaskól- ans fyrir nokkru. Það voru orð að sönnu því nemendur skólans á Eg- ilsstöðum hafa náð langt á mörgum sviðum í vetur og félagslíf verið með miklum blóma. Boðið var til fagnaðar í skólan- um. Helgi Ómar Bragason skóla- meistari ávarpaði nemendur og Bjami Þór Sigurðsson, kennari og félagsmálastjóri, afhenti nemendum viðurkenningar fyrir góða frammi- stöðu. Viðurkenningu hlutu knatt- spymulið kvenna sem vann keppni framhaldsskóla, körfuboltalið karla sem varð í 2. sæti í framhaldsskóla- keppninni, keppendur í mælskulist sem komust í undanúrslit, eins og piltamir sem kepptu í spurninga- keppni skólanna, og þeir fengu einnig bókagjöf frá Guðjóni Sveins- syni, rithöfundi á Breiðdalsvík, leikfélag skólans sem setti upp frumsamið leikverk ásamt leikfélagi Fljótsdalshéraðs. Helgi Halldórsson bæjarstjóri færði nemendafélaginu að gjöf tvö málverk eftir einn nemanda skól- ans, Katrínu Sigurbjörnsdóttur. Hún hélt nýlega sína fyrstu einka- sýningu sem vakti verðskuldaða at- hygli. -SB Til hamingju með afmælið 30. maí 85 ára Sigurrós Guðbjartsdóttir, Jökulgrunni 1, Reykjavík. Fanney I. Guðmundsdóttir, Sléttuvegi 17, Reykjavík. 80 ára Soffía Sigfinnsdóttir, Austurbrún 4, Reykjavik. Sigurður Lárusson, Fannborg 8, Kópavogi. 75 ára Ari Hálfdánarson, Garðsbrún 4, Höfn í Horna- firði. 70 ára Hannes Arason, Suðurbyggð 21, Akureyri. Vilhjálmur Grímur Skúla- son, Arnarhrauni 30, Hafnarfirði. 60 ára Magnús Gíslason, Knarrarbergi 6, Þorlákshöfh. 50 ára Ágúst Árnason, Faxabraut 36b, Keflavik. Halldór Ásgeirsson verslun- armaður, Vestursíðu lOg, Akur- eyri. Hann tekur á móti vinum og vandamönn- um laugar- daginn 31.5. í sumarbústað fjölskyldunnar að Hamragili í landi Víðifells í Fnjóskadal. Sigríður Þ. Friðgeirsdóttir, Hólabergi 64, Reykjavík. Sigurður Sumarliðason mat- reiðslumeist- ari, Arnar- holti á Kjal- arnesi. Hann tekur á móti gestum á af- mælisdaginn í félagsheim- ili Vals að Hlíðarenda kl. 20. Arnþrúður Halldórsdóttir, Hléskógum 18, Reykjavik. Sigríður Mjöll Einarsdóttir, Eyjum, Breiðdalshreppi. Einar Ámason, Langagerði, Hvolhreppi. Ketill Tryggvason, Hrísateig 45, Reykjavík. 40 ára Kolbrún Sveinsdóttir, Norður-Reykjum, Hálsa- hreppi. Elín Inga Ólafsdóttir, Eyrarholti 5, Hafharfirði. Gestur Bragi Magnússon, Skógarhjalla 13, Kópavogi. Ásgerður Hlinadóttir, Skaftárvöllum 6, Kirkjubæjar- klaustri. Sigriður Aðalbjömsdóttir, Bylgjubyggð 11, Ólafsfirði. Fanney Þórhallsdóttir, Vesturbraut 15, Höfn í Horna- firði. Helga Kristleifsdóttir, Klausturhvammi 16, Hafnar- firði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.