Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1997, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1997, Blaðsíða 17
16 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 1997 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 1997 25 íþróttir íþróttir INGLAND Dean Sturridge, einn af lykil- mönnum Derby County, hefur óskað eftir því að verða settur á sölulista. Sturridge skoraði 14 mörk á síðasta tímabili fyrir fé- lagið. Nokkur félög hafa nú þeg- ar lýst yfir áhuga á að kaupa leikmanninn sem er verðlagður á 5 milljónir punda. Arsenal, Sheffield Wednesday, Middles- bro og Leeds hafa öll spurst fyr- ir um leikmanninn. Nottingham Forest, sem féll í 1. deild, keypti í gær Andy John- son frá Norwich fyrir 2,2 milljón- ir punda. Andy, sem á fast sæti í 21-árs landsliðinu, fer í læknis- skoðun í dag. Þá hefur Forest einnig keypt Alan Rogers frá Tranmere fyrir tvær milljónir punda. Paul Ince gekk í gær á fund Roy Evans, framkvæmdastjóra Liverpool. Yfirgnæfandi líkur eru á því að þessi 29 ára gamli landsliðsmaður gangi í raðir Liverpool frá Inter Milan. Howard Kendall, stjóri Everton, hefur óskað eftir fundi með Ince en hann hefur látið hafa eftir sér að hann vilji miklu fremur ganga í raðir Liverpool. Robbie Elliot gekk í raðir Bolton í gær frá Newcastle fyrir 2,5 milljónir punda. Um er að ræða metupphæð sem Bolton hefur greitt fyrir leikmann. Hann hefur skrifað undir samn- ing til fjögurra ára. Úrvalsdeild karla: Stjaman fær liðsauka Stjarnan í Garðabæ hefur nú fengið góðan liðsauka í baráttunni á botni deildarinnar en það eru Sumarliði Ámason frá ÍBV og Lúðvík Jónasson sem kominn er heim frá Þrótti R. -ÖB í kvöld Sjóvá-Almennra deildin: Skallagrímur - Stjaman . . . kl. 20.00 1. deild karla: KA - Þróttur R . kl. 20.00 Fylkir - Þór A . kl. 20.00 2. deild karla: Leiknir R. - Sindri . kl. 19.00 Selfoss - Ejölnir . kl. 20.00 3. deild karla: Bruni - KSÁÁ . kl. 20.00 Haukar - Ármann . kl. 20.00 Neisti D. - Höttur . kl. 20.00 Grótta - Afturelding . kl. 20.00 Reynir Hn. - Emir í . kl. 20.00 KS - TindastóU . kl. 20.00 Keflavík og iBV: „Áttum skilið að fá eina vítaspyrnu" „Ég er ósáttur við að fá ekki öll stigin í þessum leik en við áttum það skilið. Við vorum að spila reglulega vel og mættum grimmir og mjög ákveðnir til leiks. Við ætluðum að stöðva topplið deildarinnar og okkur fannst kominn timi á það og vorum hársbreidd frá því. Við nýttum ekki færin okkar og svo áttum við skilið að fá eina vítaspyrnu þegar Tryggva var skellt en hann er enn látinn líða fyrir það að hafa fiskað víti á ólöglegan hátt í fyrstu umferð mótsins. Hann virðist ekki fá neitt hér eftir þó svo að hann sé greinilega felldur," sagði Hlynur Stefánsson, fyrirliði ÍBV, en hann átti góðan leik. „Hrikalega slæmt“ „Ég er ágætlega sáttur við leikinn hjá okkur. Miðað við aðstæður var þetta hinn besti leikur. Auðvitaö eigum við að klára svona leiki þegar við höfúm undirtökin nánast allan leikinn og það er hrikalega slæmt að fá ekki öll stigin út úr þessu,“ sagöi Bjami Jóhannsson, þjálfari ÍBV, eftir leikinn. „Dettur niður inn á milli“ „Þetta var mjög slæmt hjá okkur og völlurinn var erfiður og erfitt að spila. Þannig séð var gott að ná stigi en spila illa. Það var mjög gott að halda jöfnu og við vorum heppnir. Þetta dettur niður inn á milli hjá okkur en ég vona að við hittum á góðan leik á móti ÍA í næsta leik,“ sagði Haukur Ingi Guðnason, leikmaður Keflvíkinga. „Vorum Ijónheppnir" „Við fengum svakalegt færi um miðjan fyrri háifleik til að komast í 2-0. Þá hefði verið gaman að sjá hvernig leikurinn hefði þróast. Eftir það hættum við að spila og hleyptum þeim of mikið inn í leikinn. Þeir áttu dúndurleik og við slakan leik og þvi er ég mjög ánægður með stigið. Fram að þessum leik erum við búnir að vinna sex leiki verðskuldað en þetta stig vorum við ljónheppnir að ná í,“ sagð Gunnar Oddsson, leikmaður og annar þjálfari Keflvíkinga. -ÆMK Makan með þrennuna - er Leiftur vann Grindavík, 4-1 DV, Ólafsfirði: Leiftur vann langþráðan sigur í úrvalsdeildinni í gærkvöldi þegar liðið sigraði Grindvíkinga örugg- lega, 4-1. Það var þó ekki fýrr en í seinni hálfleik sem Leiftursliðið fór í gang af einhverri alvöru og sýndi þá svo um munaði hversu megnugt það er og gjörsamlega yflrspilaði gestina. Þessi sigur liðsins var síst of stór þar sem þeim tókst að klúðra ótal góðum færum í fyrri hálfleik og það var aðeins á kafla í hálfleiknum sem gestimir náðu eitthvað að ógna. Eftir mark fljótlega f leiknum datt leikur heimamanna aöeins nið- ur og þeir fóru að láta dómgæsluna fara í taugamar á sér. Grindvíking- ar komust þá ágætlega inn í leikinn en færin vom heimamanna. Gest- imir jöfnuðu þó metin rétt fyrir leikhlé úr skyndisókn eftir varnar- mistök. Fyrri hálfleikur reyndist síðan bara vera lognið á undan stormin- um því Leiftursmenn vom I nær lát- lausri sókn allan síðari hálfleikmn og bættu við þremur góðum mörk- um. Þeir gáfu ekkert eftir þrátt fyr- ir örugga forystu og gestimir komust örsjaldan yfir miðju. „Þetta er frábær tilfmning og lika fyrsta þrennan á ferlinum,“ sagði Þorvaldur Makan, leikmaður Leift- urs, sem skoraði þrjú falleg mörk í leiknum. Leiftursliðið lék allt mjög vel í þessum leik en þegar 10 mínút- ur voru eftir kom inn á í lið þeirra Albert Arason, tvítugur Ólafsflrð- ingur, og spilaði sinn fyrsta deildar- leik. Grindvíkingar börðust vel í fyrri hálfleik en mættu ofjörlum sínum í þeim síðari. Bestur þeirra var Albert Sævarsson markvörður. -HJ Partille Cup í handbolta: Góðir sigrar gegn Svíþjóð og Noregi Opna Norðurlandamótið í handknattleik, 18 ára og yngri, stendur nú yflr í Svíþjóð. íslenska liðið hefur leikið þrjá leiki á mótinu. Það tapaði fyrsta leiknum fyrir Dönum, 28-18. í öðru leiknum vann fsland B-lið Svía, 26-18, og loks voru Norð- menn lagðir að velli, 23-19. Liðið spilar til úrslita við A-lið Svía. Ragnar Óskarsson hefur verið iðinn við kolann í leikjunum til þessa og skorað 19 mörk í þrem- ur leikjum. -JKS Stefán skoraði DV, Svíþjóð: Stefán Þórðarson skoraði mark Öster í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi er Öster gerði jafntefli, 1-1, gegn Ljungskile. Stefán fékk gult spjald í leiknum og verður í leikbanni í næsta leik liðsins eftir sumarfrí. -EH Stofndeild kvenna: Blikastúlkur höfðu sigur íslandsmeistarar Breiðabliks, í efstu deild kvenna, tóku á móti Val á Kópavogsvellinum í gær- kvöldi. Valsstúlkur mættu ákveðnar til leiks, spiluðu hreint ágætlega og voru Blikar í nokkrum vandræðum oft á tíð- um. í fyrri hálfleik fengu bæði lið ágæt færi en það var engu að síður markalaust i hálfleik. í síðari hálfleik voru það síðan Blikastelpurnar sem nýttu færin og skoruðu tvö mörk. Fyrst Ást- hildur Helgadóttir á 65. mín. með skalla og svo Erla Hendriks- dóttir af stuttu færi á 82. mín. Það voru hins vegar markverðir liðanna sem stóðu upp úr í þess- um 2-0 leik þar sem jafntefli hefði ekki verið ósanngjamt. -ih OÉy ÚltVALSPEItP Staðan i Sjóvár-Almennra deúdmni i knattspymu eftir leikina í gærkvöld: Keflavík 7 6 ÍBV 8 5 ÍA 8 5 Fram 8 4 KR 8 3 Leiftur 7 2 Grindavík 8 2 Valur 8 2 Skallagr. 7 1 Stjaman 7 0 1 0 12-3 19 2 1 20-6 17 1 2 14-12 16 13 9-7 13 3 2 13-7 12 3 2 11-7 9 2 4 6-13 8 1 5 7-17 7 0 6 4-12 3 2 5 3-15 2 Sverrir Sverrisson, ÍBV, sækir að Keflvíkingum en til varnar í liði þeirra eru þeir Snorri Már Jónsson og Gunnar Oddsson. Á innfelldu myndinni má sjá þá Jóhannes Ólafsson (t.v.), formann knattspyrnuráðs IBV, og Steve Coppell, framkvæmdastjóra enska úrvalsdeildarliðsins Crystal Palace, en hann var mættur til að fylgjast með sínum nýjasta leikmanni, Hermanni Hreiðarssyni í ÍBV. Keflavik tapar ekki - toppliðiö þó heppið að sleppa með stig er liðið gerði jafntefli gegn ÍBV, 1-1 DV, Suðurnesjum: Keflvíkingar og Vestmannaeyingar skildu jafnir, 1-1, í toppslag deildar- innar í Keflavík í gærkvöldi. Það voru margir sem biður eftir leiknum með mikilli eftirvæntingu og þá sér í lagi hvort Keflvíkingar myndu tapa sínum fyrsta leik í sumar. Þeir voru ekki langt frá því að tapa og geta þakkað leikmönnum ÍBV fyrir að vera ekki á skotskónum i leiknum en þau skot sem komu á markið varði Ólafur Gottskálksson. Það var mikið álag á öftustu vöm heimamanna enda sóttu Eyjamenn grimmt á mark þeirra. Ef frá eru taldar fyrstu 20 mín. í fyrri hálfleik, þegar leikurinn var í jafnvægi en Keflvíkingar þó ívið betri, var leikurinn hrein eign gest- anna sem léku mjög vel þrátt fyrir erf- iðar aðstæður og sýndu oft ágætt sam- spil. Um Keflvíkinga má segja að það hafi verið vamarsigur að ná stigi úr þessum leik. Eyjamenn vom greini- lega búnir að kortleggja lið Keflvík- inga vel og lokuðu fyrir hættulegustu svæði þeirra og náðu að stöðva lykil- menn liðsins með því að dekka þá stíft. Með sigri hefðu Eyjamenn náð toppsætinu af Keflvíkingum en em í stað þess tveimur stigum á eftir þeim. í leiknum fengu Keflvíkingar óska- byrjun og settu mark strax í upphafi leiks. Eftir það datt leikurinn aðeins niður og fór mest fram á milli víta- teiganna þar sem leikmenn beggja liða börðust af alefli um boltann en liðin fengu þó sitt hvort dauðafærið, Ingi Sigurðsson fyrir ÍBV og Haukur Ingi týrir Keflvikinga, en þau misfórast bæði. Þegar líða fór á leik- inn fóru svo gestimir að taka hann í sínar hendur og þyngdu sókn sína verulega. Þeir náðu að skora mark sem var dæmt af vegna rangstöðu og fannst mörgum það harður dómur. Það var síðan ekki fyrr en undir lok fyrri hálfleiks að vörn heimamanna varð að játa sig sigraða og Eyjamenn jöfnuðu, eftir að hafa verið búnir að setja boltann bæði í stöngina og markslána. Síðari hálfleikur var síðan algjör einstefna af hálfu Vestmannaeyinga og komust Keflvíkingar aðeins í örfá skipti yflr miðju vallarins en áttu engin marktækifæri, þvílíkir voru yf- irburðir gestanna. Eyjamenn stjórn- uðu leiknum eftir sínu höfði og virt- ust heimamenn ekkert svar hafa við spili þeirra. Gestimir fengu góð færi til að skora og tryggja sér sigurinn en vörn Keflvíkinga náði oftar en ekki að reka stóru tána í boltann á síðustu stundu og þá varði Ólafur vel og greip vel fyrirgjafir gestanna sem fóru svo sannarlega illa með góð marktæki- færi sem kostaði þá tvö dýrmæt stig. -ÆMK y NAFN ÞÁTTTAKANDA. NAFN LIÐS.--------------------------NÚMER LIÐS____________ SEL LEIKMANN: NÚMER______NAFN ____________________________VERÐ_________ KAUPI LEIKMANN: NÚMER_____NAFN__________________________ \/FBn____________ SENT TIL: DV - ÍÞRÓTTADEILD/DRAUMALIÐ, ÞVERHOLT 11 105 REYKJAVÍK Stærsta tap í 5 ár - Einar Þór Daníelsson skoraði þrjú er KR vann Akranes, 4-0 „Þetta fór nú greinilega öðruvísi en við ætluðum. Við gefum þeim þama óþarft mark í byrjun en síðan kemur þessi ótrúlegi leikþáttur dómarans í leiknum sem hreinlega slátrar afgangnum af leiknum fyrir okkur. Þessi dómgæsla í dag er alveg hreint fyrir neðan allar hellur. Hann gefur þeim tvö víti, allt í einu er orðið 3-0 og erfítt að rífa sig upp eftir það þó við höfum reynt. Það verður þó ekk- ert tekið af KR-ingum að þeir léku vel og við verð- um bara að taka næsta leik. Það er hins vegar erfitt fyrir okkur að spila alltaf með dómarann sem 12. mann í hinu liðinu. KSÍ hlýtur að fara að taka þessi dómaramál í gegn, þetta gengur ekki,“ sagði Ólafur Þórðarson, fyrirliði Islandsmeistara Skaga- manna, svekktur eftir slæmt tap á KR-vellinum. Það er líklega langt síð- an KR-ingar hafa skemmt sér jafn vel á heimavelli sínum og gegn Skaga- mönnum í gærkvöldi. KR- ingar léku skínandi vel, menn börðust allir sem einn út allan leikinn og greinilegt að liðið er nú loksins komið í gang og þegar farið að narta í hæl- ana á toppliðum deildar- innar. Akurnesingar sáu aldrei til sólar í þessum leik, vora alltaf skrefinu á eftir og mjög svo ólíkir sjálfúm sér. „Þetta var mjög ánægju- legt. Fyrri hálfleikurinn var mun sterkari hjá okk- ur en ég bjóst við og bar- áttan mikil og góð. Ég bjóst allt eins við Skagamönn- um svona, mér fannst ekki sniðugt að vera með Amar þarna inni, hefði ekki sett hann inn í mitt lið,“ sagði Haraldur Haraldsson, þjálfari KR, kátur eftir leikinn. -ÖB Keflavík (1)1 ÍBV (1)1 1-0 Ragnar Steinarsson (9.), þrurauskot, rétt fyrir utan teig, sláin inn. 1-1 Steingrímur Jóhannesson (44.), gott skot eftir sendingu frá Her- manni Hreiðarssyni. Lið Keflavíkur: Ólafur@® - Snorri Már (Jakob 65.), Kristinn®, Guðmundur@, Karl@ - Jóhann B., Ragnar, Eysteinn, Gunnar - Gestur, Haukur Ingi (Guðmundur 79.). Lið ÍBV: Gunnar® - ívar@, Her- mann@@, Hlynur@, Hjalti@ - Ingi, Guðni Rúnar@, Sigurvin, Sverrir, Tryggvi - Steingrímur@ Markskot: Keflavík 5 , ÍBV 12. Horn: Keflavík 1 , ÍBV 4. Gul spjöld: Karl (K). Dómari: Sæmundur Víglundsson, sæmúegur. Áhorfendur: Um 1100. Skilyrði: Meiri rigning og rok eft- ir því sem á leið og völlurinn því erf- iður. Maður leiksins: Hermann Hreið- arsson, gríðarlegar sterkur og út- sjónarsamur. KR (3)4 ÍA (0)0 1- 0 Þorsteinn Jónsson (27.), I með glæsúegu skoti eftir sendingu frá Einari Þór Daníelssyni. 2- 0 Einar Þór Daníelsson (43.), víti eftir að brotið var á honum sjáif- um. 3- 0 Einar Þór Danlelsson (45.), víti eftir að brotið var á Þorsteini Jónssyni. 4- 0 Einar Þór Daníelsson (55.), glæsúegt skot eftir góðan samleik KR- inga. Lið KR: Kristján® - Þormóður, Bjarni©, Ólafur® - Sigurður Örn, Brynjar@@, Heimir (Ríkharður 24.), Þorsteinn® Einar Þór@@ - Hilm- ar (Guðmundur 69.), Andri@ (Þór- hallur 76.). Lið Akraness: Þórður - Pálmi, Steinar (Sturlaugur 61.), Ólafur A.@, Sigursteinn® - Gunnlaugur® (Kári S. 54.), Alexander, Ólafur Þ„ Harald- ur - Arnar, Ristic Markskot: KR 15, Akranes 10. Horn: KR 5, Akranes 10. Gul spjöld: Andri (KR), Gunnlaug- ur (ÍA). Dómari: Gylfi Orrason, komst þokkalega frá leiknum. Áhorfendur: Yfir 2000 manns. Skilyrði: Sæmúegur völlur, þurrt en nokkur vindur þvert á vöilinn. Maður leiksins: Einar Þór Daní- elsson, sfvinnandi allan leikinn og gerði þrjú falleg mörk. Leiftur (1)4 Grindavík (1)1 1-0 Þorvaidur Makan (7.), þrumuskot eftir sendingu frá Pétri Birni. 1- 1 Zoran Ljubicic (44.), skallaði boltann í netið eftir vamarmistök heimamanna. 2- 1 Þorvaldur Makan (53.), skalli eftir sendingu frá Pétri Bimi. 3- 1 Þorvaldur Makan (72.), góð- ur skalli eftir sendingu frá Baldri Bragasyni. 4- 1 Matthias Sigvaldason (82.), skallaði yfir Albert i markinu eftir sendingu frá Sindra Bjamasyni. Lið Leifturs: Cardaklija® - Andri@, Júlíus®, Múisic®, Daði@ - Ragnar@(Albert 80.), Arnar@, Hörður Már@(Matthías 80.), Þor- valdur Makan@@, Pétur Björn® (Sindri 80.) - Baldur®. Lið Grindavfkur: Albert® - Júlí- us@, Jankovic®, Guðjón, Guölaug- ur (Vignir 68.) - Björn (Hjálmar 68.), Ólafur Örn@, Ljubicic®, Þórarinn (Ólafur 75.), Óli Stefán - Kekic. Markskot: Leiftur 19, Grindav. 9. Horn: Leiftur 9, Grindavík 4. Gul spjöld: Baldur (L), Hörður Már (L), Guðlaugur (G). Dómari: Ólafur Ragnarsson, hafði ágæt tök á leiknum. Áhorfendur: 350. Skilyrði: Frábært knattspyrnu- veður og völlurinn allur að koma tú. Maður leiksins: Þorvaldur Mak- an, öflugur í framlinunni og sýndi mikið öryggi. í f í i Valur - Fram í umsögninni um leik Vals og Fram i blaðinu í gær misfórst boltagjöfin en hún átti að vera svona: Lið Vals: Lárus®, Bjarki®, Atli@, ívar@. Lið Fram: Jón@, Pétur@, Ásgeir Á.@, Þorbjörn Atli@, Anton Bjöm@@.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.