Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1997, Qupperneq 12
26 myndbönd
MYNDBAMDA
ÍBURÐARMIKIÐ
Myndin segir frá ævi Evu Perón, forsetafrú og
umdeildrar þjóðhetju í Argentinu. Hún kemur til
Buenos Aires á unglingsaldri og vinnur sig upp met-
orðastigann í skemmtanaiðnaðinum með því að sofa
hjá æ valdameiri mönnum þangað til hún endar hjá
Juan Perón, sem vinnur síðan forsetakosningar og
Eva verður forsetafrú. Síðan segir frá for hennar til
Evrópu, vinnu hennar í góðgerðamálum heima fyrir og loks veikindum
hennar, en hún dó úr krabbameini 33 ára gömul, skömmu eftir að Juan
Perón var kosinn forseti í annað sinn. Allar þær upplýsingar sem við
fáum um Evu Perón í myndinni kæmust fyrir í einni lítilli blaðagrein.
Síðan er fyllt upp í með skrautsýningum, íburðarmikliun dansatriðum
og lélegri tónlist. Lög og textar eru klúðursleg og uppfúll af endurtekn-
ingrnn. Umbúðimar eru glæsilegar en innihaldið ekkert og myndin
verður því afar langdregin og leiðinleg. Ekki fer mikið fyrir leikhæfi-
leikum, en Madonna syngur vel og Jonathan Pryce kemur nokkuð á
óvart með góðum söng, og er sá eini sem nær einhverri leikrænni fján-
ingu.
EVITA. Útgefandi: Myndform. Leikstjori: Alan Parker. Aðalhlutverk:
Madonna, Antonio Banderas og Jonathan Pryce. Bandarísk, 1996. Lengd:
122 mín. Öllum leyfð. -PJ
EIN GÖMUL MEÐ TRAVOLTA ***
JOHIVI TKAVOLTA |
• «-.• j
t *)
l !
Hjartaknúsarinn John Travolta leikur hér hljóð-
upptökumanninn Jack Terry sem verðim vitni að
bílslysi þar sem frægur stjórnmálamaður deyr en
Jack nær að bjarga ungri konu úr flakinu. Til að
forðast hneyksli er hann beðinn að þegja yfir þvi að
hún hafi verið í bílnum. Hann var að taka upp þeg-
ar slysið varð og þykist heyra byssuskot á upptök-
imni og heldur því fram að skotið hafi verið á dekk
bílsins, en hann á erfitt með að fá nokkum til að trúa
sér. Hér er um endurútgáfú á sextán ára gamalli
mynd að ræða, mynd sem vakti ekki mikla almenna
hrifningu í fyrstu en hefur í gegnum árin smám saman fest sig í sessi
meðal kvikmyndaáhugamanna sem athyglisverð spennumynd. Frumleg
vinnubrögð i hljóðvinnslu og kvikmyndatöku em athyglisverð og leikar-
ar standa sig vel, sérstaklega Travolta og John Lithgow í hlutverki geð-
sjúks morðingja. Söguþráðurinn gengur ekki alveg upp og myndin verð-
ur stundum svolitið kjánaleg fyrir vikið.
BLOW OUT. Útgefandi: Háskólabió. Leikstjóri: Brian De Palma. Aöalhlutverk:
John Travolta. Bandarísk, 1981. Lengd: 104 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
LEITIN AÐ ÁSTINNI ★★★
Ed Brosky flyst til New York frá Wisconsin eftir
að kærastan hans segir honum upp. Þar finnur
hann sér meðleigjanda sem veður í kvenfólki, en
sjálfur er Ed ósköp venjulegur og fremur óframfær-
inn. Hann hittir þó stelpu sem hann verður hrifinn
af, en sú hrifning er ekki gagnkvæm, a.m.k. ekki í
fyrstu. Honum tekst þó að lokum að bjóða heim til
sín í mat, en ýmis ljón standa í veginum fyrir að
þau nái saman, m.a. músagangur i íbúðinni og af-
brýðisamur kærasti hennar. Ed’s Next Move er ein-
fóld og skemmtileg mynd. Aðalpersónumar eru trúverðugar, sem er
nokkuð sjaldgæft í grínmyndum og Matt Ross er frábær í hlutverki Ed
Brosky. Myndin er algerlega laus við væmni og sýnir á trúverðugan en
jafnframt meinfyndinn hátt tilburði hans við leit sína að ástinni. Með-
leigjandi hans er skemmtileg andstæða og tilburðir þessa væna stráks
„úr sveitinni" til að fóta sig í borgarlífinu, þar sem hver hugsar um
sjálfan sig, eru oft broslegir. Ed’s Next Move er lítil og ódýr mynd, en
mjög skemmtileg.
ED'S NEXT MOVE. Útgefandi: Myndform: Leikstjóri: John Walsh. Aðal-
hlutverk: Matt Ross og Callie Thorne. Bandarisk. 1995. Lengd: 90 mín.
Öllum leyfð. ____ _ -PJ
SVIKRAÐ
Fyrrverandi tugthúslimurinn Corky er húsvörður
í fjölbýlishúsi í Chicago. Við hliðina á húsvarðar-
íbúðinni býr mafíósinn Caesar og kærastan hans,
Violet. Corky og Violet hefja leynilegt ástarsamband
og ákveða að ræna mafíuna. Caesar geymir um
stund tvær milljónir dollara i skjalatösku í íbúðinni
sinni og þær stöllur leggja á ráðin um að stela pen-
ingunum fyrir framan nefið á mafíunni og láta Caes-
ar taka skellinn. Hér er um að ræða fyrstu mynd
Wachowski-bræðranna, sem hafa getið sér gott orð
fyrir handritasmíð í Hollywood. Enda er í Bound
mikil áhersla lögð á' sögufléttuna, sem er tiltölulega einfold í fyrstu, en
verður flóknari eftir því sem á líður. Áætlunin gengrn- að sjálfsögðu
ekki alveg upp og myndin snýst upp í mikið taugastríð milli Caesars og
kvennanna. Mafían vofír síðan yfir persónunum eins og nokkurs konar
alvaldur sem getur ráðið örlögum þeirra allra. Þetta er fyrsti spennu-
tryllirinn sem ég hef séð lengi sem er virkilega spennandi - sá besti síð-
an The Usual Suspects kom út í fyrra. Jennifer Tilly og Gina Gershon
eru reglulega góðar í sínum hlutverkum og skapa mjög flottar persón-
ur, en Joe Pantoliano stelur þó senunni í hlutverki Caesars. Að lokum
má geta þess að þeir sem ætluðu að fá að sjá ástarleiki Tilly og Gershon
fá ekki mikið fyrir sinn snúð, enda er lessuerótíkin í aukahlutverki og
sögufléttan í aðalhlutverki.
BOUND. Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjórar: Larry og Andy
Wachowski. Aðalhlutverk: Jennifer Tilly, Gina Gershon og Joe Pantol-
iano. Bandarísk, 1996. Lengd: 104 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1997 J3'V"
Myndbandalisti vikunnar
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG.
1 7 2 Turbulence Sam-myndbönd Spenna
2 j 4 Sleepers Háskólabíó Spenna
3 2 4 Glimmer Man Warner myndir Spenna
4 4 : 3 Maximum Risk Skífan Spenna
5 Ný 1 Bound Sam-myndbönd Gaman
6 3 6 First Wives Club r r ClC-myndbönd Drama
7 5 5 Secrets and Lies Háskólabíó Spenna
8 Ný 1 Frighteners ClC-myndbönd Spenna
9 6 5 Djöflaeyjan Skífan Gaman
i. ! io : 2 : Evita Myndform Drama
11 9 - 9 Long Kiss Goodnight Myndform Spenna
12 r 1 8 r 6 Craft Skífan Spenna
13 Ný ; i ; Mirror Has Two Faces Skífan l Gaman
14 i u : 4 ; Matilda Skrfan 1 Gaman
15 i 12 ; 7 ; Rich Mans Wife Sam myndbönd , Spenna
f 16 ; *: X 1 * Booty Call ; Skífan ; Gaman
17 ■ 15 : 3 ' Crucible Skrfan Drama
is : r r i7 ; s : Fear r ClC-myndbönd , Spenna
19 13 ■ s ; FirstKid Sam-myndbönd ' Gaman
20 20 ; i U ' Associate Háskólabíó > Gaman
Spennumyndin Sleepers er fallin úr efsta
sæti myndbandalistans. Þar er nú spennu-
myndin Turbulence sem kemur ný inn á
lista fimm vinsælustu myndbandanna. Auk
Turbulence kemur spennumyndin Bound
ný inn og er hún í fimmta sæti listans.
Myndbandaáhugamenn virðast þrá meiri
spennu í líf sitt þessa dagana því fimm vin-
sælustu myndirnar eru allar spennumyndir.
Á myndinni sjáum við leikkonuna Lauren
Holly í hlutverki sínu í toppmyndinni Turbu-
lence.
Turbulence
Ray Liotta og
Lauren Holly.
Flugþjónninn Teri Hall-
oran, sem leikinn er af
Lauren Holiy, bjóst við ein-
földu flugi. Einungis nokkir
jólaferðalangar voru í 747
vélinni sem var á leið frá
New York til Los Angeles.
En allt í einu fyliist loftið af
óþægilegum kiflda þegar
fjórir lögregluþjónar koma
um borð með tvo dæmda
glæpamenn. Annar þeirra
er fjöldamorðinginn Ryan
Weaver sem leikinn er af
Ray Liotta en hinn er mis-
kunnarlaus ræningi sem
heitir Stubbs. Þegar vélin
er komin á loft er áhöfhin
vöruð við miklu óveðri sem
sé fram undan. En inni í
vélinni brýst út annars
konar óveður sem hefúr
ófyrirséðar afleiðingar.
sl L I I * i !< S
Sleepers
Kevin Bacon, Ro-
bert De Niro, Dustin
Hoffman og Brad
Pitt.
Sleepers er saga fjögurra
manna sem ólust upp sam-
an í hverfi í New York sem
nefht var Vítiseldhúsið
vegna þess hversu illræmt
það var fyrir glæpi.
Drengimir fjórir bindast
sterkum vináttuböndum og
bralia ýmislegt saman.
Einn daginn fer eitt prakk-
arastrik þeirra úr bönd-
unum og drengimir era
handteknir fyrir vikið. Þeir
em síðan sendir á heimili
fyrir afbrotaunglinga. Sú
dvöl á eftir að reynast þeim
dýrkeypt því yfirfangavörð-
urirrn er ofbeldisfuilur og
vaegðarlaus hrotti sem mis-
notar drengina. Mörgum
árum síðar ákveða þeir að
leita hefnda.
m
3LIMMEk
MAN
The Glimmer
Man
Steven Seagal og
Keenan Ivory Wa-
yans.
Steven Seagal leikur fyrr-
verandi leyniþjónustumann-
inn Jack Cole. Hann reynir
nú að upplýsa dularfúll og
sérstaklega hrottaleg morð í
Los Angeles. Honum reynist
erfitt að hafa hendur í hári
morðingjans og neyðist til
að hefja samstarf við lög-
regiumanninn Jim CampelL
Þeir Cole og Campell kom-
ast að þvi að málið er flókn-
ara en þá gat órað fyrir. Svo
virðist sem morðinginn
tengist einhveijum valda-
miklum aðilum sem vfíja
ekki að málið upplýsist
Ekki líður á löngu þar til
Cole áttar sig á því að máliö
virðist einnig teygja anga
sína inn í fortið hans.
Maximum
Risk
Jean-Claude van
Damme og Natasha
Henstridge.
Alan er lögreglumað-
ur í Frakklandi sem upp-
götvar að hann á tví-
burabróður sem heitir
Mikhail. Mikhail hefur
veriö myrtur í New York
vegna tengsla sinna við
rússnesku mafluna.
Alan verður að komast
til botns í málinu og
ákveður að fljúga vestur
um haf. Þar setur hann
allt á annan endann því
allir halda aö þar sé Mik-
hail lifandi kominn. Sú
eina sem Alan getur
treyst er unnusta Mik-
hails. Með mafluna og
FBI á hælunum reyna
þau að hafa uppi á morð-
ingja Mikhails.
Bound
Jennifer Tilly og
Gina Gershon.
Það eru tvær millj-
ónir dollara í skjala-
tösku sem liggur á
skrifborði í íbúð í
Chicago. Ceasar er
maður sem þvær pen-
inga fyrir mafíuna.
Violet er kærasta
hans til fimm ára og
Corky er nýsloppin
úr fangelsi. Hvað er
það síðasta sem gæti
komið upp á milli
mannleysu eins og
Céasars og pening-
anna? Tvær kyn-
þokkafullar og djöful-
lega klárar dömur
sem gimast hvor aðra
og milljónimar.