Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1997, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997
Fréttir
Myndfundir og fundaferðir til útlanda:
Saga Class leggst ekki af
- segir Einar Sigurösson, upplýsingastjóri Flugleiða
„Menn telja ekki að myndfund-
ir muni taka við sem fundaform
og að ferðalög til funda erlendis
leggist af. Eftir því sem þessari
tækni fleygir fram mun vissulega
einhverjum fundum, sem nú eru
sóttir héðan, fækka þar sem þeir
munu færast inn á myndfunda-
formið. Öðrum fundum, sem
menn taka beinan þátt í, mun
hins vegar fjölga. Myndfunda-
formiö mun því þegar fram í sæk-
ir verða ferðahvetjandi," segir
Einar Sigurðsson, upplýsinga-
stjóri Flugleiða.
Eins og sagt var frá í DV nýlega
var að frumkvæði Tómasar Inga
Olrich alþingismanns gerö til-
raun með að halda myndfund
með íslenskum og erlendum Evr-
ópuráðsþingmönnum og voru ís-
lendingamir í húsnæði Pósts og
síma í Reykjavík en hinir i
Frakklandi.
DV spurði þá Einar og Simon
Pálsson, markaðsstjóra Flugleiða,
hvort þeir óttuðust að mynd-
fundatæknin ætti eftir að draga
mjög úr aðsókn á Saga Class Flug-
leiða, en stór hluti farþeganna
eru stjórnarerindrekar og fólk úr
viðskiptalífinu í stuttum funda-
ferðum.
Símon taldi ekki ástæðu til að
óttast það þar sem erlend sam-
skipti væru stöðugt að aukast og
ekki útlit fyrir að það breyttist.
Einar segir að stuttar viðskipta-
ferðir til útlanda hafi stöðugt ver-
ið að verða auðveldari og ódýrari
með aukinni ferðatíðni til og frá
landinu, en hún hafi tvöfaldast
undanfarin átta ár. í dag sé það
orðið mögulegt að fara t.d. til
Norðurlandanna að morgni og
koma til baka að kvöldi. Aukin
ferðatíðni hafi stórlega minnkað
kostnað vegna dagpeninga, en
einnig séu hjá Flugleiðum komn-
ir til sögunnar nýir fargjalda-
flokkar fýrir stuttar viðskipta-
ferðir sem líka hafi lækkað kostn-
að notenda og jafnframt leitt til
gríðarlega mikillar söluaukning-
ar.
Hvorki Símon né Einar telja að
myndfundir muni draga úr ferða-
lögum fremur en sjálfur síminn á
sínum tíma. Margir hafi talið að
þegar síminn var að ná út-
breiðslu myndi hann gera hvers
konar ferðalög óþörf. „En þvert á
móti. Síminn og öll nútímafjar-
skiptatækni sem gerir mönnum
mögulegt að vera í nánari tengsl-
um við útlönd hefur í raun aukið
hina beinu samskiptaþörf og ég á
ekki von á að raunin verði önnur
í sambandi við myndfundatækn-
ina,“ segir Einar Sigurðsson. -SÁ
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri:
Reksturinn fer
um 70-80 milljón-
ir fram úr áætlun
í rigningartíðinni í sumar hefur veriö erfiðleikum háð að hiröa litlu vélbundnu baggana. Rúllutæknin er búin að
bjarga sumrinu hjá mörgum bondanum.
Óþurrkasumar í Mýrdal
Rúllubaggarnir búnir að bjarga heyskapnum
DV; Akureyri:
„Ég hef ekki betri viðmiðun varð-
andi það hver útkoman getur orðið en
þá að í hveijum mánuði kostar rekst-
urinn 6-7 milljónir króna meira en
áætlanir gerðu ráð fyrir. Ef ekki verð-
ur stórbreyting á fer rekstur sjúkra-
hússins því a.m.k. um 70 milljónir
króna fram úr fjárlögum á árinu,“ seg-
ir Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Hvalfjarðargöngin:
150
metrar
eftir
DV, Akranesi:
Nú eru aðeins um 150 metrar
eftir af um 5,5 kílómetra leiö
bormanna í gegnum Hvalíjarð-
argöngin. Gerð ganganna hefur
gengið framar vonum og búist
er við að bormenn mætist í
fyrrihluta október. Upphaflega
var áætlað að þeir myndu mæt-
ast um mitt ár 1998 og göngin
opnuð í febrúar 1999. Vonir
manna standa nú til þess að
hægt verði að opna göngin fyr-
ir umferð haustið 1998.
Fyrsta sprengingin í göngun-
um var 30. maí 1996 og bráðum
eitt ár og fjórir mánuðir síðan
byrjað var á göngunum. Mesta
vegalengd sem bormenn hafa
komist á einum mánuði var í
apríl sl. en þá voru sprengdir
512 metrar. Mikil eftirvænting
er á Akranesi fyrir opnun
ganganna enda mun tilkoma
þeirra hafa mikla þýðingu fyr-
ir bæjarfélagið. -DVÓ
Fjárfestingarbankinn:
Bjarni banka-
stjóri
Bjami Ármannsson hefur verið
ráðinn bankastjóri Fjárfesting-
arbanka atvinnulífsins og tekur
hann strax til starfa.
Við starfi Bjama hjá Kaupþingi
hefur tekið Sigurður Einarsson, en
hann var aðstoðarforstjóri fyrirtæk-
isins þar til í gær. -sme
Stjóm Fjórðungssjúkrahússins hef-
ur skorað á sveitarstjómarmenn á
Norður- og Austurlandi að leggja
sjúkrahúsinu lið með því að tala máli
þess og gera kröfuna um ffekari upp-
byggingu þess að sinni. Einnig að gerð
veröi sú krafa til fjárveitingavaldsins
að nú þegar verði tekin ákvörðun um
auknar fjárveitingar til sjúkrahússins
og þvi gert kleift aö sinna skilgreindu
hlutverki sínu.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
hefur yfirleitt verið rekið innan
ramma fjárlaga. Þannig var það síðast
árið 1995 en í fyrra fór reksturinn 14
milljónir króna ffam úr fjárlögum eða
0,93%. Að sögn Halldórs Jónssonar
hefúr allt umfang sjúkrahússins vaxið
geysOega mikið á þessum tíma en fjár-
veitingar hafa ekki hækkað að sama
skapi.
Barnadeildinni seinkar
Engin starfsemi er enn i geysistórri
nýbyggingu sjúkrahússins sem hafist
var handa við 1994. Áætlanir gerðu ráð
fyrir því að bamadeild sjúkrahússins
flytti í nýja spítalann um næstu ára-
mót en Halldór segir ljóst að af því
verði ekki. Ekki sé við fjárveitinga-
valdið að sakast hvað það varðar en
ýmsar ástæður liggi að baki.
„Samningur um framhald ffam-
kvæmda í nýju byggingunni og með
hvaða hætti aðrar deildir fara þar inn
liggur ekki fyrir. í því sambandi skipt-
ir máli hvaða fjármunir em til ráðstöf-
unar, bæði til nýbygginga og til rekstr-
arins, þegar þær ákvarðanir verða
teknar. Það er auðvitað alltaf verið að
togast og takast á um peninga og þetta
er spuming um stefnu og hvað og hvar
og í hvaða röð á að byggja upp og veita
þjónustu," segir Halldór Jónsson. -gk
DV.Vík:
„Við eigum þó nokkuð óslegið og
mikið hey flatt og það er farið að
hrekjast talsvert enda sumt af því
búið aö liggja á túnunum á þriðju
viku,“ sagði Tryggvi Ólafsson,
bóndi á Skeiðflöt í Mýrdal. Hann
var að binda hey í bagga á fóstudag-
inn þegar létti til sunnanlands og
bændur í Mýrdal fengu langþráðan
þurrk sem þeir gátu notað til að ná
saman hluta af þeim heyforða sem
er óhirtur hjá þeim. í rigningartíð-
inni i sumar hefur verið erfiöleik-
um háð að hirða litlu vélbundnu
baggana. Bóndi í Mýrdal, sem
fréttaritari talaði við, sagði aö rúllu-
tæknin væri búin að bjarga sumr-
inu hjá mörgum þeirra en heyið,
sem fer i rúllubaggana, þarf ekki að
vera eins þurrt og það sem er bund-
ið og sett í hlöður og i sumum tilfell-
um er rúllað beint úr sláttuskárun-
um. Tryggvi Ólafsson tekur undir
það og segir heygæðin vera misjöfn.
„Það var gott sem fór í rúllubaggana
og það sem slegið var fyrst en það
sem er í litlu böggunum er þó yfir-
leitt lakara, vegna ótíðarinnar hefúr
gengið svo illa að þurrka það, i
ágúst hefur verið stöðug rigningar-
tíð aðeins einn og einn, hálfur dag-
ur svo þegar styttir upp þá er allt á
floti og varla hægt að komast um
túnin fyrir bleytu." Tryggvi sagði
að þeir sem væru ekki þegar búnir
með heyskap myndu klára hann
fljótlega ef þomaöi til. -NH