Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1997, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1997, Page 15
14 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997 27 íþróttir íþróttir ENGLAND Úrvalsdeild í gærkvöld Bolton-Tottenham..........1-1 1-0 Thompson víti (20.), 1-1 Armstrong (71.) Wimbledon-Bamsley.........4-1 0-1 Tinkler (41.), 1-1 Cort (49.), 2-1 Earle (65.), 3-1 Hughes (68.), 4-1 Ekoku (84.) Deildarbikar - síöari leikir Bamet-Middlesborough ... 0-2 (0-3) Bury-Sunderland.........1-2 (4-2) Peterborough-Reading .... 0-2 (0-2) Sheff. Utd-Watford......4-0 (5-1) Stockport-Birmingham ... 2-1 (3-5) Torquay-Ipswich ........0-3 (1-4) Tranmere-Notts County ... 0-1 (2-1) WBA-Luton...............4-2 (5-3) York-Oxford ............1-2 (2-6) Frank Sinclair hjá Chelsea hefur verið sektaður um 750 pund fyrir að girða niður um sig eftir aö hann skoraði í leik gegn Coventry í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar. Everton er reiðubúið að greiöa 1,5 milljónir punda fyrir Þjóðverjann Uwe Rösler sem leikur með Manchester City i 1. deildinni. Stan Collymore framherja Aston Villa hefur verið sagt af forráðamönnum félagsins að hann verði að taka sig alvarlega á. Körfubolti: Úrsfít á Reykja■ víkurmótinu Úrslitaleikir Reykjavíkurmóts- ins í körfuknattleik fara fram í íþróttahúsinu Austurbergi í kvöld. í karlaflokki leika til úrslita KR og Tindastóll. KR sigraði Val í undanúrslitum og Tindastóll lagði fráfarandi meistara ÍR. í kvennaflokki leika til úrslita KR og ÍS og hefst leikurinn klukkan 18. -GH Heiðarí U langt I bann Heiðar Sigurjónsson úr Þrótti var í gær úrskurðaður í þriggja leikja bann af aganefnd KSf en hann fékk að líta rauða spjaldiö í þriðja sinn í sumar í leik gegn FH um síðustu helgi. Hann verður því ekki með í fyrstu þremur leikjum Þróttara á næsta tímabili. Þá voru Alexander Högnason og Stur- laugur Haraldsson, ÍA, Jakob Már Jón- harðsson, Keflavík, Slobodan Milisic, Leiftri, Sigurður Sigursteinsson, Skallagrími, Ragnar Árnason, Stjömunni, og ívar Ingimarsson, Val, dæmdir í eins leiks bann. _gh íslendingar mæta Svisslendingum í Evrópukeppninni í Höllinni í kvöld íslendingar leika sinn fyrsta leik í riðlakeppni Evrópumóts landsliða í handknattleik í kvöld þeg- ar þeir mæta Svisslendingum í Laugardalshöllinni. Auk þessara þjóða eru Júgóslavar og Litháar í sama riöli. Leikið er heima og heiman i keppninni, síðari leikur þjóðanna verður í borginni Sursee í Sviss á sunnudaginn kemur. Ljóst er aö leikurinn gegn Sviss í kvöld hefur mikla þýð- ingu fyrir íslenska liöið upp á framhaldið í riðlakeppninni. Góö úrslit gæfu eflaust góðan byr í seglin en eftir frábæran árangur liðsins i heimsmeist- arakeppninni i Japan á sl. vori ríkir eftirvænting hvern- . . .„ . ig liðinu reiðir af í komandi Þorbjorn Jensson. leikjum j riöiakeppninni. Þegar íslenska liðið er skoðað er ljóst að þar er valinn maður í hverri stöðu og hefur það alla burði til að ná langt að þessu sinni, að minnsta kosti gefa tilburðir liðsins á HM í Japan tilefni til þess. Landsleikir íslands og Sviss í gegnum tíðina hafa ávallt verið harðar rimmur. Að öllu óbreyttu verður svo einnig nú en svissneska liðið hefur þó breyst mikiö á síðustu misserum, yngri og óreynd- ari menn hafa leyst þá eldri af hólmi. Það má því kannski segja á svissneska liðið renni nokkuð blint í sjóinn hvað varðar leikinn í kvöld. Liöið fékk vissa prófraun gegn Pólverjum á dögunum þar sem jafntefli varð niðurstaðan í tveimur leikj- um á jafnmörgum dögum. Svisslendingar sátu eftir með sárt enniö á sl. vori þegar þeim mistókst að tryggjar sér sæti á HM í Japan. Það var þeim mikið áfall en nú er visst uppbyggingarstarf hafiö og spurning hvort liðið er tilbúið í keppnina núna. Ungum og efnilegum leik- mönnum er gefið tækifærið og þeir munu eflaust sýna hvað í þeim býr. Allt lagt í sölurnar Þorbjöm Jensson landsliðsþjálfari kallaði lands- liðið saman til undirbúnings fyrir leikinn gegn Sviss í fyrradag. í gær æfði liðið í tvígang og var greinilegt á öllu að strákarnir leggja allt í sölumar í leikinn gegn Sviss. Öllu því besta verður tjaldað og veröur spennandi að sjá hvemig strákunum reiðir af. Geir Sveinsson fyrirliði sagði við DV eft- ir fyrri æfingu liðsins í gær andrúmsloftið vera gott í herbúðunum og allir væm staðráðnir í að gera sitt besta eins og alltaf. Gerum okkur grein fyrir alvöru leiksins „Við gerum okkur grein fyrir alvöru leiksins en hann skipt- ir okkur miklu máli. Við verðum að hafa í huga að frammistaða okkar á HM í Japan telur ekki í þessari keppni og því má segja að við séum á byrjunarreit. Það er ekkert launungarmál að það er takmarkið okkar að fá fjög- ur stig út úr leikjunum tveim- ur við Sviss I kvöld og svo ytra á sunnudaginn. Við lékjum ekki sannfærandi gegn Dönum á dögunum en ég er þess fúllviss aö menn mæta betur stefndir í leikina gegn Sviss enda er alvaran skollin á. Ég verð að segja að ég hef góða tilfinningu fyrir leikj- Geir Sveinsson. unum gegn Sviss, allir eru heilir og það er létt yfir mannskapnum. Það er engin spurning að við stefn- um á eitt af tveimur efstu sætunum. Það skiptir verulegu máli aö ná sem flestum stigum í byrjun því ég vil fyrir alla muni forðast það að síðasti leik- urinn í riðlinum gegn Júgóslövum verði einhver úrslitaleikur eins og gerðist gegn Dönum í und- ankeppni fyrir HM. Það fór að vísu vel en ég vil helst ekki endurtaka þann leik aftur," sagöi fyrir- liðinn. Geir sagði að leikimir við Sviss í gegnum árin hefðu oftast verið jafnir og spennandi. Þeir leika sinn venjulega bolta, hanga á boltanum og innan um hjá þeim eru gamlir refir sem kunna ýmislegt fyrir sér. „Kominn tími til aö tryggja sér sæti í úr- slitakeppninni" „Við erum ákveðnir í að gera góða hluti í keppn- inni þvi þaö er kominn tími á það að ísland tryggi sér sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins en það hef- ur okkur aldrei tekist,“ sagði Geir Sveinsson lands- liðsfyrirliði í samtali við DV í gær. -JKS HSÍ ætlar að skapa mikla og góða stemningu fyrir leikinn i kvöld í Evrópukeppninni gegn Svisslendingum. Laugardalshöll verður opnuð klukkan 19.00 og í anddyri Hall- arinnar verða vörukynningar og uppákomur frá ýmsum fyrir- tækjum. Þá mæt- ir hinn sí- vinsæli Ei- ríkur Fjal- ar á svæð- ið og skemmtir fólki fyrir leikinn. Díddu Eir(kur Fja|ar. mun ‘ syngja þjóðsöngva landanna fyr- ir leikinn og mun Jónas Þórir leika undir. _TT -(jxi Brynjar Gunnarsson: Tilboðá borðinu - IFK Gautaborg bauð í Brynjar í gærkvöld Forráðamenn sænska stórliðsins IFK Gautaborg og sænskir fjölmiðlar halda ekki vatni yfir knattspymumanninum Brynjari Gunnarssyni úr KR. Brynjari, sem verið hefur til reynslu hjá Gautaborgarliðinu undan- fama daga, var í gærkvöld afhent tilboð frá félaginu og mun hann íhuga það næstu daga. Stórblaðið Expressen fiallar um Brynjar í einnar síðu grein í gær og tal- ar um bjargvætt Gautaborgarliðsins og súperstjörnu. Þeir Thomas Wemersson, framkvæmdastjóri Gautaborgar, og Mats Jingblad, þjálfari liðsins, sögðu i samtali við DV i gærkvöld: „Það sem við höfum séð til Brynjars erum við mjög ánægðir með. Það er ekkert vafa- mál að Brynjar er framtíðarleikmaður hjá Gautaborg og hann gæti hæg- lega gengið beint inn í byrjunarliðið hjá okkur í dag.“ Brynjar æfði með Gautaborg í gær og í gærkvöld bauð framkvæmda- stjórinn honum til kvöldverðar þar sem hann afhenti Brynjari tilboð frá þessu þekkta félagi. „Mér líkar mjög vel hjá félaginu og allar aðstæður hér em mjög góðar. Mér var strax mjög vel tekið af leikmönnum liðsins," sagði Brynjar i sam- tali við DV í gærkvöld. Samkvæmt heimildum DV er tilboðið mjög gott enda Gautaborg vel statt fiárhagslega. -EH Svíþjóð/-SK Dagur Sigurðsson og félagar hans i íslenska landsliðinu verða í eldlínunni í kvöld er þeir mæta Svisslendingum í Evrópukeppninni. Hér hvtiir Dagur lúin bein á æfingu landsliðsins í gær. DV-mynd Brynjar Þjálfari Svisslendinga vildi ekki myndbandið Þegar Þorbjöm Jensson landsliðsþjálfari var í Sviss í síðustu viku og fylgdist með tveimur landsleikjum Svisslendinga og Pólverja bauðst hann til að útvega landsliðsþjálfara Sviss myndband af leikjum íslend- inga og Dana sem fram fóm hér á landi á dögunum. Þjálfarinn þáði ekki boðið enda öragglega búinn að útvega sér mynd- ir frá leikjunum á annan hátt að sögn Þorbjöms. Það verða ungverskir dómarar sem dæma leik íslands og Sviss í Evr- ópukeppninni í Laugardalshöllinni í kvöld. Þeir heita Josep Ladiszlai og Lazlo Tavamy og era að dæma i fyrsta sinn á íslandi. Eftirlitsdómarinn kemur hins vegar frá Lúxemborg. -JKS - mjög svo glæsilegt framtak hjá KKÍ Góðgeröarleikir Körfuknattleiks- sambands íslands fara fram á sunnudaginn í íþróttahúsi Keflavikur. Þar eigast viö íslands- og bikarmeistarar frá síðasta ári i karla- og kvennaflokki og hljóta sigurvegararnir sæmdarheitið meistarar meistaranna. Það sem er sérstakt við þessa leiki er að KKÍ gefur allan ágóða af leikjunum til góðgerðarmála eins og samþykkt var á ársþingi sambandsins árið 1995. Stjóm KKÍ skipaði sérstaka heiðursnefnd sem hefur veg og vanda af skipulagningu þessa viðburðar og vali á þvi málefni sem styrkt er hverju sinni. Nefndina skipa Helgi Ágústsson, formaður, Skúli Valtýsson og Einar Bollason. Nefndin ákvað að ágóðinn af leikjunum í ár skyldi renna til Neistans sem er styrktarfélag hjartveikra bama. Þetta er í þriðja sinn sem KKÍ stendur að þessum góðgerðarleikjum. Fyrsta árið runnu peningamir til krabbameinssjúkra bama og annað árið fór ágóðinn af leikjunum til Jafningjafræðslunnar. Glæsilegt hjá KKÍ Þetta framlag KKÍ til góðgerðarmála er glæsilegt og á blaðamananfundi sem KKÍ efndi til í gær vegna leikjanna þökkuðu fulltrúar Neistans körfuknattleiks- sambandinu fyrir þetta framtak og sögðu það bera vott um góðan skilning á málum hjartveikra barna en 40-50 böm greinast árlega með hjartasjúkdóm og þurfa 20-25 þeirra að gangast undir aðgerð. Eins og áður segir fara leikimir fram í Keflavík. Klukkan 18 leika Grindavík og Keflavík í kvennaflokki og klukkan 20 leika Keflavík og KR í karlaflokki. Milli leikjanna verður boðið upp á skotkeppni og hjólastólakörfubolta. -GH Léttleikinn var allsráðandi á æfingu íslenska landsliöins í handknattleik í gær. Fyrir höndum eru tveir leikir gegn Sviss í riðlakeppi Evrópumótsins, sá fyrri í kvöld og sá síöari í Sviss á sunnudag. Júlíus Jónason og Geir Sveinsson taka hér teygjuæfingar og Bergsveinn Bergsveinsson lætur ekki sitt eftir liggja í horninu uppi. Þorbjörn Jensson landsliösþjálfari fylgist álengdar með. DV-Brynjar Gauti ákveðnir Eiríkur Fjalar mætir í Höllina Diddú þenur raddböndin Það verður mikið um dýrðir í kvöld þegar íslendingar mæta Svisslendingum í Evrópukeppninni í handknatt- leik i Laugardalshöllinni. Á meðal þess sem verður til skemmtunar er að söng- konan Sigrún Hjálmtýsdóttir mun syngja þjóðsöngva beggja landanna. -SK Meistarakeppni KKI á sunnudaginn: Ágóði til hjart veikra barna Gjaldkeri Leifturs á Ólafsfiröi: Við erum ekki gjaldþrota Sögusagnir hafa verið í gangi að knattspymudeild Leifturs á Ólafsfirði sé mjög illa stödd fiárhagslega, svo illa að í gjaldþrot stefni. DV náði tal af Kristni Hreins- syni, gjaldkera knattspymudeildar Leifturs, í gær og bar þessar sögusagnir undir hann. „Það hafa alltaf gengið einhverjar sögur um okkur Leiftursmenn og við höfum heyrt af þessari. Viö eram ekki að verða gjaldþrota. Staða knattspymudeildarinn- ar fiárhagslega er allt í lagi. Viö í sjálfu sér vöðum ekk- ert í peningum en við eram ekkert í neinu óefni. Ég get á þessu stigi ekki sagt hvað við skuldum en ég held að staða okkar sé ekkert verri en hjá öðrum félögum nema þá kannski hjá Eyjamönnum. Það er víða mjög knappt í búri og menn ekki með neinar innistæður," sagði Kristinn í samtali við DV í gær. Kristinn líklega áfram Að sögn Kristins era allar likur á að Kristinn Bjöms- son verði endurráðinn þjálfari Leiftursmanna og eru viðræður þess efnis aðeins famar af stað. Um helming- ur af leikmannahópi Leifturs er með lausa samninga eftir tímabilið og segir Kristinn að menn muni setjast niður eftir helgina og skoða leikmannamálin. „Það hefur enginn gefið það út að hann ætli að yfir- gefa liðið og ég held að það hafi flestir áhuga á að vera með okkur áfram. Það má nú samt alltaf búast við ein- hverjum breytingum," sagði Kristinn. -GH Kristinn Björnsson veröur aö öllum líkindum áfram meö Leiftur. Diego Maradona búinn að vera Argentínski knatt- spyrnusnillingurinn Diego Armando Mara- dona virðist hafa með síöasta skammar- striki sinu endanlega spilað rassinn úr bux- unum því þrautseig- ustu áhangendur hans, argentínska þjóðin, era búnir að fá nóg. Enn og aftur bendir því allt til þess að skrautlegur ferill þessa litríka knatt- spymumanns sé nú loks á enda. Hann hef- ur reyndar verið af- skrifaður áður en ávallt snúið til baka. En nú virðist mælir- inn fullur auk þess sem kappinn er orð- inn 36 ára gamall. „Getur ekki veriö“ Eins og áður hefur komið fram féll Mara- dona á lyfiaprófi í síð- asta mánuði eftir 4-2 sigurleik hans manna í Boca Juniors á gömlu félögum hans í Argentinos Juniors í argentínsku úrvals- deildinni. Þetta var í þriðja sinn sem Maradona féll á lyfiaprófi auk þess sem lögreglan hefur þurft að hafa af- skipti af honum í mis- gáfulegu ástandi. „Það getur ekki ver- ið, þetta hljóta að vera einhver mistök," sagði Guilermo Coppola, hinn argent- ínski umboðsmaður Maradona, þegar hann fékk þær fréttir um að skjólstæðingur hans hefði enn og aft- ur fallið á lyfiprófi. Þessi ummæli hans gætu allt eins hafa verið ummæli argent- ínsku þjóðarinnar sem hingað til hafði slegið skjaldborg um átrúnaðargoð sitt hon- um til vamar. En rot- höggið kom þegar Aldino Bemposta, for- maður lyfianefndar argentínska knatt- spymusambandsins, staðfesti niðurstöðu lyfiaprófsins. „Við framkvæmd- um enn þá viðameiri og nákvæmari prófun núna en vant er svo að ekki léki nokkur vafi á niðurstöðunni, sérstaklega með tilliti til þess hver á hlut að máli,“ sagði Bemposta. Brenndar brýr „Hann hafði hugsað sér að koma okkur aftur á meðal þeirra bestu og væntingarn- ar vora miklar. En úr því sem komið er verður ekkert úr því,“ sagði Mauricio Macri, forseti Boca Juniors, sem Maradona lék nú síðast með. Maradona hefur nú brennt allar brýr að baki sér, heima og að heiman. Argentínska þjóðin er búin að fá nóg af lyg- unum um betri tíð og tíma og segir hann hafa lært of mikið af síðasta einkaþjálfara sínum sem var enginn annar en kanadíski spretthlauparinn Ben Johnson. Undrabarn Argentínu hefur vald- ið þjóð sinni miklu hugarangri síðustu vikur og það hefur reynst þeim þrautin þyngri að finna út hæfilega refsingu. En eins og Macri, forseti Boca Juniors, sagði: „Maradona hef- ur brugðist sjálfum sér oftar en okkur." -ÖB Brynjar Gunnarsson. Feríll Maradona 1960: Diego Armando Maradona fæddist þann 30. október. Var fimmta af átta börnum, sonur iönverkamanns. 1976: Lék sinn fyrsta ieik í 1. deild- inni i Argentínu meö liöi Argentinos Juniors, 10 dögum fyrir 16 ára afmæl- isdag sinn. 1977: Lék sinn fyrsta landsleik meö Argentínu. 1978: Þjálfari argentínska landsliös- ins velur hann ekki í landsliðiö fyrir HM í Argentínu. Telur hann of ungan til aö þola pressuna. 1979: Er fyrirliöi unglingalandsliðs Argentinu sem verður heimsmeistari. 1981: Vinnur argentínska meistara- titilinn meö liöi Boca Juniors. 1982: Gengur til liös viö Barcelona eftir heimsmeistarakeppnina. 1984: Gengur til liös viö Napoli á Ítalíu. 1986: Skorar hiö fræga mark meö „guðs hendi" í undanúrslitaleik HM gegn Englendingum og er lykilmaður Argentínumanna sem veröa heims- meistarar meö 3-2 sigri á Þjðöverjum í úrslitaleik. 1987: Veröur ítalskur meistari meö Napoli. 1989: Leiöir Napoli til sigurs í Evr- ópukeppninni. Ertvo mánuöi í Argent- ínu og mætir ekki á réttum tíma til Ítalíu þegar keppnistímabiliö hefst. 1990: Verður ítalskur meistari með Napoli í annað sinn og er fyrirliöi Argentínumanna sem tapar fyrir Þjóö- verjum f úrslitaleik HM, 1-0. 1991: Fellur á lyfiaprófi eftir aö hafa neytt kókaíns og er dæmdurf 15 mán- aöa keppnisbann með Napoli. Er hand- tekinn fyrir að hafa neytt kókaíns eft- ir komuna til Argentínu og skipaö af dómara aö hætta uns niðurstaða aö lyfjaprófi liggur fyrir. 1992: Neitar aö ganga aö nýju til liðs viö Napoli eftir keppnisbanniö oggeng- ur í raöir Sevilla á Spáni. 1993: Er aftur skipaöur fyrirliöi lands- liös Argentínu í leik gegn Brasilíu- mönnum. Yfirgefur liö Sevilla og fer í liö Newell Old Boys i Argentínu. 1994: Er rekinn frá Newell Old Boys fyrir aö mæta ekki á æfingar. Skýtur úr loftriffli aö fréttamönnum. Leikur fyrstu tvo leikina meö Argentínumönn- um á HM f Bandaríkjunum. Fellur á lyfjaprófi þar sem kemur f Ijós aö hann hafl neytt margs konar ólöglegra lyfja, meðal annars kókaíns. Alþjóöa knatt- spyrnusambandiö dæmir hann í 15 mánaöa keppnisbann. 1995: Æfir meö tveimur félögum á Spáni, Racing Club og Espanol en hættir og gengur í raöir síns gamla félags í Argentínu, Bocca Juniors. 1996: Fer til Sviss og dvelst á hæli fyrir eiturlyfjasjúklinga. 1997: Byq'ar í fimmta sinn á ferlinum með Bucca Juniors en fellur á lyfja- prófi eftir fyrsta leikinn með liðinu. I Ijós kemur aö hann haföi enn og aftur neytt kókaíns sem þýðir að hann á yfir höfði sér allt aö fimm ára keppnisbann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.