Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1997, Qupperneq 22
34
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997
Fólk í fréttum____________
Björg Bjarnadóttir
Hl hamingju
með afmælið
24. september
Björg Bjamadóttir leikskólakenn-
ari, Vallarhúsum 65, ReyKjavík, er
formaður Félags íslenskra leik-
skólakennara. Félagið samdi um
24-26 % launahækkun um síðustu
helgi eins og fram kemur í DV sl.
mánudag.
Starfsferill
Björg fæddist að Haga á Barða-
strönd og ólst þar upp. Hún lauk
landsprófi á Patreksfirði, stúdents-
prófi við MA 1975, lauk prófum frá
Fósturskólanum 1978, stundaði þar
framhaldsnám í stjórnun og lauk
prófum í þeirri grein 1992. Björg
hefur sótt fjölda námskeiða á sviði
uppeldis- og kennslumála.
Björg stundaði sumarvinnu við
Hótel Flókalund á námsárunum,
stimdaði grásleppuveiðar með föður
sínum á sumrin og var ráðskona í
vegavinnu.
Björg starfaði nær óslitið hjá Dag-
vist bama í Reykjavík á ámnum
1978-93, þar af í ellefu ár sem leik-
skólastjóri við leikskólann Amar-
borg. Hún hóf störf hjá Félagi ís-
lenskra leikskólakennara 1993 og
■ hefur starfaö við félagið síðan.
Björg sat í fulltrúaráði Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar,
hefur frá stofnun Félags íslenskra
leikskólakennara, 1988,
setið í fulltrúaráði félags-
ins, sat í samninganefhd
þess, í stjóm þess frá
1989, varð varaformaður
1993 og hefur verið for-
maður félagsins frá 1996.
Hún hefur gegnt ýmsum
nefndarstörfum á vegum
félagsins og setið í nefnd-
um á vegum mennta-
málaráðuneytisins.
Fjölskylda
Maður Bjargar er Eiríkur Jóns-
son, f. 6.7. 1951, kennari og formað-
ur Kennarasambands íslands. Hann
er sonur Jóns Þórissonar, kennara í
Reykholti, og Halldóru Þorvalds-
dóttur, fyrrv. símstöðvarstjóra.
Böm Bjargar eru Edda Kristín Ei-
ríksdóttir, f. 7.11. 1973, húsmóðir í
Reykjavík og er dóttir hennar Björg
Jessica; Rán Pétursdóttir, f. 14.2.
1982, nemi; Aðalsteinn Sigfússon, f.
16.7. 1987, nemi; Bjami Símon Sig-
fússon, f. 9.1. 1990.
Böm Eiríks em Hjörtur Ingi Ei-
ríksson, f. 19.2. 1972, vélstjóri í Vest-
mannaeyjum en kona hans er Erla
Baldursdóttir kennari og er dóttir
þeirra Halla María; Harpa Rún, f.
5.9. 1977, fiskvinnslukona á Akur-
eyri.
Systkini Bjargar era
Margrét, f. 27.6.1956, ljós-
móðir í Reykjavík; Jó-
hanna, f. 30.10. 1958,
sjúkraliði á Akureyri;
Hákon, f. 20.3. 1960, for-
stöðumaður á Geldinga-
læk;Kristín, f. 6.2. 1961,
starfsmaður við Morgun-
blaðið; Haraldur, f. 19.10.
1963, bóndi í Haga; Gunn-
ar, f. 29.6. 1965, sjómaður
á Patreksfirði.
Foreldrar Bjargar era Bjami Há-
konarson, f. 27.2.1932, bóndi í Haga
á Barðaströnd, og k.h., Kristín Har-
aldsdóttir, f. 3.5. 1936, húsfreyja og
bóndi í Haga.
Ætt
Bjami er sonur Hákonar, hrepp-
stjóra og alþm. í Haga á Barða-
strönd, bróður Eiríks skipherra, og
Kristófers, föður Guðbjarts mennta-
skólakennara. Hákon var sonur
Kristófers, b. á Brekknavelli,
Sturlusonar, smiðs í Vatnsdal, Ein-
arssonar, b. í Vatnsdal, Einarsson-
ar, ættfóður Kollsvíkurættarinnar,
Jónssonar, bróður Arnfinns,
langafa Guðrúnar, móður Kristins
Guðmundssonar ráðherra. Systir
Einars var Helga, langamma Bjöms
Jónssonar, ritstjóra og ráðherra,
föður Sveins forseta. Móðir Há-
konar var Margrét Hákonardóttir,
b. á Hreggstöðum, Snæbjömssonar,
b. í Dufansdal, Pálssonar, b. í Álfa-
dal, Hákonarsonar, bróður Magnús-
ar, langafa Jóns Sigurðssonar for-
seta.
Móðir Bjama var Björg, dóttir
Jóns Jónssonar og Kristínar Magn-
úsdóttur.
Kristín er dóttir Haralds, b. á
Fossá á Barðaströnd, Sigurmunds-
sonar, b. þar, Guðmundssonar. Móð-
ir Haralds var Kristín, hálfsystir
Snæbjöms Kristjánssonar í Hergils-
ey, afa Snæbjöms Jónassonar,
fyrrv. vegamálastjóra. Kristín var
dóttir Kristjáns, hreppstjóra í Her-
gilsey, Jónssonar, hreppstjóra á
Kleifúm, Ormssonar, ættfóður
Ormsættarinnar, Sigurðssonar.
Móðir Kristjáns var Kristín Egg-
ertsdóttir, b. í Hergilsey, Ólafsson-
ar, afa Ástríðar, ömmu Matthíasar
Jochumssonar og langömmu
Muggs.
Móðir Kristínar var Guðrún Öss-
urardóttir.
Björg Bjarnadóttir.
Leikhús
Afmæli
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviöiö kl. 20:
ÞRJÁIt SYSTUR
- Anton Tsjekhof
4. sýn. á morgun, fid., nokkur sæti laus, 5.
sýn. sud. 28/9, nokkur sætl laus, 6. sýn.
fid. 2/10, nokkur sæti laus, 7. sýn. sud.
5/10, nokkur sæti laus, 8. sýn. Id. 11/10,
nokkur sætl laus.
FIÐLARINN Á ÞAKINU
- Bock/Stein/Harnick
Föd. 26/9, Id. 27/9, nokkur sætl laus, föd.
3/10, Id. 4/10, föd. 10/10.
Litla sviöiö kl. 20.30:
LISTAVERKIÐ
- Yasmina Reza
Föd. 26/9, uppselt, Id. 27/9, uppselt, mvd.
1/10, uppselt, föd. 3/10, uppselt, Id. 4/10,
uppselt, mvd. 15/10, uppselt, fld. 16/10,
uppselt, Id. 18/10, uppselt.
Sala áskriftarkorta
stendur yfir
Gjaíakort í leikhús -
ágild og skemmtileg gjöf.
Miöasalan er opin alla daga í
september frá ki. 13-20.
Símapantanir frá kl. 10 virka
daga.
SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200.
Leikféiag
Akureyrar
4 TROMP Á HENDI
Hart í bak
♦ Á ferð með frú Daisy
Söngvaseiður
é Markúsarguðspjall
Kortasalan er hafin
s. 462 1400
Frumsýningarkortin uppseld!
Albína Unndórsdóttir
Albína Unndórsdóttir leikskóla-
kennari, Heiðarhrauni 8, Grinda-vík,
varð fimmtug á sunnudaginn var.
Starfsferill
Albina fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp á Hagamelnum. Hún lauk
gagnfræðaprófi frá Hagaskólanum,
stundaði nám við Húsmæðraskóla
Suðurlands á Laugarvatni 1965-66,
stundaði nám við Fósturskóla
íslands og lauk þaðan prófum 1992.
Auk húsmóðurstarfa hefur
Albína stundað verslunarstörf og
fiskvinnslu. Lengst af hefur hún þó
starfaö við Leikskóla Grindavíkur,
eða í tæp tuttugu ár.
Albína situr í kjararáði Félags
islenskra leikskólakennara og í
félagsmálaráði Grindavíkurbæjar.
Fjölskylda
Albina giftist 16.6. 1968 Sigurði
Magnúsi Ágústssyni, f.
13.6. 1948, aðstoðaryfir-
lögregluþjórji. Hann er
sonur Sveiri-bjöms Ágústs
Sigurðs-sonar, skipstjóra í
Grinda-vík, og Matthildar
Sig-urðardóttur,
húsmóður frá Hraunteigi í
Grinda-vík.
Böm Albínu og Sigurð-
ar eru Guðrún Sigurðar-
dóttir, f. 1.4. 1968, búsett á
Mörk á Kirkjubæjar-
klaustri en sambýÚsmaður
hennar er Hjalti Þór
Júlíusson og er sonur
Guðrúnar Sigurður Magnús
Ámason, f. 1.9. 1989; Sveinbjörn
Ágúst Sigurðsson, f. 12.7. 1970,
búsettm- í Reykjavík en kona hans
er Guðný Hlíðkvist Bjamadóttir og
er sonur þeirra Auðunn Hlíðkvist
Sveinbjömsson, f. 30.4.1996; Unndór
Sigurðsson, f. 11.2. 1976,
en unnusta hans er
Bryndis Björg Einars-
dóttir.
Systkini Albínu eru
Gerður Unndórsdóttir
húsmóðir; Þórdís
Unndórsdóttir, bókari
hjá Björgun hf; Jón Egill
Unndórsson verkfræð-
ingur; Símon Reynir
Unndórsson tæknifræð-
ingur.
Foreldrar Albínu: Unn-
dór Jónsson, f. 5.6. 1910,
d. 11.2. 1973, fulltrúi
Pósts og sima og síðar fulltrúi hjá
Ríkis-endurskoöun, og Guðrún
Símonar-dóttir, f. 10.9. 1914,
húsmóðir og verslunarmaður.
Albína er í útlöndum.
Albína
Unndórsdóttir.
Tilkynningar
ITC deildin Melkorka
ITC deildin Melkorka heldur fund
í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi í kvöld, 24. september, kl. 20.
Fundurinn er öllum opinn. Upplýs-
ingar veitir Rósa í sima 557-3230.
Kvenfélag Kópavogs
Kvenfélag Kopavogs fer í ferðalag
laugardaginn 27. sept. kl. 10 frá
Hamraborg 10. Vinsamlegast til-
kynnið þátttöku hjá Þórhöllu í síma
554-1726 og Stefaníu, s. 554-4679.
Gerðuberg félagsstarf
Laugardaginn 27. sept., haustlita-
ferð. Ekið til Þingvalla, létt ganga.
Kvöldverður í Nesbúð, sungið og
dansað. Fararstjóri Pálína Jónsdótt-
ir. Lagt af stað frá Hverfisgötu 105,
„Risinu“, kl. 13.30. Upplýsingar og
skráning í síma 557-9020.
Pokahorn Ráðhildar
Plastprent hf. hefur nú sett á
markað 3 nýjungar í neytendalinu
sinni, „Pokahornið". Um er að ræða
rennilásapoka, skrjáfpoka og nýja
tegund frystipoka. Bæði skrjáfpok-
amir og frystipokarnir era í þægi-
legum skömmtunarbúðunum sem
era einkennandi fyrir Poka-
homslínuna. Ráðhildur gefur góð
ráð eins og áður aftan á umbúðum
allra pokanna varðandi geymslu á
matvælum og hvaðp eina sem við-
kemur heimilishaldi. Pokamir úr
„Pokahominu" era fáanlegir í öll-
um helstu matvöraverslunum.
Seljakirkja
Fundur æskulýðsfélagsins Sela
kl. 20.
Sláturmarkaður
KÁ stendur fyrir, í samstarfi við
SS, sláturmarkaði í verslun þess á
Selfossi. Markaðurinn hefst fimmtu-
daginn 25. september. Þar verður
hægt að fá nýtt ófrosið slátur og allt
sem til sláturgerðar þarf.
Hafnargönguhópur-
inn
í miðvikudagsgöngu Hafriar-
gönguhópsins 24. september verður
farið frá Hafnarhúsinu kl. 20. Pétur
Ármannsson arkitekt fylgir hópn-
um í gönguferð um miðbæinn og
segir frá byggingum og skipulagi í
nágrenni Reykjavíkurhafnar. Að
því loknu verður gengið um
Skuggahverfið inn að Sólfari og með
strönd og hafriarbökkum út í Örf-
irisey og um Vesturgötuna til baka
að Hafnarhúsinu. Allir era vel-
komnir í ferö meö Hafnargöngu-
hópnum.
Ég þakka öllum þeim sem samglöddust
mér á 90 ára afmælisdeginum 13. sept-
ember sl. og gerðu þennan dag svo eftir-
minnilegan með heimsóknum, heilla-
skeytum og símtölum.
Guð geymi ykkur öll.
Gunnar Jónsson, Langagerði 9, Reykjavík
95 ára
Ása Ólafsdóttir,
Dvalarh. Höfða, Akranesi.
85 ára
Sigurfinnur Ólafsson,
Álfhólsvegi 125, Kópavogi.
Gíslína Þ. Jónsdóttir,
Aflagranda 40, Reykjavik.
80 ára
Guðrún •ifmfii
Ólafsdóttir,
Eskihlíð 16,
Reykjavík.
Guðrún tekur á \ <s».f
móti vinum 1 I 1
og ættingjum í sóknarsal Hall-
grimskirkju í dag kl. 18-18.
Ingunn Sigurðardóttir,
Efra-Hvoli, Hvolhreppi.
75 ára
Helga Jóhannesdóttir,
Einilundi 2 D, Akureyri.
70 ára
Steindór Halldórsson,
Vogatungu 79, Kópavogi.
Jón Lindberg Stígsson,
Smáratúni 30, Keflavík.
Guðni Jónsson,
Laufskálum 3, Hellu.
60 ára
Bergljót Jónasdóttir,
Útgarði 6, Egilsstöðum.
Gréta Jónsdóttir,
Efra-Grímslæk, Þorlákhöfn.
Þorsteinn Jónsson,
Einigrund 5, Akranesi.
Aðalbjörg Ólafsdóttir,
Kveldúlfsgötu 18, Borgamesi.
Hrólfur Guðjónsson,
Heiðarbæ 2, Kirkjubólshreppi.
Ásgeir S. Þorsteinsson,
Hringbraut 68, Hafnarfirði.
Kristófer Gunnarsson,
Stuðlaseli 25, Reykjavík.
50 ára
Björn Már Ólafsson,
Fifumýri 4, Garðabæ.
Benóný Haraldsson,
Hafnargötu 69, Keflavík.
Hólmfríður Hreinsdóttir,
Goðabyggð 14, Akureyri.
Björn Búi Jónsson,
Melseli 24, Reykjavík.
Guðmundur Karl
Jónatansson,
Hringbraut 136 E, Keflavík.
Elísabet Gestsdóttir,
Ásgerði 8, Reyðarfirði.
40 ára
Herborg Margrét
Haiðardóttir,
Lyngbrekku 20, Kópavogi.
Hún er að heiman.
Sævar Árnason,
Laufengi 23, Reykjavík.
Katrín Gunnvör
Gunnarsdóttir,
Súlukletti 3, Borgarnesi.
Stefán Guðlaugur
Einarsson,
Heiðarbóli 21, Keflavík.
Jóhann Ingólfsson,
Viðigrand 13, Sauöárkróki.
Oddur Sævar Andersson,
Suðurhvammi 11, Hafnarfirði.
Helgi B. Þorvaldsson,
Fífuhjalla 2, Kópavogi.
Helga Rakel Stefnisdóttir,
Espigerði 2, Reykjavik.
Lísa Charlotte
Harðardóttir,
Stuðlabergi 14, Hafiiarfirði.
Signhildur Sigurðardóttir,
Sólheimum, Grímsneshreppi.
Sigurbjörg Óladóttir,
Lerkilundi 5, Akureyri.
Björgvin T. Krisfjánsson,
ÁÍfatúni 9, Kópavogi.