Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1997, Blaðsíða 15
14
Sportkorn
Aumingjasending
og kæruleysi
Enn einu sinni vitnum viö í hina
ágætu bók
„Hverjir eru
bestir" og gríp-
um nú niður í
eina af nokkrum
sögum af Kjart-
ani Mássyni
knattspymuþjálf-
ara.
Kjartan notaði
eitt sinn mikla tækninýjung til að
auövelda sér þjálfarastörfm. Tók
hann með sér lítið upptökutæki í
æfmgaleik og talaði inn athuga-
semdir sínar í stað þess að skrifa
þær niður.
Að leik loknum var Kjartan bara
nokkuö ánægður meö strákana og
þar sem hann var í góðu skapi
fengu þeir að hlusta á upptökuna.
Hún hófst þannig:
„Hvers lags djöfulsins aumingja-
sending var þetta hjá þér, Snorri?
Bergur, það er eins og hann sé meö
20 kílóa djöfulsins lóö i rassgatinu.
Jón Óli, ekki svona klikkaðar þver-
sendingar. Andskotans kæruleysi
er þetta..."
Chicken played
bad
f sömu bók er líka sagt frá kjam-
yrtri rasðu sem
islenski Kúbu-
maöurinn Róbert
Julian Duranona
hélt í hálfleik
þegar KA sótti
Aftureldingu
heim í úrslita-
keppni handbolt-
ans í fyrravetur.
KA-liðiö haföi leikið rpjög illa en
var aöeins einu marki undir. Eftir
ræöu Alfreðs þjálfara kvaddi Dura-
nona sér hljóðs:
„Strákar, first half, chicken play-
ed good, KA played bad. Chicken
only one goal. Second half, KA
played good, chicken played bad.
KA win.“
Með „chicken" átti kappinn auð-
vitað við lið Aftureldingar sem aug-
lýsir kjúklinga af miklum móð.
Ræðan hreif og KA vann leikinn!
Hangikjötið
Og fyrst Duranona er kominn á
blaö er rétt að
láta fljóta með
sögu af homrni
sem reyndar er
ekki í bókinni
góðu.
Fyrir jólin i
fýrra var Dura-
nona fenginn til
að kynna hangi-
kjöt í verslun á Akureyri. Eins og
flestir vita er íslenskukunnátta
hans takmörkuö en hann lærði
setninguna sem skipti máli: „Hangi-
kjötiö frá Kjarnafæöi er besta
hangikjöt á íslandi."
Þetta gekk vel og Duranona end-
urtók setninguna í sifellu fyrir við-
skiptavinina á ágætri íslensku. En
síðan vildu sumir fá að vita meira
um hangikjötið og gömul kona
spurði handboltakappann hvernig
best væri að sjóða þaö.
Ekki stóö á svarinu hjá Dura-
nona: „Hangikjötið frá Kjamafæði
er besta hangikjöt á íslandi."
Heimir áfram í
KR-búningi
KR-ingar standa margir hverjir á
öndinni yfir
þeirri frétt að
knattspymumaö-
m-inn Heimir
Guðjónsson skuli
vera farinn til
erkifjendanna á
Akranesi. Það á
eftir að reynast
dyggum stuðn-
ingsmönnum KR þungbært aö horfa
á hann í gula og svarta Skagabún-
ingnum næsta sumar. En þeim til
huggunar er rétt aö upplýsa að
Heimir mun áfram spila í KR-
búningnum - i keilu. Hann er sem
fyrr fastamaður 1 hinu öfluga C-liði
KR-inga sem leikur i 4. deild ís-
landsmótsins í keilu og er þar um
miðja deild, aldrei þessu vant. Auk
Heimis leika þar fótboltamennimir
Kristján Finnbogason og Guömund-
ur Benediktsson en liðið hefur nú
misst Ríkharö Daðason til Noregs.
Fyrirliði og lykilmaður KR-C er að
sjálfsögöu stuðningsmaðurinn gaU-
haröi Höskuldur Höskuldsson.
Umsjón: Víöir Sigurðsson
og Jón Kristjón Sigurðsson
¥
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997
MIÐVKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997
35
Iþróttir
NBA-deildin í nótt:
Sigurgöngu
Lakers lokið
Eftir sigra í ellefu fyrstu leikjum Seattle-Chicago .91-90
sínum á tímabilinu kom loks að tapi Payton 22, Baker 19, Schrempf 17 -
hjá LA Lakers í nótt. Strákamir frá Kukoc 30, Jordan 26, Brown 12.
englaborginni fengu að kenna á Golden State-New Jersey ... 87-101
vamarmaskínu Pat Rileys í Miami Marshall 25, Smith 20, Sprewell 12 - Kitt-
og steinlágu, 103-66. les 18, Cassell 18, Gill 16.
„Þeir skiptu um gír í vöminni í Sacramento-Denver.97-93
þriðja leikhluta og slógu okkar Williamson 24, Richmond 22, Dehere 11 -
sóknarleik alveg útaf laginu,“ sagði Newman 19, Garrett 13, Goldwire 13.
Del Harris, þjálfari Lakers, en Mi-
ami skoraði 28 stig gegn 8 á góöum Meistarar Chicago töpuðu í sjötta
kafla um það leyti. sinn á tímabilinu en samt virtust
Bæði lið vom án miöheija sinna þeir hafa leikinn í Seattle í sínum
því Shaquille O’Neal og Alonzo Mo- höndum. Seattle skoraði sjö stig
uming em báðir meiddir. gegn einu á síðustu 85 sekúndunum
Úrslitin í nótt: og Vin Baker gerði sigurkörfúna 3
Charlotte-Detroit.90-85 sekúndum fyrir leikslok.
Rice 21, Geiger 17, Phills 15 - B.Williams Scottie Pippen sat spariklæddur á
27, HUl 19, Hunter 16. varamannabekk Chicago en ítrek-
Miami-LA Lakers.. 103-86 aði í viðtölum að hann væri stað-
Hardaway 22, Mashbum 22, Austin 19 - ráöinn í að yfirgefa félagið. Hann
Van Exel 21, Campbell 17, Bryant 16. telur illa fram viö sig komiö en þó
Dallas-San Antonio .91-102 ótrúlegt megi virðast em 120 leik-
Finley 20, Bradley 16, Scott 15 - Robinson menn í NBA launahærri en Scottie
22, Elliott 19, Alexander 17. Pippen. -VS
Iþróttir
Þorvaldur látinn fara
Enska knattspymufélagið Oldham Athletic tilkynnti í gær að það ætl-
aði að losa sig við 11 leikmenn af launaskrá. Einn þeirra er íslendingur-
inn Þorvaldur Örlygsson, sem fær frjálsa sölu frá félaginu.
Þorvaldur hefúr leikið í Englandi frá 1989, með Oldham, Stoke og Nott-
ingham Forest, og er leikjahæsti íslendingurinn í ensku knattspymunni
frá upphafi með 177 deildaleiki aö baki. I vetur hefúr hann hins vegar
fengið fá tækifæri með Oldham, sem féll í 2. deild í vor, og það hefur ver-
iö ljóst í nokkrar vikur að Neil Wamock framkvæmdastjóri er ekki með
hann í framtiðarplönum sínum.
Oldham keypti Þorvald frá Stoke í desember 1995 fyrir 18 milljónir
króna og hann á aö baki 50 deildaleiki með félaginu. -VS
íslensku landsliösmennirnir I körfuknattleik hafa búiö sig vel undir leikinn gegn Hollendingum í kvöld. Hér takast þeir
Guömundur Bragason, Hermann Hauksson og Herbert Arnarson á undir körfunni og Teitur Örlygsson fylgist meö. -BG
Ikvöld
Evrópukeppnin í körfubolta:
Ísland-Holland .......Höllin 20.00
1. deild karla 1 handbolta:
KA-Víkingur.................20.00
Kristján Arason þekkir Júgóslava af eigin raun:
Leikurinn í Los Angeles
er alveg ógleymanlegur
- Kristján segir að vörnin skipti höfuðmáli á fimmtudag
Kristján Arason, margreyndur
landsliðsmaður hér á árum áður og
núverandi þjálfari FH í handknatt-
leik, hefúr marga hildi háð gegn
Júgóslövum. Hann þekkir handbolt-
ann sem þeir leika og segir hann að
enginn verði svikinn af aö leggja
leiö sína í Höllina á fimmtudags-
kvöldið. íslendingar mæta þá
Júgóslövum í riðlakeppni Evrópu-
móts landsliða. Leikurinn er mikil-
vægur íslenska liðinu en með sigri
tryggja íslendingar sér sæti í úr-
slitakeppni mótsins á Ítalíu næsta
vor. Þaö er því mikiö í húfi á
fimmtudagskvöldiö.
Alltaf legiö vel fyrir okkur
„Júgóslavar hafa alltaf legið vel
fyrir okkur. Þeir leika oft 3-2-1
vöm, hún hefur hentað okkur og
við henni eigum við svar. Viður-
eignfrnar viö Júgóslava hafa í gegn-
um tíðina veriö skemmtilegar,
harkan í fyrirrúmi og mikil læti.
Mér er minnuisstæöur leikur við þá
Kristjón Arason skorar eitt af mörkum sínum gegn Júgóslövum í hinum
minnisstæöa leik þjóöanna á Ólympíuleikunum f Los Angeles 1984.
Júgóslavar jöfnuöu metin, 22-22, þegar skammt var til leiksloka.
í Höllinni 1985 þegar að við unnum,
20-13. Þá voru þeir heimsmeistarar
og mættu hingað til lands með full-
skipað lið,“ Kristján Arason í sam-
talinu við DV.
„Eins er leikurinn við Júgóslava
á Ólympíuleikunum í Los Angeles
ógleymanlegur. Viö vorum fimm
mörkum yfir fimm mínútum fyrir
leikslok en misstum það niður i
jafntefli. Við höfðum leikið glimr-
andi vel en misstum forskotiö úr
höndum okkar á lokasprettinum,“
sagði Kristján.
- Við unnum glæstan sigur
gegn Júgóslövum á HM sl. vor.
Átt þú von á að sá leikur endur-
taki sig?
„í Kumamoto lékum við 3-3 vörn
og hana réðu Júgóslavar ekkert við.
Þar var vöm og markvarsla í önd-
vegi og uppskeran var eftir því. Á
fimmtudagskvöldið veröur engin
breyting en þá skiptir vömin einnig
öllu máli. Viö minnsta mótlæti
brotna Júgóslavar eins og sýndi sig
á HM,“ sagði Kristján.
- Viltu spá fyrir um úrslit í
hinnm mikilvæga leik á fimmtu-
dagskvöldið?
„Ef áhorfendur troöfylla Höllina,
sem ég geng út frá, er ég bjartsýnn
á góö úrslit. Það er mikil handbolta-
hefð í báðum löndunum og bæði lið-
in munu ekki gefa sig fyrr en í fúlla
hnefana. íslenska landsliöið hefúr
verið að leika vel síðan á HM í
Kumamoto. í liðinu í dag em mjög
flinkir handboltamenn og fólk verð-
ur ekki svikið af að leggja leið sína
í Höllina á fimmtudagskvöldið,"
sagði Kristján Arason.
-JKS
Bland í poka
Sigurður B. Siguróssoit, sem leikiö hefur marki
Reynis Sandgerði síðustu árin í knattspymunni,
er genginn í raðir Víkings. Sigurður er 20 ára
gamall, efhilegur markvöröur, sem æfði á síðasta
vetri með skoska 1. deildarliöinu Stirling.
Ftnninn Tommi Makinen tryggði sér í gær
heimsmeistaratitilinn í rallakstri annað árið í
röö með því að hafna í 6. sæti í breska konung-
lega rallinu. Bretinn Colin McRae sigraöi í rall-
inu í gær og hafhaði í öðru sæti í stigakeppninni,
einu stigi á eftir Makinen.
Andri Sigþórsson, knatt-
spymumaður úr KR, meiddist
í fýrsta leik sínum með Zwic-
kau I þýsku 2. deildinni um
síðustu helgi og spilaði aðeins
fyrri hálfleikinn. Zwickau
vann Leipzig, 1-0, á útivelli en
er áfram neðst í deildinni.
Giovanni Galeone var í gær
ráðinn þjálfari italska 1. deildarliðsins Napoli í
stað Carlosar Mazzone sem látinn var taka
pokann sinn um helgina. Galeone hefur náð góð-
um árangri og tókst að koma bæöi Udinese og
Perugia upp i 1. deild. Napoli hefur tapað síðustu
sex leikjum sínum í ítölsku deildinni og situr í
neösta sæti.
Juventus hefur gengiö frá kaupum á Christian
Nerlinger, 25 ára gömlum miðjumanni sem leik-
ur meö Bayem Múnchen. Nerlinger gengur í rað-
ir Juventus á næsta tímabili en skrifar undir
fjögurra ára samning um helgina.
Dennis Law, sem geröi garöinn frægan með
Manchester United á sjöunda áratugnum, segir
að Paul Scholes, leikmaður United, muni leika
lykilhlutverk með enska landsliðinu í úrslita-
keppni HM í Frakklandi næsta sumar. „Scholes
hefur sýnt og sannaö aö hann er frábæri marka-
skorari hvort sem hann leikur með United eða
enska landsliðinu," segir Law.
-GH/VS/ÆMK
r£ij UEFA-BIKARINN
3. umferö - fyrri leikir:
Steaua-Aston ViUa..........2-1
1-0 Oakes sjálfsmark (30.), 2-0
Ciocoiu (32.), 2-1 Yorke (54.)
Twente-Auxerre ............0-1
0-1 Bemhard Diomede (70.)
Karlsruher-Spartak Moskva . 0-0
Rapid Wien-Lazio ..........0-2
0-1 Casiraghi (38.), 0-2 Mancini (62.)
Croatia Zagreb-Atl. Madrid .. 1-1
1-0 Mujcin (2.), 1-1 Caminero (61.)
Strasbourg-Inter Milano .... 2-0
1-0 Baticle (11.), 2-0 Ismael (19.)
Ajax-Bochum................4-2
0-1 Reis (20.), 0-2 Waldoch (24.), 1-2
Laudrup (34.), 2-2 Laudmp (36.), 3-2
Arveladze (38.), 4-2 de Boer (45.)
Braga-Schalke..............0-0
Lió Strasbourg heldur áfram aö
hrella stórliðin. tl. umferðinni sló
liðiö Glasgow Rangers út, í 2. umferð-
inni Liverpool og nú er liðiö með
góða stöðu gegn Inter.
Tveir leikmenn fengu að líta rauða
spjaldið í viðureign Rapid Vín og
Lazio. Rapid missti Oliver Freund út
af á 57. mínútu og Roberto Mancini
fór sömu leið skömmu eftir aö hann
skoraöi síðara mark Lazio.
Ajax lenti undir 0-2 gegn Bochum
eftir 11 mínútna leik en tókst aö
skora 4 mörk á 25 mínútum. -GH
Lykilmenn
Júgóslava
Dragan Skrbic, 29 ára línumaöur, læri-
sveinn Alfreðs Gíslasonar hjá Hameln í
Þýskalandi. Einn besti línumaöur heims,
fyrirliði og eini leikmaöur Júgóslava sem
lék vel í Kumamoto.
Nedeljko Jovanovic, 27 ára og 1,93 m
hár leikstjómandi sem hefur spilað mjög
vel með Rheinhausen í Þýskalandi að und-
aníomu.
Igor Butulija, 27 ára örvhent skytta
sem leikur með Sporting Lissabon í Portú-
gal. Snillingur með boltann en skapið er
hans versti óvinur.
Dejan Peric, 27 ára markvörður Celje
Lasko í Slóveníu og lék gegn KA á dögun-
um. Frábær á milli stanganna.
Nenad Perunicic, besti leikmaður
Júgóslava, leikur ekki á íslandi vegna
meiðsla. -VN/VS
FH og Haukar á
Fáskrúðsfirði
Hafnarfjarðarstórveldin í
handboltanum, FH og Haukar,
mætast þann 13. desember.
Sennilega verða færri Gaflarar á
þeim leik en áður í sögunni því
þeir þurfa að fara langt til að sjá
slaginn. Leikurinn verður neöii-
lega vígsluleikur í nýju og lang-
þráðu íþróttahúsi austur á Fá-
skrúðsfirði. -VS
11
Stórleikur í körfuboltanum í Höllinni kvöld:
Spenntir
ki
- segir Jón Arnar Ingvarsson um viðureignina gegn Hollendingum
Stóra stundin rennur upp hjá ís-
lensku landsliðsmönnunum í
körfúknattleik í kvöld þegar þeir
mæta liöi Hollendinga í sínum
fyrsta leik í undankeppni Evrópu-
móts landsliða. Þetta er án efa
stærsti leikurinn sem íslenskt
körfuknattleikslandslið hefúr leikið
en íslendingar eiga nú í fyrsta sinn
landslið i hópi þeirra 30 bestu í Evr-
ópu sem keppa um að komast í úr-
slitakeppnina í Frakklandi á næsta
ári.
íslensku landsliðsmennimir hafa
undanfama daga iðaö í skinninu af
tilhlökkun fyrir leikinn í kvöld og
hafa búið sig undir hann af kost-
gæfni. Einn þeirra er Haukamaður-
inn Jón Amar Ingvarsson.
110% tilbúnir
„Þaö er ekki spuming að mikil
spenna er í okkur fyrir þennan leik
og menn hafa beðið lengi eftir svona
alvöruleik. Viö höfum undirbúiö
okkur eins vel og hægt er og verð-
um 110% tilbúnir i hann,“ sagði Jón
Amar.
- Nú hafið þið séð til hollenska
landsliðsins af myndböndum.
Hver er helsti styrkleiki þess?
„Þeirra styrkur er að þeir hafa
mikla hæð og mjög sterka leik-
menn. Þeirra bestu menn em stóm
mennimir. Hollendingamir spila
upp á að reyna að skora sem mest
inní þannig aö við vitum alveg hvaö
þeir koma til með að reyna mest
gegn okkur. Við erum undirbúnir
fyrir það en þrátt fyrir það verður
þetta mjög erfitt því það munar
miklu á hæð og likamsburðum."
- En hver er styrkur íslenska
liðsins?
„Okkar styrkleiki felst í hraöan-
um og þá em margar góðar skyttur
í liðinu. Hollendingamir em öragg-
lega meövitaðir um það og þeir
hljóta að ætla sér að svara því.“
- Nú er spenna búin að hlaðast
uppí herbúðum ykkar fyrir þenn-
an stórleik. Heldur þú að það
komi til með að spilla fyrir ykkur?
„Nei, ég á frekar von á því að
þetta efli okkur. Flestir í okkar liöi
em orðnir það reyndir, bæði meö
félgsliðum og landsliði, að spennan
sem er í mönnum ætti bara að vera
til góða þegar í leikinn er komiö.
Menn hafa verið að bíða eftir þess-
ari keppni og ég veit að allir í liöinu
munu leggja sig alla fram.“
Lykilatriöi aö fólk fjölmennl í
Höllina
„Við erum svolítið að renna blint
í sjóinn með svona keppni þar sem
við erum nýliðar og ég held að þaö
sé algjört lykilatriði að fólk fjöl-
menni í Höllina og styðji við bakið
á okkur. Þaö veröur ömgglega boð-
iö upp á toppkörfubolta. Það er
mjög mikilvægt fyrir okkur að
byrja leikinn vel því við megum
ekki missa sjálfstraustið niður og
ekki er síður mikilvægt upp á fram-
haldiö í riðlinum er að ná góðum
leik og leggja Hollendingana að
velli.
Með toppleik og miklum stuðn-
ingi áhorfenda ætti það að vera
raunhæfúr möguleiki. Við eigum
eins og gefur að skilja mestu mögu-
leikana á aö vinna leiki á heimavell-
inum gegn liöum eins og Hollandi,
Eistlandi og Bosníu,“ sagði Jón
Amar aö lokum.
Næsti leikur íslendinga í
riölinum er gegn Eistum á útivelli á '
laugardaginn.
-GH
Birgir Leifur Hafþórsson á úrtökumótinu á Spáni:
Litlir möguleikar
Þaö ætlar að reynast þrautin
þyngri hjá kylfingunum fyrir evr-
ópsku mótaröðina að ljúka keppni
suður á Spáni. Annan daginn í röð
varð aö stöðva keppni vegna
þmmu og eldinga. Gífurleg rigning
hefur verið á svæðinu síðustu
daga. Einn keppenda varð fyrir
eldingu í fyrradag en slapp betur
en áhorfðist í fyrstu
Kylfingar voru látnir hætta
keppni á 15. braut í gær enda varla
stætt úti til að slá. Þá var þegar
orðin tveggja daga seinkun á mót-
inu vegna veöurs.
í dag á aö reyna að ljúka við hol-
umar þijár sem eftir era og er
Birgir Leifúr einu höggi yfir pari.
Það verða því að teljast litlir mögu-
leikar fyrir hann að verða á meöal
40 efstu. Birgir Leifúr mun því
reyna aftur aö ári.
í gærkvöldi barst skeyti frá
mótshöldurum þar sem fram kem-
ur aö ákveðið hefúr veriö að 40
efstu haldi áfram á evrópsku móta-
rööina. Undir eölilegum kringu-
stæðum áttu 75 efstu að halda
áfram og leika tvo hringi. Eftir þá
keppni hefðu 40 efstu kylfingamir
unnið sér réttinn á evrópsku móta-
rööina.
Ákvörðun þessi hlýtur aö vera
áfall fyrir þá keppendur sem áttu
möguleika á að komast áfram. í
þeim hópi var Birgir Leifúr en
hann stefndi hraðbyri að verða á
meðal 75 efstu. -JKS
) ENGLAND
Nikos Mahlas, grískur sóknarmaður
hjá Vitesse í Hollandi er undir smá-
sjánni hjá Manchester United. Ma-
hlas hefúr skorað 18 mörk í 14 leikj-
um á tímabilinu og svo gæti farið að
United hætti við Chilebúann Marcello
Salas og keypti Mahlas í staðinn.
Ebbe Sand, sem skorar og skorar fyr-
ir Bröndby í Danmörku, gæti verið á
förum til Everton. Sand hefur gert 16
mörk i síðustu 8 leikjum Bröndby og
Howard Kendall, stjóri Everton, sá
hann skora sigurmarkiö gegn AaB
um síöustu helgi.
Savo Milosevic, Júgóslavinn hjá
Aston Villa, er enn eftirsóttur. Nú er
þaö Graeme Souness hjá Benfica í
Portúgal sem vill kaupa þennan
snjalla sóknarmann.
Rúnar með brákað viöbein
Útlit er fyrir að Rúnar Sigtryggsson missi af næstu leikjum Hauka í
handboltanum. Hann er meö brákað viðbein eftir slæmt högg í leik Hauka
við Aftureldingu á laugardaginn.
Þetta er slæmt fyrir Hauka, sem einnig em án Gústafs Bjamasonar þessa
dagana. Það er þó lán í óláni fyrir Hafnarfiarðarliðið að það á aðeins einn
deildaleik eftir á árinu, gegn Víkingum næsta miðvikudag. -VS
Bryan Robson, stjóri Middlesbrough:
Pétur enn inni í myndinni
Pétur Marteinsson, knattspymumaður hjá Hammarby í Svíþjóö, er
enn undir smásjánni hjá Bryan Robson, framkvæmdastjóra Middles-
brough. Eins og DV skýrði frá í síðustu viku lék Pétur tvo leiki með
varaliði félagsins og stóð sig vel en hélt aftur til Svíþjóðar um helgina.
Robson lét hafa eftir sér í gær að Pétur væri mjög góður leikmaöur, samt
ekkert betri en væm fyrir hjá félaginu, en það væri þess viröi aö skoöa
hann nánar. Robson var einnig með franskan vamarmann í sigtinu en
leist ekki eins vel á hann og Pétur. Það er því ekki loku fyrir það skotið
að Pétur fari aftur til Middlesbrough og ræði enn frekar viö Robson.
-GH
Þessir mæta
Hollendingum
Jón Kr. Gíslason
landsliösþjálfari
valdi í gær þá 10
leikmenn sem
leika gegn
Hollandi í kvöld.
Þeir em:
Jón Amar Ingvarsson ... Haukum
Sigfús Gizurarson......Haukum
Falur Harðarson ....... Keflavík
Guðjón Skúlason.........'eflavík
Helgi J. Guðfinnsson .. Grh. 'avík
Hermann Hauksson.............'<R
Friðrik Stefánsson .........K. 1
Teitur örlygsson........Njarðvik
Herbert Amarson........Maes Pils
Guömundur Bragason .. Hamburg
Þeirjjórir leikmenn sem duttu úr úr
hópnum vom: Pétur Ingvarsson,
Haukum, Eirlkur önundarson, ÍR,
Birgir öm Birgisson, Keflavík, og
Nökkvi Már Jónsson, KR.
Friórik Stefánsson hinn bráöefni-
legi leikmaður KFÍ, leikur sinn fýrsta
landsleik f kvöld og er þetta jafnframt
í fyrsta sinn sem Isfirðingar eiga leik-
mann í landsliöinu í körfuknattleik.
Gert Hammick er án efa besti leik-
maöur Hollendinga. Þessi 2,13 metra
risi, sem er 120 kg að þyngd, kemur
til meö að leika stóra rullu fyrir Hol-
lendinga í leiknum i kvöld. Hann lék
með engum öðrum en Shaquille
O'Neal í háskólaboltanum og þegar
Shaq fór til Orlando blómstraði
Hammick 1 háskólaboltanum.
Hammick gekk í raðir Orlando en
lenti strax í erfiöum meiðslum og lék
litiö meö liðinu. Frá Orlando lá leið-
in til Italíu þar sem hann lék með
Cantu og þaöan til Grikklands þar
sem hann spilaöi með Panionis. Með
tilkomu Bosmans-dómsins var
Hammick eflirsóttur af bestu liöum
Evrópu sem buöu betur en NBA-liöin.
Hann leikur nú með þýsku meistur-
unum i Alba Berlin. -GH
ISLAND - H0LLAND
A LENGJUNNII DAG
1
KORFUBOLTI
i
I