Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1997, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 Útlönd Stuttar fréttir :dv Malaví-Banda lést í gærkvöld Kamuzu Banda, fyrrum harð- stjóri í Afríkuríkinu Malaví, lést á sjúkrahúsi í Suður-Afríku seint í gærkvöld. Hann hafði verið lagður inn á sjúkrahúsið vegna lungnabólgu. Banda var 99 ára. Að sögn talsmanns sjúkrahúss- ins verður lík leiðtogans fyrrver- andi að öllum likindum flutt heim til greftrunar í dag eða á morgun. Banda dró sig í hlé frá stjóm- málum í júlí síðastliðnum. Hann varð forseti árið 1966 en lýsti sjálfan sig leiðtoga til dauðadags áriö 1971 og stjórnaði landi sínu með haröri hendi. Kannað hvort klerkur og dótt- ir myrtu tíu Belgíska lögreglan kannar nú hvort ungverskættaði presturinn Andras Pandy og elsta dóttir hans hafi hugsanlega myrt tíu manns í Belgíu. Dóttirin, hin 39 ára gamla Agn- es Pandy sem var handtekin á fimmtudag, hefur þegar viðurkennt að hafa drepið móður sína og aðstoðað föður sinn við morö- in á fjórum öðram úr fjölskyld- imni. Eins til viðbótar er saknað. Lögregla hefur leitað í þremur húsum í Brassel sem voru í eigu prestsins. Þar hafa fundist tenn- ur og bein úr fjórum manneskj- um, auk frosins kjöts sem óvíst er hvaðan kemur. Reuter Forsætisráöherra Japans um efnahagsþrengingar í Asíu: Björgum engum Fjármálamarkaðir virtust á báð- um áttum í morgun um hvort vænta mætti fleiri slæmra tiðinda eða hvort hið versta væri afstaðið í kjöl- far gjaldþrots japanska verðbréfa- fyrirtækisins Yamaichi. Ryutaro Hashimoto, forsætisráð- herra Japans, gerði öðram þjóðum Asíu, sem eiga í efnahagserfiðleik- um, það hins vegar ljóst í gær að Japanir gætu ekki bjargað þeim úr vandræðunum. Hashimoti sagði á fundi leiðtoga ríkja í .Asíu og við Kyrrahafið í Vancouver að þrátt fyrir ólguna í kjölfar gjaldþrotsins virtust fjár- málamarkaðirnir standa sig vel. „Reyndar sjáum við ekki neina röskun á markaðinum," sagði hann á lokafundi með blaðamönnum í Vancouver. Ráðherrann sagði að í framtíð- inni yrði markaðurinn að ráða framtíð japanskra fjármagnsfyrir- tækja. Það yrði ekki gert með íhlut- un stjórnvalda. Þau mundu aðeins tryggja hag sparifjáreigenda. Lítill banki í Tokyo tilkynnti í gær að hann væri gjaldþrota en að sögn starfsmanns fjármálaráðuneyt- isins era engin gjaldþrot stórbanka fyrirsjáanleg. Verðbréfavísitalan í Tokyo hækk- aði um þijú stig í morgim. Hluta- bréf stóra fjármálafyrirtækjanna fengu þó slæma útreið. Mörg þeirra, þar á meðal nokkrir stórbankar, þurftu að grípa til þess að neita op- inberlega að þau ættu í fjárhags- vandræðum. Övissan varð til þess að gengi japanska jensins lækkaði gagnvart dollaranum í gær. Reuter Forsætisráöherra Japans, sem hér er fyrir miöri mynd, og aörir leiötogar rikja í Asíu og viö Kyrrahafið lýstu fullu trausti á efnahagslíf Asíuríkja á fundi sínum í gær, þrátt fyrir vandræöin aö undnförnu. Sfmamynd Reuter Viðvörun Bandaríska sendiráðið í Eg- yptalandi hefur varað við því að Bandaríkjamenn geti orðið næsta skotmark hryðjuverkasamtak- anna sem myrtu tugi erlenda ferðamenn í síðustu viku. Met í tippaiengingu Danskur læknir hefur sett heimsmet með því að lengja tippi dansks manns um 14,5 sentí- metra. Líaaerið er nú 19 sentí- metrar þegar það lafir. Handtökur í Kongó Einn af helstu andstæðingum Laurents Kabila, forseta Kongó, og formaður herráðsins vora handteknir i höfuðborginni Kins- hasa í gær. Vitnað gegn Winnie I dag kemur fyrir Sannleiks- nefndina í S- Afríku hvítur prestur sem Winnie Mand- ela sakaði um að vera sódómisti. í gær sagðist fyrrum lífvörð- ur Winnie hafa séð hana stinga 14 ára blökku- dreng til bana. Winnie er sökuð um ógnarstjórn, morö og ofbeldi. Alnæmistilfellum fjölgar Alnæmistilfellum hefur fjölgað í 30 milljónirí öllum heiminum á þessu ári úr 22,6 milljónum í fyrra. Núna smitast 16 þúsund á dag. Nyrup gegn styttingu Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, er andvígm- því að vinnuvikan verði stytt. í staðinn vill Nyrap að aukin framleiðni verði notuð til frekari eftirmenntunar og fría. Reuter Til hamingju Þór Tjörvi Við óskum Þór Tjörva Þórssyni til hamingju með nýju Pioneer Fx-i hljómtækin sín frá Bræðrunum Ormsson en hann vann þau í fyrstu verðlaun í Veðmálsleik DV og Bylgjunnar. Hinir 50 vinningshafarnir munu fá Veðmálsgeislaplötuna senda í pósti á næstu dögum. Öllum þeim sem þátt tóku í leiknum þökkum við fyrir þátttökuna, rSSÍMMBH't- Lágmúla 8 • Sími 533 2800 Nýja geísíapíaL í öllum hljómpl versíunum ^ipF77•1S7bí^B j / í J / ■ Meirihluti treyst- ir enn Persson Fjórir af hverjum tíu Svíum bera minna traust til Görans Perssons, forsætisráðherra Svíþjóðar, í kjölfar upplýsinga um kostnaðarsamar flugferðir hans. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sænska Aftonblad- ets. í könnuninni kemur jafnframt fram að sex af hverjum tíu þykir það rangt að forsætisráðherrann noti flugvél stjórnarinnar þegar hann fer 1 nokkurra daga frí í fram- haldi af opinberum ferðum. Sjálfur segir Persson að sem forsætisráð- herra sé hann alltaf á vakt. Lifverð- ir fylgi honum hvert fótmál, líka í fríum. Og það þurfi að flytja hann heim, og þá líka, á einhvern hátt. Þess vegna þykir sænska forsætisráðherranum það ekkert undarlegt þót hann noti flugvél stjórnarinnar þegar hann dvelur einhvers staðar nokkrum dögum lengur eftir embættisferðir. Brú yfir Eyrarsund: 8 mínútur sem breyta Evrópu DV, Malmö: Átta mínútur era stuttur tími. í stórborgarumferð nútímans era átta mínútur mjög stuttur tími. Um aldamótin tekur bara átta mínútur að aka frá miðborg Kaupmannahafnar til miðborgar Malmö. Þetta eru tvær borgir í tveim- ur löndum en með brúnni yfir Eyrarsund verða þær sem ein. Nú tekur meira en klukkutíma að komast yfir sundið. Brúin sú ama er reyndar bara blanda af brú, vegfyllingu og jarðgöngum og kallast „Veg- urinn yfir hafið“ á máli fólksins viö Sundið. Þetta er fyrirtæki sem kostar um 160 milljarða ís- lenskra króna. Það breytir Evr- ópu á þann veg að á einni nóttu verður til stórborg í tveimur löndum, eitt atvinnusvæði, með 3,5 milljónum íbúa á Sjálandi og Skáni. Eyrarsundsborgin verður inn- an Evrópusambandsins og færir þungamiðju þess til norðurs. Eyrarsundsborgin verður líka stærsta borg Norðurlanda og nú lendir Stokkhólmur í öðra sæti í keppninni um völd og áhrif á Norðurlöndum. Ef allar áætlanir standast fara fyrstu bílamir og lestimar yfir sundið árið 2000, aðeins 11,3 kílómetra leiö. Lagning „Vegarins yfir hafið“ er mjög flókið verk sem dregið hefur að verktaka úr öllum heimshomum. Nú á dögunum komu hlutar af brúnni fljótandi frá Spáni en annars era það Danir og Svíar sem vinna verkið. Væntanlegir vegfarendur munu borga brús- ann með nýjum Eyrarsunds- tolli. -GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.