Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1997, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1997, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 KVENMANNSLAUS KULDA OG TREKKI Meirihluti bæjarfulltrúa ísafjarðar krefst bæjarstjórnarfundar í dag: Norðurtangamálið út af borðinu strax - allir flokkar klofnir í afstöðunni til kaupa á Norðurtanganum DV ísafjaröarbæ: Sex bæjarfulltrúar í Isafjarðarbæ fóru í gær fram á það við bæjarstjór- ann og forseta bæjarstjórnar að haldinn verði bæjarstjórnarfundur í dag en áður var búið að fresta fund- imnn. Sexmenningarnir koma úr öllum bæjarstjómarflokkunum, en það eru Sigurður Ólafsson, Alþýðu- flokki, Smári Haraldsson, F-lista (Al- þýðubandalag og óháðir), Kristinn Jón Jónsson, Framsóknarflokki, Kristján Freyr HaUdórsson, Funk- lista, og Kolbrún HaUdórsdóttir og Jónas Ólafsson, Sjálfstæðisflokki. Meirihlutinn Þama er nm meirihluta bæjar- fulltrúa að ræða og i samtali við blaðamann í gærkvöldi sagði Kol- brún HaUdórsdóttir að ekki væri hægt að ganga fram hjá þeirra vilja. Sagði hún jafnframt að þessi sex væru á móti kaupum á Norðurtanganum og þau vildu blása þau út af borðinu. Aðspurð um það hvers vegna þau vUdu ekki bíða eftir að borgarafundur yrði haldinn um málið á fimmtu- dag sagði hún að bæjarfúUtrúar hefðu ekki verið boðaðir á neinn borgaraftmd. Varðandi það hvort þarna væri búiö að mynda nýjan meirihluta sagði Kolbrún að mál- ið snerist ekki um það, heldur um að fá botn í þetta Norður- tangamál. Það virðist því ljóst að meirihluti bæjarstjómar mun blása kaupin á Norðurtanganum af á bæjarstjómarfundi í dag. Þar meö er pólitískur meirihluti sjálf- stæðismanna og krata faUinn. Það sem er kannski enn alvar- legra i stöðunni er að samkvæmt heimUdum blaðsins samþykkti skólanefnd einróma í gær að Norðurtanginn yrði keyptur. í skólanefndinni er pólitískur þverskurður allra bæjarstjórnar- flokka svo ekki verður annað séð en að allir flokkar séu klofnir í afstöðunni tU Norðurtangans. Þennan fund munu einnig hafa setið tveir fuUtrúar kennara ásamt skólastjóra. Staðan er þvi sú að menn horfa fram á mikla sundrungu í bæjarmálapólitík- inni sem setur aUa pólitíska um- ræðu í uppnám, þar með væntan- lega líka viðræður um sameigin- legt framboð á vinstri vængnum i vor. -HKr. Sjá fréttaljós á bls. 4 Sinfóníuhljómsveitin æfir í kulda og trekki: Fiöluleikar- ! inn yfirgaf! æfinguna vegna óviðunandi aðstæðna í Háskólabíói Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari yfirgaf æfmgu hjá Sinfóniuhljómsveit tslands í Háskólabiói í fyrradag vegna óviðun- andi aðstæðna í bíóinu. Rut vUdi ekki tjá sig um málið við DV en hún og fleiri meðlimir Sinfóníu- hljómsveitarinnar hafa lengi kvartað undan trekki og kulda í bíóinu. Með- limir sveitarinnar sitja oft á tíðum kappklæddir á æfmgum sökum þessa. Slæmt mál „Þetta er vandamál sem er búið að vera þama frá upphafi. Það er slæmur trekkur á sviðinu. Það virðast vera ákveðnir strengir sem enginn getur áttað sig á. Trekkurinn kemur bara öðru hveiju. Það er búið að reyna að setja alls konar hlera fyrir, festa sviðs- tjaldið fyrir ganginn og setja teppi en * það dugar ekkert. Við erum búnir að sækja í nokkur ár um styrk til fjárveit- ingavaldsins til að geta smíðað hliðar- veggi. Það er talið að þeir geti hugsan- lega komið í veg fyrir þennan trekk. Við höfúm ekki fengið fjármagn til þess. Þetta er mjög slæmt mál og hefúr auðvitað áhrif á fólk og þar með störf sveitarinnar. Fólk hefúr verið að veikj- ast vegna þessa en þetta er í fyrsta skipti sem einhver fer af æfingu út af þessu,“ sagði Runólfúr Birgir Leifsson, framkvæmdastjóri Sinfóníunnar, að- spurður um málið. Óánægjan vegna aðbúnaðarins bætist viö ólgu innan hljóm- sveitarinnar vegna kjaramála, en fyrir skömmu stöðvuðu hljóðfæra- leikarar tónleika til að kynna kröfúr sínar -RR - segir sýslumaður Veörið á morgun: Hlýttí veðri Á morgun verður austan- og suðaustankaldi eða stinnings- kaldi en allhvasst eða hvasst við suðurströndina. Dálítil súld eða rigning við suður- og austur- ströndina en annars þurrt að mestu. Hlýtt verður í veðri. Veðrið í dag er á bls. 45. Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari gekk af æfingu vegna kulda og trekks. DV-mynd E.ÓI. Kafarar staðfestu í gær að flakið sem fannst i Tálknafirði er af Þrymi BA 7 sem hvarf fyrir um tíu dögum. Þórólfur Halldórsson, sýslumaður á Patreksfirði, segir að eigandinn beri því við að báturinn hafi sokkið þegar hann var í togi en ætlunin hafi verið að færa hann á land utar í firðinum. Þórólfur segist gera ráð fyrir að eigandinn verði ákærður og að krafa verði gerð um að hann greiði sakarkostnað. Hins vegar mun lög- regla ekki gera kröfu um að náð verði í skipið, heldur er það um- hverfisyfirvalda að taka ákvörðun um hvort það verður gert. -Sól. Sviðsett rán: „Fórnarlamb- ið“ slasaðist Öryggisvörður í Kringlunni slas- aðist í andliti eftir að púðurskot hljóp úr byssu lögreglumanns á æf- ingu fyrir starfsfólk Kringlunnar í gærmorgun. Verið var að sviðsetja vopnað rán í Kringlunni. Öryggisvörðurinn var í hlutverki fómarlambs. Tveir lög- reglumenn léku ræningjana og komu inn í æfingasalinn með afsag- aða haglabyssu sem í vom púður- skot. Slysið varð með hætti að skot hljóp úr byssunni og öryggisvörð- umn hlaut brunasár í andliti við hitann úr byssunni. Áverkar hans munu ekki vera alvarlegir að sögn lækna en hann var hafður á sjúkra- húsi í nótt. „Við höfum verið með æfingapró- gramm í gangi fyrir starfsfólk versl- ana. Það hafa um 500 manns gengið í gegnum þetta og ekkert svona lag- að gerst áður. Þetta var bara slys sem getur alltaf átt sér stað. Okkur þykir þetta auðvitað mjög leiðinlegt af því þetta hefur gengið ákaflega vel en við munum rannsaka þetta sem hvert annað slys. Hugmyndin er að æfa starfsfólk við að hugsan- legt rán eigi sér stað og það geti gef- ið lýsingu á ræningjunum," sagði Karl Steinar Valsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn. -RR FRJALST, OHÁÐ DAGBLAÐ FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 L*m vtruxa m tm '0 d ^ ■> Þrymur BA fundinn: Krefst sakar- kostnaðar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.