Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1997, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997
Fréttir
Hugmyndir um breytingar á löggæslu 1 Reykjavík ekki kynntar borgaryfirvöldum:
Skylda lögreglunnar
að kynna þessi mál
- munum kalla eftir upplýsingum, segir borgarstjóri
Hugmyndir um breytingar á lög-
gæslu í Reykjavík hafa ekki verið
kynntar borgaryfirvöldum. Sam-
starfshópur dómsmálaráöuneytis og
yfirstjómar lögreglunnar hefur þó
verið aö störfum um hríð og haldið
arrráð hefur óskað eftir því við okk-
ar fulltrúa að þeir óski eftir kynn-
ingu á þessu,“ sagöi hún. „Ég tel að
samstarfsnefhdin sé hinn rétti og
eðlilegi vettvangur til að fara yfir
þessi mál. Ég tel það skyldu lögregl-
um á löggæslunni, að leggja umferð-
ardeild niður í núverandi mynd og
færa hana undir almenna deild. Þá
er rætt um að taka upp fimm vakta
kerfi og fjölga lögreglumönnum um
5-7 stöðugildi. Dómsmálaráðuneyti
Eitt af verkefnum umferöardeildar lögreglunnar hefur veriö umferöarfræösla í grunnskóium borgarinnar. Sú
starfsemi var fœrö undir forvarnardeild á sföasta ári.
nokkra fúndi um málið. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir
að þaö sé skylda lögreglunnar að
kynna það sem fram fer í þessum
efhum til borgaryfirvalda.
„Við erum með samstarfsnefnd
lögreglu og borgaryfirvalda og borg-
unnar aö kynna þessi mál þar því
þetta varðar þjónustu við borgar-
búa.“
Eins og fram hefur komiö í DV er
sú hugmynd m.a. uppi á boröi sam-
starfshóps ráöuneytis og löreglu,
sem liður í fyrirhuguðum breyting-
hefur tilkynnt að það hafi ekki fjár-
muni til þessara breytinga.
Borgarstjóri sagðist ekki hafa
myndað sér skoðanir á því hvemig
þessar skipulagsbreytingar, sem
þarna væri verið að vinna að,
kæmu út fyrir borgina. „Þaö er
frumforsenda að þetta sé fyrst
kynnt til þess að hægt sé að mynda
sér skoðun á því. Við viljum gjam-
an fá þessar hugmyndir til skoðun-
ar í nefndinnni áður en þær verða
að veruleika."
„Ég get almennt sagt að ég tel að
styrkja þurfi löggæsluna í borginni.
Ég tel að það hafi legið fyrir lengi.
Þetta á bæði við um miðborgarlög-
gæslu, hverfalöggæslu og umferðar-
löggæsluna, þannig að hún verði
sýnilegri heldur en hún hefur ver-
ið.“ -JSS
Óánægja innan
umferöardeildar
Samkvæmt upplýsingum, sem
DV hefur aflað sér, er óánægja
meðal lögreglumanna í umferðar-
deild með hugmyndir um að
leggja hana niður í núverandi
mynd. Þeir benda á aö starf um-
ferðarlögreglumanna byggist fyrst
og fremst á eigin frumkvæði, aö
þeir séu sýnilegir og leiti sér að
verkefnum. Almenna deildin sinni
aftur á móti meira útköllum.
Dæmi eru nefhd um að lög-
reglumenn í umferöardeild hafi
veriö sendir yfir í almenna deild
til reynslu. Þeir hafi veriö settir á
bíla á hverri vakt til aö reyna að
efla umferðarlöggæsluna á vökt-
unum í almennu deildinni. Út-
koman hafi oröið sú að þeir hafi
týnst í málum almennu deildar-
innar. Sama myndi gerast nú,
umferðarlöggæslan myndi týnast
og hverfa í málefnum almennu
deildarinnar.
Þá er bent á aö umferöarlög-
reglumenn hafi sniðið vinnu-
tíma sinn að umferðarálaginu í
borginni. Þeir hafi myndað
ákveðið lífsmynstur í kringiun
þennan vinnutíma.
Þeir telja nokkuð skýrt aö það
takmark ríkisstjómarinnar að
draga úr umferðarslysum um 20
prósent til aldamóta náist aldrei
meö þessum hreytingum, nái þær
hugmyndir fram að ganga að taka
Umferöarlöggæsla er mjög marg-
þætt og sérhæft starf.
öfluga, sérhæfða fagdeild og sam-
eina hana annarri.
„Markmiðið með þessu er fýrst
og fremst það aö spara og reyna að
geðjast ráöuneytinu.“ sagði einn
viðmælenda DV. „Með þessu væri
t.d. hægt aö þjappa lögregluliðinu á
enn færri fermetra í húsinu til aö
stækka enn frekar viö lögfræðing-
ana og skrifstofubatteríiö."
-JSS
Dagfari
Glöggt er gests augað
Reykvíkingar eiga sér miðborg.
Miðbærinn í Kvosinni var byggður
upp á síðustu öld og fyrri hluta
þessarar aldar og svo hafa eitt og
eitt hús á stangli risiö í staöinn fyr-
ir þau sem hafa verið rifin eða
bmnniö og miöbærinn er þama,
þar sem hann hefur verið og verð-
ur áfram. Maður hefur ekki séð
neitt athugavert viö að miðbærinn
skuli vera eins og hann er, né held-
ur hafa Reykvíkingar séð ástæðu
til aö breyta þessum miðbæ frá því
sem hann er.
Svo bregður hins vegar við um
þessar mundir aö nokkrir áhuga-
menn sem hafa af því atvinnu að
skoða miðbæinn og velta því fyrir
sér hvaö gera megi við þennan bæj-
arhluta ákváðu aö nú væri kominn
tími til að fá útlenska sérfræðinga
til aö segja sér hvað gera skuli viö
miðbæinn. Glöggt er gestsaugað,
stendur þar, og útlendingamir létu
ekki á sér standa og heldur ekki
leiðbeiningum sínum um gamla
miðbæinn í Reykjavík.
Fyrir það fyrsta segja þeir að lít-
ið hafi verið byggt í miðbænum á
undanfómum árum, það sé ekki
hægt að gera neitt fyrr en búiö sé
að byggja meira og til að
byggja meira þurfi að kanna
hvemig byggt skuli. Þaö
þurfti náttúrlega útlendinga
til að segja okkur þetta, enda
hefur þessum ábendingum
verið tekiö með kostum og
kynjum og nú segja allir í
skipulaginu og byggingar-
deildinni og Þróunarfélagi
Reykjavíkur og allt upp í
borgarráð að auðvitað þurfi
að kanna hvað hægt sé að
gera í miöbænum áður en
hafist verði handa um að
gera eitthvað. Svo segja út-
Jendingamir að auk þessarar
könnunar þurfi að byggja
upp gagnagrunn, (væntan-
lega um þau hús sem í mið-
bænum em) og síðan þurfi
að efna til samstarfs um
rammaáætlun um sam-
ræmda sijóm og síöast en
ekki síst er lagt til aö lagður
verði gmnnur að könnun til
þess að unnt verði að fylgjast með
þróuninni í framtíðinni. Lagt er til
að lokum að gefinn verði út bæk-
lingur um miðbæinn.
Allt þetta eru hinar merkilegustu
tillögur og okkur sjálfum hefði að
sjálfsögðu aldrei dottið í hug að
gera svona tillögur og þaö var
vissulega þörf á því að fá útlending-
ana til að segja okkur hvað við eig-
um aö gera við miðbæinn. Það sýn-
ir líka hvaö þessir útlendingar eru
glöggir að þeir hafa látið hafa það
eftir sér að ef byggður verður versl-
unarkjarni í Smáranum í Kópavogi,
þá muni draga úr verslun annars
staðar! Það þarf glögga menn og
skarpa frá úflöndum til að segja
okkur svona vísdóm.
Þetta kemur alveg flatt upp á
okkur. Hverjum datt þaö í hug, hér
uppi á íslandi, hvað þá í miðbæn-
um, aö ný verslun drægi úr viö-
skiptum hjá þeim sem fyrir væra?
Sér í lagi ef verið er aö keppa um
sömu kúnnana. Þetta era algjör-
lega ný sannindi fyrir skipuleggj-
endur og businessmenn og póli-
tíkusa hér heima og era meira að
segja taldar stórfréttir í sjónvarp-
inu.
Maöur bara spyr: hvar værum
við Islendingar staddir með mið-
bæinn og allar verslanimar og þró-
unina næstu árin ef þessir útiend-
ingar hefðu ekki komið hingað til
lands og sagt okkur, sem enginn
hafði áttað sig á, að verslunarmiö-
stöðin í Smáranum ylli því aö þaö
yrði meira verslað þar ef minna
yrði verslað annars staöar. Og svo
hitt, sem ekki er síður merkilegra,
að ef minna yrði verslað í miöbæn-
um væri það vegna þess að meira
yrði verslað í Smáranum. Ja,
hérna. Dagfari