Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1997, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1997, Síða 45
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997 53 i Framsækið popp í Sjallanum Haraldur Jónsson sýnir verk sem tengjast tungumálinu og tjáning- arþörfinni. Innvortis í dag veröur opnuð sýning á verkum eftir Harald Jónsson í Gallerí Ingólfsstræti 8. Sýning- una, sem ber heitið Innvortis, er hægt aö skoða aö innan en hana er einnig auðveldlega hægt að viröa fyrir sér utan af götunni. Verk Haralds tengjast líkaman- um, tungumálinu og tjáningar- þörf okkar traustum böndum. Sú er einnig raunin með sýninguna innvortis. í þessum nýju verkum er líkaminn hreinlega opnaöur upp á gátt og okkur sýnt inn í það sem flestum er yfirleitt hulið. Líkaminn er bókstaflega á röng- unni. Sýningar Haraldur Jónsson stundaöi framhaldsnám í Kunstakademie í DUsseldorf í Þýskalandi og Institut des hautes Etudes en Arts Plastiques í París, Frakk- landi. Verk hans hafa verið sýnd víða um heim og þau er aö finna á söfnum hér á landi og erlendis. Sýningin stendur til 11. janúar. Gerpla sem Is- lendingasaga Vésteinn Ólason prófessor heldur fyrirlestur í Norræna hús- inu í dag kl. 17.15 sem hann nefn- ir Gerpla sem íslendingasaga. Þetta er áttundi fyrirlesturinn sem efnt er til í tilefiii af 95 ára af- mapli Halldórs Laxness á þessu ári og eru allir velkomnir og er aðgangur ókeypis. Upplestur og tónlist á Súfistanum í kvöld er síöasta upplestr- arkvöldið á Súfistanum, kaffihús- inu í bókabúð Máls og menning- ar. Lesið verður úr sögu Leikfé- lags Reykjavíkur eftir Eggert Þór Bemharðsson og Þórunni Valdi- marsdóttur, skáldsögunni Blá nótt fram í rauða bítið, unglinga- bókinni Galdrastafir og græn augu. Þá munu Rússíbanamir kíkja inn og leika nokkur lög áður en þeir halda á útgáfutón- leika sína í Þjóðleikhúskjallaran- um. Dagskráin hefst kl. 20.30. Samkomur Kyrrðarstund í Laugameskirkju í dag verður síðasta kyrrðar- stundin í Laugameskirkju fyrir jól. Hún hefst að venju með tón- list kl. 12. Eftir stundina verður hádegisverður með hátíðarbrag eins og undanfarin ár á þessum tíma. Bam dagsins í dálkinum Bam dagsins em birtar myndir af ungbömum. Þeir sem hafa hug á að fá birta mynd er bent á að senda hana í pósti eða koma meö myndina, ásamt upp- lýsingum, á ritstjóm DV, Þver- holti 11, merkta Bam dagsins. Ekki er síðra ef barnið á mynd- inni er í fangi systur, bróður eða foreldra. Myndir eru endursendar ef óskað er. Það verða ffamsæknar popp- hljómsveitir sem heimsækja Akur- eyringa í dag og leika í Sjallanum í kvöld. Em það Maus, Vínyll og 200.000 naglbítar. Hljómsveitir þess- ar munu fLytja nýjar afUrðir sem er að finna á nýjum plötum þeirra. Maus leikur lög af plötu sinni Lof mér að falla að þínu eyra og Vínyll og 200.000 naglbítar leika lög af Spír- ur en þær em tvær af fjórum hljóm- sveitum sem era flytjendur á þeirri Meðal hljómsveita sem skemmta í Sjallanum f kvöld er Maus. plötu. Þess má geta að hljómsveitar- menn árita plötu sínar í Bókaval um daginn. Andhéri í Rósenberg Útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Andhéra verða í Rósenberg í kvöld. Leikur hljómsveitin lög af fyrstu plötu sveitarinnar sem ber nafn hennar. Húsið verður opnað kl. 21. Skemmtanir Café Amsterdam Á Hootch-kvöldi á Café Amster- dam í kvöld skemmta Matti og íris sem em dúettinn Staff. í hvítum sokkum í kvöld skemmtir í aðalsal Kringlukrárinnar hljómsveitin í hvítum sokkum. Vafalaust leikur hún einhver lög af nýútkominni plötu með hljómsveitinni. Gaukur á Stöng Hin fomfræga hljómsveit Loðin rotta skemmtir gestum á Gauknum í kvöid. Allhvasst og súld Um 400 km suðvestur af írlandi er mjög víðáttumikil 955 mb lágþrýsti- svæði sem þokast norðnorðaustur. 1033 mb hæð um 400 km norðaustur af Langanesi þokast noröur. Veðrið í dag Hægt vaxandi austan- og suðaust- anátt. Þykknar upp sunnanlands og austan er líöur á daginn. Austan- kaldi og áffarn bjart veöur norðan- og vestanlands í kvöld og nótt en stinningskaldi eða allhvasst og súld eða rigning meö suður- og austur- ströndinni. Vægt ffost verður i inn- sveitum norðanlands fram eftir degi en annars hiti á bilinu 2 til 7 stig, hlýjast sunnanlands. Á höfúðborgarsvæðinu veröur austangola eða kaldi og skýjað með köflum er líður á daginn og fram á nótt. Hiti 2 til 6 stig. Sólarlag í Reykjavík: 15.30 Sólarupprás á morgun: 11.20 Síðdegisflóð í Reykjavík: 21.28 Árdegisflóð á morgun: 09.44 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri léttskýjaö -2 Akurnes léttskýjaó 4 Bergsstaöir léttskýjaö -2 Bolungarvlk léttskýjaö 1 Egilsstaóir skýjað 2 Keflavíkurflugv. léttskýjaö 1 Kirkjubkl. heiðskírt 2 Raufarhöfn heiðskírt 3 Reykjavík heiöskírt 4 Stórhöföi léttskýjaö 5 Helsinki skýjað 1 Kaupmannah. hálfskýjaö -3 Osló þokumóöa -2 Stokkhólmur hrímþoka -3 Þórshöfn skýjaö 7 Faro/Algarve hálfskýjaö 15 Amsterdam skýjaö 1 Barcelona rigning 14 Chicago skýjaö 1 Dublin rigning 7 Frankfurt skýjaö 0 Glasgow alskýjaö 6 Halifax heiöskírt 0 Hamborg léttskýjaö -8 Jan Mayen London rigning 6 Lúxemborg alskýjaö 2 Malaga rigning 17 Mallorca alskýjaö 16 Montreal -A París rigning 9 New York skýjaö 4 Orlando léttskýjað 9 Nuuk hálfskýjaö 0 Róm skýjaö 8 Vín alskýjaö -6 Washington léttskýjað 0 Winnipeg heiöskírt 3 Flughált er á Norðurlandi vestra Flughált er víöa á vegum á Noröurlandi vestra og hálkublettir á Holtavöröuheiði og norður til Akur- eyrar. Vegna aurbleytu er vegurinn um Lágheiöi talinn mjög varasamur fólksbilum, þar er heildar- Færð á vegum þungi takmarkaður við tvö tonn. Öxulþungi er tak- markaður viö fimm tonn á Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði. Að öðm leyti er greiðfært um þjóðvegi landsins. Elísabet og Halldór eignast dreng Myndarlegi drengurinn á myndinni fæddist á fæð- ingardeild Landspitalans 26. nóvember, kl. 1.46. Hann var viö fæðingu Barn dagsins 3370 grömm aö þyngd og mældist 50 sentímetra langur. Foreldrar hans era Elísabet María Hálf- dánardóttir og Halldór Óskarsson. Hann á eina hálfsystur sem heitir Sig- ríður Halla. Stephen Fry leikur Oscar Wilde. Wilde Laugarásbíó hefur sýnt aö und- anfómu bresku kvikmyndina Wilde. Myndin hefst 1883 þegar hinn ungi og atorkusami Oscar Wilde kemur til Englands eftir langa fyrirlestraferð um Bandarík- in. Wilde var á þessum árum ástriðufullt skáld með ómælda hæfileika og fullur sjálfstrausts. Fáum ámm síöar er hann giftm maður, faöir tveggja sona og á há- tindi ferils síns, nýbúinn að senda frá sér The Picture of Dorian Gray. Oscar Wilde var löngu búinn aö gera sér grein fyrir þvi að hann væri samkynhneigður en felur það með sjálfum sér, enda samkyn- hneigðir álitnir glæpamenn og rétt- dæmdir. Þessu veröur þó erfitt að halda leyndu eftir fyrsta fund Wild- es og Alfreds Douglas lávaröar, kallaður Bosie, sem Wilde fellur kylliflatur fyrir. Úr verður storma- samt samband sem um síöir á eftir aö hafa alvarlegar afleiöingar. Kvikmyndir Með hlutverk Oscars Wilde fer Stephen Fry og hefur hann fengiö mikið hrós fyrir túlkun sína á skáldinu og þykir líkjast honum mikið. Nýjar myndir: Háskólabíó: Event Horizon Háskólabió: The Game Laugarásbió: Playing God Kringlubíó: Face Saga-bió: Hercules Bíóhöllin: Tomorrow Never Dies Bíóborgin: Roseanne's Grave Regnboginn: Með fullri reisn Stjörnubíó: Auðveld bráö Krossgátan T~ T~T| r (o T~ % 9 IO r i )z ■ J H JT 1 tm )S F1 P" ii j sr Lárétt: 1 virki, 5 flandur, 8 þjálfa, 9 hamagangur, 10 haldið, 11 viövíkj- andi, 12 spuröum, 14 sefar, 16 upp- haf, 18 lyktar, 20 eyöa, 21 aðferö, 22 fuglinn. Lóðrétt: 1 lagar, 2 niöur, 3 heydrei- far, 4 blika, 5 stjómar, 6 borðuðum, 7 tala, 13 nöldur, 15 ofha, 17 tóna, 18 bor, 19 næði. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 þvæla, 6 fá, 7 roö, 8 ætur, 10 úöir, 11 frí, 12 gallaö, 14 sái, 15 tau, 16 rög, 17 naum, 19 él, 20 agn, 21 mý. Lóðrétt: 1 rúgur, 2 voða, 3 æði, 4 lærling, 5 at, 9 ríkum, 11 fatan, 13^ lága, 14 söl, 18 um. Gengið Almennt gengi Ll 18.12. 1997 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollgengi Dollar 71,560 71,920 71,590 Pund 118,150 118,750 119,950 Kan. dollar 50,260 50,570 50,310 Dönsk kr. 10,5690 10,6250 10,6470 Norsk kr 9,8720 9,9270 9,9370 Sænsk kr. 9,2400 9,2910 9,2330 Fi. mark 13,3430 13,4220 13,4120 Fra. franki 12,0270 12,0960 12,1180 Belg. franki 1,9513 1,9631 1,9671 Sviss. franki 49,7200 50,0000 50,1600 Holl. gyllini 35,7300 35,9400 35,9800 Þýskt mark 40,2900 40,5000 40,5300 It. líra 0,041010 0,04127 0,041410 Aust. sch. 5,7240 5,7600 5,7610 Port. escudo 0,3938 0,3962 0,3969 Spá. peseti 0,4757 0,4787 0,4796 Jap.yen 0,561700 0,56510 0,561100 írskt pund 104,020 104,670 105,880 SDR 96,230000 96,81000 97,470000 ECU 79,5300 80,0100 80,3600 Slmsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.