Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1997, Blaðsíða 24
24
nning
MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 1997 UV
Rafveita Hafnarfjarðar
óskar að ráða starfsmann til að annast lokunarstörf jafnframt
öðrum tilfallandi störfum.
Gerð er krafa um rafiðnaðarmenntun eða aðra sambærilega
menntun.
Umsóknir berist til rafveitustjóra að Strandgötu 6, eigi síðar
en 5. janúar nk. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Laun eru skv. samningi Hafnarfjarðarkaupstaðar við Starfs-
mannafélag Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar veitir rafveitustjóri [ síma 555 3444.
Rafveita Hafnarfjarðar.
/ / p ()■ m ) r i
v • 4 J U.
miiii
Ullarjakki
Nú 14.900
Fullt verö 24.900
100% ull, margir íitir,
allar stœröir.
Nvjar vörur í
hverri viku
SfCápusalan
Snorrabraut 56 S. 562 4362
Instant
fisherman
veiðistöngin komin
TITAN
Sportbúð • Títan
Seljavegur 2
P sthólf 1180
101 Reykjavík
Sími 551 6080
Fax 562 6488
Opið mán. - fös. 9-18
laugard. 10-14
Gildran - í tíu ár ★★★★
Sagan öll?
Titillinn í tíu ár er ekki alveg
sannleikanum samkvæmur. Elstu
hljóðritanirnar á þessum tvöfalda
safndiski eru frá árinu 1985 og ein
frá ’86. Tíu ár eru hins vegar liðin
síðan fyrsta stóra platan
með Gildrunni kom út
og það er þvi útgáfusaga
hljómsveitarinnar sem
er tiu ára á þessu ári.
Það eru sennilega hátt i
tveir áratugir síðan
hljómsveitin varð til.
Þegar Gildrumenn
hófu að gefa út tónlist
sína hafði hún lést til
muna frá því að hljómsveitin var á
barnsskónum, hvort sem hún hét þá
Gildran eða eitthvað annað.
Tónlist Gildrunnar var og er
kraftmikil og varð í senn sífellt
melódískari eftir því sem á ferilinn
leið. Ef ég ætti að nefna eitt lag sem
samnefnara fyrir Gildrurokkið væri
Mærin ekki verra en
hvað annað. Þar ber
líka að hrósa textanum
en oft á tíðum voru
Gildrutextamir hreint
afbragð, einkum meðan
Þórir Kristinsson sá
um þá. Platan í tíu ár
gefur annars skemmti-
lega mynd af þróun
hljómsveitarinnar frá
fyrstu upptöku til hinnar síðustu 1
haust. Aðeins eitt lag stingur gjör-
samlega í stúf við annað á plötunni.
Það er Good Balance sem átti að
koma hljómsveitinni á erlendan
markað og líkist engu öðru sem hún
sendi frá sér. Varðveislugildið er þó
ótvírætt!
Það má segja að hinn langi armur
laganna hafi orðið til þess að liðs-
menn Gildrunnar bundu enda á
samstarfið. Þórhallur bassaleikari
Árnason gerðist lögreglumaður á
Eskiflrði og þar með var sjálfhætt.
Lögin fimm, sem fjórmenningarnir
hljóðrituðu í haust og er að flnna á
plötunum, gefa þó fyrirheit um að
ekki hafl endanlega verið látið stað-
ar numið.
Ásgeir Tómasson
Papar - Risar á jörðu ★★★
Að hafa gaman af
Þeir sem hlustað hafa á Papana í
gegnum tíðina vita við hverju má
búast af þessari reyndu hljómsveit
sem auk fjölbreytts tónlistarflutn-
ings kann að koma fólki í gott skap.
Papar hafa þar af leiðandi verið vin-
sælir á pöbbum Reykjavíkurborgar
og ekki síður á pöbbum í Evrópu.
Með hverju árinu sem líður verða
þeir alþjóðlegri, þótt islenskar ræt-
ur þeirra séu sterkar, sem kemur
kannski best fram í sérstökum hú-
mor sem fylgir alvörunni, þar sem
sungið er um ýmsa drykkjusvola og
undirmálsmenn.
Nýjasta plata Papanna heitir
Risar á jörðu og inniheldur nítján
lög. Menn skulu nú samt ekki fara
að halda að hér sé um einhverja
langloku að ræða, síður en svo.
Lagafjöldinn skapast af því að fimm
laganna eru kannski engin lög,
heldur frekar vel heppnaðir brand-
arar. Eins og flestir vita verða
brandarar því beinskeyttari sem
þeir eru styttri og eru þessi „lög“
innan við tuttugu sekúndur. Má þar
nefha þrjár útgáfúr af
Þrjú hjól undir bílnum
og fimmtán sekúndna
langa útsetningu á
Fyrsta kossi Gunnars
Þórðarsonar sem fær ör-
ugglega alla til að brosa.
Þegar gamninu lýkur
tekur alvaran við, segir
máltækið, en það má
eiginlega segja um
Papana að gamanið endi aldrei þótt
bröndurum ljúki. Papar keyra af
fullum krafti inn í írsk þjóðlög, ís-
lensk dægurlög og frumsamin lög af
mikilli leikgleði sem er samfara
kunnáttu, sjálfstrausti og trú á því
sem þeir eru að gera. Papamir eru
búnir að finna sinn farveg sem er
írsk þjóðlagahefð. Kemur það að
sjálfsögðu ekki á óvart þegar nafn
hljómsyeitarinnar er haft í huga.
Hafa þeir náð góðum
tökum á irskri mállýsku
sem einkennt hefur
flutning sönghópa á
borð við The Dubliners
og Clancy Brothers, svo
dæmi séu nefnd.
Engin ástæða er að
gera upp á milli laga á
þessari hressilegu plötu.
Það er sama hvar borið
er niður, leikgleðin er mikil og eng-
inn efast um að þarna eru á ferð
spilarar og söngvarar sem hafa
gaman af því sem þeir eru að gera.
Hilmar Karlsson
Ýmsir flytjendur - Veðmálið ★★
Tíðindalítil Veðmálstónlist
Ómögulegt er að geta sér tO um
það án þess að hafa séð leiksýning-
una Veðmálið hvort vel
eða illa hafi tekist til um
tónlistarval fyrir sýn-
inguna. Lögin á diskin-
um hljóma yfirleitt
bærilega og maður
kannast við flesta flytj-
endurna. Nokkrir hafa
þó farið fram hjá manni
í tímans rás svo sem
Gert Wilden, Jimi Tenor
og Kanada. Hún er skráð fyrir einu
lagi með tónlistarstjóra sýningar-
innar, Emilíönu Torrini.
Það lag, Leigubíll, er reyndar
sísta lag plötunnar og það eina
virkilega vonda sem
Emilíana hefur sent frá
sér á ferlinum. Annars
er undan litlu að
kvarta, að minnsta
kosti varðandi tónlist-
ina og reyndar vert að
hrósa sérstaklega eink-
ar áheyrilegu lagi sem
hljómsveitin Suede hef-
ur væntanlega fallist á
að hljóðrita fyrir Veðmálið. Þá
stendur rúmlega tveggja áratuga lag
með Minnie Ripperton, Loving You,
alltaf fyrir sínu.
Upplýsingar á diskinum með tón-
list úr Veðmálinu miðast meira við
leiksýninguna sjálfa en tónlistina.
Maður fær eingöngu að vita hvað
lögin heita og hverjir syngja þau.
Ekki orð um undirleikara eða höf-
unda laga eða texta. Höfundar leik-
myndar, búninga og ljósameistar-
inn eru aftur á móti nafngreindir.
Þeir eru eflaust alls góðs maklegir
en koma ekki alveg við sögu hjá
þeim sem hlusta á tónlist disksins
og vildu kannski vita eitthvað að-
eins meira en það allra, allra nauð-
synlegasta. Ásgeir Tómasson
Rúnar Júlíusson - Rokk og rólegheit ★★★
Athyglisverðir punktar
Rokk og rólegheit má segja að sé
hin sneiðin á samloku sem Rúnar
Júlíusson hóf að útbúa i fyrra með
plötunni Með stuð í hjarta. Hann
leitar til nokkurra þekktra laga-
höfunda um lög og flytur þau síð-
an með sínum hætti. Rúnar á
reyndar sjálfur nokkru fleiri lög á
Rokki og rólegheitum en eldri
plötunni en aðrir lagahöfundar á
þeirri nýju eru Sverrir Stormsker,
Tryggvi Húbner, Jóhann Helga-
son, Larry Otis, Gunnar Hjálmars-
son og Júlíus Guðmundsson, son-
ur Rúnars og Maríu, konu hans.
Hann kemur jafnframt við sögu
sem upptökumaður og hljóðbland-
ari.
Lag Júlíusar, Ég ætla að gera
það sem ég vil, er einmitt annað
tveggja sem stendur upp úr á plöt-
unni. Það er eins konar afturhvarf
til gamalla tíma þegar stjarna fóð-
ur hans reis hæst sem unglinga-
goðs og menn sungu um blóm og
frið. Þeir feðgar ættu að kanna
hvort þeir geta ekki brallað eitt-
hvað meira inn á plötu síðar. Hitt
lagið sem vekur sérstaka eftirtekt
er Dráttarbrautin #3 eftir Rúnar
við texta Megasar. Hið eina sem ég
saknaði úr því lagi var vælandi
munnharpa sem hefði undirstrik-
að napurleika textans.
Óhjákvæmilega ber maður sam-
an plöturnar Rokk og rólegheit og
Með stuð í hjarta. Ég verð að játa
að mér þótti sú fyrri skemmtilegri.
Á nýju plötunni er siglt meira á
lygnum sjó en þeirri fyrri sem hef-
ur elst vel og er í minningunni
hálfkaótísk.
Ásgeir Tómasson