Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1997, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1997, Page 48
 Vinnin$&tölur laugardaginn — Englnn var moð 5 rétta í aukaúrdrœtti Vi nningar vinninga Vinningóupphœð l-sats 3.098.661 ÍS> 8» 1 538.890 3 ■<« ts 111 8.370 4-3 ats 3.600 600 Heilc 6.726.621 _ FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fulirar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 1997 Lögreglan sleppti í gær karlmanni úr haldi sem grunaður var um að hafa kveikt í barnakerru í stigagangi f fjölbýlis- húsi í Iðufelli á laugardag. Maðurinn var handtekinn skömmu eftir brunann en ekki reyndust nægar sannanir til að halda honum lengur. Málið er áfram í rannsókn. Töluverðar skemmdir urðu á stigaganginum eins og sést á meðfylgj- andi mynd. DV-mynd S Mikil spenna í stjórnarflokkunum vegna breytinga: Tveimur ráð- herrum skipt út - framsóknarmenn reiðir vegna ummæla Davíðs Danadrottning væntanleg: Kemur sem listamaður Margrét II. Danadrottning tilkynnir v-^>í dag þá ákvörðun sína að fylgja sýn- ingu á listaverkum sínum til íslands í maí i vor. Fyrir nokkrum mánuðum var afráðið að kirkjutextilverk Dana- drottningar yrðu sýnd á listahátíð, en ekki var vitað hvort hún hefði tæki- færi til að koma sjálf með sýningunni. Nú er afráðið að hún komi til landsins 15. maí í óopinbera heimsókn, en mun þó verða sérstakur gestur forseta ís- lands. Hún kemur hingað sem lista- maður og opnar sjálf sýningu sína þann 16. maí, á opnunardegi listahá- tíðar. Auk þess verður hún viðstödd opnun listahátíðar og ýmsa aðra við- burði um opnunarhelgina. Margrét sýnir meðal annars hökla og altarisklæði sem hún hefur hann- y.-*áð, en listfengi hennar er talið njóta ' ysín einna best í slíkum verkum. Sýn- ingin verður í Bogasal Þjóðminja- safnsins og sérstakur listráðunautur drottningar kom hingað í sumar til að kanna aðstæður. Þetta er ný sýning, sett upp sérstaklega fyrir listahátíð. Margrét Þórhildur Danadrottning heiðrar Listahátíð f Reykjavfk með þvf að opna sjálf eigin listsýningu. DV-mynd GVA Með drottningunni í för verður ’ *Danski útvarpskórinn, einn allrabesti kór Danmerkur, og mun hann syngja á sérstökum hátíöartónleikum drottn- ingunni til heiðurs þann 17. maí. Með kómum á þeim tónleikum verður tón- listarhópurinn Caput sem mun m.a. frumflytja nýtt verk eftir Hauk Tóm- asson. -SA Aurskriða Mikil aurskriða féll í Kam- banesskriðum á Austurlandi á laug- ardag. Skriðan fór yfir veginn en sem betur fer var engin umferð þar á þeim tíma. Mikil mildi þykir að nokkrir starfsmenn Vegagerðarinn- *Wít voru nýfamir frá þeim stað þar sem aurslo-iðan kom niður. Vegur- inn var ruddur tafarlaust. -RR Samkvæmt heimildum DV hyggst Davíö Oddsson skipta út tveimur ráðherrum og setja konu inn í ríkis- stjórnina. Sömu heimildir herma að auk Friðriks Sophus- sonar, sem um skeið hefur hugsað sér til hreyfings, hverfi Þor- steinn Pálsson sjávar- útvegsráðherra úr rikisstjórninni. Sjálf- gefið er talið að Geir H. Haarde, formaður þingflokksins, verði fjármálaráð- herra í stað Friðriks. Heimildir DV segja að Sólveig Pétiu-sdóttir sé lik- leg til að verða dómsmálaráöherra. Yfirlýsing Davíðs á föstudags- kvöld olli írafári meðal stjórnarliða. Samkvæmt heimildum vissu aðeins tveir ráðherrar Sjálfstæðisflokks- ins, þeir Bjöm Bjamason og Friðrik Sophusson, um hugmyndir Daviðs. Yfirlýsingin kom framsóknarmönn- um algerlega í opna skjöldu, og mik- il gremja ríkir i röðum þeirra. Heimildir DV kváðu Davíð hafa velt fyrir sér að víxla ráðuneytum milli flokkanna. Þingmenn úr liði Sjálfstæðisflokksins telja að með neikvæðum yfirlýsingum í fjölmiðl- um hafi Halldór Ásgrímsson eyði- lagt þann möguleika og torveldað mjög nauðsynleg ráðherraskipti hjá FrEunsóknarflokknum. Heimildarmenn í Sjálfstæðis- flokknum segja Davíð lengi hafa velt fyrir sér að skipta Þorsteini út. Nú sé rétti tíminn og Þorsteinn sáttur við að skipta um starf, enda á svipuðum aldri og Friðrik. Hvorugur geti vænst frekari frama í stjóm- málum og báðir á þeim aldri að starfs- skipti geti ekki beðið öllu lengur. Friðrik hefur verið orðaður við forstjóra- stöðu Landsvirkjunar en engar vangaveltur hafa verið um framtíð Þorsteins. Ólga hefur verið meðal kvenna í Sjálfstæðisflokknum og með því að gera konu að ráðherra sefar Davíð hana, og um leið yrði Sigríður Anna Þórðardóttur að formanni þing- flokks, en hún er nú varaformaður. Sólveig Pétursdóttir er talin dugleg- ur þingmaður, með sérþekkingu á dómsmálum og tæki við þeim af Þorsteini. Óvist er hver tæki þá sjávarútvegsráðuneytið, en nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa velt fyrir sér að með því að skipta á þeim og menntamálum kynni Sjálf- stæðisflokkurinn að fá utanríkis- ráðuneytið fyrir Bjöm Bjamason. Framsóknarmenn taka því hins veg- ar víðs fjarri. Skiptin era talin styrkja Sjálf- stæðisflokkinn, sem fengi bæði ung- an mann og konu inn í ríkisstjórn- ina. í þingliði Sjálfstæðisflokksins benda þó landsbyggðarmenn á þá staðreynd að með skiptum af þess- um toga yrðu fjórir ráðherrar úr Reykjavík. Skaftárhreppur: Maður lést í bílveltu - kona alvarlega slösuð Fullorðinn maður lést í bílveltu á Meðallandsvegi í Skaftárhreppi á níunda timanum í gærkvöld. Eiginkona mannsins slasaðist að því er talið er alvarlega. Hún var flutt með sjúkrabíl á Sjúkrahús Reykjavíkur. Að sögn lögreglu er margt óljóst um tildrög slyssins. Maðurinn sem lést var ökumaður bifreiðarinnar. Svo virðist sem hann hafi misst stjórn á bíl sínum í beygju á veginum. -RR Eskifjörður: Fimm handteknir meö hass Fimm menn voru handteknir vegna fíkniefnamisferlis skammt fyrir utan Eskifjörö í fyrrakvöld. Tveir lögreglubílar veittu bíl mannanna eftirför út fyrir bæinn. Mennimir vom á leið til Neskaup- staðar þar sem þeir búa. Þegar lög- regan gaf bílnum merki um að stöðva köstuðu mennimir fikniefn- um út úr honum. Tveir fikniefna- leitarhundar vora fengnir til að kanna svæðið og fundu þeir 15 grömm af hassi. Fjórir mannanna hafa áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefhamisferlis og annarra lögbrota. -RR Lögreglumaöur hlaut áverka - læti í miðborginni Lögreglumaður hlaut áverka í átökum í miðborginni í fyrrinótt. Lögreglumaðurinn var sleginn í andlitið með þeim afleiðingum að tönn brotnaði. Töluverð læti vora í miðborginni í nótt og nokkuð um minni háttar líkamsárásir og slags- mál. Margir gistu fangageymslur vegna þessa. Enginn slasaðist þó al- varlega svo vitað sé. -RR Bílvelta í Norðurárdal: Tvennt slasaðist Bílvelta varð við Hrauná í Norð- urárdal í Borgarfirði í fyrrakvöld. Karlmaður og kona vora i bílnum og voru þau bæði flutt slösuð á sjúkrahús. Talsverðir áverkar vora á kon- unni, skarst m.a. allmikið. Maður- inn slapp betur og eftir rannsókn kom í ljós að meiðsl hans vora ekki mikil. Bíllinn er gerónýtur eftir veltuna. Slysið er rakið til mikillar hálku sem var á veginum. -RR Veðrið á morgun: Rigning sunnan- lands Á morgun, Þorláksmessu, er gert ráð fyrir suðaustankalda eða stinningskalda og rigningu um sunnan- og austanvert landið en annars þurrt að mestu. Hiti 2 til 7 stig. Veðrið í dag er á bls. 53. Þorsteinn Pálsson. Friðrik Sophusson. i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i K

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.