Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1998, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1998, Blaðsíða 13
* JL^"V LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998 13 Jón Pátursson lögregluþjónn: Mannlegt eðli ekki alltaf fallegt Jón Pétursson lögregluþjónn var við vélvirkjanám í Sindra þegar hann ákvað að söðla uxn og ganga til liðs við lögregluna. Hann lagði þá stund á íþróttir og vélvirkjanámið fór ekki vel með þeim. „Það voru KR-ingar, vinir mín- ir, sem sáu um að koma mér í lög- regluna,“ segir hann. Eftir að hafa starfað þar um hríð fór Jón út í rekstur á sokka- verksmiðju ásamt Ragnari Tómassyni lögmanni sem er mág- ur Jóns. Eftir að hafa fengist við það um hríð fór Jón vestur í Stykkishólm sem lögreglumaður 1969. Að þrem árum liðnum gekk hann aftur til liðs við lögregluna í Reykjavík þar sem hann hefur starfað síðan. „Á fjörutíu ára ferli er maður búinn að sjá alla flóruna i mann- legu eðli. Hún er ekki alltaf falleg. Mannlífið hefur breyst. Eiturlyf- in flæða yfir eftir að peningamir komu inn í það dæmi. Nú ber meira á sídrykkju. En það má ekki tala um áfengið sem eiturlyf þótt það sé aðalorsökin og til bölvunar. Hins vegar er hamast út í reykingafólk. Ég hef þó ekki séð neinn fara út og drepa mann eftir að hafa fengið sér sígarettu.“ Jón segist oft hafa orðið hrædd- ur í starfi. Þar nefnir hann t.d. at- vik við björgun fólks og bruna. „Vestmannaeyjagosið er ákaflega minnisstætt. Þá var maður vissu- lega hræddur. Mér er minnisstæð nóttin þegar mesta hrinan kom úr eldfjallinu og yfir bæinn. Þá nótt brunnu 20 hús og ekki sá út úr augum fyrir reyk og gjalli. Þetta var eins og að vera í ffemstu víglínu í hemaði - há- værar sprengingar og gelt í gíg- Jón Pétursson. DV-mynd S unum, brennandi hús allt um kring, himixm og jörð logandi, fólk á hlaupum." Að taka upp kylfu Atvikin höguðu því þarmig að Jón lenti margoft í að stilla til friðar á útifundum. „Ég minnist þess þegar breska sendiráðið var rústað. Eins vom stundum átök við rússneska sendiráðið. Ein af síðustu atvikxxm þessarar tegund- ar vom suður á Keflavíkurflug- velli, einnig vegna einhverra dáta inni í Sundahöfn og svo óeirðir við Þórskaffl. Maður upplifði það að þurfa að taka upp kylfu sem ekki heflxr verið gert í Reykjavík sl. 20-25 ár. Kylfan er andstyggð- arverkfæri. Svo er mér minnisstætt atvikið á þjóðhátíðixmi á Þingvöflum 1974 þegar borðixm með áletruninni „Island úr Nató - herinn burt“ fór upp á gjárbarminum. Mér tókst að ná honum af fólkinu, svo vöðl- aði ég honum saman og lyfti hon- xxm upp. Gunnar Thoroddsen var á því andartaki að flytja ræðu og í henni miðri klöppuðu 50.000 manns allt í einu. En það var vegna þess að ég lyfti borðanum." Ætíð skammt undan Jón segir að alls staðar þar sem stórir atburðir hafi gerst í þjóðfé- laginu á þessum sl. 40 árum hafi lögreglan ætíð verið skammt imd- an. Aðspurður um hvaða áhrif það hafi á menn að horfa upp á allar hliðar dekkri hliðar mann- lífsins svarar Jón: „Maður heldur að maður verði kaldlyndur. Mað- ur verður að brynja sig en ég held að lögreglumenn séu ekkert kald- lyndari en annað fólk. Þegar kem- ur að okkar nánustu erum við það ekki. En við verðum að gjöra svo vel að vinna verkið.“ Jón er ekki alveg hættur í lög- reglunni þótt haxm eigi 40 ára starfsafinæli 15. janúar nk. Eftir 1. maí 1999 ætlar haxm að vera í hálfu starfi. Þá ætlar hann að verja meiri tíma til að sinna hugðarefnum sínum, skógrækt á jarðarskika sem haxm á í Reyk- holtsdal. „Þar ætla ég að dvelja, hverfa til náttúrunnar og hlusta á fúglasönginn. Það er miklu skemmtilegri söngur heldur en maður heyrir hér á götunum og í partíunum." -JSS Framleiðum brettakanta. sólskyggni og boddíhluti á flestar gerðir jeppa. einnig boddíhluti á vönibfla og van-bða. Sérsmíði og viðgerdir. ALLT PLAST ™ (E) Kænuvogi 17 • Sími 588 6740 Prófadeild - öldungadeild Vorönn 1998 Grunnskólastig: (danska, enska, íslenska, stærðfræði) Grunnnám. Samsvarar 8. og 9. bekk grunnskóla. Ætlað þeim sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi eða vilja upprifjun firá grunni. Fornám. Samsvarar 10. bekk grunnskóla. Ætíað þeim sem ekki hafa náð tilskildum árangri í 10. bekk. Upprifjun og undirbún- ingur fyrir nám á framhaldsskólastigi. Framhaldsskólastig: Almennur kjarni fyrstu tveggja ára framhaldsskóla: bókfærsla, danska, efnafræði, eðlisfræði, enska, félagsffæði, ís- lenska, námstækni, saga, sálffæði, stærðfræði og tjáning. Bóklegar greinar heilsugæslubrauta: heilbrigðisfræði, líffræði, líffæra- og lífeðlisfræði, líkamsbeiting, næringarfræði, siðfræði og skyndihjálp. Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla og hefst 15. jan- úar. Skólagjöld miðast við kennslustundafjölda og er haldið í lágmarki. INNRITUN í PÓFADEILD fer fram alla virka daga kl. 9-19.30 í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1. INNRITUN í FRÍSTUNDANÁM fer fram á skrifstofu skól- ans firá og með 15. janúar. Kennsla í fnstundanámi hefst 26. janúar. Kennt er í Miðbæjarskólanum og í Mjódd, Þönglabakka 4. Upplýsingar í síma 551-2992, Fax: 562-9408 Netfang: nf@rvk.is http://www.rvk.is/nf. Svo lengi lœrir sem lifir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.