Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1998, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1998, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 10. JANUAR 1998 &star 21 Flytja út hesta til Nýja-Sjálands Á síðastliðinu ári fóru fjórir ís- lenskir hestar til Nýja-Sjálands. Hjónin Erna Arnardóttir og Hin- rik Gylfason í Mosfellsbæ eru í sam- starfl við Bruno Podlech og Fried- helm Sommer um útflutninginn og hyggjast flytja þangað fleiri hross ef leyfi fæst fyrir þvi. „Friedhelm Sommer er Þjóðverji sem býr jöfnum höndum í Þýska- landi og Nýja-Sjálandi, en hann er með íslenska hesta í Þýskalandi," segir Erna. „Hann langaði til að flytja hesta til Nýja-Sjálands og fékk hér fjóra hesta sem fóru fyrst til Þýskalands en þaðan í sóttkví til Bretlands. Frá Bretlandi fóru hestamir loks til Nýja-Sjálands og hafa það gott þar. Á Nýja-Sjálandi er vissulega heitt en landið er eyja og þar er ríkj- andi hafgola. Okkur hefur verið sagt að þar sé ekkert fluguvandamál. Sommer hefur komið hrossunum inn á sýningu á Nýja-Sjálandi í mars og það verður gaman að frétta af þvi hvernig þeim verður tekið. Sommer hyggst flytja fleiri hross til Nýja-Sjálands og keypti 15 hryss- ur á íslandi sem köstuðu í sumar og þeim var haldið aftur í sumar. Hann langar að flytja þær til Nýja- Sjálands, en reglur á Nýja-Sjálandi eru mjög strangar um innflutning dýra, eins og á íslandi, og það getur verið erfitt að koma hrossunum beint inn í landið. Brynjólfur Sandholt, fyrrverandi yfirdýralæknir, hefur verið að að- stoða okkur og hann hefur rætt við yfirdýralækni Nýja-Sjálands sem hefur boðið honum til viðræðna um slökun á reglum á aldamótaárinu. Verkefni sem þetta er langtíma- takmark og mjög kostnaðarsamt enda litum við á þetta sem tilrauna- verkefni og er í raun sérviska. Þetta er fyrst og fremst ánægju- legt enda höfum við ekki heyrt af nema einu hrossi sem hefur farið til Nýjar Sjálands og var haldið sem gæludýr," segir Erna Arnardóttir. \ -E.J. Vantar nafn „Við vorum að vinna við svipaða hluti, að útbúa forrit fyrir hestamót, og þegar leiðir okkar lágu saman fyrir tilviljun ákváðum við að vinna saman að þróun verkefnisins," segja þeir félagar Brynjar Gunn- laugsson og Aksel Jansen sem hafa útbúið skráningar- og útreiknings- forrit fyrir hestamót. Þeir hafa sameiginlegan áhuga á hestum og tölvum og hafa tekið mikinn þátt í félagsmálum svo og töluverða reynslu af umsjón með tölvuvinnslu á hestamótum, Aksel fyrir Fák en Brynjar fyrir Hörð. Einnig hafa þeir starfað við tvö síð- ustu íslandsmót. „Forritið sem við höfum hannað tekur til skráningar og útreiknings hrossa og knapa á íþróttamótum, gæðingakeppni og kappreiðum en við undanskiljum kynbótahrossa- sýningar. í forritinu er innbyggt skráning- arkerfi fyrir mót og stöðluð skrán- ingarblöð. Þegar skráningu er lokið er tölv- an látin draga um keppnisröð og svo er hægt að prenta út mótaskrá með upplýsingum um hrossin og knapana. Öll dómarablöð eru með nöfnum keppenda, útprentun er á úrslitum og svo er hægt að prejita út móta- skýrslur. Eftirleikurinn er mest spennandi. Þegar dómarar hafa kveðið upp dóm yfir hrossi er staða hrossins eða knapans ljós og knapamir geta því strax séð hvar þeir standa og hvort þeir eiga möguleika á að kom- ast í úrslit. Með stöðugu upplýsingaflæði frá mótshöldurum til áhorfenda mynd- ast mikil spenna á mótsstað. Möguleikamir eru óteljandi. Einfalt verður að koma þessum upplýsingum á Intemetið, á sjón- varpsskjái á mótsstöðum og víðar og til fréttamanna. Framsíðarsýn er svo samanburður á árangri knapa og hests frá viku til viku eða yfir lengra tímabil Einfalt verður að skoða dóma hvers dómara fyrir sig og bera sam- an dómana. Við eram enn þá að skoða hvaða möguleikum við getum bætt við for- ritið og eigum meðal annars eftir að gefa þvi nafn. Það væri vel þegið ef fólk vildi senda okkur uppástungur um nafn í rafpósti en heimilisfangið er benony@mmedia.is,“ segja þeir félagar. -E.J. Erna Arnardóttir og Hinrik Gylfason hafa fiutt út hesta til Nýja- Sjálands í samvinnu viö Þjóöverja. DV-mynd Sv.Þ. Auglýsing um fasteignagjöld og sérstakan fasteignaskatt í Reykjavík árið 1998. Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík árið 1998 verða sendir út næstu daga ásamt gíró- seðlum vegna fyrstu greiðslu gjaldanna og umsóknareyðublaði vegna greiðslu gjalda með boð- greiðslum á greiðslukortum. Gjöldin eru innheimt af Tollstjóranum í Reykjavík, en einnig er hægt að greiða gíróseðlana í næsta banka, sparisjóði eða pósthúsi. Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, tunnuleigu/sorphirðugjald, vatnsgjald, sérstakan fasteignaskatt og holræsagjald. Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem fengu lækkun á fasteignaskatti og holræsagjaldi á liðnu ári hafa einnig fengið lækkun fasteignaskatts og holræsagjalds fyrir árið 1998. Vakin er sérstök athygli á að um er að ræða aukna lækkun í samræmi við ákvörðun borgarráðs frá 16. desember 1997. Framtalsnefnd mun yfirfara framtöl þeirra lífeyrisþega, sem ekki hafa fengið lækkun eða telja lækkunina ekki í samræmi við samþykkt borgarráðs frá 16. desember sl., þegar framtölin liggja fyrir, væntanlega í mars- eða aprílmánuði. Úrskurðar hún endanlega um breytingar á fasteignaskatti og holræsagjaldi hjá þeim sem eiga rétt á henni samkvæmt þeim reglum sem borgarstjóm setur, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga og 87. gr. vatnalaga nr. 15/1923 með áorðnum breytingum. Verður viðkomandi tilkynnt um breytingar ef þær verða. Viðmiðunargjald vegna fasteignaskatts og holræsagjalds fyrir árið 1998 em eftirfarandi: 100% lækkun Einstaklingar með (peninga) tekjur allt að kr. 800.000 Hjón " ........ kr. 1.120.000 80% lækkun Einstaklingar með (peninga) tekjur Hjón 50% lækkun Einstaklingar með (peninga) tekjur Hjón ............... kr. 800.000 til kr. 880.000 kr. 1.120.000 tilkr. 1.220.000 kr. 880.000 til kr. 970.000 kr. 1.220.000 til kr. 1.370.000 Til að flýta fyrir afgreiðslu geta þeir sem ekki fengu lækkun á s.l. ári, sent framtalsnefnd umsókn um lækkun ásamt afriti af skattaframtali 1998. Framtalsnefnd er til viðtals alla miðvikudaga kl. 16.00 til 17.00 á II. hæð Aðalstrætis 6, frá 14. janúar til 29. apríl 1998. Á sama tímabili verða upplýsingar veittar í síma 552-8050, alla þriðju- daga kl. 13.00 til 15.00. Vegna álagningar sérstaks fasteignaskatts á fasteignir sem nýttar em við verslunarrekstur eða við skrifstofuhald, ásamt tilheyrandi lóð, sbr. 1. nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga með síðari breytingum skulu eigendur fasteigna í Reykjavík senda skrá yfir eignir sem falla undir framan- greint ákvæði, ásamt upplýsingum um síðasta heildarfasteignamatsverð þeirra eða eftir atvikum kostnaðarverð. Ennfremur skal skrá þar upplýsingar um notkun þeirra svo og upplýsingar um rúmmál eigna sem einnig em notaðar til annars en verslunarreksturs og skrifstofuhalds. Upplýsingar skulu sendar til Skráningardeildar fasteigna, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík. Sérstök eyðublöð til að nota í þessu skyni munu liggja frammi hjá Skráningardeild fasteigna, en þau hafa einnig verið send til allra eigenda verslunar- og skrifstofuhúsnæðis í borginni, sem vitað er um. Vanræki húseigandi að senda skrá yfir eignir, sem ákvæði þetta tekur til, er sveitar- stjóm heimilt að nota aðrar upplýsingar til viðmiðunar við álagningu, þar til húseigandi bætir úr. Skráningardeild fasteigna, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík, veitir upplýsingar um álagningu gjaldanna, sími 563-2520. Gjalddagar ofangreindra gjalda 1998 em 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst. Borgarstjórinn í Reykjavík, 9. janúar 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.