Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1998, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1998, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998 trimm æ Fjölmennar Bjargvættir á Akureyri Brekkuhlaup Þarftu vinnufrið? Hlaupararnir í gamlárshlaupi ÍR í þann mund aö leggja af staö tilbúnir viö rásmarkið á síöasta degi nýliöins árs. Vissir þú ... að hér á landi er starfandi vandaður sálarrannsóknarskóli? ■ Vissir þú að hérlendis er starfræktur vandaður sálarrannsóknarskóli eitt kvöld í viku, eða eitt laugardagseftirmiðdegi í viku sem venjulegt fólk á öllum aldri sækir til að fræðast um flestöll dulræn mál og líkumar á lífi eft- ir dauðann? SimaÞlónustan <S2C 6123 http://www.mmedia.is/sima I dálkum trimmsíðunnar í síð- ustu viku var greint frá ijölmennum skokkhópi í Grafarvogi, þar sem 5-6 tugir manna æfa reglulega tvisvar í viku árið um kring. Líklegast er að það sé fjölmennasti skokkhópur landsins, sem æfir reglulega árið um kring, en á Akureyri er til mun stærri hópur skokkara, sem æfir að mestu að sumarlagi. Hjónin Ólafur Óskar Óskarsson íþróttakennari og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir meina- tæknir hafa veitt þessum skokkhóp- um forstöðu. „Þetta byrjaði þannig að við vorum 8 konur sem byrjuð- um að hlaupa saman sumarið 1993,“ sagði Aðalbjörg. „Það gekk mjög vel og næsta sum- ar á eftir ákváðum við Óli, að áeggj- an fólks úr líkamsræktarstöðinni Bjargi, að stjóma skokkhópi um sumarið. Við Ólafur höfðum sinnt leikfimikennslu að líkamsræktar- stöðinni Bjargi að vetrinum.“ Aðal- björg er ekki ókunnug hlaupum frá fyrri tíð, því hún keppti lengi í frjálsum íþróttum og er af mikilli íþróttafjölskyldu. Aðalbjörg er syst- ir Vésteins og Þráins Hafsteinssona. r A þriðja hundrað „Árið 1994 komu um 40 manns sem æfðu reglulega allt sumarið. Síðan hefur þetta verið stigvaxandi, árið 1995 fórum við að auglýsa eftir þátttakendum og hópurinn stækk- aði stöðugt. Síðastliðið sumar var hópurinn orðinn ansi stór, 250 manns og við urðum að skipta honum niður eftir getustigi fólks, í sjö hópa alls. Hóp- urinn er orðinn svo fjölmennur að við Ólafur höfum ekki getað sinnt honum ein. Viö emm nú orðin fjög- ur sem sinnum þjálfun Bjargvætt- anna, til viðbótar við okkur em það Karl Frímannsson íþróttafræðingur og Guðfmna Tryggvadóttir íþrótta- kennari. Af þessum sjö hópum vora 3 gönguhópar, einn byijendahlaupa- hópur, tveir miðjuhópar og einn hópur fyrir þá sem voru í toppæf- ingu. Þeir æfðu á mismunandi tím- um, en i hverri viku var þó einn að- altími og mættu í hann að jafnaði 150 manns í einu. Hlauparar hafa yf- irleitt farið í skokktíma sína frá þremur stöðum. Frá Glerársund- „Aðstæður til hlaups eru misjafn- ar í Reykjavík og á Akureyri. Hér í bænum er mjög mikið um brekkur og gerir það aðstæður mjög erfiðar til hlaups að vetri til, ef veturinn í ár er undanskilinn. í Reykjavík er mikið um upplýsta hlaupastíga og vegalengdir era allar miklu lengri og fleiri leiðir um að velja. Hins vegar hafa brekkurnar hér á Akureyri einnig jákvæðar hliðar, því hvergi komi betri brekkuhlauparar en einmitt hér frá Akureyri. Umsjón ísak Öm Sigurðsson Hluti af Hlaupa- og gönguhópnum Bjargvættum sem tók þátt í Akureyrarmaraþoni. Við eigum hér marga ágætis hlaupara sem hafa verið framarlega í landshlaupum, sérstaklega konurnar. Ein ung kona úr okkar hópi varð í öðra sæti í 10 km í Reykjavikur maraþoni síðastliðið sumar og konur í aldursflokknum 16-39 ára frá Bjargvættunum hafa yfirleitt verið nokkrar í fyrstu 10 sætunum í því hlaupi. Við áttum einnig karl í öðru sæti í aldurs- flokknum 50-60 ára. Bjargvættimar 'tT hafa einnig raðað sér í öll verð- launasætin í Akureyrar maraþoni á undanförnum áram og era nánast áskrifendur að þeim. Ólafur, eiginmaður minn, hefur einnig séð um þjálfun skokkhóps á Dalvík sem er ansi myndarlegur. Hann telur um 60 manns og á það sammerkt með Bjargvættunum að æfa nær eingöngu að sumarlagi. Sá hópur er kallaður ÓÓÓ-hópurinn í höfuðið á þjálfaranum og æfir 2-3 í viku,“ sagði Aðalbjörg. Þrír kennarar af fjórum síöastliöið sumar: Ólafur Óskar Óskarsson, Aöal- björg Hafsteinsdóttir og Guöfinna Tryggvadóttir. Á myndina vantar fjóröa þjálfarann, Karl Frímannsson. laug, Akureyrarsundlaug og einu sinni í viku frá Kjamaskógi. Æfing- in í Kjamaskógi fer þó að jafnaði mest í þrekæfingar. Við látum æf- ingarnar aldrei standa nema klukkustund í einu, en erum þó með aukatíma alltaf á laugardögum fyrir þá sem vilja hlaupa lengra en 10 kílómetra. Æfingamar í miðri viku miða alltaf við vegalengdir sem eru styttri en 10 km. Þessi hlaupahópur gengur undir nafninu Bjargvættir (Likamsrækt- arstöðin Bjarg) og starfar aðeins á sumrin. Hópurinn byrjar æfingar í miðjum maímánuði og Bjargvættir æfa reglulega fram að Reykjavíkur maraþoni sem er hápunktur ársins. Um 60 manns skiluðu sér í Reykja- víkur maraþon síðastliðið sumar úr þessum hópi. Bjargvættimir hafa nær algerlega haldið uppi þátttök- unni í Akureyrar maraþoni og hafa einnig verið fiölmennir í Mývatns maraþoninu. Bjargvættimar skipu- leggja einnig Jónsmessuskokk á hverju ári, eingöngu fyrir skokkara úr sínum hópi. Þátttákan í því hlaupi er jafnan góð og á eftir er far- ið í Þelamerkursundlaugina og borðað saman. Flestir skokkararnir í Bjargvætt- um era á aldrinum 25-40 ára en þó bæði yngra og eldra fólk. Sá elsti sem æfir reglulega er 55 ára. Aðeins lítill hluti hópsins æfir áfram yfir veturinn, á bilinu 10-20 manns,“ sagði Aðalbjörg. Gamlárshlaup IR1997 Gamlárshlaup ÍR fór fram i 22. skiptið þann 31. desember síðastlið- inn og hófst klukkan 13.00. Hlaupið var frá gamla ÍR-heimilinu við Tún- götu sama hring og hlaupinn hefur verið í öll skiptin eða niður Holts- götu að Ánanaustum, síðan hring um Selfiamarnes og til baka um Ægis- síðu og Suðurgötu og endað með spretti upp Túngötuna. Alls er leiðin tæpir 9,5 km. Veður var með ágætum eins og raunar hef- ur verið undanfarin ár og allar götur alauðar eins og að sumarlagi. Þátt- takan var góð en alls hlupu 275 manns sem er mesta þátttaka frá upphafi. Fjölgun frá síðasta ári var um 29. í fyrsta hlaupinu árið 1976 tóku 10 manns þátt og fiölgaði hægt fyrstu árin. Það var ekki fyrr en árið 1988 sem fiöldinn byrjaði að aukast að marki en frá 1994 hefur fiöldinn verið á þriðja hundraðið. Þátttakan er vitnisburður um það hversu stór hópur fólks hleypur orðið reglulega allt árið og er í formi til þess að hlaupa tæplega 10 km hlaup á miðj- um vetri. Daníel Smári Guðmundsson, Ár- manni, sigraði öragglega að þessu sinni og fékk tímann 31.52 en næstur var Finnbogi Gylfason FH með tím- ann 32.28 og Smári Björn Guðmunds- son FH á 31.47. Martha Emtsdóttir, ÍR, var ekki með að þessu sinni sök- um barneigna en systir hennar, Bryndís, sá til þess að sigursætið héldist innan fiölskyldunnar og vann öruggan sigur í kvennaflokki. Tími hennar var 37.11. Önnur varð Laufey Stefánsdóttir, FH, með 38.03 og þriðja skokkforkólfurinn Erla Gunnarsdótt- ir á timanum 40.16. Boðið var upp á sveitakeppni 5 manna sveita og varð sveit Ármanns í fyrsta sæti með þá Daníel Smára, Ingólf Geir Gissurarson, Hákon J. Ólafsson, Pétur Helgason og Torfa Leifsson innanborðs. Sveit FH varð í öðru sæti og sveit ÍR í því þriðja. -ÍS ■ Og vissir þú að í þessum skóla sem komið var á fót fyrir fjórum árum síðan hafa yfxr 600 ánægðir nemendur sótt fræðslu um flestar hliðar mið- ilssambanda við framliðna, um hvað álfar og huldufólk eru, - hvað ber- dreymi og mismunandi næmni einstaklinga eru, sem og fjölmörgu rann- sóknimar sem framkvæmdar hafa verið á þessum merkilegu hlutum í dag en alltof fáir vita yfirleitt um? ■ Og vissir þú að sálarrannsóknir Vesturlanda eru líklega ein af örfáum ef ekki eina fræðilega og vísindalega leiðin sem svarar mörgum ef ekki flest- um grundvallarspumingum okkar í dag um mögulegan sem og líklegan til- gang lífsins hér í heimi, sem venjulegt fólk langar alltaf að vita meira um? Efþií vissir það ekki, þá er svo sannarlega tími kominn til að lyfta sér upp eitt kvöld í viku eða eitt laugardagssíðdegi í viku í skóla sem hefur hófleg skólagjöld. Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar um skemmtilegasta skólann í hœnum í dag. Svarað er í síma skólans alla daga kl. 14-19. Kynningarfundur verður í skólanum í dag kl. 14, og á mánu dags- og þriðjudagskvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. /\ Sálarrannsóknarskólinn ' i - Mest spennandi skólinn í bænum - Vegmúla 2 s. 561 9015 & 588 6050 f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.