Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1998, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1998, Page 20
24 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 íþróttir unglinga .-íú tMMWÚMtn 5K,'tiK|(?iU«C Myndin er frá Grunnskólamóti Reykjavíkur 1997. Þetta eru krakkar úr Grafarvoginum sem stóöu sig mjög vel og koma áreiðanlega til með aö gera það aftur á morgun og fimmtudag, þaö kemur í Ijós. Búist er við mun meiri þátttöku núna en á síðastliðnu ári. Á laugardaginn kemur, 24. janúar, fer síðan fram Stórmót (R í frjálsíþróttum og er öllum þátttakendum grunnskólamótsins boðið á það til að fylgjast með hinu frækna afreksfólki sem þar verður saman komiö og flest er á heimsmælikvarða. f m 4 i it8h -tftá Kl Æk * ím i í * c fj|| t pH " . r J • fv* J Grunnskólamót Reykjavíkur í frjálsíþróttum 1998 hefst á morgun: Mótið er opið öllum Kolbrún Ýr og Þórður fá styrk DV, Akranesi: Á slðasta fundi íþróttanefndar Akraneskaupstaðar voru teknar fyrir beiðnir um ferðastyrki og úthlutun á afreksmannastyrk Akraneskaupstaðar. Nefndin mælti með að Þórður Emil Ól- afsson, íslandsmeistari í golfi 1997 og íþróttamaður Akraness sama ár, hlyti styrk að upphæð 100 þúsund krónur og að hinni ungu Kolbrúnu Ýr Krist- jánsdóttur sundkonu yrði einnig veittur styrkur vegna góðs árangurs á sl. ári, að upphæð 60 þús. krónur, þar sem hún stefhdi að þátttöku í Ólympíuleikunum í Sydney í Ástralíu árið 2000. Þá mælti nefndin með umsókn um ferðastyrk frá meistaraflokki kvenna vegna æfingaferðar til Englands eða Belgíu 3.-10. apríl næstkomandi og munu stelpurn- ar fá styrk í samræmi við reglur þar um. -DVÓ Borðtennis: Yfirburðir Víkinga Karlsson-mótið í borðtennis fór fram í TBR-húsinu sunnu- daginn 18. janúar. Keppt var í þrem unglingaflokkum, þar sem Víkingar höfðu mikla yfirburði og sigruðu í öllum flokkunum. í byrjendaflokki sigraði Björg- vin Þ. Kristjánsson félaga sinn úr Víkingi, 2-0. í flokki drengja, 14 ára og yngri, sigraði Matthías Stephen- sen, Vikingi, Tryggva Á. Péturs- son, 2-0, og i tvíliðaleik drengja sigruðu Óli Páll Geirsson og Tryggvi Rósmundsson Gunnlaug Guðmundsson og Matthías Stephensen í úrslitaleik, 2-1. Úrslit urðu annars sem hér segir: sem eru í 7.-10. bekk grunnskólanna Drengir - 14 ára og yngri: 1. Matthías Stephensen. 2. Tryggvi Á. Pétursson. 3.-4. Óli Páll Geirsson og Tryggvi Rósmunds- son. Allir í Víkingi. Tvíliðaleikur drengja: 1. Óli Páll Geirsson og Tryggvi Rósmunds- son. 2. Gunnlaugur Guðmundsson og Matthías Stephensen. 3. Ámi Traustason og Tryggvi Á. Pétursson. Allir Víkingar. Byxjendaflokkur: 1. Björgvin Þ. Krist- jánsson. 2. Davið Dav- íðsson. 3.-4. Árni Traustason. 3.-4. Hrafnkell Stefánss. Allir Víkingar. 2. flokkur pilta: 1. Ragnar Guð- mundss., Vík. 2. Óli P. Geirsson, Vík. 3.-4. Tryggvi Péturss., Vik. 3.-4. Sigr. Ámad., KR. Grunnskólamót Reykjavíkur, í frjálsum íþróttum, fyrir nema í 7.-10. bekk allra grunnskóla í Reykjavík fer fram í Laugardalshöll næstkomandi miðvikudag og fimmtudag, 21. og 22. janúar. Mótið er haldið í tengslum við Stórmót ÍR. sem fer fram nk laugardag á sama stað. Unglingasíða DV hafði sam- band við Þráin Hafsteinsson, frjáls- íþróttaþjálfara hjá ÍR, en hann er aðalhvatamaðurinn að grunnskóla- mótinu. „Mótið var haldið í fyrsta skipti í fyrra og var það í tengslum við innanhússmót ÍR og tókst mjög vel. Gmnnskólamótið er einstaklings- keppni og geta nemar skráð sig sjáífir, án þess að sérstakt lið frá skólanum taki þátt. En um leið er mótið liðakeppni milli skóla og em skólar sjálfkrafa þátttakendur um leið og þeir eiga keppendur sem fá stig. Með grunnskólamótinu er ætl- unin að gefa sem flestum tækifæri til þess að kynnast frjálsum íþrótt- um af eigin raun á jákvæðan hátt og taka um leið þátt í skemmtilegum leik og keppni. Keppnisgreinar Keppt er í fjórum einstaklings- greinum og einu boðhlaupi. Strákar keppa sér og stelpur sér. 50 metra hlaup: Átta keppendur í hverjum riðli og tíminn gildir til úrslita. 800 metra hlaup: Átta keppend- ur í hverjum riðli og tíminn gildir til úrslita. Hástökk: Hver keppandi má reyna þar til hann hefur fellt slána þrisvar í röð. Kúluvarp: Hver keppandi fær að kasta fjórum sinnum og lengsta kastið gildir. 5x50 m boðhlaup: Fimm kepp- endur í hveijum riðli og hleypur hver einn sprett á vellinum. Stigakeppnin Tuttugu bestu einstaklingarnir fá Guðmundur skoskur meistari Opna skoska meist- aramótið i borðtennis fór fram 17.-18. janúar síðastliðinn. íslandsmeist- arinn ungi, Guðmundur Stephensen, sýndi enn og Guömundur E. aftur styrk Stephensen sinn, því hann sigraði í unglingaflokki, 17 ára og yngri, sem er mjög glæsi- legur árangur, því keppnin var mjög hörö. Valsstrákarnir í 2. flokki stóðu sig mjög vel f innanhússmóti Reykjavfkur f knattspyrnu þvf þeir unnu til silfurverö- launa. Þeir léku úrslitaleik gegn Fram og töpuöu, 1-3. Framarar voru sterkari aðilinn f þeim leik en auðvitaö geta Valsstrákarnir miklu meira. Þeir komust bara aldrei almennilega í gang. stig sem hér segir: 1. sæti gefur 20 stig. 2. sæti gefur 19 stig. 3. sæti gefur 18 stig. Og koll af koOi en 20. sæti gefur 1 stig og 21. sæti þvi ekkert. Öllum boöið á Stórmót ÍR ÖUum þátttakendum verður boð- ið á Stórmót ÍR í LaugardalshöU- inni laugardaginn 24. janúar nk. þar sem margt af bestu fijálsíþróttafólki heimsins keppir við Jón Amar, Völu, Guðrúnu og fleiri. Þar verða heimsmeistarar innanhúss og utan í þraut, Dvorak, Zmelik og Huffins sem er í 4. sæti á heimslistanum. í stangarstökki kvenna ætlar heimsmethaflnn fyrrverandi, Bar- tova, aö reyna að endurheimta metið í keppni við Völu og Þóreyju Eddu. Kannski bætir Vala eigið heimsmet unglinga í í greininni. Það ætti því að vera lærdómsríkt fyrir þátttakendur í grunnskólamót- inu að fylgjast með keppni þessa hæfa íþróttafólks,“ sagði Þráinn Hafsteinsson. Þessir voru bestir f tvíliðaleik drengja á Karlsson-mótinu í borötennis. Frá vinstri: Gunnlaugur Guðmundsson, Matthías Stephensen, Óli Páll Geirsson, Tryggvi Rósmundsson, Tryggvi Pétursson og Árni Traustason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.