Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1998, Síða 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998
Fólk í fréttum
Helgi Laxdal Magnússon
Helgi Laxdal, vélfræðingur og for-
maður Vélstjórafélags íslands,
Hrauntungu 60, Kópavogi, hefur
verið í fréttum að undanfömu
vegna yfirvofandi verkfalls vél-
stjóra.
Starfsferill
Helgi fæddist að Syðri-Grund i
Grýtubakkahreppi við Eyjafjörð.
Hann lauk gagnfræðaprófi frá
Laugaskóla í Suður-Þingeyjarsýslu
1959, minna mótorvélstjóraprófi á
ísafirði 1%2, hóf nám við Vélskóla
íslands 1966, lauk þaðan 4. stigs-
prófi 1970 og lauk sveinsprófi í vél-
virkjun hjá Vélsmiðju Kristjáns
Gíslasonar 1973.
Helgi var matsveinn og vélstjóri á
skipum Gjögurs hf., Grenivík,
1960-71, starfaði hjá Vélsmiðju
Kristjáns Gfslasonar 1971-73, var
vélstjóri hjá Gjögri hf. 1973-75 og
starfaði hjá tæknideild Fiskifélags
Islands 1975-83.
Helgi var varaformaður Vél-
stjórafélags íslands 1978-82, hefur
verið formaður og aðalsamninga-
maður þess frá 1982, hefur verið
formaður Vélstjórasambands Norð-
urlanda, var varaforseti Farmanna-
og fiskimannasambands íslands um
skeið frá 1979 og starfaði tímabund-
ið sem forseti þess 1987-88, var einn
af stofnendum Starfsmannafélags
Fiskifélags íslands 1978 og síðar for-
maður þess til 1983, sat í Verðlags-
ráði sjávarútvegsins, auk þess sem
hann hefur starfað í fjölda nefnda
um sjávarútvegsmál, s.s. undan-
þágunefnd, ráðgjafarnefnd um
stjómun fiskveiða, setið í
stjóm Síldarverksmiðja
ríkisins, nefnd um fram-
tíðarskipan fjarskipta-
mála, í siglingamálaráði,
mönnunamefnd, öryggis-
fræðslunefhd sjómanna,
skólanefnd Vélskóla ís-
lands og fleiri nefndum.
Helgi hefur ritað grein-
ar um tæknileg efni og fé-
lagsmál í ýmis blöð og
tímarit.
Fjölskylda
Helgi kvæntist 10.6.1%2 Guðrúnu
Elínu Jóhannsdóttur, f. 4.8. 1943,
snyrtifræðingi og framkvæmda-
stjóra. Hún er dóttir hjónanna Jó-
hanns Friðbergs Bergvinssonar, b. á
Áshóli í Grýtubakkahreppi, sem nú
er látinn, og Sigrúnar Guðbrands-
dóttur húsfreyju.
Böm Helga og Guðrúnar em Ingi-
gerður Ósk, f. 11.5. 1%2, gift Gísla
Guðlaugi Sveinssyni, vélstjóra og
sölumanni; Jóhann Friðberg, f. 28.5.
1963, vélfræðingur og rafeinda-
tæknifræðingur í Danmörku, var
kvæntur Þórunni Gunnarsdóttur
skrifstofumanni en seinni kona
hans er Elna Einarsdóttir iðjuþjálfl;
Helgi Laxdal, f. 21.7. 1966, vélfræð-
ingur í Reykjavík, kvæntur Ámýju
Hálfdánardóttur verslunarmanni;
Guðný, f. 29.8. 1974, nemi í Reykja-
vík.
Systkini Helga: Sævar, f. 21.6.
1936, b. á Syðri-Grund í Grýtu-
bakkahreppi; Kristjana, f. 30.10.
1945, húsmóðir í Kópavogi; Jó-
hanna, f. 23.5. 1952, hús-
freyja í Ártúnum í Húna-
vatnssýslu.
Foreldrar Helga eru
Magnús Snæhjörnsson, f.
14.10. 1906, b. á Grund í
Grýtubakkahreppi, og
Guðný Laxdal, f. 6.7.1914,
húsfreyja.
Ætt
Helgi Laxdal Magnús er sonur Snæ-
Magnússon. bjamar, b. á Grund,
Helgasonar og Jóhönnu,
systur Auðar, móður Matthíasar
Bjamasonar alþingismanns. Jó-
hanna var einnig systir Sesselju,
móður Jóhannesar Stefánssonar,
fyrrv. forseta bæjarstjómar á Norð-
firði, föður Ólafs, blaðamanns við
Morgunblaðið. Jóhanna var dóttir
Jóhannesar, b. á Nolli á Svalbarðs-
strönd, Guðmundssonar, b. á Nolli,
Stefánssonar, b. í Fagrabæ, Eyjólfs-
sonar. Móðir Jóhönnu var Guðbjörg
Bjömsdóttir, b. í Pálsgerði, bróður
Guðrúnar, móður Hákarla-Jörund-
ar, afa Hreins, óperasöngvara og
forsfjóra Olís, og Gests leikara Páls-
sona.
Meðal móðursystkina Helga má
nefna Halldór heitinn Laxdal for-
stjóra, fóður Gríms forstjóra. Guðný
var dóttir Gríms Laxdal, hrepp-
stjóra í Nesi í Höfðahverfi, Helga-
sonar Laxdal, b. í Tungu og eins af
stofnendum KEA, Jónssonar Lax-
dal, skipstjóra á Neðri-Dálksstöðum,
bróður Guðrúnar, móður Jóns Lax-
dal tónskálds, afa Ragnars Amalds
cdþm. og Jóns Amalds héraðsdóm-
ara. Jón skipstjóri var sonur Grims
Laxdal, bókbindara á Akureyri,
Grímssonar, borgara í Reykjavík,
Jónssonar. Móðir Jóns skipstjóra
var Hlaðgerður Þórðardóttir, b. í
Hvammi undir Eyjafjöllum, Þor-
lákssonar Thorlacius, klausturhald-
ara í Teigi í Fljótshlíð, Þórðarsonar
Thorlacius, klausturhaldara í Teigi,
Brynjólfssonar Thorlacius, sýslu-
manns á Hlíðarenda, ÞórðcU'sonar,
biskups í Skálholti, Þorlákssonar,
biskups á Hólum, Skúlasonar. Móð-
ir Helga í Garðsvík var Elín Helga-
dóttir, prentara á Akureyri og í Við-
ey, Helgasonar, frá Rein á Akranesi,
og Guðrúnar, systur Jakobs, langafa
Vigdísar forseta. Guðrún var dóttir
Finnboga, verslunarmanns 1
Reykjavík, Bjömssonar og Amdísar
Teitsdóttur, vefara í Reykjavík,
Sveinssonar. Móðir Gríms i Nesi
var Guðný Grímsdóttir, b. í Garðs-
vík, Jóhannessonar og Sæunnar
Jónsdóttur, hafnsögumanns á Látr-
um, Jónssonar. Móðir Sæunnar var
Jóhanna Jóhannesdóttir, b. í Greni-
vík, Árnasonar. Móðir Jóhannesar
var Sigríður Sörensdóttir, b. á
Ljósavatni, Kristjánssonar og Guð-
rúnar Þorvaldsdóttur, af ætt Einars,
skálds í Heydölum.
Móðir Guðnýjar var Sigurdís
Bjamadóttir, b. í Saurbæ á Vatns-
nesi, Guðmundssonar, b. í Saurbæ,
Árnasonar, b. á Sigriðarstöðum,
Arasonar. Móðir Bjama var Ingi-
björg Pálsdóttir, b. á Gilsstöðum,
Snæbjörnssonar, b. á Gilsstöðum,
Snæbjörnssonar, prests í Gríms-
tungu, Halldórssonar, biskups á
. Hólum, Brynjólfssonar.
Afmæli
Þórunn Eiríksdóttir
Þómnn Eiriksdóttir húsmóðir,
Kaðalsstöðum H, Stafholtstungum á
Mýrum, er sjötug í dag.
Starfsferill
Þómnn fæddist að Hamri í
Þverárhlíð en ólst upp á Glitstöðum
í Norðurárdal. Hún stundaði nám
við Héraðsskólann í Reykholti frá
1944 og lauk þaðan landsprófl 1947
og stundaði nám við
Húsmæðraskólann í Varmcdandi
veturinn 1947-48.
Þórunn átti heima á Glitstöðum
og stundaði þar almenn sveitastörf
til 1951 en flutti þá að Kaðalsstöðum
og hefur átt þar heima síðan.
Þómnn var formaður Kvenfélags
Stafholtstungna í nokkur ár,
formaður Sambands borgfirskra
kvenna 1970-76 og sat í stjóm þess
til 1978 og sat í varastjórn
Kvenfélagasambands íslands
1979-85.
Þórann sat í skólanefnd
Bamaskóla Mýrasýslu að
Varmalandi 1961-82, í stjóm
Skógræktarfélags Borgarfjarðar í
tólf ár, hefur haft afskipti af
stjómmálum og nokkmm sinnum
átt sæti á framboðslistum
Alþýðubandalagsins við
alþingiskosningar, var varamaður í
bankaráði Búnaðarbankans 1979-85
og aðalmaður þar 1986-90.
Þórann ritaði sögu
Varmalandsskóla - 30 ára; sögu
Skógræktarfélags Borgarfjarðar, -
50 ára; sögu Sambands borgfirskra
kvenna og sögu Kvenfélags
Stafholtstimgna. Hún hefur skrifað
fiölda greina og fréttapistla í blöð og
tímarit. Auk þess flutti hún erindi
um endumýtingu á vegum margra
kvenfélaga, kvenfélagasambanda og
í útvarp á árunum 1983-85.
Fjölskylda
Þómnn giftist 19.8. 1949 Ólafi
Jónssyni, f. 24.2.1918, trésmið. Hann
er sonur Jóns Ólafssonar, bónda á
Kaðalsstöðum, og k.h., Ingibjargar
Þorsteinsdóttur
húsfreyju.
Börn Þórunnar og
Ólafs em Sigrún, f. 8.3.
1950, bankafulltrúi og
húsmóðir í Reykjavík,
gift Bjarna G. Ólafssyni
framkvæmdastjóra og
eru börn þeirra Margrét
Halla, f. 30.1. 1983 og
Ólafur Davíð, f. 12.8. 1986;
Unnur, f. 28.12. 1960,
sjúkraliði og bóndi á
Kaðalsstöðum, gift
Guðmundi K. Guðmundssyni,
rafvirkja og bónda, og em synir
þeirra Viðar, f. 20.2. 1982, og
Guðmundur Kristinn, f. 26.6. 1986;
Björk, f. 21.12. 1965,
leikskólakennari og háskólanemi,
búsett í Kópavogi, gift Kristjáni
Zóphoníassyni markaðsfræðingi og
er sonur þeirra Ingi Þór, f. 10.10.
1992.
Systkini Þómnnar em Guðrún, f.
31.10. 1930, starfsmaður við
Þórunn Eiríksdóttir.
Landspítalann, búsett í
Reykjavík, gift Sigurði
Kristjánssyni
trésmíðameistara;
Áslaug, f. 28.1. 1933,
bókavörður í Norræna
húsinu, búsett í
Reykjavík, en maður
hennar er sr. Ingólfur
Guðmundsson; Steinunn
Jóney, f. 26.10. 1934,
búsett i Langholti í
Bæjarsveit, en maður
hennar er Jón Blöndal
bóndi þar; Katrín Auður, f. 16.6.
1938, búsett á Glitstöðum i
Norðurárdal, en maður hennar er
Sigurjón Valdimarsson bóndi þar.
Foreldrar Þómnnar voruEiríkur
Þorsteinsson, f. 22.10. 1896, d. 22.7.
1991, bóndi á Glitstöðum, og k.h.,
Katrin Jónsdóttir, f. 2.3. 1899, d. 4.6.
1994, húsfreyja á Glitstöðum.
Þómnn er að heiman.
Ásgerður Karlsdóttir
Ásgerður Karlsdóttir,
starfsstúlka í borðsal á
Hrafnistu í Reykjavík,
til heimilis að Hraunbæ
120, Reykjavík, er fer-
tug í dag.
Starfsferill
Ásgerður fæddist á
Akranesi og ólst þar
upp fyrstu sex árin.
Hún flutti þá með fiöl-
skyldu sinni til Reykja-
víkur og ólst þar síðan
upp en í Reykjavík hef-
ur hún átt heima síðan.
Hún lauk gagnfræða-
prófi frá Breiðholtsskóla.
Ásgeröur Karlsdóttir.
Ásgerður vann á BSÍ
1973-79, hóf störf á
Hrafnistu í Reykjavík
1980 og hefur starfað
þar síöan.
Fjölskylda
Ásgerður giftist 22.2.
1986 Ragnari Gunnars-
syni, f. 3.2. 1956, blikk-
smiö. Hann er sonur
Gunnars Gíslasonar, f.
14.7. 1922, vélstjóra í
Reykjavík, og k.h.,
Bjargar Sigríðar Her-
mannsdóttur, f. 27.6.
1924, d. 30.4. 1990, húsfreyju.
Böm Ásgerðar og Ragnars em
Erla Ragnarsdóttir, f. 30.9. 1979,
nemi í Menntaskólanum við Sund,
en unnusti hennar er Amar Þór
Jónsson, starfsmaður við umbrot í
ísafoldarprentsmiðju; Amar Ragn-
arsson, f. 3.9. 1988, nemi í Árbæjar-
skóla.
Hálfsystir Ásgerðar er Elín Þóra
Geirsdóttir, f. 26.2. 1951, starfsmað-
ur við Sjúkrahúsið á Akranesi.
Alsystkini Ásgerðar em Valgerð-
ur Karlsdóttir, f. 14.3. 1955, banka-
maður í Reykjavík; Ásgeir Karls-
son, f. 25.11. 1956, lögreglufulltrúi í
Reykjavík; Marta Karlsdóttir, f. 4.1.
1963, kennari í Reykjavík.
Foreldrar Ásgerðar em Hannes
Karl Guðlaugsson, búfræðingur í
Hl hamingju
með afmælið
20. janúar
95 ára
Þórhildur Þorsteinsdóttir,
Staðarbakka,
Fljótshlíöarhreppi.
85 ára
Ingibjörg Bergmann,
Hnitbjörgum, Blönduósi.
Unnur Oddsdóttir,
Hofsvallagötu 15, Reykjavík.
80 ára
Magnús Kristinn
Jónsson,
fyrrv. vagnstjóri
hjá SVR,
Ásgarði 51,
Reykjavík.
Einar Einarsson,
Sléttuvegi 15, Reykjavík.
Ingibjörg S. Jóhannesdóttir,
Vogalandi 14, Reykjavík.
Jónlna Víglundsdóttir,
Reykjasíöu 18, Akureyri.
Lára Stefánsdóttir,
Miðvangi 22, Egilsstöðum.
Lilja Rögnvaldsdóttir,
Skíðabraut 13, Dalvík.
75 ára
HaUdór Sveinn Rafnar,
Snælandi 5, Reykjavík.
Sigríður M. Einarsdóttir,
Akurgerði 24, Reykjavík.
70 ára
Áslaug Ámadóttir,
Asparfelli 10, Reykjavík.
60 ára
Gnðrún Jóna Jónsdóttir,
Hamri, Vesturbyggð.
50 ára
Guðjón Ambjörnsson,
Hjallabraut 11, Hafnarfirði.
Guðrún Ásbjörg
Stefánsdóttir,
Sólgötu 4, ísafirði.
Kristbjörg Ingólfsdóttir,
Dalsgerði 5 H, Akureyri.
Pálína Sigurlaug
Jónsdóttir,
Bakkahlíð 6, Akureyri.
Rúnar Gíslason,
Áskinn 5, Stykkishólmi.
Signý Magnúsdóttir,
Bankastræti 14, Skagaströnd.
Sveinlaugur Hannesson,
Akurgerði 16, Vogum.
40 ára
Bima Guðrún
Konráðsdóttir,
Mávakletti 5, Borgamesi.
Elis Reynarsson,
Frostaskjóli 1, Reykjavik.
Kristján Sigurjónsson,
Álfheimum 58, Reykjavík.
PáU Lýður Pálsson,
Hraunbæ 140, Reykjavík.
Sigríður Bragadóttir,
Fjarðarstræti 59, ísafirði.
Ton Khorchai,
Skólagötu 4, Bakkafirði.
Reykjavík, og Sigríður Ásgeirsdótt-
ir húsmóðir.
----------7
Áskrifendur fá
W>% '
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
Smáauglýsingar
OV
550 5000