Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1998, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1998, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1998 Fréttir Sverrir Hermannsson undirbýr stofnun stjórnmálasamtaka: Nú verður dansinn stiginn - samstarf við Samtök um þjóðareign í haust Þeir Sverrir Hermannsson og Báröur Halldórsson munu á næstu misserum stíga saman dansinn í pólitíkinni. Stefnt er að framboði í ölium kjördæmum landsins. DV-mynd ÞÖK „Nú veröur dansinn stiginn held- ur lipurlega. Það er samt mikið eftir hjá okkur að slípa vopnin; brýna þau á ný og ná samhljómi í allri málafylgju. Mig grunaði nú ekki aö ég ætti þetta eftir en nú verður ekki undan merkjum hlaupist," sagði Sverrir Hermannsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, þar sem DV ræddi við hann á heimili hans í gær. Sverrir átti þar fund með Bárði Halldórssyni, varaformanni Sam- taka um þjóöareign, þar sem þeir fé- lagar báru saman bækur sínar. í loftinu liggur að Sverrir gangi til liðs við samtökin um framboð á landsvísu þar sem aöalmálið verður að afnema kvótakerfið og taka upp aðra stjórn á fískveiðum. Sverrir gjörþekkir til þeirra umsvifa sem fylgja kvótaeign útgerða eftir að hafa starfað sem aðalbankastjóri Landsbankans um árabil. Hann seg- ist hafa fengið mjög góð viðbrögð eft- ir að hann boðaði væntanlegt fram- boð og að síminn hafi varla stoppaö. Fjöldi fólks hafi lýst yfir stuðningi við baráttu sína. Hann sagðist sér- staklega fagna viðbrögðum á Vest- fjörðum þar sem mikil stemning er fyrir væntanlegu framboði. „Mér list vel á viðbrögð fólks fyrir vestan. Þama liggja mínar rætur og ég mun fljótlega fara vestur og hitta þetta fólk. Ég hef reyndar mestan hug á að fara til Vestfjarða og Aust- fjarða á næstunni," segir Sverrir. Davíð Oddsson, forsætisráðherra og fyrrverandi flokksbróðir Sverris, hefur varað fólk við því að taka mark á yfirlýsingum um stjóm- málaflokk frekar en öðmm yfirlýs- ingum, svo sem um haglabyssu, sem Sverrir taldi í samtali viö Bylgjuna réttast að draga upp. Sverrir segist mjög undrandi á fólki sem hafi kos- ið að taka þau orð hans bókstaflega þar sem þau hafí verið sögð i léttum dúr. Hann segist ekki undrandi á því þótt Davið kjósi að gera sem minnst úr væntanlegu framboði. „Ég er ekki viss um að í Davíðs spomm myndi ég gera mikið úr þessu. Ég er ekkert undrandi á hans viðbrögðum en mér finnst leiðinlegt að sjá hversu illa liggur á honum,“ segir Sverrir. Bárður Halldórsson segir að nú vinni menn að því að móta stefnu fyrirhugaðs framboðs. Hann segist reikna með að þvi ljúki í haust og þar með verði menn klárir í slaginn. Að- spurður um það hvað gerist ef kosið verði áður en kjörtímabilinu lýkur sagði hann að það tæki skamma stund að koma saman listum. „Það sem fyrir liggur nú er að samtökin munu halda áfram að safna liði og koma upp fótgönguliði. Það er líka unnið að riddaraliöinu og við geram okkur ljóst að við þurfum 100 manna forystusveit á landsvísu. Ef með þarf tekur aðeins viku að koma upp framboðslistum en að óbreyttu fer sú vinna fram í haust,“ segir Bárður. -rt Ryðgaðir landgangar á Keflavíkurflugvelli: Mikið happ að ekki varð stórslys - þar sem engir farþegar voru í landganginum sem féll niður Mikiö happ var að engir farþegar voru um borð í landgangi sem féll niður á Keflavíkurflugvelli um síðustu helgi. DV-mynd ÆMK „Þetta mál er í skoðun hjá Vinnueftirlitinu. Þetta er eitthvað sem á ekki að geta gerst. Það virðist hafa slitnað keðja sem er á milli mótors og burðarfótar. Spurningin er af hveiju þetta féll og við von- umst til að fá svör við því. Hingað er væntanlegur bandarískur verk- fræðingur í samráði við framleið- anda. Hann mun skýra þetta mál endanlega. Flugvallarstjóm hefur bmgðist mjög vel og fljótt við að leita sér upplýsinga og fá þennan aðila til landsins,“ segir Gestur Friðjónsson, umdæmisstjóri Vinnu- eftirlits ríkisins á Suðumesjum. DV leitaði álits hans vegna óhapps sem varð á Keflavíkurflug- velli um helgina þegar landgangur féll niður. Vinnueftirlitið er að rannsaka orsakir óhappsins. Það varð þegar verið var að keyra land- ganginn að þotu Atlanta-flugfélags- ins sem var nýlent. Engir farþegar vom um borð í þotunni, aðeins áhöfn. Sex landgangar em á Kefla- víkurflugvelli. Þeir vom framleidd- ir á ámnum 1986 og 1987. Sam- kvæmt heimildum DV hafa land- gangar þessir ekki reynst eins traustir og menn héldu í upphafi. „Þessir landgangar hafa illa þolað þetta veðurfar sem hér er. Þeir hafa ryðgað mikið vegna sandroks. Það kemur þó þessu óhappi ekki beint við. Það er mikið happ að ekkert fólk var i landganginum þegar hann féll. Þá hefði getað orðið stórslys. Það seg- ir sig sjálft þegar hlutur sem er tugir tonna að þyngd fellur," segir Gestur. Landgangar teknir í gegn „Það ryðgar allt í þessu sem ryðg- að getur enda er þetta allt úr svörtu stáli Við erum hins vegar að taka þessa landganga í gegn. Þaö er þeg- ar búiö að taka einn þeirra í gegn og hinir fimm em eftir. Þetta verða kostnaðarsamar framkvæmdir þó ég geti ekki nefnt neinar tölur í því sambandi. Það er þó ljóst að það verður að tryggja að landgangar þessir séu öryggir. Við höfum síð- ustu daga látið skipta um allar keðj- ur í öðrum landgöngum. Þetta óhapp um helgina er í rannsókn og þaö þarf að komast að því hvernig þetta gat gerst,“ segir Ómar Ingv- arsson, deildarstjóri á Keflavíkur- flugvelli, aðspurður um málið. -RR Þau vilja að þingskipuð rannsóknarnefnd fari ofan i Landsbanka- og Lindarmálin. Kristín Ástgeirsdóttir, Sighvatur Björgvinsson, Margrét Frímannsdóttir og Guðný Guðbjörnsdóttir. DV-mynd GVA. Landsbanka- og Lindarmál: Stjórnarandstaðan vill rannsóknarnefnd Formenn og þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokkanna á Al- þingi og Kristín Ástgeirsdóttir munu i dag leita afbrigða á Alþingi til að fá tekna til umræðu og af- greiðslu þingsályktunartillögu um að skipuð verði rannsóknamefnd samkvæmt 39. grein stjómarskrár- innar. Nefndin á að fjalla um mál- efni Landsbanka íslands og sam- skipti framkvæmdavaldsins og Al- þingis. Þingmennimir kynntu frétta- mönnum tillöguna í gær og sögðu að hlutverk nefndarinnar sem þau vilja skipa í verði einkum það að fjalla um þau mál sem leiddu til af- sagnar þriggja bankastjóra Lands- bankans í apríl sl„ um málefni Lindar haf., einkum hvers vegna ekki var orðið við ábendingum Rík- isendurskoðunar fyrir tveimur ámm um opinbera rannsókn á mál- efnum Lindar. í þriðja lagi skal nefndin rannsaka samskipti við- skiptaráðherra viö Alþingi þar sem ráðherrann ýmist flutti þinginu rangar upplýsingar eða leyndi því upplýsingum. Kristín Ástgeirsdóttir sagði að nauðsynlegt væri að skoða þessi mál af heiðarleika ofan í kjölinn. Þá væri nauðsynlegt að styrkja eftir- litsþátt Alþingis með framkvæmda- valdinu. Þar væri við ramman reip að draga eins og fjölmörg dæmi hefðu verið um en teikn væm á lofti um breytingar. „Það hafa vissulega veriö stigin skref í rétta átt og það sem er að gerast hér er m.a. vegna þess að upplýsingalögin eru komin til sögunnar, umboðsmaður Alþing- is og fleiri slíkir aðilar," sagði Krist- ín Ástgeirsdóttir. -SÁ Stuttar fréttir i>v Finnur á móti nefnd Finnur Ingólfsson viðskipta- ráðherra er andvígur hug- mynd stjórnar- andstöðtmnar um að stofna sérstaka rann- sóknarnefnd í Landsbanka- málum sem starfi í sumar og skili af sér í haust. RÚV greindi frá. Tölvunefnd gagnrýnd Nokkrir læknar sem starfa að rannsóknum í samvinnu við ísl. erfðagreiningu gagnrýna harð- lega vinnubrögð Tölvunefndar og segja að aðgerðir hennar gegn fyrirtækinu vegi að rótum læknisfræðirannsókna á ís- landi. Loðnuveiðar Byrja má loðnuveiðar 20. júni samkvæmt tilkynningu frá sjáv- arútvegsráðuneytinu. Bráða- birgðakvóti hefur verið ákveðinn 950 þúsund lestir og er hlutur ís- lands í honum 680.200 lestir auk 8.000 lesta af kvóta Grænlend- inga. Námsritgerð Lögreglan í Reykjavík segir að svarta skýrslan um eiturlyfja- neyslu í höfuðborginni, sem birt var á dögunum, hafi verið eins konar námsritgerð sænsks lög- reglulærlings sem hér dvaldi í vetur og vor. Aðferðafræði við gerð hennar hafi verið ófullkom- in. RÚV sagði frá. Skjálftar við Hengil Jarðskjálftahrina gekk yfir Hengflssvæðið í gær og nótt. Stærstu skjálftamfr reyndust 3,7 Richterstig. Sumarbústaðir vest- ast í Grímsnesi skulfu. Hjörvar á spjallrás Helgi Hjörvar, efsti maður R- listans, verður á spjallrás Vísis í dag frá kl. 16.00-18.00 og gefst netverjum þar kostur á að leggja fyrir hann spumingar um hvaðeina. Efast um sólu Kristján Þór Júlíusson, nýr bæjarstjóri Akureyrar, kveðst vflja fara varlega í að selja hlutabréf bæjarins í Útgerðarfé- lagi Akureyringa en var ákveðnari í því efni í kosninga- baráttunni. Hann segir megin- efni nýs meirihluta Sjálfstæðis- flokks og Akureyrarlista að efla atvinnulífið í bænum. RÚV sagði frá. Snjóflóðavarnir Bæjarstjórn Neskaupstaðar samþykkti á síðasta fundi sínum einróma að byggja upp snjóflóða- varnir ofan við bæinn. Gert er ráð fyrir að þær kosti um 600 milljónir króna. Keikó að ferðbúast Stöð 2 sagðist í gærkvöldi hafa heimildir fyrir því að búið væri að ákveða að senda háhyrning- inn Keikó til íslands. Allar upp- lýsingar um heilsufar dýrsins liggi nú fyrir og hafl verið send- ar yfirdýralækni. Veiðiheimildir lækkaðar Veiðiheimildir þeirra síld- veiðiskipa, sem ekki hafa byijaö síldveiðar fyrir 11. júni, verða lækkaðar og veiðiheimildum þeirra endurúthlutað. Heimildir þeirra skipa, sem ekki voru byrj- uð veiöar 2. júní, eru um 19 þús- und lestir. Óttast ekki klofning Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæöis- flokksins, segist við Morgun- blaðiö ekki ótt- ast að verið sé að mynda klofningsbrot með fyrirhug- uðu framboði Sverris Hermannssonar. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.