Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1998, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1998
Fréttir
Hagkaupi skipt í tvennt:
Félagið opnað og
eignarhaldi breytt
- Nýkaup verður eitt og Hagkaup annað
Óskar Magnússon, framkvæmdastjóri Hagkaups hf., og Siguröur G. Pálmason, stjórnarformaöur fyrirtækisins,
kynntu breytingar á rekstrarfyrirkomulagi fyrirtækisins á blaðamannafundi í gær. DV-mynd Teitur
„Það er löngu orðið ljóst að opna á
félagið og setja það á hlutabréfa-
markað,“ sagði Sigurður Gísli
Pálmason, stjómarformaður Hag-
kaups, um þær breytingar sem gerð-
ar hafa verið á rekstrarfyrirkomu-
lagi Hagkaups og kynntar voru í gær.
Breytingamar fela í sér að Hagkaup
verður nú tvær sjálfstæðar verslana-
keðjur, Nýkaup og Hagkaup. Ný-
kaupi er ætlað að vera hverfisbundn-
ar verslanir sem einkum munu hafa
matvörur og helstu lifsnauðsynjar á
boðstólum. Hagkaup mun hins vegar
hafa aukið framboð sérvöra. Sigurð-
ur vildi ekki kannast við að rekstrar-
breytingamar væra gerðar með yfir-
vofandi eignarhaldsbreytingar í
huga: „Nei, þessar aðgerðir era ekki
gerðar í þeim tilgangi. Hér er einung-
is stefnt að því að fyrirtækið verði
öflugra og verðmeira. Eflaust verða
þó einhver tíðindi fyrr eða síðar.“
Eigendur Hagkaups eiga nú í viðræð-
um við Fjárfestingarbanka atvinnu-
lifsins og Kaupþing um sölu á eignar-
hlut í félaginu.
Verð lækkar í dag
Að sögn Óskars Magnússonar,
framkvæmdastjóra Hagkaups hf.,
mun verð í verslunum Hagkaups
lækka með tiikomu Nýkaups: „Við
stefnum að því að Hagkaup verði
nokkurs konar milliverðsverslun.
Um hvort við séum með þessu að
fara út í harðari samkeppni við Bón-
us þá tel ég ekki hægt að bera þessar
verslanir saman. Sú þjónusta sem
við bjóðum er allt önnur.“
Verð í Nýkaupi er ekki gefið upp
sem stendur en verslanakeðjan hóf
starfsemi sina klukkan 10 í morgun.
Ljóst er að það mun þó vera hærra
en í Hagkaupi.
í tilefhi breytinganna hafa tveir
nýir framkvæmdastjórar verið ráðn-
ir til starfa. Jón Bjömsson verður
framkvæmdastjóri Hagkaups en
Finnur Ámason gegnir sömu stöðu
hjá Nýkaupi.
-kjart
Kári Stefánsson, forstjóri IE:
Tölvunefnd fer offari
„Mér finnst Tölvunefnd hafa
komið fram af meiri hörku í þessu
máli en efni standa til,“ voru orð
Kára Stefánssonar, forstjóra ís-
lenskrar erfðagreiningar, um tíma-
bundið bann sem nefndin hefur sett
við rannsóknum í útibúi fyrirtækis-
ins í Nóatúni. Forsaga málsins er sú
að í apríllok opnaði ÍE þjónustumið-
stöð í Nóatúni þar sem 70 læknum
fyrirtækisins var búin aðstaða til
rannsókna. Þangað komu þátttak-
endur í ýmsum rannsóknum til
töku blóðsýna o.fl. og bar ÍE kostn-
að allan af rannsóknunum.
í skilmálum þeim sem Tölvu-
nefnd setti starfseminni fólst m.a.
að samstarfslæknar ÍE bæra ábyrgð
á nafnleynd og trúnaði þeirra og
starfsmenn ÍE ynnu ekki með per-
sónugreindar upplýsingar um sjúk-
linga. Því var hins vegar ekki sinnt
og öll vinnsla viðkomandi gagna
bönnuð fram til 20. júní.
„Við höfum ekki verið að vinna
með nein persónugreind gögn í
rannsóknum okkar hér í Lynghálsi.
Öll þau gögn sem hafa borist hingað
upp eftir hafa verið dulkóðuð og
starfsmenn okkar ekki unnið með
þau öðruvísi. Varðandi það hvort
starfsfólk okkar hafi komið að slík-
um gögnum í Nóatúni þá vil ég taka
fram að þeir lutu ekki boðvaldi okk-
ar þó að við höfum greitt þeim laun.
Ég tel þetta mál fyrst og fremst
varða þau formlegu skil sem voru á
milli fyrirtækisins hér í Lynghálsi
og þjónustumiðstöðvarinnar í Nóa-
túni. Ég vil benda á að öll okkar
rannsóknarstarfsemi miðast við að
unnið sé með ópersónugreindar
upplýsingar.“
Kári sagðist enn fremur allt til
vinna að samskipti Tölvunefndar og
ÍE gengu snurðulaust fyrir sig. „Ég
hef þegar rætt við Þorgeir Örlygs-
son, formann Tölvunefndar, vegna
þessa máls og við erum fernir að
huga að lausn málsins. Meðal þess
sem kemur til greina er að stofna
sjálfseignarstofnun um starfsemina í
Nóatúni þannig að ekki leiki vafi á
sjálfstæði starfsmanna hennar. Við
Kári Stefánsson.
höfum allt að vinna við að fara eft-
ir skilmálum um persónuvernd en
öllu að glata ef við gerum það ekki.“
-kjart
Danskur lomber með Emú
Sverrir Hermannsson lúrir sannarlega á fleiri
vopnum í safni sínu en gamalli hákarlaskálm að
vestan og lúinni haglabyssu. Á hinum siðustu og
verstu tímum eru engin vopn eins beitt og
upplýsingar, sér í lagi þær sem koma öðram illa
og menn vilja því helst að enginn komist i. Af
þeim á karlinn digran sjóð.
Síðan Sverrir hrökk úr bankanum hefur hann
setið við símann á heimili sínu í Vesturbænum
og mylgrað í þjóðina upplýsingum úr því
ótæmandi safni sem hann virðist búa yfir um
skandala Framsóknarílokksins.
í samvinnu við Moggann hefur Sverrir leitt
rök að því að einn þingmaður flokksins hafi
stolið heilu fyrirtæki af ríkinu. Hann upplýsti
jafnframt að hlaupastrákur úr flokknum týndi
með aðstoð vina sinna nálægt milljarði fyrir
Landsbankanum og var verðlaunaður fyrir vikið
með því að verða sérstakur fjármálaráðgjafi
utanríkisráðuneytisins. Finni sjálfum þurfti ekki
einu sinni að sýna haglabyssuna. Sverrir lét bara
fyrram stelpu úr Framsókn sjá um að husla
leifamar.
Nú er röðin komin að hinum bænheita
formanni bankaráðsins. Sverrir hefur upplýst að
formaður bankaráðsins hafi verið sérstakur
áhugamaður um Emú, hið nýja myntbandalag
Evrópu, og kynnt sér það sérstaklega með
feröum til útlanda. Meðal annars farið í þeim
tilgangi kynnisfór í ríki Margrétar Þórhildar
Danadrottningar. Þangað fór einnig annar
guðsmaður á sínum tíma, Eiríkur frá Brúnum, og
lenti í upplifelsi ævi sinnar þegar hann fékk að
spila tveggja manna lomber næturlangt við
stássmey og galt fyrir eina spesíu.
Að sögn Sverris kom í ljós innan bankans að
formaður bankaráðsins hafi á ferðalagi sínu í
fótspor Brúnabónda komist að þeirri niðurstöðu
að Emú væri alls ekki myntbandalag, heldur
dönsk portkona sem aukinheldur stundaði
mikil og góð viðskipti við íslendinga!
Nú þykir það að sönnu ekki saknæmt á
íslandi þó menn lendi í röngu skipsrúmi eins
og eina nótt og hefur heldur þótt
karlmennskubragð fyrir vestan. Þó má vera að
innan Krossins sigi einhverjum larður kæmi í
ljós að Sverrir hefði á réttu að standa um að
sendimenn bankaráðsins hefðu í misgáningi
lent í því að spila danskan lomber.
Málið þarfnast þvi bráðra skýringa. Á hvers
konar spori lenti formaður bankaráðsins
þegar hann kynnti sér Emú? 1 hvaða banka
var það? Nú vill svo til að um þetta þurfa
menn ekki að ganga gruflandi. Um allar reisur
á sínum vegum lætur Landsbankinn nefnilega
gera ítarlegar skýrslur.
Siðprúðar konur á þingi hljóta því þegar í
stað að krefjast þess fyrir hönd þjóðarinnar að
að sett verði rannsóknarnefnd í málið og
skýrslumar um Emú verði gerðar opinberar.
Það þarf að upplýsa öll smáatriði í samskiptum
Landsbankans og Emú hinnar dönsku. Með
skírskotun til hinnar sögulegu geymdar og Eiríks
frá Brúnum er þó einkum brýnt að upplýsa um
eftirfarandi:
Kann Emú að spila lomber?
Dagfari
Stuttar fréttir r>v
Ráðherraheimsókn
Forsætisráðhen-a Litháens,
Gediminas Vagnorius, og eiginkona
hans koma við hér á landi nk.
sunnudag og mánudag á leið sinni
til Bandaríkjanna. Davíð Oddsson
forsætisráðherra og frú hafa boðið
ráðherrahjónunum til kvöldverðar á
Þingvöllum á sunnudag.
Raðganga arkitekta
í raðgöngu Arkitektafélags ís-
lands, sem staðið hefur þessa viku,
verður í kvöld gengið um Breið-
holtshverfi og fjallað um breyttar
áherslur í skipulagi Reykjavíkur á
árunum eftir 1960. Gangan hefst við
Breiðholtsskóla kl. 20.
Lifeyrisbók
Verðbréfamarkaður íslandsbanka
hefur gefið út bók um lífeyrismál. í
henni era upplýsingar um nýju líf-
eyrislögin sem taka gildi í næsta
mánuði, um tryggingavemd og þjón-
ustu við fyrirtæki og launagreiðend-
ur. Bókin er fáanleg hjá VÍB á
Kirkjusandi.
Einar Gylfi endurkjörinn
Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur
hefur verið end-
urkjörinn for-
maður samtak-
anna Bamaheilla
á þriðja lands-
þingi samtak-
anna nýlega.
Aðrir í sijóm era
Sólveig Ásgríms-
dóttir varaformaður, Áslaug Brynj-
ólfsdóttir, Guðbjörg Bjömsdóttir,
Hrefna Friðriksdóttir, Sigríður
Traustadóttir og Ingvi Hagalínsson.
Banki í búð
Sparisjóöur Reykjavíkur og ná-
grennis mun opna útibú í nýrri Hag-
kaupsverslun í Smáranum 1 Kópa-
vogi. Afgreiðslutími útibúsins verð-
ur sá sami og verslunarinnar. Við-
skiptavefur Vísis sagði frá.
Burðarás kaupir í HB
Burðarás, eignarhaldsfélag Eim-
skipafélagsins, hefur keypt 1,4%
hlutabréfa í Haraldi Böðvarssyni hf. á
Akranesi. Félagið á nú 10,2% í fyrir-
tækinu. Hlutabréfin vom keypt á
genginu 5,8 fyrir 87 milljónir króna.
Viðskiptavefur Vísis sagði frá.
Stjórnarformaöur fer
Sigiujón Benediktsson, sfjómarfor-
maður Fiskiðju-
samlags Húsavík-
ur, og Björg Jóns-
dóttir meðstjóm-
andi hafa sagt sig
úr stjóm í kjölfar
bæjarstjórnar-
kosninganna.
Viðskiptavefur
Vísis sagði frá.
12,3 milljarða halli
Halli á vöraskiptum við útlönd
fyrstu fjóra mánuði ársins varð 12,3
milljaröar króna samkvæmt yfirhti
Hagstofu íslands en þau vom hag-
stæð um 4,3 milljarða á sama tíma í
fyrra. Viðskiptavefúr Vísis sagði frá.
Nýr bæjarstjóri
Halldór Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri
Fjórðungssam-
bands Vestfjaröa,
verður næsti bæj-
arstjóri ísafjarð-
arbæjar. Þetta
varð ljóst eftir að
Sjálfstæðisflokk-
ur og Framsókn-
arflokkur undirrituðu málefna-
samning um meirihlutasamstarf á
kjörtímabilinu.
Vi{l láta flauta
Fi'iörik Ó. Friðriksson, námsmað-
ur í Ósló, hefur lagt til við sjávarút-
vegsráðuneytið og samtök sjómanna
og útgerða að allur íslenski skipa-
stóllinn verði látinn flauta kl. 14.00 á
sjómannadaginn, hvar sem skipin
verða þá stödd. Þetta verði gert til að
minna á tengsl þjóðarinnar við sjó-
inn og í tilefni af ári hafsins sem nú
stendur yfir.
Ráöherra frá Andorra
Forsætisráðherra Andorra, Marc
Fomé Molné, og eiginkona hans
koma í opinbera heimsókn til ís-
lands sunnudaginn 7. júní og dvelja
hér á landi fram á miövikudag. -SÁ