Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1998, Side 14
14
FIMMTUDAGUR 4. JUNÍ 1998
Frjálst, óháð dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóran JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVlK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk„ Helgarblað 220 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Jeltsín syrgir óháða fjölmiðla
Jeltsín Rússlandsforseti sagði á fundi í Moskvu í fyrri
viku með ritstjórum fjölmiðla frá mörgum löndum, að
fjármálafurstar hefðu þar í landi að nokkru tekið við
fyrra ritskoðunarhlutverki stjórnvalda á sovéttímanum.
Taldi hann þetta einnig vera vestrænan vanda.
Austurrískur talsmaður viðstaddra tók að nokkru
undir sjónarmið Jeltsíns. Sumir fjölmiðlar á Vesturlönd-
um eru smám saman að breytast úr fjölskyldufyrirtækj-
um í opin fjölmiðlunarfélög og síðan að renna inn í fjöl-
greinasamsteypur, jafnvel á alþjóðavettvangi.
Kunnugt er, að flölmiðlar í eigu íjármálafurstans
Rupert Murdoch, þar á meðal Times, eiga erfitt með að
Qalla á málefnalegan hátt um Kína, af því að það kynni
að setja hagsmuni hans í Kína í hættu. Er þó veldi hans
enn sem komið er takmarkað við fjölmiðlun eina.
Atburðarás íjölmiðlunar hefur verið hröð í Rússlandi
á þessum áratug. Stýring stjórnvalda hrundi snögglega
og tugþúsundir fjölmiðla blómstruðu. Á sama tíma náðu
fjármálafurstar tökum á framleiðslutækjum ríkisvalds-
ins, mynduðu samsteypur og keyptu fjölmiðla.
Rússnesku samsteypumar eiga banka, olíufélög, fjöl-
miðla og margt annað. Víðtækir hagsmunir þeirra á
ýmsum sviðum atvinnulífsins hafa mikil áhrifa á inni-
hald fjölmiðla, svo sem fram hefur komið í aðdraganda
kosninga. Þær eru orðnar ríki í ríkinu.
Eðlilegt er, að spurt sé, hvort Rússland sé á einum ára-
tug að stökkva yfir tímabil, sem hefur staðið nokkra ára-
tugi á íslandi og nokkrar aldir í Bandaríkjunum, þar sem
það hefur staðið lengst á Vesturlöndum. Þetta er tímabil
óháðra fjölmiðla, tímabil Washington Post.
Tiltekin dæmi sýna, að hætta er á ferðum, þegar ann-
að hvort gerist, að áður óháðir fjölmiðlar renna inn í
samsteypur á öðrum sviðum atvinnulífsins eins og hefur
gerzt í Rússlandi eða þenjast út fyrir landamæri ein-
stakra ríkja, svo sem hjá Murdoch fjármálafursta.
Til skamms tíma var talið, að lesendur, hlustendur og
áhorfendur mundu sjá um, að þetta gerðist ekki. Fjöl-
miðlar mundu glata trausti notenda sinna, ef þeir færu
að þjóna öðrum hagsmunum en þeirra. Nú eru margir
famir að efast um, að notendur axli þetta hlutverk.
Misnotkun Murdochs á Times hefur ekki skaðað blað-
ið að ráði í samkeppninni við önnur blöð. Misnotkun
rússneskra fjármálafursta á sjónvarpsstöðvum þar í
landi hefur lítil áhrif haft á notkun stöðvanna. Notendur
virðast ekki vilja taka að sér eftirlitshlutverkið.
Þetta er mikilvæg orsök ferilsins, sem felst í, að
minnkandi gengi ríkisvaldsins í lýðræðisríkjum leiðir
ekki til vaxandi gengis kjósenda, heldur hagsmunaaðila,
ekki bara fjármálafursta, heldur einnig samtaka og stofn-
ana af ýmsu tagi, sumpart utan og ofan landamæra.
Eins og Davíð er Jeltsín að reyna að sveigja fféttaflutn-
ing sjónvarpsstöðva að pólitískum hagsmunum, svo sem
fram hefur komið í tengslum við verkfallsaðgerðir námu-
manna. Komið hefur í ljós, að báðir hafa þeir misst tök-
in, Jeltsín í hendur fjármála- og mafíufursta.
í Rússlandi og sums staðar á Vesturlöndum eru að
mótast nýjar og áður óþekktar aðstæður í fjölmiðlun,
sem kalla á ný form og nýjar leikreglur. Hver verður
hlutur notenda, þegar furstar stjómmála, fjármála og
glæpa taka saman höndum um að villa fólki sýn?
Hitt er svo ljóst, að almenningur getur sjálfum sér ein-
um um kennt, sé farið að síga á efri hluta Washington
Post tímabils vestrænnar og óháðrar flölmiðlunar.
Jónas Kristjánsson
Aö sögn greinarhöfundar er fólki á landsbyggðinni auöveldaö aö leita sér framhaldsmenntunar með fjarvinnslu.
Múrar fjarlægðar-
innar brotnir niður
Sú ákvörðun að
hefla f]arkennslu í
hjúkrunarfræði á ísa-
firði eru einhver
ánægjulegustu tíðindi
sem orðið hafa hjá okk-
ur á Vestfjörðum um
langa hríð. Með þessari
ákvörðun eru brotnir
niður þeir múrar fjar-
lægðarinnar sem hafa
staðið í vegi fólks á
landsbyggðinni sem
hefur viljað leita sér
framhaldsmenntunar,
einkanlega á háskóla-
stigi.
Það fór ekkert á
milli mála að þessum
tíðindum var fagnað á
Vestfjörðum. Strax og
samningurinn á milli
Vestfirðinga og Háskól-
ans á Akureyri var
staðfestur með undir-
skrift lá fyrir að sex
vestfirskar konur
höf'ðu ákveðið að hefja
þetta nám. Síðan hefur
það gerst að áhugi hef-
ur aukist á málinu og
eftir því sem ég hef
upplýsingar um liggur
fyrir að fleiri verða
með frá byrjun. Meðal
annars hefur þessi
samningur um fjamámið orðið
þess valdandi að fólk sem sá ekki
aðra möguleika en að hverfa frá
Vestfjörðum til þess að afla sér
menntunar getur nú sótt námið
frá heimabyggð sinni á ísafirði.
Jafnvel standa vonir til þess að
fólk hyggist flytja vestur beinlínis
vegna þess aö þessi námsmögu-
leiki er að opnast.
Þáttaskil
Þetta er gríðarlega mikilvægur
áfangi og í rauninni þáttaskil í
Kjallarinn
Einar K.
Guðfinnsson
alþingismaöur
þeirri byggðamála-
umræðu sem fram
hefur farið óslitið
um langa hríð.
Ástæða er þess
vegna að fagna því
táknræna frum-
kvæði sem Vestfirð-
ingar með forystu-
mönnum Háskólans
á Akureyri hafa
sýnt i þessu máli.
Það era auðvitað
hinar miklu fram-
farir í fjarskipta-
málunum sem eru
að opna þessa
möguleika. Kennsl-
an mun fara fram
með aðstoð gagn-
virks sjónvarps.
Kennari við Há-
„Meðal annars hefur þessi samn-
ingur um fjarnámið orðið þess
vaidandi að fólk sem sá ekki aðra
möguleika en hverfa frá Vest-
fjörðum til þess að afla sér
menntunar getur nú sótt námið
frá heimabyggð sinni á ísafirði.“
skólann á Akureyri kennir nem-
endum á Akureyri og ísafirði
samtímis. Nemendurnir vestra
hafa samskipti við kennarann í
gegnum sjónvarpsskjá þar sem
þeir geta fylgst með fyrirlestrin-
um, öllu myndefni sem kennarinn
notar við störf sín og tekið virkan
þátt í umræðum, til jafns við þá
nemendur sem í skólastofunni
sifja fyrir norðan.
í samræmi við stefnumótun
Ástæða er til þess að vekja at-
hygli á því að þetta framtak sem
nú er að verða að veruleika er
mjög í samræmi við það sem seg-
ir í byggðaáætluninni sem forsæt-
isráðherra hefur lagt fyrir Alþingi
en þar segir meðal annars svo:
„Möguleikar fjarkennslu verði að
fullu nýttir.... Menntun á háskóla-
stigi verði tekin upp þar sem kost-
ur er, meðal annars með samning-
um á milli framhalds- og háskóla.
... Á Austurlandi og Vestfjörðum
verði nám á háskólastigi i boði
svo fljótt sem verða má“.
Það er einnig rétt að minna á að
eitt af fyrstu verkum Björns
Bjamasonar menntamálaráðherra
var að hefja mótun stefnu um
menntun, menningu og upplýs-
ingatækni sem nefnd var „í krafti
upplýsinga“. Þar er sérstaklega
áréttað mikilvægi þess að mennt-
i un með fjarkennslusniði
verði efld. Skuli það jafht
gilda um hefðbundið nám og
endurmenntun. „Fjar-
kennsla með rafrænum sam-
skiptum er góð leið til að
jafna aðstöðu til náms hvar
svo sem menn hafa búsetu“,
segir meðal annars í þessu
ágæta riti.
Gott fordæmi
Með framtaki sínu á þessu
sviði era Vestfirðingar og
forsvarsmenn Háskólans á Akur-
eyri því í raun að hrinda í fram-
kvæmd stefnumótun menntamála-
ráðherra og forsætisráðherra. Á
því leikur enginn vafi að við þetta
frumkvæði binda menn miklar
vonir. Þess verður að vænta að
þetta verði upphafið að frekari
þróun á þessu sviði. Háskólinn á
Akureyri hefur með þessu fram-
kvæði sínu gefið fordæmi sem
aðrir skólar og þá sérstaklega Há-
skóli íslands hljóta að fylgja.
Einar K. Guðfinnsson
Skoðanir annarra
Lánasjóðurinn
„Það er ekki í samræmi við verðlags- og launaþró-
un í landinu undanfarin ár að hækka framfærslu-
grunn námsmanna einungis um 2,5%. Engin
menntapólitísk rök era fyrir þessari hækkun og sí-
felldar breytingar á viðmiðun námslána hafa mikil
óþægindi í för með sér fyrir námsmenn."
Svavar Gestsson í Mbl. 3. júní
Kyoto-bókunin
„Hætt er við aö sú stefna að undirrita ekki Kyoto-
bókunina muni fremur skaða samningsstöðu Islands
en bæta. Undirritun felur ekki í sér að ísland afsali
sér samningsrétti um hvemig hið íslenska ákvæði
verður útfært heldur er hún öðru fremur viljayfir-
lýsing af hálfu íslands um að stjórnvöld hér vilji ná
þeim markmiðum sem þjóðir heims hafa sett sér
með bókuninni."
Árni Finnsson í Mbl. 3. júní
Ökuníðingar í umferðinni
„Farið er að telja saman dauðaslys í umferðinni á
árinu og era menn hissa á að þeim er að fjölga þeg-
ar miðaö er við önnur tímabil. En í rauninni er það
undrunar- og aðdáunarefni að dauðaslysin eru ekki
enn fleiri, miðað við það aksturslag sem alltof marg-
ir ökumenn temja sér og maður verður vitni að jafnt
í bæjum sem á þjóðvegum."
Oddur Ólafsson í Degi 3. júní