Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1998, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1998, Qupperneq 17
16 Iþróttir Reynslumikill Skoti til KR KR-ingar gerðu í gær samning við skoskan leikmann sem þeir höfðu fengið til reynslu á æfingu hjá sér á þriðjudag. Sá heitir David Winnie og er vamarmað- ur en er eflaust ætlað hlutverk á miðjunni hjá KR. Siðast lék Winnie i skosku úr- valsdeildinni með Hearts 1995-96 en í vetur lék hann með St. Mir- ren í 1. deildinni en með St. Mir- ren-liðinu hefur hann spilað lengst á sínum ferli. Winnie hef- ur samtals leikið 180 úrvals- deildarleiki í Skotlandi með 3 liðum, St. Mirren 1983-91, Aber- deen 1991-95 og Hearts 1995-96. Auk þess lék hann 26 leiki með Dundee í 1. deildinni 1996-97 og 21 leik með St. Mirren í sömu deild í vetur. Kemur með nauðsynlega reynslu í lið KR David Winnie verður 32 ára á þessu ári og verður hann eflaust mikill liðsstyrkur fyrir KR-liðið. Hin mikla reynsla sem Winnie hefur yfir að ráða úr skoska þolt- anum kemur sér vel fyrir lið KR sem hefur einmitt helst þótt vanta nauðsynlega reynslu á miðjuna í sumar. -VS/ÓÓJ * EVRÓPUKiPPNI A-riðill: Júgóslavía-Svíþjóð............19-29 Þýskaland-Frakkland...........30-24 Ítalía-Litháen................18-19 Svíþjóð 4 4 0 0 102-82 8 Þýskaland 4 4 0 1 105-85 6 Júgóslavía 4 2 0 2 97-99 4 Frakkland 4 1 1 2 99-97 3 Litháen 4 1 1 2 82-95 3 Ítalía 4 0 0 4 77-94 0 B-riðill: Ungverjaland-Tékkland .......27-25 Rússland-Króatía.............29-14 Makedónía-Spánn..............19-26 Spánn 4 3 Rússland 4 3 Króatía 4 3 Ungverjal. 4 2 Makedónía 4 0 Tékkiand 4 0 1 0 106-76 7 1 0 100-81 7 1 1 90-92 5 0 2 93-95 4 1 3 86-110 1 0 4 92-114 0 íslendingar á skotskónum í Noregi íslendingar voru í sviðsljósinu í gær í norska bikarnum. Ágúst Gylfason skoraði sigurmark Brann gegn Stryn strax á 11. mínútu. Bjarki Gunnlaugsson kom inn á sem varamaður hjá Molde á 67. mínútu og fjórum mínútum síðar var hann búinn að skora mark í A-2 sigri á Fana. Óskar Hrafn Þorvaldsson átti góðan leik með Strömsgodset þegar liðið sló út Start, 3-1 . -ÓÓJ Karl Malone á hér í harðri rimmu við Dennis Rodman í leik Utah og Chicago í gær. Malone var ólíkur sjálfum sér og átti í vandræðum í leiknum. Reuter 1. úrslitaleikur Utah og Chicago í NBA: Ekki ryðgaðir - því Utah vann 88-85 í framlengingu Það byrjaði með miklum spennu- leik, líkt og menn bjuggust við, því fyrsti leikur Chicago og Utah réðst á síðustu sekúndu í framlengingu. Utah svaraði öllum fyrir fram gerð- um spám um að liðið væri ryðgað eftir 10 daga hvíld og hafði yfir- höndina mestallan leikinn og komst meðal annars sjö stigum yfir þegar 3 mínútur voru eftir. Chicago komst þó aftur inn í leikinn í lokin og Luc Longley tryggði þeim framlengingu þegar hann jafnaði í 79-79. John Stockton fór fyrir sínum mönnum í lok leiksins og skoraði 7 af 9 stigum Utah í framlengingunni og gerði 24 stig alls auk þess sem hann átti 8 stoðsendingar. Howard Eisley, varamaður Stockton, stóð sig einnig mjög vel og samtals skor- uðu leikstjómendur Utah 32 stig og áttu 14 stoðsendingar í leiknum. Malone fann sig ekki Karl Malone átti í vandræðum í leiknum, hann hitti mjög illa utan af velli, eða 9 af 25 skotum, en stóð sig vel sem fyrr undir körfunni og tók 14 fráköst. Þá brást Malone ekki þegar mest á reyndi í lok leiksins. Michael Jordan stóð að venju fyrir sínu, gerði 33 stig, þar af 20 í fyrri hálfleik, en hann þurfti augljóslega meiri hjálp frá félögum sínum í þessum leik. Skortur á samvinnu Chicago-liðið vann alls ekki nægi- lega vel saman sem ein heild og átti liðið aðeins 14 stoðsendingar gegn 23 hjá Utah. Dennis Rodman á við meiðsli að stríða á þumli en hann spilaði engu að síður 40 mínútur í leiknum og tók 10 fráköst, mest allra hjá Chicago. Ekki var mikil ógnun í 3 stiga skotum í leiknum því Chicago skor- aði allar þrjár 3 stiga körfurnar í leiknum en liðin reyndu 24 skot fyr- ir utan 3 stiga línuna. Liðin mætast öðru sinni á föstudagskvöld og þá aftur í Salt Lake City í Utah. Stig Utah: Stockton 24, Malone 21, Russell 15, Eisley 8, Morris 6, Anderson 6, Homacek 4, Foster 2. Stig Chicago: Jordan 33, Pippen 21, Longley 10, Kukoc 9, Harper 4, Burrell 4, Kerr 4. -ÓÓJ Hermann Hauksson til Njarðvíkur Hermann Hauksson körfuknattleiksmaður skrifaði í gær undir samn- ing við Njarðvík en hann lék i Belgíu seinni hluta vetrar með liði St. Niklaas eftir aö hafa leikið með KR alla sína körfuboltatíð hér heima. Njarðvík hefur þegar fengið liðsstyrk í Friðriki Stefánssyni og verða ís- landsmeistararnir gífurlega sterkir á næsta tímabili. -ÓÓ J Blcrnd í poka Knattspyrnudeild Vals, SP- Fjármögnun, Sparisjóður vélstjóra og Alþjóöa líftryggingarfélagið hafa gert með sér styrktar- og samstarfssamning til þriggja ára. Samhliöa þessu hefur knattspyrnudeild Vals gert 3ja ára samning við verslunina Ástund, umboðsaðila Umbro og Diadora á íslandi, og munu allir iðkendur Vals leika í búnaði frá Ástund næstu þrjú árin. Gunnsteinn Jónsson, GK, sigraði án forgjafar á opnu golfmóti sem fram fór hjá Keili á dögunum. Gunnsteinn lék á 71 höggi. Björgvin Sigurbergsson, GK, varð annar á 72 höggum og Guðmundur Hallgrímsson, GS, þriðji á 72. Haukur Jónsson, GK, sigraði með forgjöf á 60 höggum nettó. Jón Thorarensen, GK, varð annar á 65 og Bjöm Matthíasson, GR, þriðji á 65. Opió mót eldri kylfinga, karla 55 ára og eldri og kvenna 50 ára og eldri, verður haldiö á golfvelli Oddfellowa í Urriðavatnsdölum laugardaginn 6. júni. Leikinn er höggleikur með og án forgjafar. Mótið er jafnframt stigamót til landsliös. Skráning er i síma 565-9092. Júgóslavar lögöu Japana, 1-0, í vináttulandsleik í knattspyrnu sem fram fór í Lausanne í Sviss í gær. Sigurmarkið skoraði Sinisa Mihajlovic á 70. mínútu. Ronald Koeman, fyrrum landsliðsmaður Hollendinga í knattspymu, verður aðstoðarmaður Luis Van Gaal, þjálfara Barcelona, á næsta tímabili. Koeman ætti að vera öllum hnútum kunnugur hjá Börsungum því hann lék með þeim i nokkur ár. Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins verður haldið i kvöld. Hlaupið verður frá húsi Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, og hefst hlaupið klukkan 19. Hægt er að velja um 2 kílómetra skokk/göngu, 5 km hlaup umhverfis Öskjuhlíö eða 10 km hlaup umhverfis Reykjavíkurflugvöll. Hægt er að skrá sig frá kl. 8-18 í dag. Aóalfundur handknattleiksdeildar Fram verður haldinn flmmtudaginn 11. júní. Fundurinn hefst stundvíslega kiukkan 20 í Framheimilinu. -GH Knattspyrna: Sigurvin úr leik? - meiddist illa á hné í gær Sigurvin Ólafsson. Sigurvin Ólafsson, leikmaðurinn snjctlli í liði íslandsmeistara ÍBV, meiddist illa á hné á æfingu í gær og óttast er að liðbönd í hné hafi slitnað. Hann fer í myndatöku í dag og verði niðurstaðan sú að liðböndin séu slitin er ólíklegt að hann leiki meira með á þessu tímabili. Sigurvin var í landsliðshópnum sem á að leika gegn S-Afriku á laugardaginn en sæti hans í hópnum tekur félagi hans úr Eyjaliðinu, ívar Ingimarsson sem er nýliði í íslenska landsliðinu. -GH Handknattleikur: Reynir í KA Reynir Þór Reynisson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, er genginn í raðir KA-manna og mun leika með félaginu á næsta tímabili. Reynir hefur tvö undanfarin ár leikið með Fram en þar áður með Víkingi. Hann mun taka stöðu Sigtryggs Albertssonar í marki KA en hann ákvað að hætta eftir tímabilið þar sem hann er að fara á sjóinn. Kominn til að vinna titla „Mér líst mjög vel á að leika með KA. Þetta er gott félag, með góðan þjálfara og það er mikill metnaður í liðinu. Hingaö er ég vonandi kominn til að vinna titla,“ sagði Reynir við DV í gær skömmu eftir hann hafði skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Á dögunum var Reynir langt kominn með að ganga frá samningi við þýska 2. deildarliðið Solingen. „Ég taldi mig vera á leið til félagsins en þessum umboösmanni, sem ég var í sambandi við, varð eitthvað á i messunni og ekkert vai'ð því af þessu,“ sagði Reynir við DV. -GH FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1998 FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1998 25 DV DV Iþróttir skrifaði undir hjá Val í gær og verður löglegur um mánaðamótin Arnór Guðjohnsen knattspymumaður er genginn i raðir Vals. Hann sagði upp samningi sínum við sænska félagið Örebro í fyrradag og skrifaði undir samning hjá Val í gær. Hann verður lög- legur um mánaðamótin og leikur líklega sinn fyrsta leik með Hlíðarendaliðinu í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninn- ar þann 2. júlí að því gefnu að Valsmenn komist í gegnum 32-liða úrslitin. Fyrsti leikur hans í deildarkeppninni verður í 8. umferðinni þegar Valsmenn sækja Grindvíkinga heim sunnudaginn 5. júlí. Valur vann kapphlaupið við KR Arnór skrifaði undir samning við Val sem gildir út þetta ár en Valsmenn hafa svo forgangsrétt aö samningi við hann á næsta ári. Hann tilkynnti forseta Örebro ákvörðun sína í gær og það má reikna með hörðum viðbrögðum frá félaginu enda vill liðið alls ekki missa hann. Mörg lið hér á landi vildu fá þennan frábæra knattspyrnumann í sínar raðir. Reykjavikurliðin ÍR, KR og Valur börð- ust harðast um að fá hann og að lokum ákvað Arnór að semja við Val. Á tímabili virtist Arnór vera á leiðinni til KR, eins og Eiður sonur hans, en Valsmenn höfðu betur í kapphlaupinu við vesturbæjarlið- ið. Þessi ákvörðun Arnórs að koma til Vals þarf svo sem ekki að koma á óvart enda hefur hann oft æft með félaginu í fríum sínum yfir sumartímann. Valur bauð best „Ástæðan fyrir því að ég vel Val er einfaldlega sú að að félagið bauð best. Þá hef ég alltaf haft ákveðið hjarta fyrir Val því ég hef alltaf fengið aðstöðu til að æfa með liðinu þegar ég hef verið í fríi frá at- vinnumennskunni. Þessari ákvörðun minni að koma heim verður ekki haggað því ég og konan höfum bæði tekið þessa ákvörðun. Ég veit að frúin er mjög glöð þvi hún hefur ekki haft neitt fast í Örebro. Þetta er búið að vera ágætt í Svíþjóð og ég hef gleði af því að sp: hérna,“ sagði Ari ór í samtali DV í gær frá Svíþjóö. Gott að fara beint inn í boltann „Það er ekki nein sérstök ástæða fyrir því að ég er að koma heim. Ég er bú- inn að vera í at- vinnumennsk- unni í 20 ár og það er ágætis tími. Mér finnst gott að skella mér heim þegar mótið er hálfh- að og fara beint inn í boltann því það var alltaf ætlunin að koma heim og spila,“ sagði Arnór. Lítið spennandi hjá Örebro í ár „Það sem réð kannski úrslitum að ég tek þá ákvörðun að fara heim er að þetta hefur verið frekar lítið spennandi hjá Örebro það sem af er árinu. Það hefur Arnór Guðjohnsen í búningi Víkinga 4. júní 1978, nákvæmlega fyrir 20 árum, í leik gegn Breiðabliki á Hailarflötinni í Laugardalnum. Víkingar unnu leikinn, 3-1, og skoraði Arnór tvö markanna. Einum og hálfum mánuði síðar samdi Arnór viö belgíska félagið Lokeren og fór að leika með liðinu um haustið. ekki verið staðið að þessu eins og ég bjóst við, það er að bæta við mannskap og fleira, og liðið hefur verið að sigla lygnan sjó,“ sagði Arnór, en hann á eftir að spila fimm leiki með Örebro áður en hann kemur heim. hefur fengið viðurkenningar fyrir að vera besti leikmaður deildarinnar. -GH/EH,Svíþjóð Arnór Guðjohn- sen er á leið í ís- lensku knatt- spyrnuna eftir 20 ára fjarveru og mun þá klæðast búningi Valsmanna. Arnórspunktar Arnór lék sinn síóasta leik hér heima í efstu deild gegn Þrótti 24. júlí 1978 á Laugardals- vellinum. Arnór skoraói 7 mörkí fyrstu 8 leikj- um sínum með Vik- ingum sumarið 1978. 2 komu gegn Breiða- bliki og gegn KA, 1 gegn ÍBV, Val og FH. Arnór skoraði i fyrsta leiknum sín- um gegn ÍBV í Eyj- um sem komst í frétt- irnar þar sem Eiður faðir hans var línu- vörður í leiknum. Arnóri tókst aft- ur á móti ekki að skora i fjórum síð- ustu leikjum sínum eða á þeim síöustu 398 mínútunum sem hann spilaði í deild- inni. Þrjú siðustu mörk Arnörs í deild- inni voru öll með skalla en síðast skor- aði hann gegn KA á Akureyri 26. júní 1978. Kristinn Björns- son, sem nú er orðinn þjálfari Arnórs hjá Val, lék með ÍA gegn Arnóri 14. júní 1978 í leik sem ÍA vann, 4-2. Arnór Guðjohn- sen kann vel við sig á klakanum því hann hefur skorað 12 af 14 landsliðsmörkum sínum í Laugardaln- um. -ÓÓJ Mikill hvalreki fyrir íslenska knattspyrnu Það er engum blöðum um það að fletta að Amór er Valsmönnum gríðarlega mikill liðsstyrkur og innkoma hans í ís- lensku knattspyrnuna er mikill hvalreki. Arnór hefur um langt skeið verið besti knattspyrnumaður íslands og hróður hans hefur víða borist. Hann hélt út í at- vinnumennsku til Belgíu 16 ára gamall og hefur því verið atvinnumaður í tæp 20 ár en Arn- ór er 37 ára gam- all. Á síðasta ári lauk 19 ára farsæl- ’ um landsleikjaferli Arnórs þegar hann lék gegn Liechten- stein í undankeppni HM á Laugardalsvelli. Síðustu árin hefur hann leikið með Örebro i Svíþjóð og spark- spekingar þar i landi hafa sagt hann vera besta út- lendinginn í sænsku knattspyrn- unni í dag 20 ára atvinnumanns- ferli Arnórs senn lokið Lokeren ‘78-’83 Anderlecht ‘83-’90 Bordeaux ‘90-’92 Hacken 1993 Orebro ‘94-’98 Amór Guðjohnsen fór haustiö 1978, aöeins 16 ára gamall, út í atvinnumennsku til Lokeren í Belgiu. Hann hafði fyrr um sumariö 1978 tekið sín fyrstu spor með Víking- um í efstu deild hér heima þar sem hann spilaði 12 leiki og skoraði 7 mörk. Arnór lék með Lokeren 5 tímabil, árin 1978-1983, við góðan orðstír áður en hann gekk tO liðs viö Anderlecht sumarið 1983. Með Anderlect spilaði Arnór sjö tímabil þar sem hápunkturinn var örugglega veturinn 1986 til 87 þegar hann varð Belgíumeistari, markakóngur með 19 mörk og kosinn besti leikmaðurinn af einu virtasta blaði Belg- íu, Het Nieuwsblad, sem útnefndur er eftir einkunnagjöf blaðsins. Eftir tímabilið 1989 til 90 skildu leiðir milli Amórs og Anderlecht eftir mörg góð ár. Hann fór þaðan til Bordeaux í Fi'akklandi en Belgamir vom ekki sáttir við sinn hlut og við tóku erfið ár þar sem Anderlecht reyndi að fá alltof mikla peninga fyrir Amór. Svart- asti tíminn hjá Amóri var sumarið 1992 þegar Alþjóða knattspymusambandið dæmdi hann síðan aftur til síns gamla félags Anderlecht og i kjölfar þess sagði Bordeaux upp tveggja ára samningi við hann og Arnór lék ekki með félagsliði í lengri tíma. Sló í gegn í Svíþjóð Vandræðin með málin hjá Anderlecht enduðu loks með aö hann komst til Hacken í Svíþjóð sumai'ið 1993 og leiðin fór aftur aö liggja upp á við. Hann fékk góða dóma fyr- ir leik sinn, var meðal annars valinn besti leikmaðurinn í deildinni af einu af sænsku blöðunum. Amór var í framhaldi af því seldur til Örebro og sló í gegn á sínu fyrsta ári þar. Örebro, sem hafði sloppið naumlega við fall, kom á óvart og lenti í öðm sæti eftir harða baráttu um titilinn. Arnór var í lok tímabilsins kjörinn besti leikmaður úr- valsdeildarinnar af leikmönnum allra liðanna og jafnframt besti miðjumaðurinn og besti útlendingurinn í sænsku deildinni. Arnór hefur síðustu 4 árin spilað með Örebro í Svíþjóð og ávallt vakið lukku meðal sænskra og verið í hópi bestu leikmanna i sænsku deildinni. Hann hefur til dæmis hafíð tímabilið nú með feiknakrafti og Ijóst er að Am- ór á enn þá eftir nokkur ár í toppformi. Á sama tíma og Amór hefur verið að spila erlendis hefur hann glatt auga landans hér heima í landsleikjum en Arnór er bæði annar leikjahæsti landsliðsmaöur íslands frá upphafi með 73 leiki og annar markahæsti með 14 mörk. Auk A-landsleikja hefur Amór spilað 15 leiki með yngri landsliðum og skor- að í þeim 5 mörk. Leikir/mörk i efstu deild hjá Arnóri áferlinum: ísland (Víkingur) 12/7 Belgía (Lokeren/Anderlecht) 280/66 Frakkland (Bordeaux) 19/1 og 30/8 í 2. deild Svíþjóð (Hacken/Örebro) 110/29 -ÓÓJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.