Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1998, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1998, Síða 32
J liðvikudaginTi 03. 06.’98 10 Í31 132 (37 Fjoldl yinnlngar vmninga Vinmng&upphœð I. 6 aþ6 18.827.980 2.5 0*6 337.070 3-5 at 6 132.420 4.4 aþ 6 145 2.900 5-3Q*6 375 Heudarvinnlngáupphœð 38.858.370 Á íslandi 1.202.410 L#TT# iFRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú Sbendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum alian sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ1998 Síldin: A leiðinni í íslensku lögsöguna DV, Akureyri: „Síldin átti í gær aðeins eftir um 15 mílur inn í íslensku lögsöguna vestur af Jan Mayen-lögsögunni og það verður fróðlegt að sjá hvar hún verður þegar við komum út eftir helgina," sagði Birgir Sigurðsson, stýrimaður á Berki frá Neskaup- stað, í morgun, en Börkur var þá á landleið með um 1450 tonn af síld sem fékkst syðst í Jan Mayen-lög- sögunni. Birgir sagði að torfurnar á mið- unum hefðu í gær verið allt of stór- ar til að gott væri að eiga við þær, svo mikið var af síld í nótinni þegar kastað var að nótin sökk og var tals- vert mál að ná einhverju af síldinni um borð. Skipin voru þó að ná allt að 500 tonnum í einu. Skipum á miðunum hefur fækkað mjög, eru nú um 15 talsins, og þau síðustu hefja „landstím" í dag til að ná til hafnar fyrir sjómannadaginn. -gk Pavo Lipponen, forsætisráðherra Finnlands, kom í gær í opinbera heimsókn til íslands. Hann kemur hér á Hótel Sögu ásamt Sigríði Snævarr prótokollstjóra. DV-mynd Jói Unnið að hrossa- útflutningi Sigurður Örn Hansson, staðgengill yfirdýralæknis, sagði í morgun að unnið sé að því „á fullu“ að koma út- flutningi hrossa á að nýju. Hugmyndir að slíku miðast við að hross, sem hafa verið á ósýktum svæðum í 4 vikur, fái útflutningsleyfi - að undangenginni 10 daga einangr- un. Þetta þýðir að bæði verður hægt að flytja út hross frá höfuðborgar- svæðinu, þar sem sóttin er gengin yfir og t.a.m. Eyjafirði, þar sem sóttin hef- ur ekki komið niður enn. M.a. er byggt á því að að rannsóknir hafa sýnt að 3-4 vikum eftir að hrossin urðu veik eru þau ekki talin geta bor- ið sóttina á ósýkt svæði. Yfirdýralæknir mun á morgun kynna niðurstöður rannsókna og hug- myndir um útflutning á fundi fasta- nefndar dýralækna hjá Evrópusam- bandinu. í kjölfar þess fundar er von- (^íast til að hægt verði að gefa grænt ljós á útflutning. -Ótt Ágúst Jakobsson myndatökumaður er hér að mynda úr lofti upphafsatriðið að kvikmyndinni Popp f Fteykjavík. Ágúst er búsettur í Bandaríkjunum og hefur starfað með stórsveitum á borð við Guns’n Roses, Cure, Nirvana og Beck. Höf- uðborgin tekur sig vissulega vel út með Hallgrímskirkju fremst á myndinni. DV-mynd Hilmar Þór 17 milljóna veiöileyfakaup Landsbanka af Bálki Sverris: Aumt bókhald - segir Jóhanna Siguröardóttir alþingismaöur Það er fátt sem kemur orðið á óvart varðandi þennan Landsbanka,” sagði Jóhanna Sigurðardóttir alþingismað- ur þegar DV bar undir hana svar við- skiptaráðherra við þriggja mánaða gamalli fyrirspurn hennar um kaup Landsbankans og hlutdeildarfélaga hans á laxveiðileyfum í Hrútafiarðará af fiölskyldufyrirtæki Sverris Her- mannssonar. Samkvæmt svarinu, sem lagt verður fram á Alþingi i dag, keypti Landsbankinn veiðileyfi af leigutaka Hrútafiarðarár, fiölskyldu- fyrirtæki Sverris Hermannssonar, fyrir 8.744.550 krónur á árunum 1991 til 1997. Á sama tímabili keypti Lýsing hf. fiármunaleigufyrirtæki Landsbank- ans veiðileyfi í Hrútafiarðará fyrir 3.276.450 krónur. Annar kostnaður vegna þessara laxveiða Landsbankans varð 4.372.225 krónur og hjá Lýsingu varð hann 521.755. Samtals eru þetta því 16.914.980,- krónur. Engu er svarað til um kostnað annarra hlutdeildarfé- laga Landsbankans en Lýsingar þar sem þau séu ekki 1 meirihlutaeigu bankans. ---- ' F Laxveiðar Ll og Lýsingar - samtals 16.914.980 millj. - Lí Lýsing Jóhanna Sigurðardóttir óskaði eft- ir sundurliðuðum upplýsingum um hversu mörg veiðileyfi bankinn og hlutdeildarfyrirtæki hans hefðu keypt undanfarin 15 ár. Svarið nær hins vegar aðeins til fyrmefnds tíma- bils. í þvi eru engar upplýsingar um fiölda stangardaga, fiölda stanga í hverri veiðiferð né fiölda veiðiferða eins og beðið var um. Ekki eru held- ur upplýsingar um hveijir það vora sem fóru í þessar veiðiferðir, hvort það vora bankastjórar, bankaráðs- menn, ráðherrar eða innlendir og er- lendir viðskiptavinir bankans og fyr- irtækjanna, né heldur hvað það er sem fellur undir heitið annar kostn- aður. í svari ráðherra segir að í skjala- safni bankans séu ekki gögn um fiölda laxveiðileyfa, veiðiferða eða stangardaga. Þar séu heldur ekki upplýsingar um þá sem fóra í þessar veiðiferðir, hvorki gesti né starfs- menn bankans. Hvað varðar hugtak- ið annar kostnaður, þá segir í svar- inu að almenna reglan sé sú að inni- falið í veiðileyfi í Hrútafiarðará séu afnot af veiðihúsi, en ekki fæði. Gera má því ráð fyrir að undir heitið ann- ar kostnaður falli innkaup á mat og drykk. „Það virðist vera yfirgengileg bók- haldsóreiða í bankanum. Tekið hafi verið gagnrýnislaust við reikningum, sem þýðir að bankastjórarnir hafa getað vaðið viðstöðulaust í sjóði hans vegna risnu og laxveiða,” sagði Jó- hanna Sigurðardóttir í morgun. -SÁ Bastesen mein- að að spyrja Angelsen DV, Ósló: Forseti norska Stórþingsins mein- aði Steinari Bastesen þingmanni að spyija Peter Angel- sen sjávaútvegsráð- herra hvort og hvenær hann fengi að flytja 100 tonn af hvalrengi til ís- lands. Steinar var fiórði maður að biðja um orðið í opnum spurninga- Steinar tíma í gær en fékk Bastesen. ekki að stiga í pontu. „Ég er alveg hættur að æsa mig yfir þessari meðferð. Hér gildir sú regla að stærsti flokkurinn fær að spyrja fyrst og af því að ég er minnsti flokkurinn og bara einn í þingflokknum kemur röðin aldrei að mér,“ sagði Steinar í samtali við DV eftir spurningatím- ann. Steinar hefur nú fengið þingmann frá Hægriflokknum til að spyrja Ang- elsen sjávarútvegsráðherra skriflega um útflutningsleyfið á renginu. Angel- sen verður þá að svara í spurninga- tíma i næstu viku og af því að Hærgi- flokkurinn er fiórði stærsti flokkur- inn eru sterkar líkur á að eitthvað verði eftir af spurningatímanum þeg- ar röðin kemur að honum. Steinar hefur beðið frá því í haust eftir svari. Angelsen hefur ítrekað frestað að svara en lögfræðingar hafa fundið út að ekki megi neita Steinari um útflutningsleyfið. -GK Hinn skærappelsínuguli litur, sem einkennt hefur verslanir Hagkaups fram til þessa, er horfinn með til- komu Nýkaups þar sem ein- kennisliturinn er blár. Sjá nánar á bls. 4. DV-mynd Jói Innbrot á myndbandi Brotist var inn I bíl við Lauga- veg í nótt. Stolið var símtæki o.fl. úr bílnum. Lögreglan kom á staðinn og handtók tvo menn þar skammt frá. Innbrotið var tekið upp á mynd- band eftirlitsmyndavélar fyrirtæk- is sem er starfrækt þarna í ná- grenninu. Myndbandið er því sönnunargagn í málinu. -RR (STENPUR SPIKIP í NORÐMÖNNUM? Veðrið á morgun: Skúrir vest- anlands Á morgun verður hæg suðaust- læg eða breytiieg átt. Hætt er við skúrum, einkum um vestanvert landið, en skýjað með köflum annars staðar. Hiti verður á bil- inu 5 til 13 stig yfir daginn. Veðriö í dag er á bls. 37.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.