Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 iíJ&JJiiiSll! Titanic ★★★★ Stórbrotin og ákaflega gefandi kvikmynd. Af miklum fítonskrafti tókst James Cameron aö koma heiili f höfn dýrustu kvikmynd sem gerð hefur verið. Fullkomnunarárátta Camerons skilar sér f eölilegri sviðsetningu sem hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Leon- ardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftir- minnileg f hlutverkum elskendanna. -HK Good Will Hunting ★★★★ í mynd þar sem svo mikið er lagt upp úr per- sónunum veröur leikurinn að vera góöur. Sérstaklega er samleikur Williams og Damons eftirminnilegur. Hiö sama má reyndar segja um flesta leikara í aukahlut- verki. Bestur er þó Stellan Skarsgárd en í túlkun sinni á stærðfræðingnum Lambeau dregur hann upp sannfærandi mynd af manni meö mikla sérgáfu sem þó verður að játa sig sigraðan f návist ótrúlegrar snilli- gáfu. -ge Jackie Brown ★★★★ Höfundareinkenni Quentins Tarantinos eru sterk þótt myndin sé gerð eftir þekktri skáldsögu Elmore Leonards. Jackie Brown er heillandi kvikmynd og er mýkri en fyrri myndir Tarantinos en gerist samt óvefengj- anlega f þeim heimi sem Quentin Tarantino hefur skapað. -HK U Turn ★★★★ Myndin vinnur afbragösvel úr hefðinni. Persón- urnar eru eftirminnilegar og þótt húmorinn í noir-myndum sé oft gráglettinn hefur sjaldan veriö gengiö lengra en hérna. Lokasenan er f senn óborganleg og óhugnanleg. -ge The Assignment ★★★★ trlil Leikstjórnin erTil fyrirmyndar og handritið að sama skapi vandaö. Tími er tekinn til að leyfa persónunum að mótast og fyrir vikið verða þær trúverðugri. Aidan Quinn túlkar þá breyt- ingu sem verður á Ramirez í gervi Carlosar af mikilli leikni og Sutherland hefur ekki verið jafn sannfærandi árum saman. ge Mouse Hunt ★★★ Músaveiðamynd sem segir frá vitgrönnu bræðrunum Smuntz sem erfa snæraverk- smiöju og niöurnítt hús (með mús) eftir föö- ur sinn. Sjálf músin er aðalhetja myndarinn- ar þar sem hún klífur og stekkur og sveiflar sér af mikilli fimi og hugrekki um húsið, sigr- ast bæöi á banvænum ketti og meindýra- eyði og hvomsar f sig kílói af osti án þess að svo mikið sem gildna um miðbikið. -úd Mad City ★★★ Sterk kvikmynd um það hvernig flölmiðlar búa til stórfrétt. Þótt deila megi um aö gíslatakan f myndinni geti staðið yfir I þrjá sólarhringa kemur það ekki að sök. Costa- Gavras hefur styrka stjórn á þvf sem hann er fjalla um og hefur ekki gert betri kvik- mynd í mörg ár. Dustin Hoffman og John Travolta eru öryggiö uppmálaö f aðalhlut- verkunum. -HK Scream 2 ★★★ Þó Scream 2 nái ekki þeirri snilld sem 1 átti þá held ég að ég geti ekki annað en kallað þetta þriggia stjörnu hrollvekjuskemmtun. Eftir magnaða byrjun fór Scream 2 of hægt af stað en sfðan tók hún kipp og brunaöi af staö og hélt uppi þessari Ifka finu spennu, án þess að slaka á drepfyndnum hroll-vfs- ununum og skildi viö áhorfandann ánægju- lega hrylltan. -úd The Big Lebowski ★★★ Yfirhöfuð er The Big Lebowski hlaöin ánægjulegum senum og smáatriöum eins og við mátti búast frá þessu teymi. Jeff Bridges er ákaflega viðeigandi lúði í hlut- verki sfnu sem hinn „svali“ og aigerlega áhyggjulausi Lebowski og John Goodman sömuleiðis góöur sem bilaður uppgjafa Vf- etnamhermaður. -úd Deep Impact ★★★ Vel gerð og ahrifamikil kvikmynd þar sem fjallaö er um einhverja mestu hættu sem vofir yfir okkur, aö halastjarna taki upp á því að rekast á jörðina. Myndin er góð skemmt- un en um leið setur að áhorfandanum létt- an hroll. -HK ikmyndir Denise Richards og Neve Camp- bell leika hinar spilltu Kelly og Suzie, sem kæra kennara fyrir nauðgun. Wild Things í Stjörnubíói: Erótísk spenna ng fláttur Wild Things, sem Stjörnubíó frumsýnir í dag, er sakamálamynd, uppfull af plottum, fléttum, ráðgát- um og erótískri spennu. Myndin gerist í Blue Bay-flóa, Flórída, þar sem hinir ríku búa i góðu yfírlæti. Þar býr einnig Kelly Van Ryan, kynþokkafull stúlka, nemendi í skóla þar sem kennarinn Sam Lombardo ræður ríkjum. Kelly er sjúklega hrifinn af Sam og er tilbú- inn til að gera allt til að vekja at- hygli hans, meðal annars að þvo jep- pann hans, sem hún gerir með stæl. í blautum sundbol reynir hún að freista Sam með miklum kynþokka sínum. Daginn eftir segir hún móð- ur sinni, Söndru, að Sam hafi nauðgað sér. Móðirin, sem langt í frá hefur hreina samvisku og sefur hjá öllum sem hana vilja, meðal annars Sam Lombardo, ákveður að kæra Sam. Fram á sjónarsviðið kemur önnur stúlka, Suzie, og segir aö Sam hafi nauðgað sér fyrir ári. Það er þvi ljóst aö hinn virðulegi og myndarlegi kennari er í vondum málum og það sem verra er, það vill enginn lögfræðingur taka að sér að verja hann fyrir utan Ken Bowden sem er ekki mjög traustvekjandi. Nauðgunarmálið fer að teygja Kevin Bacon, sem auk þess að leika eitt aðalhlutverkið er einn framleiðenda myndarinnar, er hér ásamt leikstjóran- um John McNaughton við tökur á myndinni. anga sína út fyrir bæjarfélagið og hver flækjan af annarri gerir máliö óskiljanlegra. Utan við atburðarás- ina fylgist rannsóknarlögreglumað- urinn Ray Duquette með og grunar hann að ekki sé allt eins og sýnist og að það sem hafi spurst út sé að- eins toppurinn á ísjakanum. t hlutverkum stúlkanna Kelly og Suzie eru táningastjömumar Denise Richards og Neve Camp- bell, Matt DiUon leikur Sam Lombardo, Bill Murray lögfræðing hans, Theresa Russell og Ro- bert Wagner leika foreldra og Kevin Bacon, sem einnig er einn framleiðenda myndarinnar, leikur lög- reglumanninn Ray Duquette. Leikstjóri myndarinnar er John McNaughton. Hann kom fyrst fram á sjónarsviðiö þegar hann gerði hina myrku sakamála- mynd, Henry: Portrait of a Serial Killer, sem fór sigurför á ýmsum kvikmyndahátíðum. Aðrar kvik- myndir sem hann hefur leikstýrt eru Mad Dog and Glory, Sex, Drugs, Rock & Roll, Normal Life og nú síð- ast The Borrowers. Vomur. John Malcovich í hlutverki manns sem þvingaður er í herinn. æsku þurfti að þola misþyrmingar á munaðarleys- ingjahælinu sem hann var á og á fullorðinsárunum er hann ásakaður um að vera bama- níðingur. Hann er þvingaður til að skrá sig í franska herinn þegar Þjóð- verjar eru að ráð- ast inn í Frakkland árið 1939. Það líður ekki á löngu þang- að til hann er orð- inn stríðsfangi. í einfaldleika sínum tælist hann af áróðri nasista og byrjar að starfa fyrir Þjóðverja við að fá börn til að ganga í Nasista- flokkinn. Þetta er ógleymanleg mynd sem sýnir starf- semi nasista frá nýju og óþægilegu sjónarhomi. TILCOO ••• ptzzA NED & 1 '2* KAI&AfclTA K?A trvÍTLAWmABP^ jpuildM Ar> iciA i dagíkua VáKífklMAIí?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.