Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Side 4
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 T>V
1» um helgina
Listasafn Arnesinga:
Islenskur sjúkraþjálfari
í heimi múslíma
Ein mynda Ingu Margrétar frá dvöl hennar í Afganistan á síðasta ári.
í dag kl. 15.30 opnar Inga Margrét
Róbertsdóttir sjúkraþjálfari sýn-
ingu í Listasafni Árnesinga á Sel-
fossi. Inga Margrét sýnir 29 ljós-
myndir, blaðaúrklippur, útsaumaða
hatta og teppi úr bómull og silki frá
dvöl hennar í Afganistan.
Þar var hún frá desember 1996 til
júní 1997 við störf á vegum Rauða
kross íslands í Mazar-i-Sharif, Kab-
úl og Kandahar. í Mazar-i-Sharif
stjómaði hún ásamt breskum stoð-
tækjasmið gervilima- og endurhæf-
ingarstöð með um 50 sjúkrarúmum
og göngudeildarþjónustu. Þjónustu-
svæðið náði yfir norðurhérað Afg-
anistan. Sýningin færir okkur inn í
annan menningarheim en við eig-
um að venjast og kynnir almenn-
ingi það starf sem Alþjóðaráð
Rauða krossins og Rauða hálfmán-
ans vinnur við erfiðar aðstæður.
Þetta er fyrsta sumarsýning
Listasafnsins og mun hún standa til
28. júní. Opið verður frá 14 til 17
alla daga nema mánudaga út ágúst-
mánuð. Á sunnudögum kl. 16 mun
Inga Margrét kynna gestum efni
sýningarinnar.
í Halldórssal er að finna smáverk
Ólafs Th. Ólafssonar, „My beloved
systir Guörún". Þar eru einnig vas-
ar, skúlptúrar og músíkmyndir
Ólafs Þórs Ólafssonar ásamt sýnis-
horni af fastasöfnum og standa
þessi verk uppi næstu tvær vikurn-
ar.
Listaskálinn í Hveragerði:
Þungavigtars
A morgun kl. 15 opnar BUBBI
(Guðbjörn Gunnarsson) högg-
myndalistamaður einkasýningu í
garði Listaskálans í Hveragerði. Á
sýningunni, sem BUBBI nefnir
„Úti“, verða til sýnis 9 verk sem
unnin eru á síðustu þrem árum úr
járni, íslensku grágrýti og stein-
steypu.
Með sanni má kalla sýninguna
þungavigtarsýningu. Stærstu verk-
in eru um þrír metrar á hæð og yfir
tvö og hálft tonn að þyngd. „Þetta
mun vera ein stærsta einkasýning á
skúlptúrum utanhúss hérlendis til
þessa," segir BUBBI í samtali við
DV. „Enda liggur mikil vinna bak
við hana. Maður myndi aldrei halda
út í þessa vinnu fyrir þriggja vikna
sýningu og því munu verkin verða
hér til sýnis til 16. september. Það
liggur gríðarlegur straumur ferða-
manna gegnum Hveragerði á hverju
sumri og ég vona að sem flestir
komi hér viö og hafi það náðugt í
garðinum."
Árbæjarsafn:
Stutt í sveitasæluna
Á Arbæjarsafni er stutt í sveita-
sæluna, sérstaklega fyrir smáfólkið.
Næstkomandi sunnudagur verður
einmitt helgaður börnum og leikj-
um þeirra. Farið verður í gamal-
dags leiki við Kornhúsið allan dag-
inn. Klukkan 14 verður spennandi
kassabílarall og pokahlaup. Alð
auki verður sippað, farið i teygju-
Þaö veröur líf og fjör i Árbæjarsafni á sunnudaginn.
Domkorinn i Reykjavik heldur ton
leika á Hofsósi um helgina
Hofsos:
/
Domkorinn
í heimsókn
Annað kvöld kl. 20.30 heldur
Dómkórinn í Reykjavík tónleika í
Félagsheimilinu á Hofsósi. Á
sunnudaginn mun kórinn svo
syngja við messu í Hóladómkirkju.
Þetta mun vera í fyrsta skipti
sem Dómkórinn heldur tónleika á
Hofsósi en hann er meðal fremstu
kóra landsins. Á efnisskrá hans
eru fallegar útsetningar á þjóðlög-
um, lög við kvæði eftir Halldór
Laxness, ástarlög frá 16. öld og kór-
lög eftir Brahms.
Fyrir utan aö syngja við ýmsar
opinberar athafnir i Dómkirkjunni
í Reykjavík heldur kórinn eigin
tónleika einu sinni til tvisvar á ári.
Kórinn hefur einnig verið með ár-
lega tónlistardaga, þar sem flutt
hafa verið metnaðarfull kórverk og
í kringum jólahátíðina hefur kór-
inn haldið fjölsótta tónleika i ýms-
um kirkjum höfuðborgarinnar.
Stjórnandi kórsins er Marteinn
H. Friðriksson.
BUBBI viö eitt þeirra
verka sem sýnd veröa
garöi Listaskálans i
Hverageröi í allt sumar
Viðfangsefni BUBBA er náttúra
íslands frá jarðfræðilegu sjónar-
horni, hugsuð sem teikning í lands-
lag þar sem útlínur kunnuglegra
forma eru dregnar fram. Þarna má
t.d. finna gos og hraunrennsli auk
margs fleira úr náttúrunni.
Einkasýningar BUBBA að
loknu námi við Notting-
ham Trent University
eru orðnar sex tals
ins auk þátttöku
í nokkrum
samsýning-
um. Sýn-
ingin
„Úti“ er því
sjöunda
einkasýning
listamannsins
og jafnframt af-
mælissýning í til-
efni fimmtudagsaf-
mælis hans fyrr á ár-
inu.
tvist og snú snú, gengið á
stultum og þeytispjöldum
verður þeytt auk margs
annars.
Þar verður sem sagt
hægt að njóta sveitasæl-
unnar og ekki skemmir fyr-
ir að teymt verður undir
börnum við Árbæinn og bú-
fénaður
bítur
gras úti
í haga.
Klukk-
an 17
verður
svo Bú-
kolla
mjólkuð
og allir
fá að
smakka.