Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1998, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1998, Blaðsíða 14
1 g i k h ú s fjölmiölar Borgarleikhúsiö. Leikféiag Reykjavíkur frumsýnir söng- leikinn Grease í kvöld og má heita ótrúlega gleðilegt fyrir leik- félagið að það erfyrir löngu orðið uppselt. Grease fjallar sem kunnugt er um unglingavanda- málið í Bandaríkjunum á sjötta áratugnum og lýsir í nokkrum léttum söngvum ástum og ör- lögum þeirra Sandy og Danna. Þeir sem ekki hafa áhuga á þes- sari sögu geta farið og séð hvernig hinn íslenski Travolta tekur sig út. Laugardagur 4. júlí. 2. sýning. Sunnudagur 5. júlí. 3. sýning. Fimmtudagur 9. júlí. 4. sýning. íslenska óperan. Carmen Negra. Gagnrýnandi DV sagði þessa sýningu káta en klúra. Fótbolti, ást og kynlíf - kjörin kvöldstund fyrir þá sem hafa enn ekki fengiö nóg af heimsmeist- arakeppninni. í kvöld og á morgun. Krossferðir og kynlíf Síðasta helgi var ekki slæm. Kynlífspistill í Degi, §allað um tippastærð í ríkisútvarpinu, tekið á bognum tippum í nýútkomnu Bleikt og Blátt og fjölskyldumynd fóstudagskvöldsins á RUV var um framhjáhald og sæðisfrumur, kvik- ar sem dauðar. Af þessum var fjöl- skyldumyndin best. Þar eðlaði fólk sig utan á bröttu þaki fimm hæð- um fyrir ofan umferðargötu og krækti aðeins hælum og tám í þak- rennuna. Góðar rennur í Þýska- landi. Kynlífsunnendum býðst meira óbeint kynlíf og þá í tengslum við annað hitamál i þjóðfélaginu (þau eru þrjú, kynlíf, stjómmál og trúar- brögð — eitt nægir til að hleypa upp gölskyldufagnaði). I síðustu Viku er lífsreynslusaga úr Krossin- um þar sem aðaláherslan lendir að vísu á síðum pilsum og óskertu hári, en þó er rétt snert við sam- kynhneigð. An þess að ætla að leg- gja Krossinum eða öðrum rétttrún- aðarmönnum línumar í fatavah þá var það nú þannig að á biblíu- tímunum vom engir klæðskerar, aðeins vefarar sem ófu lengju sem sargað var gat á í miðju. Það var ekki búið að finna upp ermina eða skálmina, hvað þá buxur og skyrt- ur. Ef fatastefna rétttrúaðra væri heilsteypt þá krefðist hún þess að karlmenn gengju líka í pilsum með óskert hár því það var enn annað vandamál biblíufólksins. Það átti ekki bitstál. Khpping og rakstvu- var kvalafuh athöfh. Því aht þetta hárprúða fólk. En trúarbrögð era ekki heil- steypt eða rökrétt og höfundur hverrar hugmyndafræði fyrir sig velur þau atriði sem faha honum í geð og þegir hin í hel. I síðasta tölu- blaði Mannlífs er löng grein mn votta Jehóva sem era mun meiri harðlínutrúarbrögð en Krossinum verða kennd og því sterkara dæmi um hentisemi eins manns í túlkun mesta best-sehers allra tíma, Bibl- íunnar. Greinin um vottana er bet- ur krydduð með kynlífi en lífs- reynslusagan og það er sá flötur hennar sem er notaður á forsíðu blaðsins th að kveikja í kaupand- anum. Þegar inn í blaðið er komið reynist greinin nokkuð ítarleg út- tekt á hugmyndafræði frumkvöðl- anna Russels og Rutherfords og kynlífsfárið aðeins hluti hehdar- innar. Greininni er ekki ætlað að bera blak af vottimum heldur bera blek á þá. Það þarf þó ekki að vera þess vegna sem hún er einhliða, það er að enginn hamingjusamur, sáttur, virkur vottur er beðinn um að segja nokkuð. Fleiri en einn var kannski beðinn en sökum margfenginnar reynslu af hagræðingu orða sinna þar th þau merkja eitthvað aht annað neita vottamir yfirleitt að láta hafa nokkuð eftir sér. Þeir og Chnton vita hvað að þeim snýr. Verkin tala, stendur skrifað. Nú hefur mannkynið notað sömu að- ferð við fjölgun í tugþúsundir ára en hún telst enn fréttnæm. Fáir virðast kunna hana, það er gefið út kennslugagn í henni. Samkvæmt nýafstaðinni könnim era ahir að iðka hana oftar en þeir játa í þröng- um hópi. Tala minna, gera meira! Auður Haralds Sparneytinn og hlaðinn búnaði Aukabúnaður á mynd: Álfelgur Twingo er lipur, nettur og ótrúlega sparneytinn bíll sem eyðir aðeins 5,9 l á hundraði.* Twingo er ríkulega búinn; með útvarpi og kassettutæki, rafmagn í rúðum og speglum, fjarstýrðar samlæsingar, stafrænn hraðamælir og mælaborð o.fl. Twingo er stór að innan, aftursætið er á stillanlegum sleða og það má fella saman. Óvenju stór framrúða gefur mjög gott útsýni. ‘meðaleyðsla á 100 km B&L • Ármúla 13 • sími 575 1220 / 575 1200 RENAULT f Ó k U S 3. júlí 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.