Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1998, Blaðsíða 4
Hrói höttur er kominn til Reykjavíkur. Hann og hyski hans er sest að í
Fjölskyldugarðinum og undirhýr að rétta hlut þeirra sem minna mega
sín á kostnað þeirra sem hafa makað krókinn.
Ætlar að stela aurum,
kvóta og dætrum Halims Al
Það besta, versta, flottasta, ósmekklegasta og fallegasta á
öllum tegundum af fiski sem
Norðmenn eiga og gefa íslensku
þjóðinni hann. Norðmenn eru
hvort sem er svo ríkir að þá mun
ekkert muna um þetta og svo
gætu þeir bara virkjað atvinnu-
lausu sjómennina sína í að fara
grafa upp gullið sem þeir voru að
finna eða til þess að telja alla
peninga ríkissjóðs.
3. Ég myndi fara til Tyrklands og
stela Dagbjörtu og Rúnu, a la
Donald Feeney (nema ég myndi
ekki nást eins og hann !) og koma
þeim heim til mömmu sinnar.
4. Ég myndi ræna öllum stigun-
um af IBV í úrvalsdeildinni í fót-
bolta og gefa KR-ingum þau.
Vestmannaeyingar unnu nefni-
lega deildina í fyrra, síðan fá þeir
Keiko bráðum, þannig að það
væri ekkert hollt fyrir þá að fá
miklu meira í bih. Það veit sá
sem allt veit að við KR-ingar
þurfum á titli að halda. Síðast
þegar íslandsmeistaratitill kom í
Frostaskjólið þá voru enn mörg
ár í gos í Heimaey.
5. Ég myndi stela þessu ótrúlega
fallega sólsetri sem ég er að horfa
á núna út um gluggann minn,
það er eins og það sé að kvikna í
heiðskírum himninum, og með
Snæfellsjökulinn í baksýn eins og
á póstkorti, og gefa konunni
minni það. -BG
Fylgni á sölu
gleöipilla og
skuldum
heimilanna
I Sýnir skuldir heimilanna í milljöröum
30pillurá —
hverja
1000
íbúa
25 -------
Steingrímur Hermannsson seðla-
bankastjóri hefur gert samning um
útgáfu á ævisögunni við Ólaf Ragn-
arsson í Vöku-Helgafelli. Dagur B.
Eggertsson Röskvu-maður mun
skrifa ævisöguna upp eftir Steingrími
— eða það sem hann man. Að sjálf-
sögðu eru einhverjir farnir að velta
fyrir sér hvað Steingrímur muni kalla
bókina. „Kletturinn í hafinu" var
nafngift sem Framsókn dugði vel á
sínum tíma. „Denni dæmalausi" væri
sölulegra og gæfi til kynna að bókin
væri jafnvel skemmtileg. Hins vegar
kom ævisaga Steingríms fyrir í ára-
mótaskaupi fyrir tíu árum eða svo og
þá var hún kölluð: „Ég heiti Stein-
grímur — ég er flón“.
Leikhópurinn Nótt & dagur
mun frumsýna leikritið Hróa
hött í Fjölskyldugarðinum í
næstu viku. Þessi útfærsla verks-
ins er afrakstur spunavinnu
norsks leikhóps sem vann úr
uppnmalega verkinu og er frjáls-
lega farið með söguna og lögð
áhersla á húmorinn. Mikið af
söngvum er í verkinu og er tón-
listin samin af Björgvin Franz,
Gísla Emi og Lindu Asgeirsdótt-
ur. Leikstjóri er Þór Tulinius. DV-
Fókus fór í Skírisskóg íslendinga
í Fjölskyldugarðinum og lagði
þraut fyrir Hróa hött nútímans
(Gunnar Hansson).
Hrói! Frá hvaða tíu myndirðu
stela og hverjum myndirðu
gefa þýfíð?
1. Fyrst ég er nú einu sinni að
fara að leika Hróa hött þá verð ég
að gera eitthvað í anda hans þan-
nig að ég myndi byija á því að
ræna frá ríkum og gefa fátækum.
Þ.e.a.s. það er alltaf talað um að
90% af peningum í heiminum séu
í höndum 10% af mannkyninu.
Ef svo er þá myndi ég stela 80%
af þeim auði og nota hann til þess
að hjálpa nauðstöddum og þurf-
andi í heiminum. Þessi ríku 10%
eiga hvort sem er svo mikinn
pening að þau gætu aldrei eytt
honum þó að þau reyndu það.
Sem sagt stofna Hróa hattar-
sjóðinn eða Gullnu örina eða eitt-
hvað í þeim dúr.
2. Ég myndi ræna öllum kvóta af
ísland
Þegar þú ert á prózak þá líöur þér
vel. Kannski ekki vel en þú ert í þaö
minnsta ánægö meö hvernig þér líö-
ur. Jafnvel þótt þér líði llla. Þá er þaö
ágætt. Þetta er ástæöan fyrir því aö
fólk í fjárhagserfiðleikum, sem er
oröiö þreytt á áhyggjum, tekur
prózak. Og fólk sem er nýskilið, sér
eftir makanum og er aö deyja úr ein-
semd tekur prózak. Því skánar ekk-
ert — en þaö er sáttara viö aö vera
eitt og yfirgefið. Því finnst þaö fínt.
Prózak hækkar sársaukaþröskuld-
inn. Og prózak eykur líka skulda-
þoliö. Sá sem skuldar of mikiö og
þénar of lítiö hefur sklljanlega
áhyggjur. En ef hann tekur prózak
sættir hann sig viö skuldirnar og
lágu tekjurnar. Ef einhver efast um
þessi tengsl mllli prózaks og skulda-
þols ætti sá aö skoöa línuritiö hér aö
ofan. Af því má sjá aö það er beint
samhengi á milli stóraukinnar notk-
unar á prózak og skuldastööu heimil-
anna. Á sama tíma og notkunin
eykst úr 11,64 dagskömmtum á
hverja eitt þúsund íbúa í 28,64 dag-
skammta þá aukast skuldir heimil-
anna úr 289 milljöröum í 386 millj-
aröa. Getur þetta verið tilviljun?
Smekklegustu búningamir: „Það myndu
vera Englendingamir sem voru best klæddir
á vellinum. Það er sérkenni-
legt og fyndið að sjá
knattspyrnumenn í
hvítum búningum,
tákni hreinleika, velt-
ast drulluskítuga um
völhnn. Ef Skotar væru
með hefði ég sett þá í
"mHr fyrsta sætið af því að
þeir klæðast svörtu. Mér líka menn í
svörtu." Filippía Ehsdóttir fatahönn-
uður.
Flottustu leggimir: „Ja, ég kýs að
fara aðeins upp fyrir hné og þar með
lýsi ég yfir hinum svörtu og ómótstæði-
legu lærum á Babayaro. Þau sáust einstak-
lega vel þegar hann datt tveimur mínútum
fyrir leikslok á móti Danmörku sl. sunnudag.
Það var sýnt aftur og aftur, mér til mikillar
ánægju, en ég vona nú samt innilega að hann
hafi ekki meitt sig mikið, þessi elska.“ Brynja
Sverrisdóttir fyrirsæta.
Besti þjóðsöngurinn: „Þjóðsöngur á að
vera tilfinningaríkur svo þjóðin geti vælt í
hvert skipti sem hún heyrir hann. Þess vegna
finnst mér þjóðsöngvar Þýskalands og Eng-
lands standa upp úr. Þeir eru melódískir og
sá enski er fiillur baráttugleði, líkt og franski
þjóðsöngurinn. S-amerísku þjóðsöngvarnir
lenda aftur á móti í neðstu sætunum. Þeir eru
hálfkjánalegir, að minnsta kosti þegar Hður
að endinum á þeim, það er eins og eitthvað
gangi ekki upp með taktinn ..." Birgir Öm
Steinarsson, söngvari MAUS.
Besti leikarinn: „Markmaðurinn Chilavert í
liði Paragvæ. Hann er meira að segja
skemmtilegur leikari, ekki með
neina leiðindastæla eins og að
þykjast detta og meiða sig
voða mikið. Hann sýnir at-
hyglisverða leikræna til-
burði, eins og að hlaupa
fram völhnn og skjóta knett-
inum að marki. Með sínum
sterka karakter tekst honum að
peppa liðið sitt upp á ótrúlegasta máta.“
Gunnar Helgason leikari.
Versti lýsarinn: „Magnús Orri Schram,
sá ungi og reynsluhth maður, verður að
teljast slakastur að þessu sinni. Hann
mun samt á endanum verða sá besti,
nýtur góðs af að eiga besta knattspymu-
afann, fyrrverandi formann KSÍ, Björgvin
Schram. Það var frábær talent.“ Magnús V.
Pétursson, fyrrverandi milliríkjadómari.
Ósmekklegustu búningamir: „Brasilísku
búningamir em ljótastir, hrikalega ósmekk-
lega samansettir hvað liti varðar og eiginlega
bara til skammar. Gulur bolur með smávegis
grænu á og bláar buxur með hvítum röndum.
Gengur ekki.“ Filippía Elísdóttir fatahönnuð-
ur.
Sætasti leikmaðurinn: „Mér finnst Les
Ferdinand í enska hðinu sá sætasti að þessu
sinni. Fyrir utan að vera sterkur leikmaður
er hann sjarmerandi, sterklega byggður og
með fyrirtaksleggi. Ég get samt ekki sagt að
enska liðið sé í heildina fallegt en hollenska
liðið er aftur á móti mjög fagurt á að Hta. Það
vill svo til að ég held með þeim ..." Harpa Rós
Gísladóttir fegurðardrottning.
Besti lýsarinn: „Bjami Felixson er bestur í
þessum bransa. Það er vegna kynna hans af
Sigurði Sigurðssjmi heitnum,
íþróttafréttamanni RÚV
(komiði sæl). Sigurður var
sá besti á sínum tíma og
jjr Bjami hefur leyst hann
af. Hann er alveg frábær,
enda kallaður Rauða ljónið
hér áður fyrr og að auki vel
með á öhum sviðum íþrótta."
Magnús V. Pétursson, fyrrverandi milliríkja-
dómari.
f Ó k U S 3. júlí 1998
4