Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Side 4
matur Argentína ★★★ Barónsstíg lla, s. 551 9555. „Bæjarins besta steikhús hefur dalað. Dýr- ustu og enn þá bestu nautasteikur landsins, en ekki alveg eins innanfeitar og safaríkar og áður.“ Opiö 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar. Einar Ben ★★ Veltusundi 1. 5115090. „Fremur þemahús en veitingahús og leggur meiri áherslu á umbúðir en innihald. Einar Ben. býður yfirleitt ekki uþþ á vondan mat og verður því seint jafn vinsæll og Fashion Café eða Planet Hollywood." Opiö 18-22. Hótel Holt ★★★★★ Bergstaðastræt! 37, s. 552 5700. „Listasafnið á Hótel Holti ber í matargerðarlist af öðrum veitingastofum landsins. Þar fara saman frumlegir réttir og nærfærin mat- reiðsla, sem gerir jafnvel baunir að Ijúfmeti." Opiö 12-14.30 og 19-22.30 V.d., 12-14.30 og 18-22 fd. og Id. Hótel Óðinsvé ★★ v/Óðlnstorg, s. 552 5224. „Stundum gðður matur og stundum ekki, jafn- vel! einni og sömu máltíð." Opiö 12-15 og 18- 23 v.d., 12-15 og 18-23.30 fd. og Id. Ítalía ★★ Laugavegi 11, s. 552 4630. „Eignarhaldiö er ítalskt, kokkarnir eru ítalskir, gæöaþjónustan er hálfítölsk, vel valiö vínið er að mestu ítalskt og tilviljanakenndar veggskreytingarnar eru ítalskar. Þaö, sem tæþast hangir ! ítölskunni, er matreiðslan. Bakaðar kartöflur og amerískar pltsur er ein- kennistákn hennar." Opiö 11:30-11:30. Játvarður, Akureyri ★★★ „Skemmtilega hannaður staður með fínlegri matreiðslu, ef sneitt er hjá fiski, svo og elsku- legri þjónustu sem getur svarað spurningum um matinn." Opiö 11.30-14.00 og 18.00- 22.00. Lauga-ás ★★★★ Laugarásvegi 1, s. 553 1620. „Franskt bistró að íslenskum hætti sem dreg- ur til sin hverfisbúa, sem nenna ekki aö elda í kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og ferða- menn utan að landi og frá útlöndum. Hér koma hvorki uþpar né ímyndarfræðingar." Opiö 11-22 og 11-21 um helgar. Lækjarbrekka ★★ Bankastræti 2, s. 5514430. „Matreiðslan rambar út og suður, góð, fram- bærileg eða vond eftir atvikum. Með annarri hendinni eru gerðar forvitnilegar tilraunir en með hinni er farið eftir verstu hefðum." Opiö md.-mid. 11-23.30, fid.-sd. 11-0.30. Smlöjustíg 6., s. 552 2333. „Gamal-frönsk matreiðsla alla leið yfir ! profiteroles og créme brulée. Mirabelle er komin á gott skriö." Opiö 18-22.30. Naustið O Vesturgötu 6-8, s. 551 7759. „Hamborgarastaður frá þjóðvegi eitt, sem hef- ur rambað á vitlausan stað á notalegar og sögufrægar innréttingar og þykist vera enn fín- ni en Holtið." Opiö 12-14 og 18-01 v.d., 12-14 og 18-03 fd. og Id. Rauðará ★ Rauöarárstíg 37, s. 562 6766. „Túrista-steikhús. Nautasteikin getur verið góð, en hún getur líka verið óæt. Vfirþjónninn er svo önnum kafinn við að vera kammó að hann tekur ekki alvarlega ábendingar um að nautakjöt sé skemmt." Opiö frá kl. 18 og fram eftir kvöldi. Hversu lengi fer eftir aösókn. Skólabrú ★★★ Skólabrú 1, s. 562 4455. „Matreiðslan er fögur og fín, vönduð og létt, en dálltið frosin. Þjónustan er kurteis og hóf- söm." Opiö frá kl. 18 alla daga. Thailand 0 Laugavegi 11, 5518111. „Óvenjuljótur kvöldverðarstaður með fremur dýrum mat, stundum bragðgóðum en oftar grimmilega ofelduðum." Opiö frá kl. 18-23 alla daga. meira á. www.visir.is Margrét Örnólfsdóttir og Sigurjón Sigurðsson (Sjón) vinna nú saman að handriti að söngvamynd í samvinnu við Kvikmyndasjóð Islands sem hefur valið handritið til frekari þróunar með fjármagnsstyrk og aðstoð handritalæknis. Fókus hitti Margréti á Svarta kaffinu og ræddi við hana um handritið. X I I W* mm m ■ / | íiiu Uí oskunm i eldinn „Við vorum eins og barðir harð- fiskar eftir fyrstu heimsókn hand- ritalæknisins," segir Margrét Örn- ólfsdóttir, en handrit hennar og Sig- urjóns Sigurðssonar (Sjóns) var eitt af íjórum sem fengu framhaldsstyrk frá Kvikmyndasjóði til áframhald- andi vinnu í handritinu nú á dögun- um. í janúar voru átta handrit styrkt af Kvikmyndasjóði með þeim hætti að annars vegar fengu þau peningastyrk til að geta skrifað og hins vegar fengu þau tvo fundi með handritalækni frá Bretlandi sem fór í gegnum handritið, gagnrýndi það og kom með ábendingar. Nú á dög- unum fengu siðan fjögur þessara handrita framhaldsstyrk til að vinna enn betur úr verkinu, það voru Margrét Ömólfsdóttir og Sig- urjón Sigurðsson með handritið Regína, María Sigurðardóttir út á Móður snillingsins, Huldar Breið- fiörð fyrir handritið Þegar rafmagn- ið fór af og Óskar Jónasson fyrir handrit sem hefur vinnuheitið SS. „Ég held að þetta form hjá Kvik- myndasjóðnum geri sig mjög vel, ég var mjög efins um þá hugmynd að fá einhvem handritalækni að utan til að koma meö gagnrýni á handritið en fundimir með henni reyndust mjög gagnlegir. Það er ekki víst að þetta henti öllum en það er mjög gott aðhald sem maður fær og hollt fyrir mann að einhver lesi handritið gagnrýnum augum og spyiji um hvert einasta atriði, af hverju er þetta hér? Og þá þýðir ekkert að segja af því bara.“ Hún viðurkennir að margir hafi talið að handritið byggi á Regínu Thorarensen sem Sykurmolarnir sömdu lag og ljóð um á sínum tíma. En svo er ekki. „Regína er dans- og söngvamynd um tíu ára stelpu og vin hennar Pétur sem er 8 ára. Þetta er mynd fyrir alla fjölskylduna. Per- sóna Regínu kom einhvern veginn til mín í fyrra og ég settist niður og skrifaði út frá henni í nokkra tíma og var ekkert fyrirfram ákveðið hvað úr því yrði. Ég sá að þarna var komið efni í mynd svo ég talaði við vin minn Sigurjón sem leist vel á þetta og við rétt náðum að skrifa „Treatment“ áður en fresturinn rann út til umsókna í sjóðinn. Það kom síðan skemmtilega á óvart að við fengum úthlutað úr honum. Við höfum núna haft góðan tíma til að vinna úr þessu og erum nokkuð ánægð með árangurinn," segir Mar- grét Örnólfsdóttir. „Regína er lítil stelpa sem verður fyrir miklum von- brigðum með að komast ekki í sum- arbúðir eins og hinir krakkarnir og ákveður að grípa til sinna ráða. Hún hefur komist að því að söngur henn- ar er svo magnaður að hún getur komið ýmsu áleiðis með honum. Með liðstyrk Péturs, sem er átta ára vinur hennar og er orðsins maður, þá eflist kraftur söngsins. Eitthvað svipað því og gerðist þegar ég fékk liðstyrk Sigurjóns við skriftirnar. Því áður en Sigurjón kom inn í skriftimar var þetta bara skemmti- leg vitleysa. En þau Regína og Pétur lenda síðan í ýmsum ævintýrum sem ég segi ekki frá, fólk verður bara að sjá myndina. Kannski er ég með þessu handriti að koma upp um trú mína á að söngur og listsköpun geti breytt heiminum." Margrét er ekki óvön því að vinna efni fyrir börn, hún vann handritið að „Himinn og jörð“ og „Spékoppurinn" og fleiri þáttum fyr- ir böm á Stöð 2. „Já, maður hefur verið allt í öllu í þessum þáttum og þurft dulbúa sig sem aðra persónu með yflrskegg og fleira svo krakk- amir verði ekki leiðir á manni.“ En þekktust er hún af tónlistariðkun sinni en hún var í hljómsveitinni Sykurmolunum á sínum tíma og hefur einnig samið tónlist fyrir sjón- varp og bíó, eins og til dæmis tón- listina við „Einkalíf ‘ Þráins Bertels- sonar og við stuttmyndina „Slurpur- inn“. Það á því ekki að koma á óvart að tónlist mun spila stóra rullu í þessari bíómynd ef af henni verður. Því eins og kunnugt er getur oft ver- ið þrautin þyngri að fjármagna myndir jafnvel þótt handritið sé gott. „Já, það verður örugglega erfitt, en ég kann ekki á þann hluta,“ segir Margrét. „Gamli Syk- urmola-lögfræðingurinn Tómas Þor- valdsson var einmitt á staðnum þeg- ar okkur var úthlutað fyrsta styrkn- um og hann sagði við mig að ég væri kominn úr öskunni í eldinn að vera komin úr tónlistarbransanum í kvikmyndabransann. En það er víst eitthvert fólk sem sér um svona lag- að. Ég hef heyrt talað um það.“ Þau fjögur handrit sem fengu framhaldsstyrk eru mjög ólík. Hin þrjú voru eins og áður sagði hand- ritið Móðir snillingsins eftir Mariu Sigurðardóttur sem er unnið út frá smásögu frá árinu 1910 eftir Ólöfu frá Hlöðum. Hún fjallar í grófum dráttum um vinnukonu ffá 19. öld sem er frekar óvenjuleg í sinni stétt og i sínu samfélagi. Hún vill ekki giftast en hefur uppi áform um að eignast bam með afburðamanni til að ala af sér snilling. Hún hrindir þessum áformum í framkvæmd en eins og oft verður sigur hennar slunginn harmi. Handrit Huldars Breiðfjörðs er unnið út frá smásögu hans sjálfs, Þegar rafmagnið fór af. Sagan er nútímasaga en sjónhym- ingin er frjó og handritið ekki unn- ið út frá klassískri formbyggingu. Saga Óskars ku vera unnin i svipuð- um stíl og hans fyrri myndir og not- ar hann tækifærið til að þróa sitt bráðfyndna stílbragð. veitingahús Fiðlarinn á þakinu ★★★ Djarfl og gott Lengi lifði Fiðlarinn á þaki Ak- ureyrar á glæsilegu útsýni til þriggja átta og til þeirrar fjórðu af barnum út fjörðinn. Matreiðslan stóð ekki undir háu verði en nú hefur hún batnað. Þjónustan var alltaf góð og er það enn hjá yfír- þjónum en of mikið er treyst á lær- linga. Háir gluggar, viðarloft, glerkúlu- ljós og rauðir litir í teppi, stólum, dúkum og gluggatjöldum, veita virðulegt yfirbragð, sem hangandi píanó og fiðla í lofti hlaða listrænni spennu. Nokkrar gerðir ár- gangspúrtvíns í löngum vínlista gefa í skyn, að hér sé alvara á ferð. Þetta er hæfileg umgerð um 4.450 króna skýjareikning fyrir þríréttað með kaffi. Kjúklingalifrarkæfa var sér- kennilega römm og minnisstæð, með furuhnetum og rúsínum i ed- iksolíu, fyrsta flokks tilraun. Fjórar risahörpuskeljar á trépinna vora bragðlausar út af fyrir sig en skemmtilega kryddaðar sítrónu- grasi, hvítlaukssmjöri og mórillu- sveppum, bornar fram með bragð- miklum hrisgrjónum. Skemmtilegar en ofkeyrðar and- stæður voru í sterklega saffran- og sítrónukryddaðri kræklingasúpu, sem sýndi eins og lifrarkæfan til- þrif og frískleika í eldhúsi. Fiskur er ekki spennandi á mat- seðli, engin breyting frá degi til dags, heldur hefðbundið lágmarks- framboð fjögurra fisktegunda, sem auðveldast er að geyma í frysti, svo sem eldislax og skötusels. Betra er að halla sér að kjötinu á Fiðlaran- um, en fara í Smiðjuna, ef maður vill fisk á Akureyri. „Þjónustan var alltafgóð og er það enn hjá yfirþjónum en ofmikið er treyst á lærlinga.“ Heilsteikt nautalund var meyr og bragðlaus, sennilega úr Hrísey, ekki merkileg út af fyrir sig, en haldið uppi af perlulauk, sveppum og höm að Búrgundarhætti, svo og ágætlega kryddaðri kartöflustöppu. Lambalundir voru bezti réttur staðarins, innbakaðar í ristuðum kartöflum, fallega upp settar í þremur turnum, bomar fram með rósmarínsósu og góðu salati. Þetta var dæmi, sem gekk upp, Stradi- varius Fiðlarans. Eftir risið kom hnig eftirrétt- anna, sem voru eingöngu ísar. Vanilluís með jarðarberjum var vanilluis með jarðarberjum, en maple-ís með sítrónubúðingi og hindberjasósu var sér á parti, fal- legur og hressandi. Jónas Kristjánsson 4 f Ó k U S 24. júlí 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.