Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Síða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998
+
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ1998
17
íþróttir
Blaind I poka
Stigamót Golfsambandsins til
stigameistara karla og kvenna er nú
rúmlega hálfnað.
Stigahœsti golfarinn er Björgvin
Sigurbergsson, GK, með 234 stig.
Stigahœsta konan er Ragnhildur
Sigurðardóttir með 203 stig.
Tiger Woods er stigahœsti
kylfingurinn á lista Alþjóða
golfsambandsins.
Arnar Þór Viöarsson, leikmaður í
Belgíu, spilaöi ekki með liði sínu RC
Genk um helgina þar sem
samkomulag milli Lokeren, fyrrum
félags Amars, og Genk náðist ekki
fyrir leikinn.
Lokeren vill fá góða summu fyrir
Arnar sem Genk vill ekki samþykkja.
Lokeren hefur því kært félagaskiptin.
Leikur ÍBV og FK Oblic fer fram á
Hásteinsvelli í dag kl. 18.
ÍBV þurfti aö fá undanþágu fyrir
þvi að fá leikinn til Eyja þar sem
aðstaða fyrir áhorfendur er ekki
samkvæmt Evrópustöðlum.
ÍBV þurfti aö leggja út talsverðan
kostnað til að fá leikinn en aðstæður
til sjónvarpsútsendinga eru til að
mynda ekki upp á marga fiska i
Eyjum.
KR-ingar hafa ákveðið að semja
ekki við Frakkann Claude Cauvy sem
mætti á æfingu hjá þeim í vikunni.
Cauvy, sem er hér á vegum
umboösmanns, hefur mætt á æfingar
hjá fleiri liðum en KR.
KR-ingar hafa aftur á móti fengið
aftur þá Eið Smára Guðjohnsen og
Kristján Finnbogason.
Helga Torfadóttir og Hrafnhildur
Skúladóttir munu leika með sænska
1. deildar liðinu Bryne á næsta
tímabili.
Bryne er undir stjórn þjálfarans
Einars Guðmundssonar og stóð liðið
sig vel á síðasta ári og seldi meðal
annars tvær stúlkur í úrvalsdeild.
Mario Zagallo, sem þjálfaði lið
Brasilíu í heimsmeistarakeppninni
hefur ásamt fylgdarliöi sínu verið
rekinn.
Zagallo sigraði fjórum sinnum í
heimsmeistarakeppninni, tvisvar
sem leikmaöur og tvisvar sem
þjálfari.
Zagallo á aó baki 148 leiki sem
þjálfari, þar af eru 107 sigrar, 29
jafntefli og aðeins 12 töp.
/ einum af U.S. 500 kappakstrinum 1
Bandaríkjunum klessti einn bílanna
kröftuglega á vegg með þeim
afleiðingum að hlutar bílsins hentust
í allar áttir og þar á meðal upp í
áhorfendastúku.
Þrír áhorfendur létu lífið er þeir
fengu hjól og aðra hluti f sig og sex
aðrir særðust.
Bandariska ökusambandiö skoðar
nú hvort ekki þurfi að auka öryggi
áhorfenda 1 kappaksturskeppnum.
Dennis Mitchell spretthlaupari og
Randy Bames kúluvarpari eru tvær
af stórstjörnum bandarísku
fijálsfþróttanna.
Þeir voru settir i keppnisbann vegna
lyfjamisnotkunar er sýni sem tekin
voru úr þeim innihéldu ólögleg lyf.
Banniö stendur yfir meðan unnið er
úr seinni sýnum frá þeim, en hin
fyrri innihéldu ólögleg lyf.
Luis Aragones hefur sagt upp sem
þjálfari 1. deildar liðs Real Betis á
Spáni. Aragones sagði upp af
persónulegum ástæðum.
Aragones er annar þjálfarinn til að
hætta á Spáni þvl Jose Antonio
Camacho hætti þjálfun Real Madrid
vegna ósamkomulags.
Roger Lemerre hefur verið ráðinn
þjálfari heimsmeistara Frakka í
knattspymu. Lemerre var
aðstoðarmaður Aime Jacquet sem
leiddi Frakka til sigurs á
heimsmeistaramótinu.
Paul Gascoigne spilaói mjög vel
fyrir Middlesboro i 1-1 jafntefli við
Stockport í fyrsta leiknum á
undirbúningstimabilinu.
Gascoigne virtist í góðu formi,
spilaði boltanum vel og var allt í öllu
í spili liðsins.
-ÍBE/ÓÓJ
Sóknarþungi
Víkinganna
- skilaöi aöeins einu stigi til liðsins
1-0 Boban Ristic (17.)
1-1 Sumarliði Ámason (22. víti)
1- 2 Hólmsteinn Jónasson (31.)
2- 2 Boban Ristic (65. víti)
Það hefur fylgt Víkingum í sumar
að nýta ekki færin og svo var einnig
í gær þegar þeir gerðu 2-2 jafntefli
við KVA á Eskifírði.
Heimamenn þyrjuðu betur en
annars fór leikurinn rólega af stað á
meðan Austfjaröaþokan færðist inn
Eskifjörðinn. Víkingar svöruðu með
tveimur mörkum á 9 mínútum og
það seinna gerði Hólmsteinn Jónas-
son mjög glæsilega með þrumuskoti
af um 20 metra færi.
KVA datt aftur á völlinn eftir að
komast yfir og sóknarpressa Vík-
inga var mikil. Baráttuna vantaði
ekki í lið KVA sem hefur komið
einna mest á óvart í deildinni í sum-
ar.
Þegar þeim þótti nóg um pressu
Víkinga náður þeir skyndisókn og
fiskuðu víti þar sem Boban Ristic,
einn af bestu mönnum þeirra, skor-
aði sitt annað mark.
Flestir heimamenn vörpuðu önd-
inni léttar þegar dómarinn flautaði
leikinn af og eitt stig var í höfn.
Víkingar áttu mörg hættuleg mark-
tækifæri og gerðu oft harða hríð að
marki heimamanna.
Markvörður KVA, Róbert Gunn-
arsson, var betri en enginn í þess-
um leik og besti maður leiksins.
Maður leiksins: Róbert Gunnars-
son, KVA -ÞH
„Stoppuðum í götin"
- þriöja 1-0 tap Stjörnunnar í röð
1-0 Davið Garðarsson (53.)
KA-menn mættu Stjörnunni í
gærkvöld. KA-menn mættu með til
leiks Skotann Gregg Hood sem er til
reynslu hjá þeim. Hann var aftastur
KA-manna og stóð sig með prýði.
KA-vörnin var sterk allan leikinn
og náðu Stjörnumenn ekki neinu
færi sem getur talist hættulegt.
Knattspyma KA-manna i sumar
hefur ekki verið verið góð í fagur-
fræðilegum skilningi og í gærkvöld
varð engin breyting á. Það var ekki
fyrr en undir lokin að menn fóm að
hafa gaman af leiknum. Stjörnu-
menn hafa örugglega spilað betur í
sumar heldur en þeir gerðu á móti
KA. Það var alveg sama hvað
Stjömumenn reyndu að gera það
bara tókst ekki neitt.
„Það er allt annað að sjá til okkar
núna. Við erum famir að stoppa í
þessi göt í vörninni," sagði Eggert
Sigmundsson, fyrirliði KA. Að-
spurður hvort þeir væra sloppnir
við fall sagði hann: „Já, ég held það.
Við erum að berjast við að fara upp
núna.“
Maður leiksins: Magnús Sig-
urðsson, KA -JJ
Upprisa Skallagríms
- sem sneri stöðunni úr 1-3 í 4-3
0-1. Þórhallur Jónsson (5.)
1- l.Villý Þ Ólafsson (13.)
2- 1. Villý Þ Ólafsson (15.) víti
3- l.Guömuundur Gislason (56.)
3-2. Valdimar K Sigurðsson. (59.)
3-3. Valdimar K Sigurðsson (68. víti)
3-4. Freyr Bjarnason 82.)
Skallagrímsmenn unnu mikil-
vægan sigur í gærkvöld. Með sigrin-
um forðuðu þeir sér frá því að lenda
í fallbaráttu sumar. Leikurinn var
hin besta skemmtun frá upphafi til
enda og vora alls sjö mörk skoruð.
Fyrsta markið í leiknum var glæsi-
mark sem var skorað af 40 metra
færi í slána og inn. Skallagríms-
menn náðu forastu með því marki
en HK-menn fóra strax í sókn og
fengu tvö góð færi áður en þeir
náðu að jafna og komast síðan yfir.
Eftir það sóttu bæði lið af krafti og
hugsuðu lítið um varnarleikinn.
Bæði lið fengu fjölda færa sem höfn-
uðu í tréverkinu eða misfórast á
annan hátt. Heldur datt hraðinn nið-
ur i seinni hálfleik og Skallgríms-
menn nýttu sér ákefð heimamanna
með vel útfærðum skyndisóknum.
Kjartan Máson, þjálfari HK, sagði
eftir leikinn að dómarinn hefði veitt
gestunum ódýrt viti sem þeir jöfn-
uðu úr og að úthaldsleysi leikmanna
væri mjög slæmt því þeir hefðu að-
eins náð að halda annan hálfleikinn
út.
Valdimar K. Sigurðsson var besti
leikmaður Skallagríms ásamt Þór-
halli Jónssyni. Hjá HK bar mest á
ívari Jónssyni og Villý Þ. Ólafssyni.
Maður leiksins: Valdimar K.
Sigurðsson. -BB
Goð afmælisgjóf til
Péturs, þiálfara FH
1- 0 Hörður Magnússon (38.)
2- 0 Brynjar Gestsson (55.)
3- 0 Guðmundur Sævarsson (57.)
Leikmenn FH færðu þjálfara sín-
um, Pétri Ormslev, góða afmælis-
gjöf í gærkvöld. Pétur, sem hélt upp
á 40 ára afmæli sitt, sá leikmenn
sína vinna öraggan 3-0 sigur og
með honum era FH-ingar komnir í
bullandi baráttu um 2. sætið í deild-
inni eftir að hafa unnið fjóra leiki í
röð.
Leikurinn fór hægt af stað en eft-
ir að Þórsarinn Jóhann Þórhallsson
misnotaði gott tækifæri á 25. mín-
útu náðu heimamenn smátt og
smátt tökum á leiknum.
Hörður Magnússon kom FH-ing-
um yfir í fyrri hálfleik með snotru
marki og tvö mörk FH-inga með
tveggja minútna millibili í upphafi
síðari hálfleiksins reyndust banabiti
norðanmanna.
í liði FH er sjálfstraustið heldur
betur komið i mannskapinn og var
Hörður Magnússon mjög sprækur í
fremstu víglínu, Davíð Ólafsson
gerði marga góða hluti og Daði Lár-
usson var öryggið uppmálað í mark-
inu. Handboltakappinn Heiðmar Fel-
ixsson var langbestur i liði Þórs sem
er komið með annan fótinn í 2. deild.
Maður leiksins: Hörður Magn-
ússon, FH. -GH
Falur Harðarson átti mjög góöan leik gegn Finnurr í gærkvöld og skoraði 22 stig. Fyrsti sigur íslands gegn Finnlandi í 17 ár
í körfuknattleik karla.
ÚRVALSP. KV.
Valur 9 9 0 0 38-6 27
KR 9 8 0 1 40-3 24
Breiðablik 9 5 2 2 19-9 17
ÍBV 9 3 2 4 17-20 11
Stjarnan 9 3 1 5 14-19 10
Fjölnir 9 2 0 7 3-30 6
ÍA 9 1 2 6 7-22 5
Haukar 9 1 1 7 3-32 4
Markahœstar:
Olga Færseth, KR..................17
Ásgerður Ingibergsdóttir, Val . . 12
Laufey Ólafsdóttir, Val...........12
Ásthildur Helgadóttir, KR..........9
Helena Ólafsdóttir, KR ........... 7
Bergþóra Laxdal, Val ..............6
Kristrún Daðadóttir, Breiðabliki . 6
Erla Hendriksdóttir, Breiðabliki . . 5
[£») 1. DEILD KARLA
Breiðablik 11 9 0 2 22-9 27
Víkingur 11 6 3 2 17-12 21
FH 11 6 1 4 18-12 19
KVA 11 5 3 3 16-11 18
Fylkir 11 5 2 4 17-15 17
Skallagr. 11 4 3 4 19-18 15
KA 11 4 3 4 13-14 15
Stjarnan 11 3 4 4 8-11 13
Þór 11 1 2 8 9-18 5
HK 11 1 1 9 15-34 4
Markahœstir:
Atli Kristjánsson, Breiðabliki .... 7
Hörður Magnússon, FH .............6
Valdimar K. Sigurðsson, Skallagr. 6
Boban Ristic, KVA.................5
Hjörtur Hjartarsson, Skallagr. ... 5
Steindór Elíson, HK...............5
Brynjar Gestsson, FH..............5
Sumarliöi Ámason, Víkingi........5
Norðurlandamótið í körfuknattleik karla í Danmörku:
- fyrsti sigur íslendinga
Islenska landsliðið í
körfuknattleik vann í gær
sögulegan sigur á liði Finna á
Norðurlandamótinu sem fram
fer í Danmörku.
Lokatölur urðu 68-65 en
staðan í leikhléi var 36-31,
íslandi í vil. Þetta var annar
sigur okkar á Finnum í
körfuknattleik karla frá upp-
hafi. Fyrri sigurinn vannst
árið 1981 í Keflavík en þá sigr-
aði ísland með tveggja stiga
mun.
Það var fyrst og fremst
sterkur varnarleikur, skyn-
semi og mjög góð hittni sem
skóp sigur íslenska liðsins.
Litlu munaði þó í lokin að
okkar menn misstu gott for-
skot í tapaðan leik. Island var
10 stigum yfir, 66-56, en Finn-
um tókst að minnka muninn í
aðeins eitt stig, 66-65. Það var
Herbert Arnarson sem
tryggði íslenskan sigur með
tveimur öraggum vítaskotum
þegar aðeins 22 sekúndur
byrjun
á liði Finna síðan í Keflavík árið 1981
vora eftir. Þriggja stiga skot
Finna í blálokin missti marks
og íslendingar fögnuðu góð-
um sigri.
Frábær hittni Fals og
Helga Jónasar
Helgi Jónas Guðfmnsson og
Falur Harðarson áttu frábær-
an leik og hittu mjög vel allan
leikinn. Guðmundur Braga-
son og Friðrik Stefánsson
léku einnig mjög vel í vöm-
inni. Þá var Herbert Arnarson
mjög ógnandi í sókninni og
traustur i varnarleiknum.
Finnar hafa sterku liði á að
skipa og með liðinu leikur
miðherji, Hanno Möttöla, sem
er 2,08 metrar á hæð. Hann
hefur leikið með háskólaliði
Utah sem komst í undanúrslit
háskólakeppninnar í Banda-
ríkjunum sl. vetur. Guðmundi
og Friðrik tókst að stöðva
hann lengst af en hann var
stigahæstur Finna með 16 stig.
Sigurinn gegn Finnum lof-
ar góðu um framhaldið en erf-
iður leikur bíður íslenska
liðsins í dag. Þá verður leikið
gegn Svíum en þeir sátu yfir í
gær.
Stig íslands:
Helgi Jónas Guðfinnsson
22, Falur Harðarson 19, Guð-
mundur Bragason 12, Herbert
Arnarson 8, Hermann Hauks-
son 3, Guðjón 2 og Friðrik 2.
-SK/-BL
Sigurður Grétarsson, þjálfari Blika var í banni í gær og varð að fylgjast
með af pöllunum. Hann lifði sig vel inn í leikinn. DV-mynd Hilmar
Úrvalsdeildin, hér
koma Blikarnir
0-1 Atli Kristjánsson (22.)
0-2 Kjartan Einarsson (63.)
0-3 Atli Kristjánsson (73.)
Breiðablik vann sinn sjötta deildarleik í
röð er liðið lagði Fylki, 3-0, á útivelli í gær-
kvöld. Um leið unnu Blikar sinn 9. sigur-
leik í röð því þrír bikarsigrar á þessum
tíma hafa skilað liðinu í undanúrslit bikars-
ins.
Breiðablik er nú komið með 6 stiga for-
skot á liðið í öðru sæti og 8 stiga forskot á
liðið í 3. sæti og geta Kópavogsbúar farið að
búa sig undir að hýsa efstudeildarleiki að
nýju næsta sumar. Þeir nýttu færin vel í
gær en leikur Breiðabliks var áberandi
markvissari en leikur Fylkis sem á við
sannkallaðan heimavallarskrekk að stríða.
Fylkismenn hafa aðeins unnið 2 af 6
heimaleikjum en 3 af 4 leikjum á útivelli.
Atli Kristjánsson lék með Blikum að nýju
eftir meiðsli sem hann hlaut í bikarleik
gegn Fylki á dögunum og var þeirra besti
maður. Atli er nú markahæstur í deildinni
með 7 mörk í 9 leikjum. -ÓÓJ
t
>
Meistaradeild kvenna í knattspyrnu:
Valsstúlkur
ósigraðar
- en KR fylgir þeim fast eftir
Valur heldur forystu sinni í efstu
deild kvenna en 9. umferð lauk í
gærkvöldi með þremur leikjum.
Einvígi Vals og KR heldur áfram en
markatalan batnaði til muna hjá
KR-stúlkum þó svo að þær skorti
þrjú stig til að standa jafnfætis
Valsstúlkum.
í Garðabæ tók Stjarnan á móti
Val. Leikurinn fór rólega af stað en
smá saman náði Valur tökum á
leiknum og eftir nokkrar þungar
sóknarlotur skoraði Laufey Ólafs-
dóttir frábært mark með þrumu-
skoti af 27 metra færi, í þverslána
og inn. Stórkostlegt mark sem án
efa er eitt það glæsilegasta í sumar.
Valur bætti við öðru marki þegar
nokkuð var komið fram yfir venju-
legan leiktíma í fyrri hálfleiknum
en þá skoraði Ásgerður Ingibergs-
dóttir með hælspyrnu úr markteig
eftir góða sendingu Laufeyjar.
Þrátt fyrir nokkrar ágætar sóknir
beggja liða í síðari hálfleik tókst
hvorugu liðinu að bæta við marki
og fögnuðu Valsstúlkur þremur dýr-
mætum stigum.
Laufey Ólafsdóttir og Ásgerður
léku best í liði Vals en hjá Stjöm-
unni átti María Ágústsdóttir mark-
vörður frábæran leik.
Fyrsti sigur Hauka
í Grafarvogi fékk Fjölnir Hauka í
heimsókn í botnslag deildarinnar.
Haukarnir tryggðu sér sigurim
með marki frá Ragnhildi Ágústs-
dóttur skömmu fyrir leikslok. Sig-
urinn var hinn fyrsti hjá Haukuni í
sumar en hann dugði þeim þó ekki
til að komast úr botnsæti deildar-
innar þar sem þær eru með 4 stig
Stórsigur KR
KR vann stórsigur á ÍA í Frosta-
skjóli, 6-0. Olga Færseth skoraii
sína fjórðu þrennu í sumar, Ásthiid-
ur Helgadóttir og Ragna Lóa Stef-
ánsdóttir gerðu sitt markið hvor en
eitt marka ÍA var sjálfsmark. Staö-
an í hálfleik var 4-0 fyrir KR.
Með sigrinum lagaði KR marka-
tölu sína nokkuð en liðið hefur rú
37 mörk i plús en Valsstúlkur hafa
gert 32 mörk. -ih
Iþróttir
Biand í
Hinn sœnski Jesper Blomqvist er nú
kominn yfir í Manchester United frá *
Parma.
Blomquist sagðist heföu viljað vera
áfram hjá Parma í stað þess að fara
til Manchester. Hins vegar höfðu
þjálfarar Parma ekki not fyrir hann.
Manchester United er nú í æfinga-
ferö um Noreg og keppir þar þrjá æf-
ingaleiki.
Fyrsti leikur United fór fram í gær á
móti Valerenga í Ósló og endaði leik-
urinn 2-2.
Roy Keane spilaði í fyrsta skiptið
meö United eftir meiðsin sem hann
er aö ná sér eftir.
Keane þarf enn aö bíða eftir að kom-
ast í sitt gamla form. Lítið bar á hon-
um í leiknum og fyrir utan gult
spjald sem hann fékk setti hann ekki
mark á leikinn og var því tekinn út af
í hálfleik.
BrϚurnir Frank og Ronald De
Boer vilja losna frá Ajax, en þeir eru
báðir samningsbundnir til ársins
2004.
Barcelona hefur lýst yfir miklum
áhuga á að fá Frank 1 sínar herbúðir.
Arsenal hefur mikinn áhuga á
Ronald.
Þrátt fyrir þaö sagöi Arsene Wen-
ger, framkvæmdastjóri Arsenal, að
hann vildi ekki að Ronald brytist
undan samningi hjá Ajax.
„Hver er þá tilgangur samnings?"
spurði Wenger sem sagði jafnframt
að knattspyrnan í heiminum væri í
hættu ef bræðurnir brytust undan
samningi og settu þannig fordæmi.
NM í körfu:
Óánægja með
aðbúnaðinn
Hart barist um boitann í leik Fjölnis og Hauka í gær.
DV-mynd Hilmar
„Sætur og lang-
þráður sigur"
„Fyrirfi'am var alls ekki búist
við sigri okkar enda hafði okkur
aðeins einu sinni tekist að sigra
Finna fyrir leikinn. Þess vegna
var þetta sætur og langþráður sig-
ur,“ sagði Jón Kr. Gíslason, lands-
liðsþjálfari í körfuknattleik, eftir
sigurinn gegn Finnum í gærkvöld.
„Þessi sigur er góður fyrir
sjálfstraustið og framhaldið á mót-
inu. Við ákváðum fyrir mótið að
taka einn leik fyrir í einu og við
munum halda því áfram. Leikur
okkar gegn Svíum verður mjög
erfiður. Þeir sátu yfir í dag og okk-
ur tókst ekki að sjá þá leika. Við
reynum að vinna úr því eins og
við gerðum fyrir leikinn gegn
Finnum,“ sagði Jón Kr.
„Létti mikið þegar síðara
skotið fór rétta leið“
„Einþeitingin magnaðist veru-
lega á vítalínunni í lokin. Það var
gaman að fá tækifæri til þess afl
tryggja okkur sigurinn og mér
létti verulega þegar ég sá síðara
skotið fara rétta leið,“ sagði Her
bert Arnarson sem tryggði íslensk
an sigur með vítaskotum þegar 22
sekúndur voru eftir.
„Ég er mjög ánægður með að
við skyldum halda haus þrátt fyr
ir bakslag í leik okkar í lokin
Vörn okkar var góð, 65 stigir
þeirra sýna það. Þeir pökkuðu vel
inn í teig og við þurftum ekki að
hafa áhyggjur af skyttum þeirra
Þeir áttu ekkert svar við mjög góð
um leik þeirra Helga Jónasar Guð
finnssonar og Fals Harðarsonar
sem hittu mjög vel. Það hefur ofi
vantað herslumuninn hjá okkur í
jöfnum leikjum en nú tókst okkur
að klára verkefnið og sigurinn var
mjög góður og sanngjarn,“ sagði
Herbert Arnarson.
-SK/-BI
íslenska landsliðið dvel-
ur í dapurri heimavist á
meðan á Norðurlanda-
mótinu í körfu-knattleik
karla stendur í Dan-
mörku.
Öll lið mótsins dvelja á
heimavistinni sem þyk-
ir ekki boðleg. Hafa for-
ráðamenn liðanna hótað
að hætta þátttöku ef
ekki verður gripið í
taumana og aðstæður
gerðar viðunandi.
Þrír leikmenn sem
léku með finnska liðinu
í gærkvöld leika með
bandarískum háskólum.
Sex leikmenn í finnska
liðinu eru yfir tveir
metrar á hæð.
íslenska liðið skoraði
10 þriggja stiga körfur
gegn Finnum en Finnar
5. ísland var með 45% nýtingu en
Finnar 33%.
Heildarhittni beggja liða var
42%.
Vítanýting íslands var 84%,
Finnlands 75%.
ísland tók 8 sóknarfráköst,
Finnar aðeins 4.
-SK/-BL
100 markið
hjá Olgu
Olga Færseth skoraði sína
fjórðu þrennu í sumar gegn
Skagastúlkum í gær og um leið
og hún skoraði sitt annað mark í
leiknum varð hún fjórða íslenska
knattspyrnukonan til að skora
100 deildarmörk. Olga hefur nú
skorað 101 mark í 79 efstu deild-
arleikjum, 56 fyrir KR og 45 fyrir
Breiðablik. -ÓÓJ
Ikvöld
Úrvalsdeildin í knattspyrnu:
Þróttur-Valur..............20.00
Evrópukeppni:
ÍBV-FK Obilic..............18.00
Zhalgiris-ÍA....................
Norðurlandamótið í körfubolta:
Ísland-Svíþjóð.............20.00
►
♦
*
l
*
i