Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 Sviðsljós Blæs á gagnrýni Matts Damons Leikkonunni Minnie Driver er legið á hálsi fyrir að hafa farið i roknafýlu þegar fyrrum unnusti hennar og mótleikari, Matt Damon, fékk óskarsverðlaun í vor fyrir handritið að myndinni Good Will Hunting. Minnie lék í þeirri ágætu mynd og var einnig útnefnd til óskarsverðlauna. Minnie blæs á gagnrýnina sem hún telur runna undan rifjum Matts og bætir við að smekkleysi drengsins hafi tekið út yfir allan þjófabálk þegar hann valdi æsispjallþátt Opruh til þess að básúna um aö sambandi þeirra væri lokið. Ekkert er nýtt undir sólinni: Cindy rífur aftur af sér spjarimar fyrir Playboy Bandaríska ofurfyrirsætan Cindy Crawford getur ekki verið minni maður en íslensku Playboy-stúlk- urnar. Og í Playboy skal hún. Alls nakin. Eða svona næstum því. Já, Cindy hefur ákveðið að halda upp á nýafstaðna hjónavígslu sína og næturklúbbagosans Randes Ger- bers með því að sitja fyrir á Evu- klæðunum hjá ljósmyndurum karla- blaðsins víðfræga. Sjónvarpskonan Jeanne Wolf skýrði frá því í vikunni að myndim- ar af Cindy mundu prýða október- hefti Playboy. Það fylgdi sögunni að búist er við gríðarlegri eftirspurn eftir ritinu, þótt varla verði hún jafnmikil og eftir íslenska heftinu hér heima, ef miðað er við höfða- tölu. Cindy Crawford verður nakin í októ- berhefti Playboy. Það er sosum ekkert nýtt að Cindy sitji nakin fyrir á síöum Play- boy. Hún gerði það fyrir um áratug og varð þar með fyrsta ofurfyrirsæt- an til að afhjúpa englakroppinn. Uppátækið vakti ekki alls staðar jafnmikla hrifningu. „Ég missti nokkur verkefni strax eftir að ég sat fyrir hjá Playboy," segir Cindy sæta í viðtali fyrir mörgum árum. „Fullt af litlum gömlum kellingum í heimabænum voru æstar út af þessu og skömm- uðu pabba og mömmu. En það muna allir eftir myndunum." Það er hinn frægi ljósmyndari Herb Ritts sem fékk að smella myndunum af Cindy. Hún lofar því að þær verði góðar. Margur gæti spurt sig hvað þessi glæsilega nýgifta stúlka sé að vilja að sitja allsber fyrir. Svarið virðist hins vegar liggja í augum uppi. Einmitt um það leyti sem Playboy- ritið kemur út verður sýndur þáttur sem Cindy hefur gert fyrir ABC sjónvarpsstöðina. Þátturinn heitir að sjálfsögðu Kynlíf með Cindy Crawford eins og þegar hefur verið skýrt frá á þessum vettvangi. Ekki ætlar Cindy nú að taka þátt í neinum kynlífsleikjum í beinni, heldur er ætlunin að ræða kynlíf og kynlífshegðan Ameríkana frá öllum hugsanlegum hliðum. Cindy gerir sér sem sé vonir um að myndirnar í Playboy verði til þess að áhorfendur flykkist að sjón- varpsskjánum. Hún sér alla vega ekki eftir neinu. www.visir.is Smelltu þér inn á vísir.is, svaraðu nokkrum laufléttum spurningum og þú gætir unnið miða á sérstaka forsýningu kvikmyndarinnar Sliding Doors næstkomandi fimmtudag kl. 19.00 í Laugarásbíói. Tom Hanks stiilir sér upp ásamt eiginkonu sinni, Ritu Wilson, eftir að hafa sett fót- og handarför sín í gangstétt fræga fólksins í Hollywood. Tom Hanks er sjálfsagt vel að heiðrinum kominn enda ekki annaö aö sjá en hann sé yfir sig giaöur. Símamynd Reuter Langur laugardagur í miðborg Reykjavíkur Kaupmenn, veitingamenn og aðrir þjónustuaðilar í miðborginni, athugið: i Næsti langi laugardagur er 8. ágúst. Þeim sem vilja tryggja sér pláss fyrir auglýsingu í DV föstudaginn 7. ágúst er bent á ab hafa samband við Sigurð Hannesson sem fyrst í síma 550 5728. glýsingar þurfa áb berast fyrir kl. 1 é# 4. ágúst 1998. r. W M Til hamingju með nýjan Laugaveg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.