Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Qupperneq 18
18
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998
Sviðsljós
Blæs á gagnrýni
Matts Damons
Leikkonunni Minnie Driver er
legið á hálsi fyrir að hafa farið i
roknafýlu þegar fyrrum unnusti
hennar og mótleikari, Matt
Damon, fékk óskarsverðlaun í
vor fyrir handritið að myndinni
Good Will Hunting. Minnie lék í
þeirri ágætu mynd og var einnig
útnefnd til óskarsverðlauna.
Minnie blæs á gagnrýnina
sem hún telur runna undan
rifjum Matts og bætir við að
smekkleysi drengsins hafi tekið
út yfir allan þjófabálk þegar
hann valdi æsispjallþátt Opruh
til þess að básúna um aö
sambandi þeirra væri lokið.
Ekkert er nýtt undir sólinni:
Cindy rífur aftur af sér
spjarimar fyrir Playboy
Bandaríska ofurfyrirsætan Cindy
Crawford getur ekki verið minni
maður en íslensku Playboy-stúlk-
urnar. Og í Playboy skal hún. Alls
nakin. Eða svona næstum því.
Já, Cindy hefur ákveðið að halda
upp á nýafstaðna hjónavígslu sína
og næturklúbbagosans Randes Ger-
bers með því að sitja fyrir á Evu-
klæðunum hjá ljósmyndurum karla-
blaðsins víðfræga.
Sjónvarpskonan Jeanne Wolf
skýrði frá því í vikunni að myndim-
ar af Cindy mundu prýða október-
hefti Playboy. Það fylgdi sögunni að
búist er við gríðarlegri eftirspurn
eftir ritinu, þótt varla verði hún
jafnmikil og eftir íslenska heftinu
hér heima, ef miðað er við höfða-
tölu.
Cindy Crawford verður nakin í októ-
berhefti Playboy.
Það er sosum ekkert nýtt að
Cindy sitji nakin fyrir á síöum Play-
boy. Hún gerði það fyrir um áratug
og varð þar með fyrsta ofurfyrirsæt-
an til að afhjúpa englakroppinn.
Uppátækið vakti ekki alls staðar
jafnmikla hrifningu.
„Ég missti nokkur verkefni strax
eftir að ég sat fyrir hjá Playboy,"
segir Cindy sæta í viðtali fyrir
mörgum árum. „Fullt af litlum
gömlum kellingum í heimabænum
voru æstar út af þessu og skömm-
uðu pabba og mömmu. En það
muna allir eftir myndunum."
Það er hinn frægi ljósmyndari
Herb Ritts sem fékk að smella
myndunum af Cindy. Hún lofar því
að þær verði góðar.
Margur gæti spurt sig hvað þessi
glæsilega nýgifta stúlka sé að vilja
að sitja allsber fyrir. Svarið virðist
hins vegar liggja í augum uppi.
Einmitt um það leyti sem Playboy-
ritið kemur út verður sýndur þáttur
sem Cindy hefur gert fyrir ABC
sjónvarpsstöðina. Þátturinn heitir
að sjálfsögðu Kynlíf með Cindy
Crawford eins og þegar hefur verið
skýrt frá á þessum vettvangi.
Ekki ætlar Cindy nú að taka þátt
í neinum kynlífsleikjum í beinni,
heldur er ætlunin að ræða kynlíf og
kynlífshegðan Ameríkana frá öllum
hugsanlegum hliðum.
Cindy gerir sér sem sé vonir um
að myndirnar í Playboy verði til
þess að áhorfendur flykkist að sjón-
varpsskjánum. Hún sér alla vega
ekki eftir neinu.
www.visir.is
Smelltu þér inn á vísir.is, svaraðu nokkrum laufléttum
spurningum og þú gætir unnið miða á sérstaka
forsýningu kvikmyndarinnar Sliding Doors
næstkomandi fimmtudag kl. 19.00 í Laugarásbíói.
Tom Hanks stiilir sér upp ásamt eiginkonu sinni, Ritu Wilson, eftir að hafa
sett fót- og handarför sín í gangstétt fræga fólksins í Hollywood. Tom Hanks
er sjálfsagt vel að heiðrinum kominn enda ekki annaö aö sjá en hann sé yfir
sig giaöur. Símamynd Reuter
Langur laugardagur í miðborg Reykjavíkur
Kaupmenn, veitingamenn og aðrir þjónustuaðilar í miðborginni, athugið:
i
Næsti langi laugardagur er 8. ágúst.
Þeim sem vilja tryggja sér pláss fyrir auglýsingu
í DV föstudaginn 7. ágúst er bent á ab hafa
samband við Sigurð Hannesson sem fyrst
í síma 550 5728.
glýsingar þurfa áb
berast fyrir kl. 1
é#
4. ágúst 1998.
r.
W M
Til hamingju með nýjan Laugaveg